Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 54
SKOÐUN
54 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MEGINÁSTÆÐUR þess, að flest
lýðræðisríki í Vestur-Evrópu og
önnur þróuð lýðræðisríki heims búa
við takmarkanir á eignarhaldi á fjöl-
miðlum eru þær, að lýðræðinu stafi
hætta af því, að örfáir einstaklingar
ráði lýðræðislegri umræðu og
fréttaflutningi og geti þannig einok-
að „upplýsinga- og skoðanamark-
aðinn“. Það er óttinn við fákeppni á
upplýsinga- og skoð-
anamarkaði, sem ligg-
ur til grundvallar
reglum um eignarhald.
Fjölmiðlar eiga að
þjóna hagsmunum al-
mennings og lýðræð-
inu.
Nýr fjölmiðlarisi er
fæddur á Íslandi og
samkvæmt fréttum
hefur verið stofnað
sérstakt félag um fjöl-
miðlaeign Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar
og tengdra aðila. Þá renna í sömu
sæng Frétt (Fréttablaðið og DV),
Norðurljós (Stöð 2, Sýn, Bylgjan,
kvikmyndahús) og Skífan o.fl. Ef
sömu reglur giltu um eignarhald á
fjölmiðlum hér á landi og hafa gilt
hingað til í Bandaríkjunum mætti
Jón Ásgeir alls ekki eiga alla þessa
prent- og ljósvakamiðla auk annarra
fyrirtækja í miðlunar- og skemmt-
anaiðnaði. Gera má ráð fyrir því að
Samkeppnisstofnun fái málefni nýja
fjölmiðlarisans inn á sitt borð.
Samkvæmt hliðstæðum reglu-
gerðum og lögum í flestum löndum í
vesturhluta Evrópu, er niðurstaðan
sú sama þrátt fyrir almenna til-
hneigingu í mörgum ríkjum Evrópu-
bandalagsins og víðar að slaka veru-
lega á eignarhaldsreglum. Einungis
í flestum hinna nýfrjálsu landa Aust-
ur-Evrópu (þar sem útlendingar
eiga lungann af fjölmiðlunum) væru
sennilega ekki gerðar athugasemdir
við slíkt fjölmiðlaveldi og hér er orð-
ið til enda eru þau enn að fikra sig
áfram við að koma skikk á nýeinka-
vætt viðskiptaumhverfi eins og á Ís-
landi og lýðræðislegt regluverk á
flestum sviðum samfélagsins. Þar
skortir reglur um eftirlit.
Því má ekki gleyma, að alþjóð-
legur samanburður er ákaflega erf-
iður. Smæð íslenzka markaðarins er
þvílík, að réttast væri að líta á hann
eins og 300 þúsund manna borg er-
lendis. En fyrir vikið er þörfin fyrir
séríslenzkar reglur enn ríkari.
Hérlendis hófst umræðan um
samþjöppun og fákeppni á fjölmiðla-
markaði að þessu sinni vegna breyt-
inga á eignarhaldi dagblaðsins DV
og ljósvakafyrirtækisins Norður-
ljósa. Tilefnið er að þessu sinni ærið.
Nú er það að gerast í fyrsta skipti á
íslenzkum fjölmiðlamarkaði að við-
skiptablokk er búin að ná rækilegri
fótfestu í þjónustugrein lýðræðisins
með stofnun nýs hlutafélags með
Frétt hf. og Norðurljós að bak-
hjörlum. Fjölmiðlun er hrein auka-
geta Baugs.
Einhver þeirra fjölmörgu, sem
lagt hafa orð í belg í umræðunni og
mælti gegn eignarhaldsreglum,
varpaði fram spurningu um það hver
hefði trúað því fyrir örfáum árum,
að nýtt dagblað næði þeim árangri
að ná meiri útbreiðslu en Morg-
unblaðið? Viðkomandi andstæð-
ingur reglna um eignarhald áttaði
sig ekki á því, að með orðum sínum
færði hann í raun rök fyrir eign-
arhaldsreglum! Ofurvald Morg-
unblaðsins og meðfylgjandi fá-
keppni „lokaði“ markaðnum fyrir
nýjum blöðum og þar með aukinni
fjölbreytni í fréttaflutningi og þjóð-
félagsumræðu. Af þessari ástæðu,
meðal annars, getur ótakmarkað
eignarhald á fjölmiðlum ekki talizt
vera æskilegt. Eini kosturinn við öfl-
uga eigendur og öfluga fjölmiðla er
rýmri fjárráð, rekstraröryggi og
starfsöryggi starfsmanna. Á hitt ber
að líta að bæði Norðurljós og DV
hafa átt í miklum fjárhagsörð-
ugleikum auk þess sem það er stór
spurning hvort Fréttablaðið sé ein-
hver gullnáma, sem er undirrituðum
reyndar til efs. Staðan er langt frá
því trygg!
Alþjóðasamtök blaðamanna
áhyggjufull
Bæði Alþjóðasamtök blaðamanna og
hliðstæð Evrópusamtök (IFJ og
EFJ) hafa nýverið lýst yfir áhyggj-
um sínum vegna almennrar þróunar
í tilslökunarátt í heiminum, t.d. í
Ítalíu, Ástralíu og Brasilíu og segja
regluleysið og stöðuna í fv. komm-
únistaríkjum austur-
hluta Evrópu mjög al-
varlegt. Þá einkenni
frjálshyggjusjónarmið
í nafni markaðshyggju
og alþjóðavæðingar æ
meir breyttar áherzlur
í stefnumótun í fjöl-
miðlamálum Evrópu-
bandalagsins frá því
fyrsta grundvall-
arskýrslan um þessi
mál var birt 1992
(„Pluralism and Media
Concentration in the
Internal Market“, CEC 1992). Evr-
ópubandalagið hefur ekki enn mótað
sameiginlega stefnu í þessu efni.
Miklar deilur og umræður urðu í
Bandaríkjunum í fyrra um þessi mál
og standa enn og sömuleiðis á Bret-
landi vegna nýrra laga um fjarskipti
og fjölmiðla. Á Bretlandi hefur verið
komið á fót nýrri stofnun, Ofcom
(„Office of Communications“),
stundum kölluð „varðhundur fjöl-
miðlanna“. Ofcom er ætlað að fylgj-
ast grannt með fjölmiðlamarkaðnum
á ýmsa lund, m.a. eignarhalds-
málum, t.d. sölu Conrads Black á
Hollinger-samsteypunni til Barclay-
tvíburanna, m.a. The Daily Tele-
graph. Samkvæmt bandarísku regl-
unum mega fyrirtæki ekki eiga bæði
dagblað og ljósvakamiðil á sama
markaðssvæði og ekkert miðl-
unarfyrirtæki mátti eiga sjónvarps-
stöðvar sem næðu til meira en 35%
þjóðarinnar. Ákvæðin eru mun
fleiri.
Sl. sumar ætlaði Bush forseti að
slaka á kröfunum. Öldungadeild
Bandaríkjaþings kom í veg fyrir það
og harðvítugri deilu þings og forseta
lauk með málamiðlun, þar sem Bush
notaði fjárlagatillögu og kjör-
dæmapot til að ná málamiðlun í
þágu sjónvarpsrisanna, ABC, CBS,
NBC og Fox. Málamiðlunin kom
m.a. í veg fyrir að CBS og Fox
þyrftu að selja slatta af sjónvarps-
stöðvum, þar sem þessi tvö fyrirtæki
voru búin að brjóta settar reglur og
komin yfir 35% mörkin. Nú er eign-
arhaldsþakið 39%, þökk sé Bush,
sem veit sem er, að það er ekki verra
að hafa fjölmiðlana góða.
Fjölmiðlarisi fylgjandi eign-
arhaldstakmörkunum
Í umræðum liðins árs um tilslökun á
eignarhaldi fjölmiðla í Bandaríkj-
unum leyndist ákaflega athyglisverð
grein eftir Ted nokkurn Turner,
stjórnarformann Turner Enter-
prises, einn stærsta hluthafann í
Time Warner fjölmiðlarisanum og
stofnanda CNN fyrir tæpum ald-
arfjórðungi. Greinin er til varnar
þeim reglum gegn samþjöppun sem
hafa gilt í Bandaríkjunum, þar sem
þær tryggi fjölbreytileika og nýmæli
á fjölmiðlamarkaðnum.
Í grein sinni, sem heitir „Einokun
eða lýðræði“ segir hann, að hefðu
þær breyttu reglur, sem FCC, fjar-
skipta- og miðlunarráð Bandaríkj-
anna, lagði til í júní í fyrra, verið í
gildi 1970 þegar hann stofnaði fjöl-
miðlafyrirtæki sitt hefði verið nær
útilokað fyrir hann að koma fyr-
irtæki sínu á legg og þaðan af síður
hefði honum verið kleift 10 árum síð-
ar að stofna CNN fréttastöðina.
Ástæðuna segir hann, að samkvæmt
nýju reglunum sé risunum hyglað.
„Nýju reglurnar munu hefta um-
ræðu, drepa nýjar hugmyndir og
útiloka smærri fyrirtæki frá sam-
keppni,“ segir Turner. Þá segir
hann, að nýju reglurnar muni óhjá-
kvæmilega hafa í för með sér fátæk-
legri umræðu og nefnir hann dæmi
um hvernig stóru sjónvarpsstöðv-
arnar hafi reynt að gera sem minnst
úr sjónarmiðum þeirra, sem t.d. séu
andvígir stríðinu í Írak og afgreiði
þá sem eins konar jaðarhóp í sam-
félaginu. Stóru stöðvarnar séu
þröngsýnar.
Turner vitnar í Hugo Black, fv.
dómara í Hæstarétti Bandaríkj-
anna, sem sagði í dómsniðurstöðu
árið 1945: „Tjáningarfrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar hvílir á þeirri
forsendu að sem mest dreifing upp-
lýsinga frá ólíkum og andstæðum
aðiljum sé bráðnauðsynleg fyrir vel-
ferð almennings.“ Þessi hugsun sé
víðsfjarri fjölmiðlarisunum, sem
hlýði því boðorði einu að græða.
Gildandi reglur um eignarhald geti
tryggt að hugsun Blacks lifi, en nýju
reglurnar fari þveröfuga leið.
Freedom House, óháð og sjálf-
stæð rannsóknarstofnun í Banda-
ríkjunum, hefur á hverju ári í ald-
arfjórðung mælt frelsi fjölmiðla, nú
síðast árið 2003 í 193 löndum og hef-
ur Ísland alltaf lent í einu af þremur
efstu sætunum, þar sem er mest
fjölmiðlafrelsi („FREEDOM OF
THE PRESS 2003 – A Global Sur-
vey of Media Independence“). Með-
al viðmiða í aðferðafræði rannsókn-
arinnar eru pólitísk áhrif á fjölmiðla
og meðfylgjandi sjálfsritskoðun,
efnahagslegur þrýstingur, hlutdræg
úthlutun rása á ljósvakanum, hvort
og/eða hvaða reglur gildi um eign-
arhald o.s.frv.
Í blaðagreinum árið 1995–1997
fjallaði undirritaður um þessar
kannanir og eignarhaldsmál í grein-
um, sem báru fyrirsagnir á borð við
„Íslenzkir fjölmiðlar í klóm risa“, „Á
fjölmiðlafrelsi hér í vök að verjast“,
„Eru fréttamenn málaliðar eig-
endanna,“ þar sem ég varaði við
samþjöppun eignarhalds fjölmiðla
hérlendis.
Morgunblaðið birti greinargóða
frétt um könnunina 1995. Í frétt
Moggans sagði Leonard Sussman,
stjórnandi rannsóknarinnar: „Fjöl-
miðlar eru að færast á færri hendur,
eigendur þeirra eru valdamiklir og
hagsmunir byggðir á því að halda
góðu sambandi við fjármögnunar-
aðila“. Skýringuna mætti yfirfæra á
Ísland samtímans.
Freedom House: Samþjöppun
eignarhalds hættuleg
Undirritaður gerði það í glöggv-
unarskyni að kanna sérstaklega
rannsóknir Freedom House o.fl. á
fjölmiðlafrelsi síðastliðin 4–5 ár með
sérstakri hliðsjón af eignarhaldi á
fjölmiðlum. Niðurstaðan er sú ófrá-
víkjanlega staðreynd, að fjölbreytt
og dreift eignarhald á fjölmiðlunum
er eitt þeirra grundvallaratriða, sem
fjölmiðlafræðingar eru sammála um
að sé ein af forsendum fjölmiðla-
frelsis. Því meiri samþjöppun eign-
arhalds og meðfylgjandi fákeppni,
því minna fjölmiðlafrelsi. Tökum
dæmi: Sjö lönd sem voru í efsta
flokki hjá FF 2003 hvað varðar fjöl-
miðlafrelsi detta í næsta flokk fyrir
neðan vegna aukinnar samþjöpp-
unar á eignarhaldi. Fjölmörgum
öðrum löndum, sem halda sæti sínu í
efsta flokki, er þó sérstaklega talin
til lasts aukin samþjöppun og fá-
keppni og má nefna Ástralíu, Kan-
ada, Bandaríkin, Austurríki og Ítal-
íu. Ástandið í Austurríki þykir
slæmt, og yfirburðastaða
Berlusconis á Ítalíu er heimsfræg að
endemum.
Hérlendis gilda ekki sérstakar
reglur um eign á fjölmiðlum. Sam-
keppnislögin gera hins vegar ráð
fyrir að illilega fjársvelt Samkeppn-
isstofnun fylgist m.a. með sam-
þjöppun eignarhalds og fákeppni á
þessu sviði viðskiptalífsins, einkum
þó öðrum. Í skýrslum stofnunar-
Eftir Halldór Halldórsson ’Fjölmiðlar draga ávalltdám af skoðunum eig-
enda sinna eða stjórn-
enda. Í þessum punkti
skiptir heiðarleiki frétta-
manna litlu eða engu.‘
Halldór Halldórsson
Eignarhald – tangarhald
HÖFUM KAUPENDUR
AÐ NEÐANGREINDUM EIGNUM
EINBÝLISHÚS Í ÞINGHOLTUNUM ÓSKAST
Höfum kaupanda að góðu einbýlishúsi í Þingholtunum. Æskileg stærð 250-
350 fm. Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
ÍBÚÐ VIÐ KLAPPARSTÍG EÐA SKÚLAGÖTU ÓSKAST
Höfum verið beðin um að útvega 100-130 fm íbúð í lyftublokk við Klapparstíg
eða Skúlagötu. Nánari uppl. veitir Sverrir.
RAÐHÚS, PARHÚS EÐA EINBÝLISHÚS Í
VESTURBORGINNI ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir eign eins og lýst er í fyrirsögn. Æskileg stærð
250-350 fm. Eignin má kosta á bilinu 25-40 millj. Nánari uppl. veitir Sverrir
Kristinsson.
EINBÝLI, HÆÐ OG RIS EÐA HÆÐ OG KJALLARI
Í VESTURBORGINNI
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 150-250 fm eign skv. ofan-
skráðri lýsingu. Sjávarútsýni æskilegt. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari uppl.
veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 220-250 fm einbýlishús á
Seltjarnarnesi. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250-350 fm einbýlishús á
Seltjarnarnesi. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari uppl. Sverrir Kristinsson.
TIL LEIGU
SÍÐUMÚLI - STÓRGLÆSILEG SKRIFSTOFUHÆÐ
Vorum að fá til leigu stórglæsilega 180 fm skrifstofuhæð sem hefur öll verið
nýstandsett í hæsta gæðaflokki. Eignin skiptist m.a. í móttöku, fimm skrif-
stofur, fundarsal, snyrtingar o.fl. Húsið er klætt að utan. Nánari uppl. veita
Sverrir og Óskar. 3842
SÍÐUMÚLI
Vandað atvinnuhúsnæði á götuhæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í
opið rými, snyrtingar, kaffistofu, geymslu og tvö skrifstofuherbergi. Linoleum-
dúkur á gólfum. Kerfisloft með innfelldri lýsingu í loftum. Eignin er öll ný-
standsett að innan og getur hentað ýmist undir verslun, þjónustu eða skrif-
stofur. Nánari uppl. veita Sverrir og Óskar. 3844
4RA HERBERGJA ÍBÚÐ ÓSKAST Í KÓPAVOGI
Traustur kaupandi óskar eftir 4ra-5 herbergja íbúð í Smárahverfi eða Lind-
um í Kópavogi. Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson fasteignasali.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Burknavellir 17A - HF. - Lyftuhús
• Íbúðirnar eru frá 87-107 fm og afhendast fullbúnar að innan án gólfefna.
• Sérinngangur og klætt að utan (viðhaldslítið).
• Vel skipulagt og barnvænt hverfi, stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði.
• Vandaðar innréttingar og tæki.
• Stæði í bílageymslu.
• Frábær staðsetning við hraunjaðarinn.
• Traustir verktakar, Fjarðarmót.
• Upplýsingar og teikningar á skrifstofu Hraunhamars.
Glæsilegar 3ja og 4ra herbergja
íbúðir í fallegu og vel skipulögðu
húsi á góðum útsýnisstað við
Ásvelli í Hafnarfirði.
Hóll - tákn um traust
í fasteignaviðskiptum
MIÐHRAUN 13
Um er að ræða tæplega 1.600 fm
atvinnuhúsnæði. Húsið stendur á
góðum stað með tilliti til auglýs-
ingagildis. Húsið er með góðri
lofthæð og er hentugt fyrir heild-
sölu, iðnað eða verslun. Húsið
skilast fullbúið að utan en fokhelt
að innan, eða í því ástandi sem
það er í dag, þ.e.a.s. uppsteypt án þaks og glugga og eftir er að
klæða húsið.
Nánari uppl. á skrifstofu Hóls.
Sími 595 9000