Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Svínið mitt
framhald ...
ELSKAN!!
© DARGAUD
© DARGAUD
OF ... OFURSTI!? AF ...
AFSAKIÐ! SKOTIÐ SKAUST ÚT
ALVEG SJÁLFT ... EIN ... EINS
OG SKOT! ...
DÓMSDAGS FÍFL! EF
FRÆNDI MINN ...
RÓLEGUR HARALDUR! ...
BARA TVEIR GAURAR SMÁ
RUGLAÐIR! ENGIN MERKI
UM ÓLIVER ...
AFVOPNAÐU
þÁ!
TIL ÞJÓNUSTU
REIÐUBÚINN,
FULLTRÚI!
EKKI SKJÓTA! ÉG ...ÉG ER
ÓVOPNAÐUR ... KOMIÐ HÆGTFRAM OG
SEGIÐ HVER
ÞÉR ERUÐ! ...
... LÁKI
MARTEINS.
ÞVOTTAEFNIÐ! ... OG SÁ
STUTTI, HVAR ER HANN?
INNI ... INNI Í
HÚSINU ...
KÓBRAN OG TVEIR AÐRIR HALDA
HONUM Í GÍSLINGU! MÉR TÓKST
AÐ KOMAST UNDAN ...
HVAÐ SANNAR AÐ ÞÚ SÉRT
EKKI EINN AF ÞEIM?
NÆST MIÐA ÉG
Á KRAKKANN!
ELSKAN ... VILTU
FÆRA ÞIG ADDA
VILL SOFA Á MILLI
OKKAR ...
HÚN ER SVO HRÆDD
VIÐ ÞRUMUVEÐRIÐ
... SVONA LITLA
KRÚTTIÐ MITT
ÉG ER SVO
HRÆDD
ELSKAN
MÍN ...
ADDA VILL
FÁ AÐ SOFA
Á MILLI
OKKAR ...
BÍDDU ...
AFTUR ...
HVAÐ MEINAR
ÞÚ ... AFTUR!!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
VÍST er að landsmenn þekkja þá
orrahríð sem átti sér stað á milli ís-
lenskra kvennasamtaka annars veg-
ar og Icelandair – Flugleiða hins veg-
ar á liðnu ári. Deilurnar áttu rætur
sínar að rekja til vægast sagt vafa-
samra auglýsingaherferða flug-
félagsins á erlendri grundu þar sem
íslenskar konur voru hafðar að fífl-
um.
Ekki þarf að undra að Kvenrétt-
indafélag Íslands (KRFÍ) hafi séð sig
knúið til að leita álits kærunefndar
jafnréttismála á því hvort auglýsing-
ar Icelandair – Flugleiða á vefsíðum
og póstlistum félagsins brytu í bága
við 18. grein laga um jafna stöðu og
rétt karla og kvenna. Nú hefur kæru-
nefnd jafnréttismála skilað frá sér
áliti og niðurstaðan er skýr. Annars
vegar vísar nefndin kæru KRFÍ
vegna auglýsinga á erlendum netsíð-
um frá á þeim forsendum að íslensk
jafnréttislög nái ekki yfir auglýsingar
á erlendri grundu. Hins vegar kemst
kærunefndin að því að orðatiltækið
„tvær í takinu“ af póstlistum fyrir-
tækisins á Íslandi brjóti ekki í bága
við áðurnefnd lög. Þess má geta að
kæra KRFÍ var víðtæk og náði til
fjölmargra þátta í auglýsingaherferð-
um flugfélagsins á mörgum markaðs-
svæðum en álit kærunefndarinnar
tók til færri atriða en búist var við.
Álitið vekur mikla athygli og
spurningar vakna um tilgang og mat
kærunefndar jafnréttismála sem ein-
skorðar sig eingöngu við mál innan
íslensku lögsögunnar. Ef nefndin tel-
ur sig ekki varða þau mál sem fram
fara á Netinu má velta því upp hvort
ekki sé kominn tími til að endurskoða
vinnureglur hennar í ljósi almennrar
notkunar og útbreiðslu Netsins.
Annar flötur á málinu sem vert er
að skoða er fjármögnun umdeildra
markaðsherferða af þessu tagi.
Á síðasta ári fengu Icelandair –
Flugleiðir 80% af þeim 200 milljónum
sem útdeilt var úr sjóðum Ferða-
málaráðs til Íslandskynningar á er-
lendri grundu. Stjórn Kvenréttinda-
félags Íslands vill varpa fram þeirri
spurningu hvort íslenskum almenn-
ingi þyki ásættanlegt að opinbert fé
skuli notað í niðurlægjandi auglýs-
ingaherferðir um íslenskar konur
undir því yfirskini að um landkynn-
ingu sé að ræða, eða er loksins nóg
komið?
Konur eru um 52% íslensku þjóð-
arinnar og rétt eins og karlar eru þær
skattborgarar þessa lands. Gegnum
skattkerfið eru þær því neyddar til að
kosta að hluta til markaðsátök þar
sem skilaboðin fjalla um lauslæti ís-
lenskra kvenna í útlöndum þar sem
Ferðamálaráð styrkir auglýsinga-
herferðir Icelandair að hluta til. Hvar
höfum við villst af leið?
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Kvenréttindafélags Íslands.
Skattfé til
markaðssetningar
af vafasömu tagi ?
Frá framkvæmdastjórn
Kvenréttindafélags Íslands
JÓN Eysteinsson, sýslumaður í
Keflavík, gerir 20. janúar „athuga-
semd“ við opið bréf mitt sem birtist í
Morgunblaðinu þann 18. janúar. Í
„athugasemd“ Jóns er þó í engu
svarað þeim spurningum sem beint
er að honum og varða meint misferli
embættis hans.
Eru þær því ítrekaðar hér með,
óskað er undanbragðalausra svara
og þess vænst að Jón Eysteinsson
vísi í þau lög og lagagreinar er heim-
ila slíka meðferð sakamála.
Hvers vegna var kærum okkar frá
6. ágúst 2000 stungið undir stól?
Skriflegar sannanir liggja fyrir um
kærur okkar.
Hvers vegna vorum við ekki boðuð
til skýrslutöku varðandi málið?
Hvers vegna voru kærur okkar
hjóna, vegna þjófnaðar, ekki sendar
til ríkissaksóknara?
Hvers vegna þurfti þrettán mán-
aða baráttu okkar til þess að fá stað-
festa tilvist hinna stolnu muna?
Hvers vegna var ekki farið að
vinnureglum lögreglu, um að fjar-
lægja skuli þýfi úr höndum þjófa?
Jón Eysteinsson „rýfur trúnað“ en
í athugasemdum hans frá 20. þ.m. er
kæra frá öðrum aðila dregin inn í mál
okkar. Sú kæra varðar önnur afbrot
sömu gerenda. Sýslumaðurinn rugl-
ar þarna saman aðskildum kærum,
en sú kæra er lögð fram fjórum dög-
um fyrr og er ekki til umræðu hér.
Ítrekað er að kærur okkar hjóna frá
06.08.00 vegna þjófnaðar voru aldrei
sendar ríkissaksóknara af sýslu-
manninum í Keflavík.
Ósvífni Jóns Eysteinssonar á sér
engin takmörk er hann ræðir um
heimili dóttur okkar sem var svívirt
og rænt, en hann talar í athugasemd
sinni um að íbúðin hafi verið „losuð“
rétt eins og um einhvern úrgang hafi
verið að ræða.
Sannanlega voru meintir gerendur
í þessum sakamálum ekki að erfa
okkur hjónin, né heldur dóttur okkar
eins og Jón Eysteinsson heldur fram.
Ég skora á sýslumanninn í Kefla-
vík að lýsa sig vanhæfan, vegna fyrri
afskipta af málinu og meintra emb-
ættisafglapa er varða mál þetta.
Sýslumaðurinn virðist ósáttur við
birtingu bréfs þessa á opinberum
vettvangi, en ég sá mér ekki annað
fært því að reynslan sýnir að gögn
eiga það til að týnast í meðförum
sýslumannsins.
HAFSTEINN ODDSSON,
Barðaströnd 16, Seltjarnarnesi.
Sýslumanninum í Kefla-
vík ekki treystandi
Frá Hafsteini Oddssyni
Opið bréf til Jóns Eysteinssonar