Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FIMM ÁKÆRÐIR
Ríkislögreglustjóri hefur ákært
fyrrum aðalgjaldkera Landssíma Ís-
lands hf. fyrir rúmlega 260 milljóna
króna fjárdrátt hjá fyrirtækinu.
Fjórir aðrir sæta ákæru í málinu.
Aðalgjaldkerinn á yfir höfði sér allt
að sex ára fangelsi fyrir brot á 247.
grein almennra hegningarlaga.
Ákæran, sem er í 97 liðum, verður
þingfest fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur 14. apríl nk.
Morð og rán í Stafangri
Hrottalegt bankarán var framið í
Stafangri í Noregi í gærmorgun og
féll þá einn lögreglumaður í kúlna-
hríð frá ræningjunum. Er uggur og
óhugur í Norðmönnum vegna þessa
atburðar en lögreglan hefur gíf-
urlega viðbúnað vegna leitarinnar
að glæpamönnunum í Stafangri og
nágrenni. Hefur verið lýst eftir
tveimur mönnum, sem taldir eru
tengjast ráninu, og fjögurra ann-
arra er leitað. Tengjast þeir allir al-
ræmdu glæpagengi í Ósló en það er
þekkt fyrir miskunnarleysi og bí-
ræfin rán.
Handtekinn öðru sinni
Rúmlega tvítugur karlmaður sem
handtekinn var vegna grófrar lík-
amsárásar á sextán ára dreng á
laugardag en látinn laus daginn eft-
ir var handtekinn aftur í gær í
tengslum við líkamsárás í húsi við
Hverfisgötu í Reykjavík. Ráðist var
á mann á miðjum aldri og eru þrír í
haldi lögreglu vegna málsins.
Skuldabréfaútboð DeCODE
DeCODE tilkynnti í gær að það
hygðist afla allt að 7,2 milljarða
króna með skuldabréfaútboði. Nota
á féð til að setja aukinn kraft í þró-
un lyfja, greiningartækni og í al-
mennan rekstur fyrirtækisins.
Óöld í Írak
Komið hefur til harðra bardaga
milli stuðningsmanna róttæks sjíta-
klerks og bandarískra hermanna í
Írak síðustu tvo daga en gefin hefur
verið út skipun um handtöku hans.
Óttast er, að hún geti haft sömu
áhrif og olía á eld.
Y f i r l i t
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Borgarfjörður.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 32
Viðskipti 12 Viðhorf 36
Erlent 13/16 Minningar 36/44
Höfuðborgin 19 Bréf 48
Akureyri 20 Dagbók 50/51
Suðurnes 21 Kvikmyndir 56
Landið 23 Fólk 56/61
Daglegt líf 24/25 Bíó 59/61
Listir 26/28 Ljósvakar 62
Umræðan 30/31 Veður 63
* * *
TEYMI vísindamanna í Utrecht í
Hollandi hefur þróað virkara bólu-
efni gegn heilahimnabólgu B en
þekkst hefur til þessa. Gestur Við-
arsson, doktor í ónæmisfræði, er
einn þeirra vísindamanna sem unn-
ið hafa að rannsóknunum og hann
segir menn bjartsýna um mögu-
leika nýja bóluefnisins en tekur
fram að enn sé mikil vinna fram-
undan.
Vilja láta bólusetja öll
börn sem fæðast í Hollandi
Gestur segir menn hafa unnið að
svipuðum rannsóknum í Noregi og
á Kúbu en í Hol-
landi hafi menn
notað erfða-
fræðilegar að-
ferðir til að búa
til þannig bólu-
efni að það verki
á níu af algeng-
ustu gerðum
heilahimnubólgu
B. Það samsvari
því að það sé á
milli 75 og 90%
dekking með bóluefninu en hugs-
anlega enn meiri.
„Bóluefnið virðist virka en það
er ekki búið að sýna fram á beina
klíníska virkni þess enn. Þar sem
þetta er ekki algengur sjúkdómur
þarf mjög stóran hóp til þess að
sýna fram á virkni bóluefnisins. Sá
stóri hópur á að vera öll börn sem
fæðast í Holllandi. Það er verið að
vinna í því núna að reyna að fá það
í gegn,“ segir Gestur og bætir við
að næsta skref verði að fara í
fjöldaframleiðslu á efninu.
„Það eru nokkur stór fyrirtæki
erlendis sem eru að hjálpa okkur í
því að koma efninu á markað sem
fyrst. En það á enn eftir að fá öll
tilskilin leyfi,“ segir Gestur.
Íslenskur sérfræðingur í teymi hollenskra vísindamanna
Hafa þróað bóluefni
við heilahimnubólgu B
Gestur
Viðarsson
RISAVAXIN blóm, sem gaman er að
leika sér í kringum, prýða garðinn
við Hulduhóla í Mosfellsbæ sem er
heimili, vinnustofa og gallerí lista-
konunnar Steinunnar Marteins-
dóttur. Steinblómin eru eftir eig-
inmann Steinunnar, listamanninn
Sverri Haraldsson, sem er látinn.
Steinunn segir að garðurinn við
Hulduhóla sé mjög vinsæll hjá
krökkum. Skal það engan undra, því
hversu oft kemst maður í tæri við
blóm úr steini, sem eru jafnhá og
maður sjálfur?
Allir sem leið eiga um Mos-
fellsbæinn kannast við steinblómin í
garðinum sem bjóða gesti, og ekki
síður íbúa bæjarins, velkomna.
Staðið við steinblómin
Morgunblaðið/Ásdís
SAMKOMULAG náðist á fundi
Rafiðnaðarsambands Íslands og
fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í
gær um öll meginatriði í almennum
kjarasamningi á sviði starfsgreina
rafiðnaðargeirans. Samningurinn
verður borinn undir stóru samn-
inganefndina í dag og ef samkomu-
lag næst verður formlega gengið
frá samningi eftir páska.
Að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns Rafiðnaðarsam-
bands Íslands, nær samkomulagið
til allra helstu atriða samningsins,
þ.m.t. launataflna og lágmarks-
launa.
Þá var gengið frá samkomulagi
um lágmarkslaun á virkjanasvæð-
um að því er lýtur að Rafiðnaðar-
sambandinu.
Að sögn Ragnars Árnasonar,
forstöðumanns vinnumarkaðssviðs
Samtaka atvinnulífsins, miðar við-
ræðum um virkjanasamning vel.
Samningarnir séu hins vegar að
mörgu leyti mjög flóknir enda við-
semjendur margir og búast megi
við að samkomulag náist á fyrstu
dögum eftir páska.
Rafiðnaðarsambandð fundar í
dag með Samtökum verslunarinnar
en viðræðum hefur verið vísað til
ríkissáttasemjara og er fyrsti fund-
ur í dag kl. 9.
Samkomulag um
lágmarkslaun á
virkjanasvæðum
EKKERT samkomulag lá fyrir á
fundi samninganefnda ríkisins og
Starfsgreinasambandsins seint í
gærkvöld en fundur hafði þá staðið í
húsakynnum ríkissáttasemjara frá
því um morguninn. Verkalýðsfélögin
hafa undirbúið verkfall sem hefjast á
16. apríl takist ekki samningar.
Stíf
fundahöld
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær Gay Pride – Hinsegin
daga og Reykjavíkurborg af tæplega
3 milljóna króna skaðabótakröfu konu
sem varð undir skyggni á skemmtun
á Ingólfstorgi 10. ágúst 2002. Konan
tognaði í vöðvum í hálsi, herðum og
mjóbaki og skarst á eyra og höfði.
Hlaut hún 10% varanlegan miska og
5% varanlega örorku. Hún hélt því
fram að slysið mætti rekja til galla á
byggingu skyggnisins og ljóst væri að
það hefði gefið sig undan þunga fólks
sem klifraði upp á skyggnið.
Tengdist ekki
skemmtun Gay Pride
Í dómnum segir að skyggnið teng-
ist ekki skemmtun Gay Pride á torg-
inu, enda hefðu hátíðarhaldarar sett
upp eigið svið annars staðar þar sem
skemmtiatriði Gay Pride fóru fram.
Þrátt fyrir að Gay Pride hefði fengið
leyfi Reykjavíkurborgar og lögreglu-
yfirvalda til að halda skemmtun í
borginni þ.á m. á Ingólfstorgi, auglýst
hana og hvatt fólk til að koma, þá yrði
stefndi, Gay Pride, ekki af þeim sök-
um einum gerður ábyrgur fyrir tjóni
fólks á skemmtuninni. Orsakasam-
band yrði að vera milli athafna eða at-
hafnaleysis stefnda og tjónsins. Slys
konunnar yrði á engan hátt rakið til
athafna Gay Pride og ekki hefði
skyggnið verið eign stefnda. Þá var
ekki sýnt fram á að skyggnið hefði
verið hættulegt og var ekki fallist á að
Reykjavíkurborg hefði mátt gera ráð
fyrir að fólk hætti sér út á skyggnið
jafnvel þótt það klifraði þar upp. Ekki
væri því hægt að fallast á að skyggnið
hafi verið slysagildra og borginni bor-
ið að fjarlægja það.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari
dæmdi málið. Stefán G. Þórisson hrl.
flutti málið fyrir stefnanda, Sigurður
B. Halldórsson hdl. fyrir Gay Pride
og Aðalsteinn E. Jónasson hrl. fyrir
Reykjavíkurborg.
Skyggnið
ekki slysa-
gildra
Gay Pride og
Borgin sýknuð
♦♦♦