Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 68
68 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
MEG RYAN
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra
„THE PIANO“
JANE CAMPION
Sýnd kl. 9. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur
frábæra dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10.
Stórskemmtileg og sprenghlægileg
gamanmynd með Eddie Murphy
sem kemst í hann krappann ásamt
fjölskyldu sinni þegar þau gista á
gömlu draugasetri!
Sýnd kl. 3 og 5.
VG DV
Roger Ebert
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
Sýnd kl. 1.50. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 5.40. B.i. 16.
Erótísk og örgrandi.
Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin.
Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth.
í i
i l f i .
l l f i ili .
Sýnd kl. 1.45. Íslenskt tal.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur
frábæra dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
Ein vinsælasta myndin á Íslandi 9 vikur í röð!
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 10
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
The Rolling Stone
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10. b.i. 14 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6.10, 8 og 10. b.i. 14 ára.
STÓRFYRIRTÆKIÐ Disney hef-
ur glatað samningum við tölvu-
teikningafyrirtækið Pixar sem hef-
ur staðið að nokkrum af vinsælustu
teiknimyndum síðari ára; Pöddulífi,
Leikfangasögu, Skrímslum HF og
nú síðast Leitinni að Nemo.
Disney hefur séð um að dreifa
þessum afurðum Pixar og óhætt
að segja að þetta sé áfall fyrir
Disney. T.d. er myndin um
Nemo vinsælasta teikni-
mynd frá upphafi – sé
mið tekið af innstreymi
fjármagns.
Pixar fór fram á meiri
hlut í ágóða, þar sem myndirnar
hafa verið þetta vinsælar. Disney
hafnaði þessu og með því rifti Pix-
ar samningum. Steve Jobs, yf-
irmaður Pixar og fyrrum frum-
kvöðull Macintosh segir að eftir tíu
mánaða fundasetu séu þeir búnir
að gefast upp og ætli að snúa sér
annað.
„Samstarfið hefur verið einkar
farsælt – líklega það farsælasta í
sögu Hollywood,“ segir Jobs. „Það
er leitt að Disney muni ekki taka
þátt í framtíðarsigrum okkar.“
Pixar mun klára þær tvær
myndir sem það á eftir að fram-
leiða fyrir Disney. Hina ótrúlegu
(The Incredibles) sem kemur út á
þessu ári og svo Bíla (Cars) sem
kemur út 2005. Eftir það ætlar Pix-
ar að vera algerlega á eigin vegum.
Pixar riftir samningi við Disney
Leikfangasaga var fyrsta myndin
sem Pixar gerði.
Verður sjálfstætt
RAPPARINN Jay-Z lýsti því yfir í
vikunni að hann og kærasta hans
og jafnframt ein skærasta stjarnan
í heimi poppsins, Beyoncé Knowl-
es, myndu gifta sig innan tíðar.
Þessu lýsti hann yfir á nætur-
klúbbinum Taj á Manhattan í
veislu sem haldin var til heiðurs
framkvæmdastjóra Island Def
Jam-plötufyrirtækisins, Lyor Coh-
en. Eftir kveðjuræðu Lyors greip
Jay hljóðnemann með Beyoncé sér
við hlið og lýsti yfir: „Þessi kona
við hliðina á mér er besti vinur
minn. Ég elska hana mjög mikið
og ég ætla að kvænast henni innan
tíðar.“
Breska dagblaðið Daily Mirror
hafði eftir gesti í samkvæminu að
þetta hefði verið óvænt: „Þetta var
mjög óvænt og allir á staðnum
byrjuðu að hrópa og gleðjast með.
Beyoncé stóð við hliðina á honum
og virtist alveg ástfangin upp fyrir
haus. Hún gat vart falið gleði sína.
Þetta var mjög falleg stund.“
Fyrr í vikunni játaði Beyoncé að
hún vildi að Jay-Z bæði hennar.
Aðspurð hvort hún myndi í staðinn
biðja hans á hlaupársdegi, 29.
febrúar, en þá er hefð fyrir því að
konur biðji karla, svaraði hún:
„Aldeilis ekki, ég er af gamla skól-
anum, þannig stelpa sem vill bíða
eftir að strákurinn fari niður á
annað hnéð.“
Jay-Z yfir sig ástfanginn
Bráðum í hjóna-
band með Beyoncé?
Beyoncé á tónleikum í Cannes í
Frakklandi fyrr í vikunni.
Reuters
BANDARÍSKA sjónvarps-
töðin NBC hefur í hyggju
að framleiða bandaríska út-
gáfu af Skrifstofunni,
breska grínþættinum sem
sló í gegn á Golden Globe
og verður tekinn til sýn-
inga hérlendis innan
skamms.
Grínleikarinn Steve Ca-
rell hefur verið orðaður við
hlutverk yfirmannsins óþolandi en
einhverjir ættu að kannast við
hann úr myndinni Bruce hinn al-
máttugi, þar sem Jim
Carrey er í aðalhlutverki.
Yfirmenn NBC segja að
þeirra útgáfa verði byggð
lauslega á hinum sigur-
sæla breska þætti, fremur
en að þeir ætli að „afrita“
frumgerðina.
Handritsgerð verður í
höndum Greg Daniels,
þess sama og var heilinn á
bakvið þættina King of the Hill.
Hann hefur einnig unnið að Sein-
feld og Simpsons.
Bandarísk Skrifstofa
Steve Carell.