Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 63
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir leiðst út í deilur um
heimspekileg eða trúarleg mál-
efni í dag. Spurðu sjálfa/n þig
að því hvort rifrildið snúist ekki
í raun og veru um eitthvað allt
annað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú vilt fá þínu framgengt ann-
að hvort í vinnunni eða á heim-
ilinu í dag. Reyndu að sýna þol-
inmæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú gerir þér grein fyrir því að
samband þitt við einhvern þarf
að breytast. Reyndu að vera
opin/n og heiðarleg/ur og
mundu að það þarf einhver að
taka fyrsta skrefið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
gera breytingar í kringum þig.
Þú ættir þó að ganga úr skugga
um að aðrir séu þér sammála
áður en þú hefst handa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú berð heitar tilfinningar til
einhvers en verður að gæta
þess að fæla ekki viðkomandi í
burtu með ákafa þínum. Ef þú
heldur aftur af þér ætti sam-
band ykkar að verða ánægju-
lega eftirminnilegt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú getur ekki bætt samband
þitt við vin þinn með því að
breyta honum/henni. Eina leið-
in til að bæta sambandið er að
sætta þig við hann/hana eins og
hann/hún er.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig langar til að gera umbætur
í vinnunni og þú gerir ráð fyrir
að samstarfsmenn þínir séu
þér sammála. Það er þó ekki
sjálfgefið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Samband þitt við einhvern ná-
inn þér er komið á það stig að
þið eruð sammála um að vera
ósammála. Þú leggur að öllu
jöfnu mikið upp úr stöðugleika.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fylgdu innsæi þínu og gerðu
gagngerar umbætur á heim-
ilinu. Hikaðu ekki við að losa
þig við það sem þú hefur ekki
lengur not fyrir. Þú þarft að
geta byrjað alveg frá grunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð ekki fólk til að sam-
sinna þér með því að æpa á það.
Prófaðu að taka eitt skref aftur
á bak þannig að félagi þinn geti
stigið skref fram á við.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert haldin/n sterkri löngun
til að kaupa eitthvað sem er
sennilega ekki mjög skyn-
samlegt. Það mælir hins vegar
ekkert á móti því að þú íhugir
möguleikana sem þér standa til
boða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það lítur út fyrir að samband
sem hefur skipt þig miklu máli
sé að rofna. Til að koma í veg
fyrir það þarftu að sýna mikinn
sveigjanleika og velvilja.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundin/n, vel að
þér og hefur skarpa hugsun.
Aldurinn mun færa þér
aukinn andlegan styrk.
HLUTAVELTA
SVO virðist sem farið sé að
nota so. að fljúga á annan
veg en ég og vafalítið marg-
ir fleiri hafa vanizt. Flug-
maðurinn flýgur flugvél-
inni, hvort sem hann er
einn í vélinni eða farþegar
með honum. Þá segir mál-
venjan okkur, að það hafi
t.d. verið flogið með far-
þega til Ísafjarðar. Hins
vegar var þeim aldrei flogið
þangað, það er að segja,
þeir voru ekki sjálfir þol-
endur. Ég held lesendur
geti verið mér sammála um
þetta. Ég hef vissulega ein-
hvern tímann heyrt so. að
fljúga notað á þennan hátt
og það ekki nýlega. Við at-
hugun sé ég, að þetta so.
hefur ekki verið til umræðu
í þessum pistlum. Er þess
vegna sjálfsagt að fara um
það nokkrum orðum af
gefnu tilefni. Fyrir fáum
dögum var í fréttum Rík-
isútvarpsins sagt frá fanga-
skiptum í Ísrael. Með
nokkra fanga var farið til
Þýzkalands. Þá komst
fréttastofan svo að orði
eitthvað á þessa leið: Þeim
var flogið til München.
Þessi notkun so. að fljúga
er ótæk. Þeim var aldrei
flogið neitt, enda gandreið-
ar löngu af lagðar. Hér átti
auðvitað að segja, Flogið
var með þá til Þýzkalands.
Í OE 2002 segir m. a. svo
um so. að fljúga: „2 ferðast
með flugvél (flugtæki): ráð-
herrann flaug til Færeyja í
morgun.“ Ég held það væri
fremur óviðfelldið að
breyta þessu orðalagi og
segja: ráðherranum var
flogið til Færeyja í morgun.
Flestir myndu áreiðanlega
veigra sér við að komast
þannig að orði. Auðvitað
skilja allir, við hvað er átt,
og engum dettur annað í
hug en ráðherrann hafi
verið innaborðs og í vélinni
og flugmaðurinn flogið með
ráðherrann til Færeyja, en
ekki flogið honum sjálfum.
Þá gerir enginn ráð fyrir
því, að ráðherrann hafi
stýrt flugvélinni, þótt sagt
sé: hann flaug til Færeyja.
Auðvitað var það flugmað-
ur með réttindum, sem
stjórnaði vélinni. – JAJ.
ORÐABÓKIN
Fljúga einhverju
GAMALL MAÐUR
OG HVÍTT HÚS
Fugl,
fugl dagsins
er floginn til vesturs
úr vitund minni.
Lát fótatak mitt
dreyma fjarlægð sín sjálfs
undir forhlið þinni.
Lát þinn hvíta vegg
verða að húmbláum skugga
í hugsun minni.
Steinn Steinarr
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Bb5
Dc7 4. Rf3 Rf6 5. O-O Rd4
6. He1 a6 7. Bf1 Rg4 8. g3
Rxf3+ 9. Dxf3 Re5 10. De2
e6 11. Bg2 d6 12. b3 Be7 13.
Bb2 Rc6 14. Rd1 Rd4 15.
Dd3 Bf6 16. c3 Rc6 17. Re3
O-O 18. Rg4 Be7 19. De2
Bd7 20. Hed1 a5 21. d4 a4
22. Hab1 axb3 23. axb3 Ha2
24. Re3 cxd4 25. cxd4 Bf6
26. e5 dxe5 27. dxe5 Be7 28.
Rc4 Rb4 29. Rd6 Bc6 30.
Dc4 Rd5 31. Bd4 Bxd6 32.
exd6 Dd7 33. Bc5 Hc8 34.
Dd4 Rf6 35. Bxc6 Hxc6 36.
Ha1 Hxa1 37. Hxa1 Hc8 38.
Ha7 Dc6 39. Ba3
h5 40. Db4 b5 41.
Dd4 Hd8 42. Hc7
Df3 43. d7 e5 44.
Dxe5 Dd1+ 45.
Kg2 Hxd7 46.
Hc5 h4 47. Df5
Hd8 48. Bb2 Rg4
49. Hc8 Hxc8 50.
Dxc8+ Kh7 51.
Df5+ Kg8 52. h3
Dxb3 53. Bxg7??
Margir skák-
menn þekkja þá
gryfju vel að tefla
of stíft til vinn-
ings í jöfnu tafli
er leiðir til þess
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
að sá sem þráelkast við að
fallast á skiptan hlut situr
uppi með sárt ennið. Í þess-
ari skák hafði Sergei Tivja-
kov (2600), hvítt, reynt of
mikið að vinna hinn unga
bandaríska stórmeistara
Hikaru Nakamura (2571) í
B-flokki Corus skákhátíð-
arinnar sem lauk fyrir
skömmu. 53... Dxg3+! 54.
fxg3 Re3+ 55. Kf3 Rxf5
svartur fær nú gjörunnið
endatafl enda tveim peðum
yfir. 56. Bc3 hxg3 57. Bb4
Kg7 58. Bc5 Kg6 59. Kg4
g2 60. Kf3 b4 61. Kxg2 b3
62. Ba3 Re3+ 63. Kf3 Rc4
64. Bc1 Kf5 65. h4 b2 66.
Bxb2 Rxb2 67. h5 Kg5 68.
Ke4 Kxh5 69. Kf5 Rc4 og
hvítur gafst upp.
ÞEGAR litið er á hendur NS
ber ekki á öðru en að slemma
í tígli sé nákvæmlega 50%.
Norður
♠D82
♥Á62
♦D1095
♣K64
Suður
♠ÁK5
♥K74
♦ÁKG842
♣7
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
Pass 2 tígar * Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
* Góð hækkun.
Vörnin á slag á laufás, en
ef hann liggur í vestur má
henda einu hjarta niður í
laufkónginn. Í sveitakeppni
er ásættanlegt að segja 50%
hálfslemmur, því ágóðinn ef
slemman vinnst er jafn tap-
inu ef hún fer niður. Dæmi:
Fyrir að vinna fjóra spaða
með tveimur yfirslögum fást
480, en 980 fyrir slemmuna.
Mismunurinn er 500 stig,
eða 11 IMPar. Ef slemman
tapast, fæst 450 fyrir geimið
og 50 í viðbót fyrir einn niður
í slemmunni. Aftur sami mis-
munur, 500, og sveifla upp á
11 IMPa.
Af þessu leiðir aug-
ljóslega: Allar hálfslemmur
sem eiga sér meira en 50%
vinningsvon eru góðar. Og
slemman að ofan er aðeins
fyrir 50 prósentin. Það sést á
þessu: Útspil vesturs er lauf-
gosi, sem þýðir auðvitað það
eitt að hann á ekki ásinn.
Hvernig á að spila með tilliti
til þess?
Ef austur á fimmlit í
hjarta til hliðar við laufásinn
vinnst slemman nokkuð
sjálfkrafa með þvingun:
Norður
♠D82
♥Á62
♦D1095
♣K64
Vestur Austur
♠G743 ♠1096
♥D10 ♥G9853
♦76 ♦3
♣G10982 ♣ÁD53
Suður
♠ÁK5
♥K74
♦ÁKG842
♣7
Sagnhafi lætur lítið lauf úr
borði, trompar það næsta og
tekur alla slagina í trompi og
spaða. Síðasta slaginn tekur
hann á spaðadrottningu í
blindum, en á þá Áx í hjarta
og laufkóng. Heima er hann
með K74 í hjarta. Austur
getur enga björg sér veitt,
hann verður að henda hjarta
og þá fæst úrslitaslagurinn á
hjartahund heima.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Morgunblaðið/Sigríður
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 22.443 kr. til styrktar Fé-
lagi aðstandenda Alzheimer-sjúklinga. Þær eru Hrefna
Lára Sighvatsdóttir, Fanney Elsa Hólmgeirsdóttir, Rakel
Tómasdóttir og Guðrún Haraldsdóttir.
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla16.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Óþolsgreining
Hómópatinn og grasalæknirinn
Roger Dyson
verður staddur í Reykjavík
dagana 4.-7. febrúar.
Upplýsingar og tímapantanir í síma
588 3077 eða 897 3077.
Námskeið í indverskri grænmetismatargerð
Fæða fyrir sál og líkama
Skemmtilegt eitt kvöld 4., 9. eða 11. feb.
kl. 18—22.30 með Shabönu,
símar 581 1465 og 659 3045.
Indversk matargerð í eldhúsinu þínu.
Ef þú vilt halda veislu þá kem ég á staðinn
og sé um matinn.
Skemmtileg gjafabréf fyrir þá, sem ætla að
gefa skemmtilega gjöf.
Nýbýlavegi 20, sími 554 5022.
16 ára afmælistilboð
Súpa og fjórir réttir. Verð 1.000 á mann.
Gildir til 1. febrúar.
Skemmtifundur kl. 15.00 í dag í Glæsibæ
Meðal harmónikuleikara er Svanur Úlfarsson
Hljómsveit F.H.U.R. leikur nýja dagskrá
undir stjórn Reynis Jónassonar.
Félagar úr Harmonikufélagi Selfoss o.fl.
Kaffikonur sjá um veitingar.
Allir alltaf velkomnir á skemmtifundi F.H.U.R. F.H.U.R
Afmælisþakkir
Ég þakka hinum mörgu er heiðruðu mig á 90
ára afmæli mínu 31. desember sl., með gjöfum,
blómum og hlýjum handtökum. Ég þakka ein-
staklingum, landssamtökum og fjölskyldu minni
fyrir ógleymanlegan dag.
Franch Michelsen,
úrsmíðameistari,
Mánatúni 6, Reykjavík.
Jóga fyrir karla
Byrjendanámskeið í jóga fyrir karla hefst í íþróttahúsinu
Ásgarði, Garðabæ, 9. febrúar. Kennt verður á mánu-
daga og miðvikuddaga kl. 20:30-21:45 í fjórar vikur.
Upphitun, öndun, athyglisæfingar, jógastöður og slökun.
Kennari er Anna Ingólfsdóttir kripalujógakennari.
Upplýsingar og skráning
í símum 565 9722 og 893 9723.
Aðrir tímar í Kirkjuhvoli í Garðabæ
Framhaldstímar........ þriðjud. og fimmtud. kl. 18:00-19:15
Byrjendur ................. þriðjud. og fimmtud. kl. 19:30-20:45
Anna Ingólfsdóttir