Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 72

Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 300 KR. MEÐ VSK. GUÐJÓN Þórðarson hefur skrifað undir nýjan samning við enska 2. deildarliðið Barnsley, þar sem hann er knatt- spyrnustjóri. Hann tók við stjórn liðsins sl. sumar en síðan skipti félagið um eigendur og hinir nýju voru nú að semja við Guðjón upp á nýtt. „Það sem vekur at- hygli mína er hve samn- ingurinn er einfaldur í sniðum – miklu einfald- ari en samningur minn við Stoke á sínum tíma.“ Hann gildir ekki í ákveðinn tíma, en er ætíð uppsegj- anlegur með 12 mánaða fyrirvara. „Launaliðir eru svipaðir og í gamla samn- ingnum, en bónusar miklu hærri og ef rekstur félagsins batnar nýt ég líka góðs af því,“ segir Guðjón. Peter Ridsdale, aðaleigandi og stjórn- arformaður félagsins, segir í samtali við Morgunblaðið að aldrei hafi komið til greina að skipta um framkvæmdastjóra eftir að hann eignaðist félagið í haust. „Nei, að mínu mati hefur [Guðjón] staðið sig afar vel í starfi,“ sagði hann. Ridsdale, sem áður var stjórnarformaður úrvals- deildarfélagsins Leeds United, kveðst hrí- fast af þeim aga og metnaði sem hann segir einkenna störf Guðjóns, „enda hef ég fullvissað hann um það að við munum byggja félagið upp í sameiningu.“ Guðjón semur á ný við Barnsley  Afslappaður/20 ÓVENJU kalt hefur verið á land- inu undanfarna daga og hefur frost víða náð tveggja stafa tölu. Samkvæmt spá Veðurstofu Ís- lands verður ekkert lát á kuld- anum í dag eða á morgun og verður frost víða á bilinu 8 til 13 stig til landsins, en 3 til 8 við sjávarsíðuna. Á þriðjudag er gert ráð fyrir að dragi heldur úr frosti og má reikna með að frost- laust verði sunnanlands síðar í vikunni. Í gærmorgun mældist 23 gráða frost á Setri suður af Hofsjökli og á Hveravöllum var 18 gráða frost. Enn er þó langt í að kulda- met verði slegin en mestur kuldi mældist frostaveturinn mikla 1918, þá var 38 gráða frost á Grímsstöðum og í Möðrudal. Í Reykjavík hefur Tjörnina lagt en fáir virðast nýta sér hana til skautaiðkunar þótt fjölmargir stytti sér leið yfir hana.Morgunblaðið/Heiðar Þór Áfram er spáð frosti UNGT fólk á aldrinum 18–24 ára, foreldrar barna og fráskildir fresta eða hætta við heim- sóknir til lækna umfram aðra hópa eða 28–33% einstaklinga í þessum hópi. Þetta kemur meðal annars fram í viðamikilli heilbrigðiskönnun sem byggist á svörum nærri 2.000 einstaklinga á aldrinum 18–75 ára um allt land en rannsóknin leiddi í ljós að fjórði hver þátttakandi frestaði eða hætti við heimsókn til læknis. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor og doktor í heilsufélagsfræði, segir að það sem skipti mestu máli varðandi möguleika á að komast til læknis sé að fólk hafi heimilislækni sem það þekki með nafni, eigi auðvelt með að komast frá vinnu eða heimili og að ekki sé langt að sækja þjónustuna. Skýringar á því hvers vegna ungt fólk, 18–24 ára, frestar læknisheimsókn fremur en aðrir eru í samræmi við þetta. Þannig hafa aðeins tæp 69% þeirra heimilislækni sem þau þekkja með nafni. Elsti hópurinn, 65–75 ára, hefur hins veg- ar nær allur, eða 90%, slíkan lækni. „Tengsl yngsta fólksins við heilbrigðisþjón- ustuna eru veik,“ segir Rúnar, „landfræðilegur hreyfanleiki er líka mikill, meðal annars vegna náms, og fjárhagsstaðan er oft slæm. Trygg- ingaverndin er mun meiri hjá öldruðum og þeir borga lág komugjöld í hverri heimsókn til lækn- is. Athyglisvert er í þessu sambandi að enginn í aldursflokknum 65–75 ára frestaði læknisheim- sókn vegna kostnaðar en það gerðu hins vegar 13% í yngsta aldurshópnum.“ 20 þúsund manns án heimilislæknis Að sögn Óskars Einarssonar, formanns Læknafélags Reykjavíkur, er áætlað að um 20 þúsund manns á Reykjavíkursvæðinu séu án heimilislæknis. Óskar segir að aðgengi að heim- ilislæknum á Reykjavíkursvæðinu hafi sýnst erfiðara síðustu árin og að uppbygging heilsu- gæslunnar sé ekki í takt við fólksfjölgun á svæð- inu. „Fyrir 10 árum var aðgengi að heimilislækn- um þannig að allir gátu fengið tíma innan 2ja til 3ja daga,“ segir Jóhann Ágúst Sigurðsson, pró- fessor í heimilislækningum við Háskóla Íslands. „Þetta hefur breyst síðustu 5 árin. Nú þarf fólk í sumum tilvikum að bíða í allt að viku ef ekki er um bráðatilfelli að ræða.“ Jóhann Ágúst bendir á að mikið af tíma sér- fræðinga fari í eftirlit sem kemur í veg fyrir að þeir geti tekið eins marga nýja sjúklinga. „Þeir ættu að geta vísað þessu eftirliti til heimilis- læknanna. Ef þeir hins vegar gerðu það myndu heilsugæslustöðvarnar ekki ráða við það að óbreyttu. Aðallausnin er að mínu mati að fjölga heimilisæknum. Annað úrræði væri til dæmis að breyta launakerfinu þannig að hluti launanna væri afkastahvetjandi. Enn ein lausnin væri að auka þátt annars heilbrigðisstarfsfólks í hjúkr- unar- og sálfræðiþjónustu. Hjúkrunarfræðing- ar gætu annast fleiri störf en þeir gera nú, til dæmis krabbameinsleit, sykursýkiseftirlit, blóðþrýstingseftirlit og ráðgjöf af ýmsu tagi,“ segir Jóhann Ágúst. Ungt fólk, foreldrar barna og fráskildir leita síður til læknis Fjórði hver frestaði eða hætti við að fara til læknis  Tímarit/18 „JEG VAR presenteraður fyrir Konunginum, sem accepteraði mig, og hef jeg fengið officiel tilkynningu frá Alberti [Íslands- ráðherra] um, að Konungur, hafi ályktað að útnefna mig frá og með þeim degi að telja, er lögin öðlast gildi,“ segir Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Ís- lands, í bréfi til Klemensar Jónssonar, sýslumanns Eyfirð- inga og bæjarfógeta á Akureyri, dagsettu 17. nóvember 1903. Bréf Hannesar til Klemensar þar sem hann óskaði eftir því við Klemens að hann tæki að sér embætti landritara, eru í eigu afkomenda Klemensar og hafa ekki áður komið fyrir al- menningssjónir. Í grein Önnu Agnarsdóttur, dósents í sagnfræði við Háskóla Íslands og barnabarns Klemens- ar, í aukablaði Morgunblaðsins um 100 ára afmæli heima- stjórnar er bréf Hannesar og svarbréf Klemensar birt í heild sinni. Agnar Klemens Jónsson, son- ur Klemensar, varðveitti bréfin í bankahólfi áratugum saman og segist Anna ekki vita til þess að vitnað hafi verið til þeirra eða greint frá innihaldi þeirra áður. Anna segir fjölskylduna hafa varðveitt heilmikið af per- sónulegum heimildum Klemens- ar og bréfin frá Hannesi hafi verið þar á meðal. „Fjölskyldan hefur vitað um þessi bréf og hefur haldið þeim til haga. Pabbi hefur væntanlega ætlað að nota sér bréfin einhvern tím- ann en ekki komið því í verk,“ segir Anna Valdi Klemens „Nú er hið fyrsta og merk- asta sem fyrir liggur, að fá rjettan mann til landrit- unarstöðunnar, sem er sú af- armikilsvarðandi. Þjer mun ef til vill vera kunnugt, að þar eru skiptar skoðanir, eins og geng- ur, og einn heldur þessum fram, annar hinum. Jeg er enn og hef stöðugt verið sömu skoðunar eins og jeg lauslega ljet í ljósi við þig í þingbyrjun í sumar, að jeg kýs helst þig, og er því efni þessa brjefs að spyrja þig, hvort þú viljir takast landritaraemb- ættið á hendur,“ skrifaði Hann- es í bréfi til Klemensar Jóns- sonar. Skemmst er frá því að segja að Klemens ritaði Hannesi bréf frá Akureyri og tók tilboðinu og gegndi Klemens síðan land- ritaraembættinu til 1917 þegar það var lagt niður og fyrsta þriggja ráðherra stjórnin var skipuð. Áður óbirt bréf Hannesar Hafstein birt á aldarafmæli Heimastjórnar Geymd í bankahólfi áratugum saman Morgunblaðið/Ásdís Anna Agnarsdóttir með bréfin frá Hannesi Hafstein og svarbréf Klemensar.  Heimastjórn/B9 ÍSLENDINGAR fjárfestu tuttugu millj- örðum króna meira erlendis á árinu 2003 en árið á undan og hafa aldrei varið jafn- háum fjárhæðum til erlendra verðbréfa- kaupa og í fyrra frá því farið var að halda saman upplýs- ingum í þessum efn- um fyrir tíu árum síðan. Samtals námu er- lend verðbréfakaup í fyrra 45,5 milljörð- um króna en á árinu 2002 voru keypt er- lend verðbréf fyrir 25,7 milljarða króna. Kaupin árið 2000 námu 40,5 millj- örðum króna, en á árinu 2001 voru kaupin hverfandi miðað við það og námu einungis 3,7 milljörðum króna, samkvæmt upplýs- ingum tölfræðisviðs Seðlabanka Íslands. Fimmtungur eigna erlendis Það eru lífeyrissjóðirnir sem einkum standa fyrir þessum fjárfestingum erlend- is. Í lok nóvember síðastliðins nam erlend verðbréfaeign lífeyrissjóðanna 152,2 millj- örðum króna sem var tæpur fimmtungur af hreinni eign þeirra og hafði vaxið um fjögur prósentustig á árinu, að því er fram kemur á heimasíðu Landssamtaka lífeyr- issjóða. Fram kemur að heimsvísitala hlutabréfa Morgan Stanley hækkaði um 30% í Banda- ríkjadölum á síðasta ári eftir lækkanir þrjú árin þar á undan. Hins vegar lækkaði Bandaríkjadalur um 11,9% gagnvart ís- lensku krónunni á síðasta ári og evran hækkaði um 6%. Erlend verð- bréf keypt fyrir 45,5 milljarða   #"  ,---.,--/ @          G HI G)) G)( G)/ G)- JHK IHK GIHI ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.