Vísir - 15.05.1981, Qupperneq 3
3
Föstudagur 15. mal 1981
VÍSIR
Ég fæ lika aö fara á hestbak. (Vfsism. ÞL)
Nú komast fatlaö-
ir líka á hestbak
Fatlaðir á námskeið í hestamennsku
Fyrsta námskeiöið i hesta-
mennsku fyrir fatlaöa er hafiö á
svæöi Fáks viö EUiöaár og hafa
Fáksmenn leyft breytingar á
félagsheimiii sinu svo fatlaöii
geti notið þar aöstööu. Kennl
veröur einn tima I senn i átta
skipti og kostar námskeiðiö 16(
krónur. Fimm hestar veröa ti!
taks hverju sinni.
Formaður undirbúnings-
nefndar aö þessu fyrsta nám-
skeiði er Magnús B. Einarsson,
læknir. Hann sagöi við upphaf
þess I gær, aö Arnór Pétursson,
formaöur íþróttafélags
fatlaðra, hefði skipað I nefndina
en i henni sitja auk Magnúsar,
Sigurður Magnússon og Öttar
Kjartansson.
,,Ég hafði lengi haft áhuga á
þessu máli og vissi að það væri
viða áhugi og vilji til að aðstoða
okkur viö framkvæmdir. Það
kom lika strax i ljós að svo var.
Formaður hestamannafélags-
ins Fáks, Guðmundur ólafsson
og framkvæmdastjóri þess,
Bergur Magnússon, gáfu leyfi
sitt til að starfsemin færi fram á
svæði Fáks við Elliðaár”, sagði
Magnús B. Einarsson. Skábraut
með palli var smiöuö svo kom-
ast mætti á bak og salernisað-
staða fyrir fatlaða i hjólastólum
útbúin. Þessar breytingar eru
allar kostaðar af Lionshreyfing-
unni. Fákur leggur til hesta og
reiðtygi en Lionsklúbburinn
Ægir kostar fóður og hirðingu.
Þjálfari og kennari verður
Sigurður Ragnarsson
tamningamaöur og honum til
aðstoðar verða félagar úr
kvennadeild Fáks sem munu
vinna endurgjaldslaust að þess-
um málum. Formaður kvenna-
deildarinnar er Þórdis Jóns-
dóttir, en Ragnar Tómassop
formaður Iþróttadeildar Fáks,
hefur sömuleiðis sýnt málinu
mikinn áhuga.
—SG
Allar hendur á lofti til aö aöstoöa.
Fljúgandí slríDsminjar
Þrjár Marchetti heræfingavélar frá Italíu millilentu á Reykjavíkurflugvelli á
þriðjudagskvöldið/ en þær eru í Atlantshafsflugi þetta skiptið. Ætlunin var að þær
héldu áfram á miðvikudag og var lagt af stað/ en vegna óhagsstæðs veðurs sneru
þær aftur og voru hér enn í gær. Itölsku vélarnar eru raunar //striðsminjar" með
einum hreyfli og 260 hestafla mótor —að sjálfsögðu hver vél! (Vísismynd: EÞS)
SUZUKI
fyrir handhafa öryrkjaleyfa
Sá
sparneytnasti og ódýrasti
frá Japan
5 iítrar á 100 km.
Áætlað verð til öryrkja
2ja dyra fólksbí11 kr. 38.500.-
4ra dyra fólksbfll kr. 39.900.-
Það er ársábyrgð á öllum
SUZUKI bílum
Komið og skoðið SUZUKI
m Sveinn Egi/sson hf.
IsuzuKil Skeifan17. Sími 85100
^ BEINT í BÍLINN
Lausar stöður
Viö Menntaskólann á Akureyri er laus staöa kennara I
sálarfræöi. Ennfremur er laus til umsóknar staöa fulltrúa
á skrifstofu skólans.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum uppiýsingum um námsferil
og störf skulu hafa borist menntamáiaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 9. júni n.k. — Um-
sóknareyöublöö fást i ráöuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö
6. mai 1981.
^. m
OPIÐ
7.30
23J30
Shellstödinni
v/Miklubraut