Vísir - 04.04.1981, Síða 5
Laugardagur 4. april, 1981
VÍSIR
í ntedal viku eru fjögur hundrud
manns myrtir t Bandaríkjunum.
Pridjungur þessara tnorda er
framinn af ókunnugum og án
sjáaniegrar ástædu. Hér eru
myndir af nokkrum
fómarlömbum vikunnar
S.-14. mars, 1981.
Margareth Dudley, 61 árs, einka-
ritari frá Detroit. Hún var rænd
og siðan barin til dauða i kjallara
kirkjunnar, sem hún vann i.
Lögreglan handtók 17 ára gamlan
ungling.
Randolph Wright, 55 ára, biia-
stæðisvörður i Houston. Hann
sakaði æskuvin sinn um að hafa
ekið yfir köttinn sinn. Vinurinn
dró upp skammbyssu og skaut
Randolph, Morðinginn var hand-
tekinn.
Thomas Mounce, 51 árs, kaup-
sýslumaður i Memphis.Hann var
skotinn i höfuðið á bilastæði fyrir-
tækis sins. Arásarmaðurinn hefur
ekki fundist.
Aiejandro Freyre, 25 ára, var
skotinn gegnum hjartað, þegar
hann kom út úr húsi sinu I ein-
kennisklæðnaði öryggisvarða, en
óvopnaður. Enginn var hand-
tekinn.
Robin Bolden, 19 ára móðir
mánaðargamals barns. Hún fór
út að skemmta sér um kvöld, en
kom ekki aftur heim. Hún fannst
kyrkt i bilskúr i grenndinni. Eng-
inn var handtekinn.
Steve Bostic 21 árs bifvélavirki i
Detroit. Þrir ókunnugir hjálpuðu
honum að ýta bil i gang og vildu
fá 10 dollara fyrir, hann bauð 5
dollara og einn þeirra skaut hann.
Enginn var handtekinn.
Margaret Bennet 82 ára þjónustu-
stúlka á Miami Beach skrapp út
að ná i blaðið. Ærður granni
tæmdi skammbyssuna sina i
höfuð hennar og brjóst. Hann var
handtekinn.
Harold Burgess, 47 ára
kaupmaðuri Sunland. Hann barði
að dyrum hjá kunningja sinum og
var fagnað með skotum úr hagla-
byssu og skammbyssu. Vinurinn
sagðist hafa skotið i sjálfsvörn, en
byssa fannst á liki Harolds.
Gregory Sylvester, 17 ára nemi i
Las Vegas, lenti i deilu um nýaf-
staðinn körfuboltaleik. Hann var
stunginn i brjóst, siðu og bak.
Morðinginn var handtekinn.
Kenny Biack, tvitugur verka-
maður I Charlotte. Fjórir menn
réðust að honum og skutu hann
þar sem hann var á gangi með
vini sinum. Vinurinn særðist ekki.
Enginn var handtekinn.
George Cole, 62 ára gæslumaðuri
Washington, var skotinn á leið til
vinnu, að þvi er virtist I ránstil-
raun. Enginn var handtekinn.
Carol Nixon Tebaut, 39 ára leigu-
saliibúða i Lake Park var skotin I
höfuðið~ þar sem hún sat ein á
skrifstofu sinni i hádeginu.
Grunaður var handtekinn.
Ronald Fitzer 31 árs tannlæknir i
Seattle, sat i bil sinum, þegar
tveir menn réðust á hann. Hann
var stunginn tvisvar og árásar-
mennirnir voru handteknir.
John Hicks 37 ára, atvinnulaus i
Chicago. Hann lenti i rifrildi við
kærustu bróður sins og hún stakk
hann með búrhnif. Hún var siðan
handtekin.
William Hilborn 72 ára eftir-
iaunamaður i Petersburg kom
heim frá aftansöng með konu
sinni og þau komu innbrotsþjóf á
óvart. Bæði hjónin voru stungin
þrem stungum. Enginn var hand-
tekinn.
Larry Potts, 21 árs prentarii Chi-
cago. Hann var skotinn gegnum
glugga þar sem hann var á æfingu
með popphljómsveit. Félagi i
óaldarflokki götunnar var hand-
tekinn.
Lyric Davis, 27 ára skrifstofu-
maður i Los Angeles. Hún var
stungin til bana ásamt 5 ára syni
sinum, heima hjá sér að kvöld-
lagi. Ekkert benti til innbrots eöa
ráns. Enginn var handtekinn.
Cheryl Ann Buckley, 25 ára gleöi-
kona I San Jose. Fannst tveim
dögum eftir að hún var skotin til
bana utan við veg. Vinir og
viðskiptavinir voru yfirheyrðir og
kærasti siðan handtekinn.
Bernard Beard 32 ára atvinnu-
laus I Los Angeles. Hann yar
hæfður tveyn skotum i brjóstið,
þegar ráðikt var á vin hans.
Morðinginn var handtekinn.
Joseph L. Johnson, 85 áræ'eftir-
Igunaþegi i Omaha. Okunnur
máður barði að dyrum hjá honum
Qg spurði til vegar og skaut hann
siðan i höfuöiö. Tveir grunaðir
voru handteknir.
Clarivel Benites 19 ára ritari i
Miami. A heimleið úr stórverslun
stökk maður inn I bil hennar og
reyndi aö ræna hana. Hún varöist
og hann skaut hana. Enginn var
handtekinn.
Christopher Grove 34 ára
uppboðshaldari i Grove. Maöur
með riffil réðst inn i uppboös-
húsið, skipaði Grove að leggjast á
grúfu og skaut hann siöan i bakiö
og höfuöið. Enginn var hand-
tekinn.