Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 62

Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 62
DAGBÓK 62 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Skaptafell og Freri koma í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2 - 4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016 Mannamót Aflagrandi 40. Farið verður í Þjóðleikhúsið laugd. 7. febrúar að sjá Græna landið eftir Ólaf H. Símonarson pantanir í síma 562 2571 og í afgreiðslu Aflagranda. Rútuferð frá Grandavegi og Aflagranda Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Þorrablót verður haldið föstudag- inn 6. febrúar miðasala er hafin, allir velkomn- ir. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Fótaaðgerð- arstofan, sími 899 4223. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið er opið alla virka daga frá kl. 9–17. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahús- inu á Varmá, á sunnudögum kl. 11–12. Gjábakki, Fannborg 8. Fyrirhugað er að halda námskeiðið að skera í tré, undir leiðsögn Katrínar Karlsdóttur á miðvikudögum kl. 16. 15 ef næg þátttaka fæst. Skráning og nán- ari upplýsingar í Gjá- bakka s. 554 3400. Kristniboðsfélag karla. Aðalfundur fé- lagsins verður í kristni- boðssalnum Háaleit- isbraut 58-60 mánudaginn 2. febrúar kl. 20. Venjuleg aðal- fundarstörf. Allir karl- menn velkomnir. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. Norðurbrún 1. Þorra- blót verður haldið föstudaginn 6. feb. nk. kl 18. Þorramatur á borðum. Harmonikku- leikur, upplestur, Þor- valdur Halldórsson leikur fyrir dansi. Veislustjóri Gunnar Þorláksson. Skráning og upplýsingar í síma 568 6960. Kvenfélag Grens- ássóknar heldur aðal- fundinn í safn- aðarheimiliunu 9. febrúar kl. 20, venju- lega aðalfudnarstörf, erindi um konur í Ke- níu. Kvenfélag Seljasókn- ar. Aðalfundurinn verður þriðjudaginn 3. febrúar, kl.19.30 á dag- skrá: Léttur máls- verður, venjuleg aðal- fundarstörf. Rut Rebekka verður með fyrirlestur um jóga. Kvenfélag Garða- bæjar. Aðalfundurinn verður haldinn þriðju- daginn 3. febrúar að Garðaholti. Fundurinn hefst kl. 20. Kvenfélag Háteigs- sóknar aðalfundurinn verður þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20 í setrinu. Venjuleg aðalfund- arstörf, upplestur, munið félagsgjöldin. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði heldur aðalfundinn þriðjudaginn, 3. febr- úar í safnaðarheimilinu við Linnetstíg kl. 20.30. Kvenfélagið Fjallkon- urnar heldur spjall- fund þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20 í safn- aðarheimili Fella- og Hólakirkju. Konur beðnar að mæta með handavinnu. Vöfflu- kaffi. Kvenfélag Laug- arnessóknar. Aðal- fundurinn verður mánudaginn 2. febrúar kl. 20 í safnaðarheimili kirkjunnar. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Skóverslun Axels Ó. Lárussonar, Vest- mannabraut 23, Vest- mannaeyjum, s. 481 1826 Mosfell sf., Þrúðvangi 6, Hellu, s. 487 5828 Sólveig Ólafs- dóttir, Verslunin Grund, Flúðum, s. 486 6633 Sjúkrahús Suðurlands og Heilsu- gæslustöð, Árvegi, Sel- fossi, s. 482 1300 Versl- unin Íris, Austurvegi 4, Selfossi, s. 482 1468 Blómabúðin hjá Jó- hönnu, Unabakka 4, 815 Þorlákshöfn, s. 483 3794. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í s. 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Í dag er sunnudagur 1. febrúar, 32. dagur ársins 2004, Bændadag- ur, Brígidarmessa. Orð dagsins: En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóh. 17, 3.)     Hjörtur Einarsson seg-ir hægt að beita tungumálinu til að ná áhrifum og völdum. „Vissulega hafa margir orðfærir menn komist til valda með tungulip- urðina eina helst að vopni. Náð að heilla fjöldann með seiðmögn- uðum ræðum og sann- færingarkraftinum fólgn- um í hverju orði. En það er ekki eingöngu á þann hátt sem tungumálið get- ur verið nýtt til að ná yf- irhöndinni í samfélagi. Helsti mátturinn sem fylgir tungumálinu er nefnilega falinn og fæstir átta sig á að með því, að haga orðfæri sínu á ákveðinn hátt geta þeir verið að taka til sín völd, eða misst þau,“ segir hann í pistli á Sellan.is.     Hjörtur nefnir þéringarsem dæmi. „Það er ekki ýkja langt síðan þéringar lögðust af hér á landi þó að fáir undir fertugu hafi alist upp við slíkan sið. Þéringar eru líklega einn af sýnileg- ustu (eða áheyrilegustu) þáttum valdbeitingar með tungumáli. Það má kannski teljast jákvætt að þéringar leggist af, sér í lagi í hugum jafn- aðarmanna og mætti sjálfsagt finna sam- svörun á milli minni þér- inga og meiri jafnaðar. Það er líka nokkuð dæmigert að þéringar finnast einkum hjá einum aðila á Íslandi í dag, hinu opinbera. Í dag þykir það nefnilega ekkert sér- staklega vottur um kurt- eisi að þéra einstaklinga. Þvert á móti virðist sá sem þérar vera að setja sjálfan sig á stall. Það er því engin kurteisi fólgin í því þegar hið opinbera þérar þig í bréfum. Þessi aðferð er notuð til að fá þig til að hlýða. Valdbeit- ing heitir þetta öðru nafni. Lúmskt, ekki satt?“     Jón Einarsson skrifarlíka um áhrif orðanna á vef ungra framsókn- armanna en í öðru sam- hengi. Nefnir hann spjallþræði Netsins sem dæmi og nýleg ummæli Magnúsar Þórs Haf- steinssonar þingmanns á þeim vettvangi þar sem hann sagðist ætla að „bomba“ samstarfsmenn sína á Alþingi. „Þannig eiga þeir sem treyst er til að setjast á þing og fara með stjórn landsins ekki að tala,“ segir Jón.     Hann segir eitt alvegljóst: „Hinn nýi vett- vangur stjórnmálaum- ræðunnar, spjallþræð- irnir, er vandmeðfarinn. Og þó svo að nafnleyndin sem þeim fylgir geti virkað hvetjandi á menn, að setja fram skoðanir og sjónarmið sem þeir vita að kunna að vera óvin- sæl, þá ber líka að huga að því að hægt er að mis- nota nafnleyndina. Og þegar menn lesa það sem þar kemur fram verða menn að lesa það með þessa mögulegu misnotk- un í huga,“ segir Jón. STAKSTEINAR Máttur tungumálsins Víkverji skrifar... Nordica hótel er smekklegt aðmati Víkverja en þangað kom hann í fyrsta skipti á blaðamanna- fund á dögunum. Fundurinn var haldinn í litlum fundarsal og fyrir svörum sátu nokkrir einstaklingar. Víkverji tók samviskusamlega að vanda upp það sem fram fór á fund- inum og hélt svo á vinnustaðinn til að skrifa fréttina. En þá komst hann að því sér til mikillar gremju að illa heyrðist af segulbandinu hvað fram fór á fundinum. Eiginlega heyrðist ekki neitt. Samt hafði Víkverji sama dag skipt um rafhlöður í tæki sínu sem hann hefur oft notað og þekkir út og inn. Víkverji fór að kvarta yfir þessu við samstarfsfélaga og komst að því að sá hafði sömu sögu að segja af litlu fundarsölum Nordica. Ein- hverra hluta vegna berst hljóðið illa um salina sem eru annars til fyr- irmyndar hvað allt annað varðar að mati Víkverja. Héðan í frá mun Vík- verji því einbeita sér að því að hrað- skrifa allt sem fram fer á fundum í þessum sölum og halda upp- tökutækinu nálægt viðmælendum sínum. Reyndar er einn annar vinsællfundarstaður sem Víkverji hefur slæma reynslu af hvað þetta varðar. Hann er ekki einn um það og hefur heyrt það sama frá fjölmörgum starfsbræðrum sínum og -systrum. Hér er um að ræða sjálft Þjóðmenn- ingarhúsið, þ.e. stóra fallega salinn þar sem fyrirmenn á borð við forseta og forsætisráðherra erlendra þjóða halda oft á tíðum blaðamannafundi meðan á dvöl þeirra hér stendur. Það er varla nokkur leið að heyra orðaskil af segulbandsupptöku úr Þjóðmenningarhúsinu. Hljóðið virð- ist fara út og suður um þennan fal- lega sal og enda sennilega á því að fara beint út um gluggann, í það minnsta ekki í segulbandið hjá Víkverja. x x x Nú kann Víkverji engar skýringará því af hverju sumir fundarsalir eru verri en aðrir hvað þetta varðar. Hann hefur t.d. verið í mjög stórum teppalögðum fundarsölum og heyrt vel af segulbandinu en einnig verið í sölum af sömu stærðargráðu þar sem verra er að heyra orðaskil. Kannski er þetta vandamál sem ein- faldlega má laga. Kannski ekki. Kannski er eitthvað að heyrn Vík- verja. Hver svo sem skýringin er fær Víkverji alltaf smáhnút í magann þegar hann þarf að sitja mikilvæga blaðamannafundi í Þjóðmenning- arhúsi með erlendum þjóðhöfð- ingjum. Umhverfið er vissulega til- komumikið en það hjálpar nú lítið til við fréttaskrifin. Segulbands- upptaka er hins vegar orðin ómiss- andi fyrir nútímablaðamanninn. Morgunblaðið/Ásdís Upptökutæki er þarfasti þjónn nútímablaðamannsins. Ættingja leitað ÉG á ættingja á Íslandi og óska eftir að komast í sam- band við 2 konur á Íslandi. Við erum fjórmenningar og faðir þeirra hét Håkon Jen- sen og var fæddur á eyjunni Hitra sem er fyrir utan Þrándheim. Ég veit ekki hvað frænkurnar heita en held að þær séu á sextugs- aldri. Meðfylgjandi mynd er af þeim á barnsaldri. Ég vonast eftir að ferðast til Íslands og vildi gjarnan hitta þær þá og vona ég að þær hafi sam- band við mig en þær eiga fleiri ættingja í Noregi og eru þær beðnar að hafa samband við: Edgar Skjønhals, P.O. Box 141, N-2501 Tynset, Norge. Kleppsvegur 66–76 - endurfundir VIÐ sem vorum búsett á Kleppsvegi 66-76 á árunum 1965-1980 ætlum að hittast laugardaginn 7. febrúar nk. Þeir sem hafa áhuga á að mæta geta fengið nánari upplýsingar hjá Árnu Mar- íu í síma 553 5392, Guðrúnu í síma 553 6397 eða Svövu í síma 691 3533. Hvítur, loðinn köttur týndur HVÍTUR, ómerktur persa- köttur með blá augu týndist frá heimili sínu í Grjótaseli í Breiðholti sl. þriðjudag. Hann heitir Legolas og er venjulega mjög loðinn en var nýbúinn að fá klipp- ingu. Legolas er inniköttur og hefur því ekki ratað heim til sín en þeir sem búa í nágrenninu eru beðnir að svipast um eftir honum í bílskúrum og annars staðar þar sem hann gæti hafa far- ið inn. Persar eru mjög kul- sælir og því er nokkuð víst að Legolas hefur sótt ein- hvers staðar inn. Þeir sem hafa orðið varir við hann eru beðnir að hafa samband við Evu í síma 846 5662. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 blíða, 8 smákvikindi, 9 mannsnafn, 10 skart- gripur, 11 hendi, 13 tarfs, 15 kuldastraum, 18 hrópa, 21 búinn, 22 víkka, 23 raunveruleiki, 24 logandi. LÓÐRÉTT 2 einn postulanna, 3 upp- hefð, 4 hitann, 5 skútu, 6 fita, 7 öruggur, 12 álít, 14 fæða, 15 spendýr, 16 snákur, 17 þreytuna, 18 ker, 19 launung, 20 bára. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 ámóta, 4 hægur, 7 japla, 8 rósum, 9 ráf, 11 norn, 13 þrír, 14 æskir, 15 fjör, 17 ásar, 20 fló, 22 vakur, 23 ljóri, 24 sárið, 25 neita. Lóðrétt: 1 áþján, 2 óspar, 3 afar, 4 horf, 5 gusar, 6 róm- ur, 10 Áskel, 12 nær, 13 þrá, 15 fávís, 16 öskur, 18 skóli, 19 reisa, 20 frið, 21 ólán. Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.