Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 52
SKOÐUN
52 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BRJÓSTAKRABBAMEIN er
algengasta krabbamein hjá konum
(um 30% þeirra). Árin
1998–2002 greindust
að meðaltali 163 kon-
ur árlega á Íslandi
með slík mein. For-
varnaraðgerðir til að
draga úr dánartíðni
sjúkdómsins eru því
afar mikilvægar.
Röntgenmyndataka
af brjóstum er eina
aðferðin sem við-
urkennd er af
Aþjóðaheilbrigð-
ismálastofnuninni
(WHO), og er hópleit
með henni beitt víða
um heim.
Á nýafstöðnu
fræðsluþingi lækna í
Reykjavík, Lækna-
dögum, fullyrti for-
stjóri Nordic Coch-
rane Centre í
Kaupmannahöfn að
rannsókn stofnunar-
innar hefði leitt í ljós
að slík leit leiddi til
óásættanlegrar of-
greiningar og hefði
engin áhrif á að bæta
lífslíkur kvenna. Hann sagði konur
illa upplýstar um afleiðingar hóp-
leitar og taldi ekki ástæðu til að
hvetja þær til að sinna boðun til
hennar. Ekki kom fram að hann
tæki tillit til nýlegra niðurstaðna
tveggja virtra stofnana (WHO og
Forvarnastofnunar Bandaríkj-
anna) og tveggja nýrra sænskra
rannsókna. Allar staðfestu þær
gildi hópleitar til
lækkunar dánartíðni
úr brjóstakrabba-
meini.
Skemmst er frá að
segja, að heilbrigð-
isyfirvöld í öðrum
löndum hafa ekki
breytt um stefnu
varðandi hópleit með
brjóstamyndatöku
vegna ofangreindrar
gagnrýni. Leitin nær
til sífellt fleiri landa,
og milljónir kvenna í
a.m.k. 25 löndum
(Bandaríkjunum, öll-
um Norðurlöndum og
flestum öðrum lönd-
um Vestur-Evrópu og
Ástralíu) fara nú
reglulega í slíka rann-
sókn.
Þar sem gagnrýn-
inni hefur verið vand-
lega svarað á al-
þjóðavettvangi,
verður hér ekki farið í
saumana á forsendum
hennar heldur reynt
að upplýsa almenning
um tilgang hópleitar með brjósta-
myndatöku, framkvæmd hennar
og mat á árangri hér á landi.
Markmið leitarinnar er að lækka
dánartíðni af völdum sjúkdómsins
með því að finna hann á byrj-
unarstigi, áður en hann uppgötvast
vegna einkenna. Áhrif leitar á dán-
artíðni hafa verið rannsökuð í átta
slembivalsrannsóknum. Sú fyrsta
var gerð í Bandaríkjunum árin
1963–1969, þar sem borin var sam-
an dánartíðnin í hópi sem var boð-
in brjóstamyndataka og brjósta-
þreifing og í viðmiðunarhópi sem
ekki var boðaður til leitar. Rann-
sóknin staðfesti að dánartíðnin í
öllum boðaða hópnum (þær konur
sem ekki mættu meðtaldar) var
marktækt lægri en í hinum.
Þessi niðurstaða hratt af stað
nokkrum sænskum slembivals-
rannsóknum, þar sem eingöngu
var beitt brjóstamyndatöku en
ekki brjóstaþreifingu. Samkvæmt
upplýsingum frá WHO benda nið-
urstöður sænsku rannsóknanna
samanlagðra ásamt rannsókn í
Finnlandi til þess að brjósta-
myndataka á 24–33 mánaða fresti
hjá konum 50–69 ára geti leitt til
um 35% hlutfallslegrar lækkunar á
dánartíðni þeirra kvenna sem í
raun mæta í myndatöku (hinum
sleppt). Rannsóknir af öðru tagi
benda til enn meiri lækkunar, um
og yfir 50%.
Gagnsemi slíkrar hópleitar hjá
yngri konum, 40–49 ára, hefur ver-
ið umdeild. Nýjustu niðurstöður
benda þó til að búast megi við
svipaðri lækkun dánartíðni hjá
þeim og í hópnum 50–69 ára. Talið
er að vöxtur brjóstakrabbameins
sé að jafnaði hraðari í yngri kon-
um og því rökrétt að hafa bil milli
skoðana styttra en hjá þeim eldri
til að ná sambærilegum árangri.
Meðal yngri kvenna hefur því ver-
ið mælt með að millibilið verði
ekki lengra en 18 mánuðir, í stað
24 mánaða hjá eldri hópnum.
Hópleit með brjóstamynda-
töku á Íslandi
Skipuleg leit Krabbameinsfélags-
ins að brjóstakrabbameini með
myndatöku hófst hérlendis í nóv-
ember 1987. Nýgengi sjúkdómsins
er óverulegt fyrir 30 ára aldur en
fer ört vaxandi eftir fertugt. Öllum
konum 40–69 ára er því boðið til
myndatöku á tveggja ára fresti
(um leið og til leghálskrabba-
meinsleitar). Eldri konur eru einn-
ig velkomnar þótt þær fái ekki
boðunarbréf. Leitin nær til alls
landsins (sjá mynd) og er hluti af
almennri forvarnaþjónustu á veg-
um heilbrigðisyfirvalda.
Mat á árangri leitar
Allmörg ár geta liðið þar til end-
anlegur árangur hvað snertir
heildardánartíðni kemur í ljós.
Aðrir þættir eru því oft notaðir til
að kanna hvort líklegt sé að leitin
geti haft áhrif. Þeir eru auk þátt-
tökuhlutfalls m.a. hlutfall krabba-
meina sem greinast við leit og
hversu mörg þeirra eru á forstigi
eða byrjunarstigi. Næmi leit-
arinnar, þ.e. hversu mörg krabba-
mein finnast í leit af þeim sem
greinast innan árs, skiptir einnig
verulegu máli. Ennfremur er unnt
að kanna jákvætt spágildi leitar
þ.e. hlutfall skurðaðgerða sem
leiða í ljós krabbamein og forstig
þeirra. Það hlutfall gefur jafn-
framt til kynna fjölda skurð-
aðgerða sem leiða ekki í ljós þessi
Skipuleg leit með
brjóstamyndatöku er
góð heilsuvernd
Eftir Kristján Sigurðsson
og Baldur F. Sigfússon ’Markmið leitarinnarer að lækka dánartíðni
af völdum sjúkdómsins
með því að finna hann á
byrjunarstigi, áður en
hann uppgötvast vegna
einkenna. ‘
Baldur F. Sigfússon
Kristján Sigurðsson
Hóll - tákn um traust
í fasteignaviðskiptum
EIGIN ATVINNUREKSTUR
GOTT TÆKIFÆRI
Merkingar - Útsaumur
Af sérstökum ástæðum er til sölu góður rekstur
með mikil verkefni framundan.
Reksturinn þarf að flytja í annað húsnæði ca 60-80 fm.
Upplýsingar gefur Halldór hjá Fasteignasölunni Hóli,
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 595 90 95.
Nánar upplýsingar
eru aðeins gefnar á skrifstofu.
Hrafnhildur Bridde - s. 899 1806
Netfang: hrafnhildurh@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Suðurlandsbraut
Til mín hafa leitað hjón sem eiga hæð
á svæði 101. Þau langar að komast í
sérbýli helst í Garðabæ, á Seltjarnarnesi
eða á svæði 107. Verð ca 26 millj.
Átt þú réttu eignina fyrir þau ?
Óska eftir einbýli,
par- eða raðhúsi
Uppl. hjá ERON í síma 515 7440 og 894 8905. eron@eron.is
Öldutún - Hafnarfirði
- stór og falleg íbúð með bílskúr
Til sölu ákaflega björt og falleg u.þ.b. 148 fm íbúð með sérinngangi á
tveimur hæðum auk 24,3 fm bílskúrs, (áður raðhús en íbúð á jarðhæð
fylgir ekki). Eignin er í mjög góðu ástandi, flísar á gólfum og fínt eldhús
með góðri viðarinnréttingu og tækjum. Glæsilegt baðherbergi. 4 svefnh.
Gengið úr stofu út á suðursvalir og niður í garð. Gróið og fallegt hverfi í
nálægð við alla þjónustu. V. 18,9 millj.
564 6464
Opið hús - Giljasel 4
Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á
frábærum útsýnisstað. Skiptist í 208 fm aðal-
íbúð, 46 fm bílskúr og ca.75 fm 2ja herb. auk-
aíbúð. Aðalíbúðin skiptist í stofur, hol, 5-6
svefnherbergi, tvö baðherbergi og fjölskyldu-
herb. Nýl. endurn. eldhús og baðherbergi.
Vönduð gólfefni. Allt nýl. málað að innan,
steypuviðgert að utan og tilb. til málningar.
Nýtt gler í öllu húsinu. Verð 30,5 millj.
Guðmundur á Hofi fasteignasölu verður með opið hús í dag milli kl. 14 og 16
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Mjög fallegt og afar vel staðsett 206 fm einbýlishús á tveimur hæðum
auk 48 fm tvöf. bílskúrs með mikilli lofthæð og geymslurisi yfir. Húsið
skiptist í forstofu, hol, gestasalerni, stórar samliggjandi stofur með út-
gangi á stóra verönd, stórt eldhús með innrétt. í ítölskum stíl og útg. á
verönd auk búrs og þvottaherb. Á efri hæð eru 3 stór barnaherb. auk
stórs hjónaherb. með fataherb. innaf og svölum til suðurs, sjónvarpshol
og rúmgott baðherb. Í kjallara er innrétt. sturtuherb. Lóðin er afar falleg,
heitur pottur, stór verönd og góðir skjólveggir. Einstök staðsetning við
opið svæði með útsýni yfir hraunið og til fjalla.
Hraunhólar - Garðabæ
Sjón er sögu ríkari.
OPIÐ HÚS Í DAG
LANGHOLTSVEGUR 95
Andreas og Ragnheiður hafa áhuga á að sýna þér íbúðina
sína á milli kl. 14:00 og 16:00 í dag. Íbúðin er með tveim
mjög stórum og góðum svefnherbergjum og góðri stofu. Stór
sameiginlegur garður með nýlegri verönd. Endilega kíktu við í
dag. Þau taka vel á móti þér. Áhv. eru 5 millj. í húsbr. og
ásett verð er 12,9 millj.
Sími 595 9000, opið virka daga 9-18.
Allar nýjustu eignirnar á www.holl.is