Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 15. mal 1981 vtsm Hefur eitthvað farið Urskeiðis með skýlið á Hlemmi? Er skvliö á Hlemml orð- Ið drykkjumannahæll? Ég er ein af þeim sem nota litiö strætisvagna en það kemur þó fyrir. Og siðastliðið fimmtudags- kvöld þurfti ég að skipta um strætisvagn a Hlemmi sem ekki er i frásögu færandi, nema hvað að ég fékk mér sæti inni i strætis- vagna skýlinu og á ég ekki til aukatekið orð yfir þvi sem ég sá þar. Strætisvagnaskýlið var fullt af rónum og drukknum ungling- um! Hvað er að ske? Er enginn vörður þarna? Ég bara spyr, þvi annað eins sukk og svinari hef ég ekki se^ð fyrr. Er þetta ekki skýli fyriralmenning? Hvernig væri að lögreglan sem er þarna til húsa á næstu grösum liti inn þarna við og við! Sigga I Sogamýrinni Ógeöfellú sölnunaraðferð Ólafur Björnsson kom afi máli við lesendasíðuna. Hann gerði að umræðuefni f jár- söfnun Styrktarfelags lamaðra og fatlaðra. Hann lagði áherslu á strax i upphafi, að hann teldi þann félagsskap alls góðs mak- legan og hann hefði ekkert á móti fjársöfnun tilstyrktar honum. En það er ein söfnunaraðfeðin, sem honum þykirógeðfelld. Þar er átt við þá aðferð að skylda skólabörn til að safna 250 krónum hvert. Ólafur sagði að söfnunarblöð- um hefði verið dreift i skólunum og krökkunum gert að skyldu að safna a.m.k. 250 krónum hverju. Hann sagði að, að kvöldi dags, sem söfnunarblöðunum var dreift, hafi 15 safnarar hvattdyra hjá honum, til viðbótar hans eigin barni, sem auðvitað óskaði eftir hans framlagi. Ólafur spyr hvort kvöðin um 250 króna lágmark, sé komin frá samtökunum, eða hvort einstakir kennarar eða skólar hafi sett hana. Hann spyr einnig hvort upp- hafsmenn hafi gert sér grein fyrir i hvern vanda þeir setja börnin með slikri kvöð — eitt barnið spurði hvort það ætti að skila öllum þvi sem þeir hefðu gefið, ef það næði ekki fullri upphæð. Á hverjum lendir að fylla á töluna hjá hinum sam- viskusömu börnum, sem ekki geta látið sjá sig með minna söfn- unarfé en krafist var? Og hvernig kemur það við heimili þar sem mörg börn eru i skóla? Fatlaðir eru alls góðs maklegir G.A. hringdi: Ég vildi láta ykkur vita að ég hef orðið fyrir sömu ókurteisi hjá upplýsingasimanum, 03, og Mars, sem sagði frá sinni reynslu á föstudaginn var. Ég bað um upplýsingar um simanúmer hjá ákveðnum manni með ákveðiðheimilisfang, en það slðarnefnda reyndist vera skakkt Ég bað stUlkuna þá að gæta undir öðru hUsnUmeri hvort hann vær þar. Þá skelli hUn á. Ég hringdi aftur og spurði hvort hUn væri ekki ráðin þarna til að veita upplýsingar. Þá hótaði hún að kæra mig. Sennilega hefurstöllu þessarar stUlku ofboðið, þvl önnur rödd kom í símann og sU sem hana átti, leysti fljótt og örugglega Ur mínu máli. Fyrlrspurn tll AlfreOs: MUNUR Á KÓPAVOGI OG SELTJARNARNESI? Seltirningur n.nr. 6322- 20iS sendir Alfreð Þor- steinssyni eftirfarandi fyrirspurn. í heiftarskrifum sinum i garð Seltirninga virðist Alfreð falla i þá slæmu gryfju að vera ekki sjálfum sér samkvæmur. Eða hvað veldur því, að hann gleymir þeim óhrekjanlegu staðreyndum, að annar stærsti kaupstaður landsias — Kópavogur — kaupir alla sömu þjónustu og Seltiming- ar frá höfuðborginni — en leggur siðan hærri skatta á ibúa sina en nokkuð annað bæjarféiag á land- inu. Þvi er spurt, er einhver mun- ur á Kópavogi og Seltj arnarnesi i huga Alfreðs Þorsteinssonar? Getur það verið að kjarni málsins sé sá, að á Seltjarnarnesi stjórna pólitiskir andstæðingar Alfreðs, en i Kópavogi flokks- bræður hans i samvinnu við kommúnista og krata? Berist ekki svör frá Alfreð Þor- steinssyni við þessum spurning- um, verður að lita á öll hans heiftaryrði sem einhverja ómerkilegustu pólitisku bombu sem lengi hefur verið kastað. Og kemur kannski engum á óvart sem til Alfreðs Þorsteinssonar þekkir. Frá Kópavogi. Þá skellti hún á. Önnur kvört- un undan 03

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.