Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 53
mein, en þær hafa óhjákvæmilega
áhrif á lífsgæði kvenna er fyrir
þeim verða.
Nýgengi og dánartíðni
Gagnstætt leit að legháls-
krabbameini greinir brjósta-
myndataka forstig krabbameins í
fremur litlum mæli en flýtir grein-
ingu krabbameina, einkum hinna
hægt vaxandi. Nýgengi sjúkdóms-
ins hefur verið hækkandi frá upp-
hafi skráningar hérlendis árið 1955
(sjá mynd). Eftir að leit með
myndatöku hófst varð skyndileg
hækkun á nýgenginu meðan á
fyrstu umferð hennar stóð en eftir
það lækkun fyrst í stað, hvort
tveggja eins og búast má við. Síð-
an hefur það haldið áfram að vaxa,
svipað og fyrir 1987.
Hlutfall brjóstakrabbameina og
forstiga þeirra sem greindust við
hópleit hérlendis var um 35% af
heildarfjölda árin 1998–2002. Um
helmingur meinanna voru óáþreif-
anleg, þ.e. fundust alls ekki við
sjálfskoðun né við læknisskoðun
eftir myndatöku. Næmi leitarinnar
árin 1990–2002 var í heild 82%
sem er svipaður árangur og er-
lendis. Sama gildir um hlutfall
greindra krabbameina og forstigs-
breytinga meðal þátttakenda.
Hér á landi var aldursstöðluð
dánartíðni úr brjóstakrabbameini
nokkuð stöðug á tímabilinu 1966–
1990, um 20,4 tilfelli á hverjar
100.000 konur. Hún fór síðan hæst
í 26,4 á tímabilinu 1991–1995 en
var lægst 1996–2000, 17,8 (sjá
mynd). Þótt dánartíðnin sé
kannski tiltölulega svipuð á heild-
ina litið, er um greinilega lækkun
að ræða miðað við stöðugt vaxandi
nýgengi sjúkdómsins. Dánartíðni á
næsta fimm ára tímabili mun leiða
í ljós hvort lækkunin 1996–2000
verður til frambúðar eða ekki, en
það er mjög háð mætingu til leitar.
Upplýsingar til kvenna
Við fyrstu boðun í brjóstamynda-
töku fá konur sendan fræðslu-
bækling um brjóstakrabbamein,
gildi hópleitar og greiningarferlið.
Ef grunur vaknar um krabbamein
á hópleitarmyndum er konan köll-
uð til viðbótarmyndatöku. Sé
ástæða til er jafnframt gerð óm-
skoðun á brjóstum og stundum
tekið fínnálarsýni. Að loknum
þessum rannsóknum er tekin af-
staða til þess hvort konunni verði
vísað til töku lítils skurðsýnis eða
meðferðar.
Góður árangur
Árið 2002 mættu 15.249 konur til
hópleitar með myndatöku hér á
landi. Um 3,7% þeirra (570 konur)
voru boðaðar til viðbótarmynda-
töku, 0,6% (92 konur) fóru í skurð-
aðgerð og 68 konur (0,45%)
greindust með krabbamein eða
forstig þess, þar af þrjár með mein
í báðum brjóstum. Fyrir hverjar
þrjár konur með krabbamein eða
forstig þess greindist þannig í
skurðaðgerð aðeins ein með góð-
kynja breytingu. Jákvætt spágildi
leitarinnar var því 75%, sem er vel
sambærilegt við árangur Svía.
Jákvætt spágildi leitar með
myndatöku segir til um getu henn-
ar til að aðgreina konur án sjúk-
dóms frá hinum sjúku. Spágildið
er háð tækjabúnaði og hæfni
starfsfólks. Búnaði hefur fleygt
mikið fram, sem hefur leitt til
betri mynda og minni geislunar.
Myndataka og úrlestur krefjast
sérstakrar þjálfunar starfsfólks,
geislafræðinga og röntgenlækna.
Skortur á sérhæfðu starfsliði og
aðstöðu hefur hamlað útbreiðslu
hópleitar víða erlendis.
Mæting til leitar
Hátt þátttökuhlutfall er ein meg-
inforsenda góðs árangurs af leit.
Heildarmæting til brjóstamynda-
töku hér á landi hefur valdið von-
brigðum. Tveggja ára mæting 50–
69 ára kvenna er um 64%, og hlut-
fall 40-49 ára kvenna hefur fallið
úr 68% í byrjun leitar niður í 59%
í lok árs 2002 (sjá mynd). Þátttaka
í almennri hópleit hérlendis er
mun lélegri en í Svíþjóð (85%) og
Finnlandi (allt að 90%).
Ástæður þessa geta verið marg-
víslegar. Sumar konur með eðli-
lega ættarsögu varðandi brjósta-
krabbamein telja sig ekki vera í
hættu, þótt vitað sé að aðeins tí-
unda hvert brjóstakrabbamein
tengist ættarsögu. Aðrar halda að
þreifing ein sér gefi sambærilega
vörn, þó ljóst sé að hún greinir
helmingi færri æxli en myndatak-
an, æxli sem eru að jafnaði stærri
og því með meiri hættu á dreif-
ingu. Hræðsla við áhættu af geisl-
un við röntgenmyndatöku er nokk-
uð algeng, þótt vitað sé að hún er
óveruleg. Síðast en ekki síst hefur
ítrekaður, illa grundaður áróður
ýmissa krossfara gegn þessari for-
vörn skaðleg áhrif á mætingu.
Áhrif á heildarlifun
Því hefur verið haldið fram að
hópleit með brjóstamyndatöku
geri lítið gagn, þar sem hún hafi
óveruleg áhrif á heildarlifun
kvenna. Hér kemur til, að helsta
dánarorsök kvenna sem karla eru
hjarta- og æðasjúkdómar, sem aft-
ur undirstrikar að samstillt for-
varnarátak þarf gegn þekktum or-
sakavöldum þeirra. Það útilokar
þó engan veginn forvarnargildi
brjóstamyndatöku. Niðurstöður
erlendra rannsókna benda til að
hún geti leitt til 1–5% lækkunar á
heildardánartíðni kvenna.
Lokaorð
Forvarnargildi hópleitar með
brjóstamyndatöku er vel sannað,
en meginforsenda viðunandi ár-
angurs er góð þátttaka kvenna.
Sjálfskoðun og læknisskoðun geta
á engan hátt komið í stað mynda-
töku. Léleg þátttaka í leitinni hér-
lendis er áhyggjuefni. Hana þarf
að bæta með vísindalega vel rök-
studdri fræðslu til almennings og
heilbrigðisstétta. Fullyrðingar af
því tagi er fram komu á Lækna-
dögum byggja á rökleysu og hafa
skaðleg þjóðfélagsleg áhrif.
Kristján Sigurðsson er yfirlæknir og
sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameins-
félagsins og Baldur F. Sigfússon yf-
irlæknir Röntgendeildar Krabba-
meinsfélagsins.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 53
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
HVALEYRARBRAUT - HF. - TIL
SÖLU Til sölu - leigu. Nýkomið nýtt atvhús-
næði frá 210-530 fm. 4 m lofthæð. Innkdyr 3,7 m.
Óvenju hagst. leiga á 210 fm nýju húsnæði. Afh.
strax. Hagstætt verð og kjör.
SKEIÐARÁS - GBÆ
Nýkomið gott nýlegt 820 fm atvinnuh. sem skiptist
í 2-3 bil. Laust strax. Möguleiki á 2-3 bilum. Hag-
stæð kjör og verð. (85% lánað). 67381
MELABRAUT - HF.
Vandað fjölnotahús (atvhúsn.) á tveimur hæðum,
samtals ca 1.500 fm. Innkeyrsludyr. Selst í einu eða
tvennu lagi. Fullbúin eign. Ath. að öll fiskvinnslu-
tæki geta fylgt með. Hagst. verð og kjör. Eigandi
bankastofnun. 55429
HAMRABORG - KÓP. - ATVH. Til sölu
eða leigu snyrtil., 126 fm atvhúsn. Á jarðhæð mið-
svæðis í Kópavogi (ekki innkeyrsludyr). Laust strax.
Hagstætt verð. Verð 6,9 millj. 55534
MELABRAUT - HF. - TIL LEIGU
Glæsilegt nýlegt 120 fm atvhúsn. m. innkeyrsludyr-
um bakatil og góðum gluggafronti að framan. Hús-
næðið er í verslunarmiðstöð, tilvalið fyrir verslun,
heildsölu eða léttan iðnað. Mögul. á langtímaleigu.
Leiga kr. 85.000 á mánuði. Laust strax.
AUSTURSTRÆTI - RVÍK - SKRIFST-
HÆÐ Nýkomið í einkasölu sérl. gott húsnæði á
efstu hæð í lyftuhúsi („penthouse“), samtals ca
170 fm. Húsnæðið skiptist í 3-4 skrifstofur, snyrt-
ingu, eldhús o.fl. Rúmgóðar svalir. Stórt herbergi í
risi fylgir. Parket. Frábær staðsetn. í borginni. Áhv.
hagst. lán. Verðtilboð. 98783
BÆJARHRAUN - HF. Nýkomið sérlega gott
verslunar- og þjónustuhúsnæði ca 470 fm, að hluta
til í leigu (Landsbankinn). Frábær staðsetning, mikl-
ir möguleikar. Laust strax. Verðtilboð.
REYKJAVÍKURVEGUR - TIL LEIGU
Nýkomið gott 120 fm versl./þjónustupláss (við hlið-
in á Sparis. Hf. Norðurbæ). Til afh. strax. Uppl. gef-
ur Helgi Jón á skrifst.
RAUÐHELLA - HF. - ATVH. Nýkomið
sérl. gott ca 100 fm atvhúsnæði auk ca 35 fm
millilofts. Góð lofthæð og innkdyr. Sérl. góð eign.
Afhendist strax. Verð 8,9 millj. 67512
KRÓKHÁLS - RVÍK - SKRIFSTOFU-
HÆÐ Glæsil. ca 500 fm skrifsthúsnæði á 3. hæð
(efstu) í lyftuhúsi. Eignin er sérl. vel innréttuð. Næg
bílastæði. Útsýni. Lyfta. Laus strax. Hagstætt verð
og kjör. Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrifstofu.
BÆJARHRAUN - HF.
Nýkomið sérlega gott ca 300 fm verslunar- og þjón-
ustuhúsnæði á jarðhæð (öll hæðin) á þessum frá-
bæra stað. Lagerdyr á bak við, tilvalin eign fyrir
heildsölu, verslun eða þjónustufyrirtæki o.fl. Laust
strax. Verð 29,5 millj.
SUÐURHRAUN - HF. Nýkomið gott 330 fm
atvhúsnæði með mikilli lofthæð og háum innkdyr-
um. Góð staðsetn. og aðkoma. Verð 20,5 millj.
TRÖNUHRAUN - HF.
Nýkomið gott bjart ca 230 fm atvinnuhúsnæði/
verslun á þessum vinsæla stað, innkeyrsludyr, sam-
eiginlegur byggingarréttur, laust strax. Verð 14,9
millj.
BÆJARHRAUN - HF. - SKRIFSTOFUH.
Nýkomið í einkasölu sérlega bjart og gott 140 fm full-
búið skrifstofuhúsnæði á þessum vinsæla stað, lyfta.
Eignin skiptist m.a. í móttöku, 4 stórar skrifstofur,
geymslu, snyrtingu, kaffistofu o.fl. Svalir, endabil,
næg bílastæði. Laust strax. Lyklar á skrifst. 101576
SUÐURHRAUN - GBÆ - TIL SÖLU/
LEIGU Glæsil. ca 400 fm nýl. atvhúsnæði auk
steypt millilofts. Malbikað bílaplan. Góð lofthæð.
Innkdyr. Fráb. staðsetn. Áhv. 25 millj. Hagst. lán.
Verð 35 millj.
SUÐURHRAUN - GBÆ - TIL SÖLU/
LEIGU Glæsil. ca 400 fm nýl. atvhúsnæði 130
fm. Steypt milliloft. Malbikað bílaplan. Góð loft-
hæð. Innkdyr. Fráb. staðsetn. Áhv. 25 millj. Hagst.
lán. Verð 35 millj.
LÆKJARGATA - HF. - VERSLUN-
ARH. Nýkomið í einkas. sérl. gott 115,4 fm versl./
þjónustubil í nýl. húsi. Lagerdyr. Stæði í bílshúsi fylg-
ir. Fráb. staðsetn. við lækinn. Laust. Hagstætt verð
7,8 m.
REYKJAVÍKURVEGUR - HF. Sérlega
gott 120 fm atvinnuhúsnæði (kjallari), ágæt loft-
hæð og innkeyrsludyr. Verðtilboð.
FLATAHRAUN - HF. - ATVINNUHÚSN.
Nýkomið í einkasölu gott ca 300 fm atvhúsnæði á sérlóð ca 1.800 fm. Innkdyr. Bygg-
ingarréttur af stóru húsi. Atvh./verslun. Teikningar fylgja. Frábær staðsetning og auglýs-
ingagildi. Verðtilboð.
DRANGAHRAUN - HF. - ATVINNUHÚSN.
Nýkomið í einkas. sérl. gott ca 800 fm
atvhúsnæði á óvenju stórri sérlóð. Húsnæð-
ið skiptist í vinnslusali, skrifstofur o.fl., loft-
hæð ca 7 metrar, innkeyrsludyr 4 metrar.
Góð staðsetning í grónu hverfi, einstakt
tækifæri til að eignast framtíðareign. Selt í
einu eða tvennu lagi. Hagstætt verð og
kjör. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
HÓLSHRAUN 2 - HF. - HEIL HÚSEIGN
Glæsil. húseign
Nýkomið í einkas. glæsileg húseign á
tveimur hæðum, samtals 510 fm. Um er að
ræða húsnæði Nýja tölvu- og viðskiptaskól-
ans í Hafnarfirði. 1. hæð, jarðhæð, 287 fm
fullinnréttað skrifstofu- og lagerpláss með
innkeyrsludyrum. Efri hæð 216 fm fullinn-
réttuð skrifstofuhæð. Vel staðsett eign ör-
stutt frá Fjarðarkaup og Bæjarhrauninu, góð aðkoma og næg bílastæði. Selst í einu eða
tvennu lagi. Verðtilboð.
GJÓTUHRAUN - TIL LEIGU/SÖLU
glæsil. vandað ca 600 fm atvhúsnæði/versl-
un á sérlóð, til sölu eða leigu. Að auki er
gert ráð fyrir millilofti m. góðum gluggum.
Góð lofthæð og innkdyr. Selst/leigist í 180
fm bilum eða stærri. Möguleiki á 80% láni.
Til afhendingar strax.