Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 32

Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 32
mciB > u Föstudagur 15. maí 1981 síminnerdóóll Veðurspá dagsíns Kl. 6 var 995 mb lægð 200 km vestur af Reykjanesi á hreyf- ingu norð-vestur, en 985 mb lægð 400 km vestur af trlandi, hreyfist litið úr stað. Hlýindi verða um mestan hluta lands- Suðurland og Faxaflói: Suð-austan eða sunnan 5—7, dálitil rigning eða súld öðru hverju. Breiðafjörður og Vestfirðir: Suð-austan 4—6, skýjað en þurrt að mestu. Strandir og Noröurland vestra og Noröurland eystra: Suð-austan 3—4, skýjað með köflum. Austuriand að Glettingi: Suö-austan 3—4, þokusúld á miðum, en bjart með köflum til landsins. Austfirðir: Suð-austan 3—4, þokusúld. Suðausturland: Suðaustan 3 -4, dálitil rigning eða súld örðu hverju. Austan 4—6 og rigning i fyrramáliö. Veðrið hér op par Akureyrihálfskýjað 10, Berg- en rigning á siðustu klukku- stund 11, Kaupmannahöfn léttskýjað 13, Osló skýjað 13, Reykjavik skýjað 7, Stokk- hólmur léttskýjað 13, Þórs- höfn súld 7. Aþena léttskýjaö 17, Berlfn léttskýjaö 23, Chicagorigning 8, Feneyjar heiðskirt 15, Frankfurt skýjað 14, Nuug snjókoma 1, Londonléttskýjað 15, Mallorca skýjað 19, New Yorkléttskýjað 18, Parisskýj- að 15, Rómléttskýjað 16, Mal- age léttskýjað 18, Vln skýjað 14. Það verður fróölegt að sjá. hvernig verkalýösforingjarnir útskýra allt að 2% skatta- hækkun á launafólk, þegar lof- að hafði veriö 1,5% skatta- lækkun. B.A. Robertson var eldhress við komuna: .Komum í slólnn og sólina'l „Ég ætla að slappa vel af þennan dag, sem ég get verið á tslandi og aðallega ætla ég að liggja i sólböðum og synda I sjónum”, sagði skoska popp- stjarnan B.A. Robertson viö komuna til Islands i gærkvöldi. Island var ekki i sinum feg- ursta skrúða, er söngvarinn og grinistinn Brian Alexander Ro- bertson steig út úr Flugleiðaþot- unni klukkan að ganga eitt i nótt. Það var kalsarigning og þungbúið. „Mér var sagt, að hér væri bjart allan sólarhringinn og þess vegna þorði ég ekki annað en koma með sólgleraugu”, sagði Robertson og tók niður gleraugun, þegar rignt hafði á þau drjúga stund. BAR kom hingað ásamt David Wermham sem skipu- leggur hljómleikaferðirnar hans og þeir munu athuga allar aðstæður hér með tilliti til hljómleikahalds seinna i sumar. „Þegar ég frétti, að ég væri vinsæll á Islandi og blaðamenn- irnir frá Visi sögðu, að nokkur þúsund manns myndu koma á hljómleika hjá mér, þá fékk ég mikinn áhuga á þvi að koma hingað”, sagði Brian og kættist mjög er hann frétti, að platan hans „Bully for You”, væri komin á toppinn á Visislistan- um. BAR mun árita plötu sina i Karnabæ i Austurstræti um þrjú leytið i dag, en i morgun fór Brian Alexander Robertson var hress við komuna til landsins I nótt. Vísismynd: ÞL hann i útsýnisflug og var ætlun- in að hann færi til Vestmanna- eyja og áritaði plötu sina þar. 1 kvöld kynnir B.A. Robertson svo plötu sina i Hollywood. — ATA GRÖF KYNFERÐISAFBROT GEGN UNGUM DRENGJUM Tveir karlmenn, 46 ára og 53 ára, hafa að undan- förnu setið i gæsluvarðhaldi lögreglunnar á Akur- eyri fyrir meint kynferðis brot gagnvart sex drengj- um á aldrinum 10-14 ára. Samkvæmt upplýsingum Sig- urðar Eirikssonar, lögreglufull- trúa á Akureyri, virðast dreng- irnir hafa umgengist mennina tvo frá þvi um áramót. Foreldrar drengjanna höfðu samband við lögregluna og létu i ljósi áhyggjur vegna málsins, sem leiddi siðan til þess að mennirnir tveir voru handteknir um siðustu mánaða- mót, annar 29. april, en hinn 7. mai. Karlmennirnir munu litið hafa tjáð sig um málið, en niður- stöður rannsóknarinnar byggja aöallega á vitnaframburði. Kyn- ferðisbrotin munu vera af grófara tagi, og ekki þykir óliklegt að pilt- arnir 6 þurfi að fá sérstaka að- hlynningu vegna málsins. Karlmennirnir tveir fara úr gæsluvarðhaldi i dag, og verður málið sent rikissaksóknara. —AS Skattalrumvarpið attur á AlDingi i dag: Ráðherrar á móti sam- eiginiegu nefndarálltl Mikil gremja braust fram í máli Ragnars Arnalds, f jármálaráðherra, í umræðum í gær á Alþingi út af sam- eiginlegu nefndaráliti í neðri deild um að taka aftur upp 59. grein í skattalögin og fella út takmarkanir á fyrning- um í rekstri. Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra, lýsti sig ei nnig andvígan því að f á aftur inn 59. greinina. Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir, aö Alþýðubandalagið muni ekki greiða atkvæði með niðurfellingu á takmörkun fyrn- inga. En i nefnd var fulltrúi flokksins, Guðmundur J. Guö- mundsson, þvi samþykkur, sem og öðrum breytingartillögum við frumvarp ráöherra. Skattafrumvarpiö verður aftur til umræðu i dag á fundi neðri deildar. í sameinuðu þingi i dag flytur forsætisráðherra skýrslu um Framkvæmdastofnina. 1 kvöld verða umræður um utanrikis- mál. Deildarfundir verða á morg- un. Vegaáætlun verður ekki rædd fyrr en á þriðjudag, en þá um kvöldið verða eldhúsdagsumræð- ur, sem að venjumá hlusta á i út- varpinu. HERB Skuldabreytingar á húsnæðlsskuldum: Lánastofnanír leysa vandann „Bankar og lánastofnanir hafa fullan vilja að leysa einstök mál og greiða fyrir skuldbreytingum, enda þóttströngustu skilyrðum sé ekki fullnægt, að þvi er varðar skuldaupphæðir hjá tilteknum lánastofnunum”, sögðu þeir Jón- as Haralz og Baldvin Tryggva- son, þegar Visir innti þá eftir við- brögðum vegna ummæla Þor- valdar Stefánssonar i blaðinu i fyrradag. Þorvaldur hafði ekki fengið afgreiðslu á beiðni sinni um skuldbreytingu, þar sem hann skuldaði ekki nægilega mikið i einni og sömu lánastofnuninni. Þeir Jónas og Baldvin tóku fram, að enda þótt samkomulag banka og sparisjóða við rikis- stjórnina næði ekki til tilvika eins og i máli Þorvalds, þá mundi engu að siöur verða leyst úr þeim af hálfu lánastofnana. Slik dæmi geta og komið upp, þar sem hjón eiga i hlut og þau munum vib einnig leysa eftir bestu getu. Af gefnu tilefni vildu þeir Jónas og Baldvin benda fólki á, að snúa sér til viðkomandi banka eða sparisjóðs og leita þar upplýs- inga, enda þótt ströngustu skil- yrðum samkvæmt eyðublöðum væri ekki fullnægt. Það var samdóma álit þeirra beggja, að eftirspurn eftir skuld- breytingum fram að þessu, hefði ekki verið mikil. Eródýrnra

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.