Vísir - 04.04.1981, Side 15
Laugardagur 4. april, 1981
VÍSIR
15
TlÐARANDINN
TEKINN Á LÖPP
Heiti: Punktur punktur komma strik
Upprunaleg hljóðrás, samin og útsett af Valgeir
Guðjónssyni. Ýmsir flytjendur.
Útgefandi: Svart á hvitu h/f.
Stjórn upptöku og hljóðblöndun: Baldur Már
Arngrimsson, Sigurður Rúnar Jónsson og Tony
Cook.
Iflestum kvikmyndum skiptir
tónlist verulegu máli, og þó
henni sé alla jafna ekki mikill
gaumur gefinn, væru margar
myndir býsna kauöslegar án
hennar. Tónlist er nefnilega
mestanpart lætt a& áhorf endum
svo litiö beri á til aö gera hann
virkari. Hún er einhverskonar
krydd myndarinuar. Hvar væru
tilaömynda kossarhvita tjalds-
ins ef engir væru strengirnir i
fiölunum?
1 sumum myndum er tónlistin
bara krydd. Þar eru rjátlaö við
hljóöfæri á stöku staö og búið
spil. 1 öðrum myi\dum er gildi
hennar umtaisvert. Svó er um
kvikmyndina „Punktur punkt-
ur komma strik”, en tónlist
þeirrar myndar birtist einn
daginn i formi hæggengrar
hljómplötu. Eftir að hafa séð
myndina á fyrstu sýningardög-
um hennar hvarflaði ekki aö
manni aö tónlistin gæti staðið
ein og sér á plötu, — með sóma.
En þaö er nú öðru nær!
Þetta er nefnilega bráð-
skemmtileg plata og sérdeilis
áheyrileg. Valgeir Guðjónssyni
hefur tekist að skapa tónlist
sem er og á að vera bergmál
áranna milli fimmtiu og sextiu,
aukin heldur samið fjarska geö-
þekk bfómyndóstef, sem
bregður fyrir éins og rauöum
þræði i nokkrum laganna.
I myndum sem hafa yfirbragð
einhverrar nostalgiu hefur
stundum verið brugðið á það ráð
að notast við tónlist þess tima
sem um er fjallað. Það
lukkaðist bærilega vel i
„American Graffiti” mynd-
unum. A hinn bóginn er miklu
áhrifameira þegar frumsamin
tónlist nær þeim tiðaranda sem
Atriöi úr kvikmyndinni Punktur punktur komma strik
til er ætlast, að ég tali nú ekki um
þegar það heppnast jafn
fullkomlega og i „Punktinum”,
Valli og allt hans lið á skilið
mikið hrós fyrir, en ýmsir valin-
kunnir tóniistarmenn koma við
sögu á plötunni, svo sem Diddú,
Egill, Geiri (trommari), Diddi
fiðla, Þórður Arna, Jónas R.,
Mikki, Tommi Einars og
Tommi Tomm. Hljóðrásin
(islensk þýöing á orðinu sound-
træk) er ekki kvikmyndatónlist i
þess or&s fyllstu merkingu. af
þvi einfaldlega að tónlistin
getur lifað sjálfstæðu lifi. Sliku
er sjaldnast til að dreifa um
hljóðrásir,. En auðvitað sakar
ekki að hafa séð myndina.
-Gsal.
Hvaö er nú það?
Það er von að menn spyrji. Jú, þetta er stærsta vatn Evrópu, um 539
ferkm. að stærð, og liggur i vestanverðu Ungverjalandi.
Við efnum til ferða, annan hvern föstudag frá 15. mai til 21. ágúst og
bjóðum þar upp á fjölbreytt baðstrandarlif við þetta fallega vatn og um-
hverfi.
A undan förum við um
norðvestur- og miö-
héruð Ungverjalands,
um 5 daga ferð eftir
að hafa stoppað 2
daga i Budapest, einni
failegustu höfuðborg
Evrópu.
Við bjóðum að venju aðeins 1. flokks hótel með baði, WC og svölum á
hótelum við ströndina.
Fullt fæði og skoðunarferðir til Budapest og í ferðiniji, en hálft fæði við
ströndina (matarmiðar). J6—23—30 daga ferðir. ógieymanleg^ férð —
Fallegt land, sérstæð og viðmótsþýð þjóð.
Matur og þjónusta það besta sem þekkist. íslenskir fararstjórar. Skoð-
anaferðir frá Balaton m.a. til Vinar. >
Eitt mest sótta ferðamannaland Evrópu i dag.
Tiltölulega hagstætt verð i landinu og ágætt að versla i stórborgjnni —
Búdapest.
Fá sæti eftir i
Pántið
strax!
verja ferð.
'Ferdaskriístofa
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoðavog 44-104 Reykjavík - Simi 86255.