Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 15.05.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 15. mal 1981 5 vlsm Bandaríkiabíng sampykkti: llllestu fjárveltlngu tll hermála á friðartímum Bandaríkjaþing samþykkti nær einrdma f gærkvöldi frumvarp Reagans forseta um stórauknar fjárveitingar til hermála. Sam- kvæmt því á að verja 136 billjón- um dollara til smiöa á skipum, flugvélum og vopnum auk auk- inna rannsókna og tækninýjunga varðandi varnarmál. Þetta er stærsta fjárveiting sem Bandarikjaþing hefur sam- þykkt til varnar- og hermála á friðartímum og þykir þessi af- greiðsla mikill sigur fyrir Reagan forseta og þá stefnu hans að efla varnir og hernaðarstyrk Banda- rikjanna. Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrirað áætlun verði hrint i fram- kvæmd um að koma upp neðan- jarðarbyrgjum þar sem 200 eld- flaugar eiga að vera geymdar á vixl, tilþess að glepja fyrirSovét- mönnum, þegar þeir velja sér skotmörk. Tilræðismaður páfa: Man ekki hvar hann fekk vopnið Þingið bætti meira að segja um betur með þvi að verja 31.2 bill- jónum dollara til rannsókna á út'- búnaði, sem á að vara við eld- flaugaárásum á landið og eyða Samþykkt Bandarikjaþings á stóraukinni fjárveitingu til varnarmála slikum eldflaugum aæpur en þær þykir mjög stór sigur fyrir Reagan forseta. ná til skotmarksins. BP oliufélagið stefnir nú Istærsta skaðabótamál sem sögur fara af I Bretlandi. stærsta dðmsmál sinnar legundar: stetnr Englandshanka Breska oliufélagið (BP) hyggst- stefna Englandsbanka fyrir að hafa haldið hlutabréfum i félag- inu i bankanum með ólögmætum hætti á sama tima og oliufélögin áttu i.erfiðleikum vegna oliuverð- hækkana Opec-rikjanna. Ef málið fer fyrir dómstóla, verður það stærsta skaðabóta- mál, sem sögur fara af i Bret- landi. Hér er um að ræða hlutabréf Burmah oliufélagsins, sem á 20% i BP, en Englandsbanki frysti þessi bréf inni, og tók þau að veði, þegar Burmah oliufélagið riðaði á barmi gjaldþrots 1975. Félagið hefur náð sér á strik siðan, en hluthafar hafa engan veginn sætt sig við aðgerðir bank- ans, telja sig hafa tapað miklu fé, og menn minnast þess, að algjört upplausnarástand skapaöist á breska verðbréfamarkaðnum vegna aðgerða bankans. Belgiustjörn riðar til falls Forsætisráðherra Belgiu, M. Eyskens gerS úrslitatilraun i dag, til að halda saman stjórn sinni. Eyskens tók við stjórnar- taumunum fyrir fimm vikum, en hefur ekki enn náð samkomulagi milli stjórnarflokkanna um að- gerðir tilaðglæöa iðnaðinn nýju lifi og bjarga efnahag landsins fyrir horn. Atökin standa fyrst og fremst milli kristilegra sósialista, flokks forsætisráðherra og sósialista en á meðan þeir fyrrnefndu krefiast aukins fjárstuðnings til handa iðnaðinum, leggjast sósialistar hart gegn hverskonar launa- skerðingum. Eyskens hefur boðað til rikis- stjórnarfundar i dag. Hann hélt i gær fund með formönnum flokk- anna, en ef tiíraunir hans takast mun verða gengiö til kosninga innan nokkurra vikna. Ekki hefur verið kostið i Belgiu siöan 1978, þrá'tt fyrir að fimm rikisstjórnir hafi setið á siðustu þrem árum. Eyskens forsætisráðherra berst fyrir lifi stjórnar sinnar. Um 25 þúsund manns, hvaðan- æva úr heiminum, söfnuðust saman á Péturstorgi i Róm i gær- kvöldi, til að biðja fyrir páfa, sem enn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Læknar sjúkrahússins kváðu liðan hans góða eftir atvikum og töldu hann mundi ná sér að fullu. Sextug kona Ann Odra, sem varð fyrir skoti i brjóstið þegar páfa var sýnt tilræði á miðvikudag er einnig illa haldin, en er þó á bata- vegi. Tilræðismaðurinn, hægrisinn- aður öfgamaður frá Tyrklandi, hélt fast við þá sögu sina viö yfir- heyrslui'gærkvöldi, að hann hefði veriö einn að verki, en gat ekki munað hvar hann heföi orðiö sér úti um vopnið. Samkvæmt itölsk- um lögum gilda sömu viðurlög við banatilræði viö páfann og forseta lýðveldisins, eða lifstiöarfanglesi. Tilræðismaðurinn verður einn- igákærður fyrir árás á tvær kon- ur og aðhafaólöglegt vegabréf og vopn undir höndum. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir morð siðan 1979 og slapp naumlega undan lögreglunni i Milanó i febrúar sl. Gaddafi leiðtogi Libíu: Við erum ólíkt siömenntaðrl en Bandaríkjamenn El Salvador: Gaddafi, leiðtogi Libiu sagði i sjónvarpsviðtali i gærkvöldi, að hann mundi ekki beita Banda- rikjamenn oliusölubanni eða öðr- um þvingunum fyrir að visa libiskum erindrekum úr landi i siðustu viku. Bandarikjastjórn ákvað brottvisun erindrekanna til að mótmæla stuðningi Libiu við hryðjuverkastarfsemi. „Við erum siðmenntuð þjóð, ólikt Bandarikjunum og beitum ekki sömu barnalegu aðferðunum og þeir” sagði Gaddafi. Hann mótmælti þvi eindregið að Libia styddi hryðjuverkastarf- semi með vopnum eða öðru, en taldi hryðjuverk á borð við flug- vélarán smámuni hjá framleiðslu kjarnorkuvopna. Gaddafi sagði Libiumenn kaupa mikið magn vopna frá Sovétrikjunum, ,,en ég er ekki kommúnisti og mun aldrei leyfa Sovétmönnum að beita vopnum i minu landi”. Gaddafi, leiðtogi Libiu, neitar harðlega stuðningi við hryðju- verkastarfsemi. CiiiiestiOrn byDur Forseti Chile, Augosto Pino- chet, hefur boðið E1 Salvador- stjórn tækniaðstoö I þeim tilgangi „að kveða niður skæruliðana i landinu”. ..Við getum boðið tækniaðstoð aostoo fyrir hin ýmsu landsvæöi, og i margvislegu formi”, sagði Pino- chet i gær, þegar hann lýsti þeirri skoðun sinni aö ElSalvador þyrfti að halda sjdlfstæöi sinu og styrk gagnvart útsendurum sovéskrar heimsveldis-stefnu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.