Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 61
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 61
Netfang: auefni@mbl.is
ÍSLAND mætir A-landsliði
Englands í fyrsta skipti í
knattspyrnulandsleik á City of
Manchester leikvanginum í
Manchesterborg laugardaginn
6. júní í sumar. Sex dögum
áður, sunnudaginn 30. maí, er
leikið gegn Japönum á sama
stað en þjóðirnar taka þátt í
þriggja landa móti sem er
lokaáfanginn í undirbúningi
Englendinga fyrir úrslitakeppni
EM í Portúgal og hjá Japönum
fyrir Asíuleikana.
Þar með er ljóst að Ísland
leikur fjóra landsleiki fyrri part
ársins, til undirbúnings fyrir
undankeppni HM sem hefst
4. september með leik gegn
Búlgaríu á
Laugardalsvellinum, en síðan
er spilað við Ungverjaland,
Möltu og Svíþjóð næstu vikur
þar á eftir.
Ísland hefur átta sinnum
leikið gegn Englandi en aldrei
áður hefur verið um A-lið
Englendinga að ræða.
Reyndar var leikur þjóðanna á
Laugardalsvellinum þann 2.
júní 1982, sem endaði 1:1,
skráður sem A-landsleikur hjá
Englendingum. Þeir voru þá
með tvö landslið í gangi í
lokaundirbúningi sínum fyrir
HM á Spáni en sterkara liðið
spilaði í Finnlandi á sama
tíma. Arnór Guðjohnsen
skoraði þá mark Íslands.
Leikið var tvisvar gegn
B-landsliði Englands og unnu
Englendingar báða leikina,
2:0 á Laugardalsvellinum
1989 og 1:0 í Watford 1991.
Hinir fimm leikirnir voru allir
gegn áhugamannalandsliði
Englands á árunum 1956 til
1971 og unnu Englendingar
fimm þeirra en einn endaði
með jafntefli.
Ísland hefur aðeins einu
sinni áður mætt Japan. Það
var í vináttulandsleik á
Laugardalsvellinum árið 1971
og Japanir unnu leikinn, 2:0.
Reuters
Íslenskir landsliðsmenn mæta David Beckham, fyrirliða Eng-
lands, og samherjum hans í Manchester.
Ísland leikur
gegn Englandi
í Manchester
TÍU manns týndu lífi í
mikilli sprengingu í Ísrael
á fimmtudag.
Palestínskur maður
framdi sjálfsmorð þegar
hann sprengdi öfluga
sprengju í strætisvagni.
Árásin var gerð í borginni
Jerúsalem.
Strætisvagninn tættist
í sundur. Um 50 manns
særðust í árásinni.
Árásin var gerð rétt hjá
skrifstofu Ariels
Sharons. Hann er
forsætisráðherra Ísraels.
Að minnsta kosti
3.727 manns hafa látið
lífið í átökum Ísraela og
Palestínumanna frá
september 2000.
Tíu týna lífi í sprengjuárás í Ísrael
Reuters
Sprengjan var gríðarlega öflug.
UM 50 starfsmönnum
Landspítalans hefur verið
sagt upp störfum vegna
sparnaðar í rekstri spítalans.
Margir hafa gagnrýnt þá
ákvörðun stjórnvalda að
spara í rekstri spítalans. Á
fjölmennum fundi í
Austurbæjarbíói var þess
krafist að Alþingi og
ríkisstjórnin endurskoðuðu
fyrri ákvörðun um sparnað.
„Ljóst er að sá
niðurskurður á þjónustu sem
nú hefur verið ráðist í stefnir
öryggi sjúklinga í hættu,“
sagði í ályktun fundarins.
„Með þessum aðgerðum
stjórnvalda er verið að rjúfa
þjóðarsátt um gott
heilbrigðiskerfi og
afleiðingarnar geta orðið
mjög alvarlegar.“
Málið var rætt á Alþingi í
vikunni og gagnrýndi
stjórnarandstaðan
ríkisstjórnina harðlega fyrir
að skera niður útgjöld
spítalans. Stuðningsmenn
stjórnarinnar mótmæltu
þessum orðum og bentu á að
útgjöld til spítalans hefðu
aukist verulegu á síðustu
árum.
Sparnaður í rekstri
Landspítalans
KÝRIN Áma frá Miðhjáleigu í
Austur-Landeyjum var
afurðahæsta kýr landsins á
síðasta ári. Þau Bertha G.
Kvaran og Jón Þ. Ólafsson
eiga Ámu og eru afar ánægð
með hana. Hún mjólkaði alls
11.842 kg á síðasta ári og
mjólkaði mest um 45 kg á
dag.
„Áma er frábær kýr í alla
staði, hún er þæg, góð og
stór sem er kostur fyrir kú
með svo mikla nyt. Það sem
er kannski merkilegast við
hana er hvað
efnasamsetning mjólkurinnar
er einstök,“ segir Bertha
Kvaran, aðspurð um þessa
góðu kú. Áma var auk þess
að vera afurðahæsta kýr
landsins með nýtt
Íslandsmet í magni verðefna.
Áma eignaðist kálf í fyrsta
skipti í lok september 2001.
Þau Bertha og Jón eiga
fjögur börn og fluttu frá
Hafnarfirði í sveitina 1998,
svo ekki er áralöng reynsla af
búskap ástæðan fyrir
þessum góða árangri. Þau
eru með 32 kýr.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Áma skilaði eigendum sínum mestum afurðum allra kúa á Ís-
landi árið 2003.
Áma er
frábær kýr
TVEIR merkir viðburðir í
kvikmyndaheiminum áttu sé
stað í vikunni. Golden
Globe-verðlaunin voru afhent
og tilkynnt var um tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna.
Flestar tilnefningar hlaut
lokakafli Hringadróttinssögu,
Hilmir snýr heim. Hún hreppti
ellefu tilnefningar og fékk líka
Golden Globe-verðlaun. Þar
var hún valin besta myndin
og Peter Jackson besti
leikstjórinn.
Í Óskarstilnefningunum
gerðist það að kona var
tilnefnd í þriðja sinn í
flokknum besti leikstjórinn.
Soffia Coppola var tilnefnd
fyrir myndina sína Glötuð
þýðing.
Golden Globe-verðlaunin
eru talin gefa vísbendingu um
verðlaunahafa á Óskarnum.
Hinn 29. febrúar verða
Óskarsverðlaunin síðan
afhent í Kodak-leikhúsinu í
Hollywood.
Golden Globe-verð-
Orlando Bloom leikur hug-
prúða álfinn Legolas í Hringa-
dróttinssögu.
Hringa-
dróttins-
saga
áberandi
launin og Óskarinn