Vísir - 15.05.1981, Side 2
2
Ætlarðu að bregða þér út
fyrir landsteinana f
sumar?
Guðbjörn Arnason, landbúnaOar-
tæknir:
Ég reikna ekki með þvi. Ég
verð aö vinna i allt sumar til að
hafa upp skuldirnar sem ég kom
mér i i' vetur.
Jón GuOmundsson, sjómaöur:
örugglega ekki. Ég verð að
dytta aö hdsinu i sumarfriinu.
Soffía Axelsdóttir húsmóöir:
Jd, ég fer i mánaðarreisu til
Karabiska hafsins I september.
Bergljót Viktorsdóttir, húsmóöir:
Ég ætla að ferðast um ísland i
sumar, ég vil skoða það vel áður
en ég fer að skoöa önnur lönd.
Óli Garðar Jónsson, sjómaður:
Já, ég er einmitt að fara að
bregða mér til Kaliforniu ein-
hvern næstú dagana.
„ALLTAF MMKMUR FYR-
IR GÖBR MKTSðLUSTMI”
- segir Skúlí Hansen,
matreiöslumaður, sem
er að opna nýjan
marsolustað
við Hvertisgötu
Nýr matsölustaður verður
opnaður i Reykjavík næstkom-
andi laugardag. Þaö er matsölu-
staðurinn Arnarhóll. Eins og
nafnið bendir til, er hann I nám-
unda við Arnarhól, nánar til tekið
i gamla Alþýðuhúskjallaranum á
Hverfisgötu.
Skúli Hansen, fyrrum yfirkokk-
ur á Hótel Holti, er einn þriggja
eigenda Arnarhóls en meðeig-
endur hans eru Guðbjörn Karl
Ólafsson, fyrrum framreiöslu-
maður á Hótel Holti og kona hans,
Elisabet Kolbeinsdóttir.
„Þetta á að veröa matsölu-
staður i dýrari klassanum”, sagöi
Skúli en bætti við aö i hádeginu
yrði boöið upp á ódýran en góðan
mat.
„Viö erum mjög miösvæöis i
borginni og þess vegna viljum við
bjóða mat á hóflegu verði i há-
deginu.
Á kvöldin verður meira i mat-
inn lagt og öll þjónusta er dýrari
en um miðjan dag. Við leggjum
áherslu á mat úr islensku hráefni.
Til dæmis verður mikil áhersla
lögð á sjávarrétti.
Við ætlum að veita alveg sér-
staka aðstöðu. Staðnum verður
skipt svo aö segja i þrjá hluta.
Skúli Hansen, veitingamaður á Arnarhóli. Visismynd: ÞL
Þegar menn ganga inn i húsið
koma þeir inn á bar þar sem gest-
ir geta pantað og fengiö sér for-
drykk. Þegar þeir hafa lokið
drykknum liggur leiðin niöur I
matsalinn og þar biður borðið og
maturinn þeirra. Inn af matsaln-
um er annar salur með þægileg-
um stólum, þar sem fólk getur
fengið sér kaffi og koniak eða ein-
hvern drykk eftir matinn. Þannig
getur fólk eytt kvöldinu á staön-
um, án þess að þurfa aö sitja i
sömu stólunum allt kvöldið. Ég
veit ekki til þess að nokkuð annað
Islenskt veitingahús sé byggt upp
á þennan hátt”, sagði Skúli.
— Nú hefur fjöldi matsölustaða
skotið upp kollinum i Reykjavik á
siðustu árum. Er markaður fyrir
fleiri?
„Ég tel að það sé alltaf
markaður fyrir góða matsölu-
staði, það er ekki of mikiö af þeim
I borginni. Auk þess hefur áhugi
manna fyrir góöum mat aukist og
fólk fer miklu oftar út aö borða nú
en það gerði fyrir nokkrum árum.
Það er bæði að þakka auknum
skrifum um mat og veitingahús
og svo hafa venjur Islendinga
breyst eftir að utanlandsferðir
urðu almennari”.
Skúli Hansen er fæddur I
Reykjavfk árið 1950. Hann
stundaði nám I Hótel- og veitinga-
skólanum og lauk prófi þaöan
árið 1974. Hann hóf störf á Hótel
Holti meðan á náminu stóö og
starfaði þar þangað til i febrúar i
ár, fimm siðustu árin sem vfir-
kokkur. —ATA
Þröstur ólafsson
Þrðsiur og
launbegar
Þröstur Ólafsson,
aðstoða^naður Ragnars
fjárinálaráðherra,
skrifar grein I Þjóð-
viljann I gær um fóstru-
deiluna.sem nú er að vlsu
leyst. Fer Þröstur
hörðum orðum um af-
stöðu fóstra og segir að ef
aðrir starfshópar innan
BSRB fari að dæmi þeirra
þá muni félög innan ASl
grfpa til ráðstafana „sem
tryggja stöðu þeirra laun-
þega”.
Það heföi einhvern
tima -. þótt tiöindí tll
næstu bæja að forkólfar
Alþyðubandalagsins
óttuðust það mest að
launþegar færu að heimta
kjarabætur hver um.
annan þveran.
•
Er betla
framtlðln?
Kaupmenn hafa lengi
kvartað undan slæmum
kjörum vegna verölags-
hafta og græðgi rikis-
valdsins sem er sagt aö
ráðistgegn hverjum þeim
sem vill hafa sitt lifibrauö
af verslun. Hafa ýmsir
kaupmenn haft á oröi, að
ekki þýddi neitt aö halda
áfram þessu streöi.
Nú ku kaupmaöur einn
hafa látið verða af þvi að
hætta höndlun og hvað
haldiö þið að hann hafi
farið aö gera? Hann
gerðist sendill hjá einu
ráðuneytanna og er
sagður eini sendillinn
sem er á bii. En kannski
að þetta sé timanna tákn
og þetta endi með þvi að
kaupmenn upp til hópa
gangi I beina þjónustu
rikisins. 0
Hrafn er ekki kröfu-
harður
Blessun
vlnnunar
Svo við höldum áfram
með kaupmennina, þá
birti búnaðarblaðið Tim-
inn viðtai við Hrafn Back-
mann kjötkaupmann í
gær. Fyrirsögn viðtalsins
var þessi:
„Geri ekki aöra kröfu
en að fá að mæta á næsta
degi frfskur til vinnu.”
Þetta sjónarmið hlýtur
að falla i góðan jarðveg
hjá Alþýðubandalags-
flokkunum þremur f
rikisstjórninni. En ætli
Hrafn verði ekki rekinn
úr Kaupmannasamtök-
unum fyrir þessa yfirlýs-
ingu?
Telja hunda
Bæjarráösmenn á Dal-
vík sátu á fundi á dög-
unum og dunduða sér við
aötelja upp alla þá hunda
sem ráösmenn vissu af í
bænum, að sögn Dags.
Komust þeir upp i töluna
16 og ræddu siðan um
hvort rétt væri að fram-
fylgja þvi banni vlð
hundahaldi i bænum
sem I gildi er, eða leyfa
hundahald með ákveðn-
um skilyrðum. Ekki
fékkst nein niðurstaöa á
fundinum, en greiniiegt
er, að þaö cr viöar en f
höfuðborginni sem erfitt
er að framfylgja hunda-
banni.
Einhver hundur mun
vera í sumum. Dalvik-
ingum vegna hundanna.
•
Ollu skai nú
mótmælt
Eftir aö IRA-menn tóku
upp á þvi að fara f ban-
væna mcgrunarkúra
hcfur ýmsum smáhópum
skotiö upp hér sem
þykjsst styöja „frelsis-
barátfi tra. Málið er þá
sett upp á svipaðan hátt
og Mana Þorsteinsdóttir
Moskvuagent gerir i Dag-
blaðsgrein: „Bretar hafa
herliö á Noröur-triandi til
aö kúga þjóöina og berja
niöur frelsishreyfingar”.
Undir þennan söng er
svo tekiö af sjálf-
skipuðum vörðum laga og
réttar I vestrænum heimi,
meðan fjöldahandtökur i
austri eru h vergi nefndar.
Það er ckki vitaö tii þess
að IRA-morðingjarnir
hafi nokkuö umboö landa
sinna til, hermdarverka,
alla vega hefur það um-
boð ekki veriö veitt I
kosningum, Atvinnumót-
mælendur láta sig það
engu varða og þeim tekið
fagnandi á sumum frétta-
stof um.
Svo langt hefur þessi
della gengiö hérlendis að
þegar Sands gaf'upp önd-
ina skýrði útvarpið frá
því að 20 manns heföu
mótmælt við komu Elisa-
betar drottningar og
Filippusar prins til Osló.
Hvorki fyrr né siöar hefur
útvarpið minnst á þessa
heimsókn. þvi ekki var
neitt fréttnæmt við hana
nema mótmæli 20
inanna!
Slagur i
Keflavfk
Slagur sportvöruversl-
ana er nú hafinn i Kefla-
vfk og óvist um lyktir.
Þar i bæ er starfrækt
verslun scm heitir Sport-
portiö og hefur ein slik
sérversiun þótti nægja I
ekki stærri bæ. Nú hefur
Hummel-umboðið hins
vegar opnað aðra sport-
vöruverslun i Vikinni og
telja þeir scm fyrir voru
að sér vegið.
Almennt mun taliö að
ekki sé grundvöllur fyrir
báðar búöirnar og veröur
fróðlegt að sjá hvor hefur
betur aö lokum.
•
Þörarlnn.
hætllr .
Úr sjónvarpsbúöum
berast þær fréttir aö
Þórarinn Guðnason hafi
sagt upp störfum, en hann
er einn reyndasti kvik-
myndatökumaður
stofnunarinnar. Ekki er
Sandkorni kunnugt hvað
tekur viö hjá Þórarni.
Hraln tn
Cannes
Hrafn Gunnlaugsson er
nú á förum til Cannes þar
sem kvikmynd hans, óðal
feðranna, veröur sýnd á
einni af þeim kvikmynda-
hátfðum sem alltaf eru I
gangi þar i bæ.
Viö óskum Hrafni
góðrar ferðar, en hvernig
cr það annars með sjón-
varpiö: Hefur þaö eitt-
hvaö að gera með Hrafn
sem leiklistarráðunaut
fyrst aldrei sjást islensk
leikrit á skjánum?
Sæmundur Guövinsson
skrifar