Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Nú er svo komið hér eystra að þeir sem
ætla að fljúga gegnum flugvöllinn á Egils-
stöðum verða að panta með í það minnsta
viku fyrirvara, ætli þeir sér að vera öruggir
um að fá sæti. Þvílík er ásóknin í flugið að
fólk er í mestu vandræðum með að komast ef
það þarf að bregða sér flugleiðis af bæ með
stuttum fyrirvara. Á föstudaginn voru svo
dæmi sé tekið 300 flugsæti á boðstólum og
bókað í 298 þeirra. Flugvallarmenn segja
enda um 60% aukningu á farþegaflutningum
um Egilsstaði miðað við sama tíma í fyrra.
Sautján tillögur bárust í samkeppni um
nýtt miðbæjarskipulag fyrir Egilsstaði, en
skila átti tillögum fyrir 24. mars. Gera á úr-
slit heyrinkunnug fyrir mánaðamót og bíða
menn spenntir eftir að sjá tillögurnar. Ekki
síst vegna þess að í raun er enginn sérstakur
miðbær á Egilsstöðum. Það sem nálgast
mest að vera miðbær er annars vegar versl-
un og nánasta umhverfi Kaupfélags Hér-
aðsbúa og hins vegar Bónusverslun og versl-
unar- og skrifstofuhúsnæðið Kleinan, hvort
sínum megin við mjög fjölfarna aðalbraut,
þar sem m.a. þungaflutningabílar drynja
dagana langa. Þykir því mörgum bæj-
arbúanum tímabært að hannaður sé hlýleg-
ur miðbæjarkjarni með fjölbreyttri þjónustu
innan seilingar og sæmilegu öryggi fyrir
gangandi vegfarendur. Þá vilja menn gjarna
sjá bæjarskrifstofur Austur-Héraðs í slíkum
miðbæjarkjarna, í það minnsta einhvers
staðar allt annars staðar en á annarri hæð í
lyftulausum iðngörðum efst í bænum, þar
sem fatlaðir og eldra fólk eiga erfitt eða
ómögulegt með aðgengi.
Nýr banki haslar sér völl á Egilsstöðum
innan skamms; Sparisjóður Norðfjarðar sem
starfar í Neskaupstað og á Reyðarfirði.
Sparisjóðurinn hefur keypt húsnæði í Klein-
unni sem fyrr var getið, en ekki ákveðið hve-
nær nýja útibúið verður opnað. Fyrir eru á
Egilsstöðum KB banki og Landsbanki Ís-
lands.
Sem betur fer eru Egilsstaðir enn þá lausir
við klámbúllur, þó erlendir karlmenn spyrj-
ist gjarnan fyrir um holdlega afþreyingu í
bænum nú um stundir. Heyrst hefur að bæj-
arstjórn Austur-Héraðs ætli að spyrna við
fótum ef umsóknir um leyfi fyrir súlu- og
strippstaði koma inn á hennar borð. Kaffihús
Kaupfélags Héraðsbúa, Café KHB, auglýsti
óvænt strippsýningu að kvöldi 1. apríl og
meira að segja fastakúnnarnir þorðu ekki
inn, ekki fyrr en þeir uppgötvuðu að auglýs-
ingin var aprílgabb.
Úr
bæjarlífinu
EGILSSTAÐIR
EFTIR STEINUNNI ÁSMUNDSDÓTTUR
BLAÐAMANN
Fimm sendu tilboð ígrasslátt í Innbæ,Oddeyri og Neðri-
Brekku á Akureyri 2004–
2006 og framkvæmdaráð
samþykkti að ganga til
samninga við Finn ehf.,
sem átti næstlægsta tilboð.
ISS Ísland átti lægsta til-
boðið en það var talið ógilt
þar sem einingaverð vant-
aði í tilboðsskrá. Finnur
ehf. bauð rúmar 19,6 millj-
ónir eða 65% af kostnaðar-
áætlun, sem hljóðaði upp á
30 milljónir. Þrif og þjón-
usta bauð 26,1 milljón, eða
86,8%, Hirðing ehf. bauð
tæpar 27 milljónir, eða
89,8% og átti auk þess tvö
frávikstilboð. Ingólfur Jó-
hannesson bauð hins vegar
tæpar 50 milljónir í verkið,
eða 166,2% af kostnaðar-
áætlun.
Sláttumenn
Búðardalur | Í Grunn-
skólanum í Búðardal hef-
ur verið keppt um „Hrók-
inn“ síðan 1982 en það er
verðlaunagripur, hann-
aður af Skúla Jóhanns-
syni og er veittur þeim
stigahæsta á skákmóti
vetrarins. Í vetur hefur
verið mikil vakning í skák
og æft reglulega. Það var
ánægjuleg heimsókn sem
þriðji bekkur fékk á dög-
unum en Magni frá Skák-
félaginu Hróknum í
Reykjavík kom og gaf öll-
um bókina Skák og mát
eftir Anatolij Karpov.
Morgunblaðið/Helga
Hrókurinn í Búðardal
Þegar landsmennvoru farnir aðfagna vorinu kom
páskahret og hagyrðing-
arnir fundu eitthvað til að
yrkja um. Gísli Ásgeirsson
yrkir:
Þegar sumrar sýnist mér
sífellt hýrna geðið
en vorið góða orðið er
ansi kalt og freðið.
Sigurður Ingólfsson
hefur einnig sitthvað til
málanna að leggja:
Öllu ríður út á slig
einhver kalsafjandi.
Ég finn vorið éta mig
ég er fjarverandi.
Loks kveður Gylfi Þor-
kelsson sér hljóðs:
Vorið góða, grænt og hlýtt
græðir fjör um dalinn.
Nú er miklu snörli snýtt,
snjórinn rífleg alin.
Af páska-
hreti
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Þorlákur Jóns-
son landgræðslumaður í Garði
hefur víða farið um sveitina sína
og oft komið í Seljahjallagil.
Honum hefur þó aldrei auðnast
að sjá vorleysingu steypast þar
í gljúfrin fyrr en nú að gaf á að
líta er hann átti þar leið um.
Í hitabylgju þeirri sem verið
hefur hér undanfarna daga eru
jafnvel fannir hátt til fjalla farn-
ar að gráta örlög sín, nú í byrj-
un apríl. Venjulega er vatna-
gangs ekki að vænta í
Seljahjallagili fyrir en í júní eða
jafnvel júlí. En ekkert er venju-
legt við tíðarfarið á þessum
vetri.
Fannir hátt til fjalla gráta örlög sín
Leysingar
Reykjavík | Þórólfur Árnason, borgar-
stjóri í Reykjavík, og Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra undirrituðu í gær samkomu-
lag um uppgjör og ábyrgð á
lífeyrisskuldbindingum vegna starfsfólks
samrekstrarstofnana ríkis og Reykjavík-
urborgar. Um er að ræða starfsfólk stofn-
ana á borð við Borgarspítalann, Gjald-
heimtuna í Reykjavík og
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Samkvæmt
samkomulaginu greiðir ríkissjóður borgar-
sjóði um 2,9 milljarða króna, en jafnframt
er lagður grunnur að árlegum uppgjörum
milli aðila vegna reksturs sem ríki og
Reykjavíkurborg standa enn sameiginlega
að.
Vinnuhópur á vegum ríkis og borgar fór
yfir þær skuldbindingar sem safnast hafa
upp hjá lífeyrissjóðunum vegna sameigin-
legra verkefna á undanförnum áratugum.
Um afar viðamikið verkefni var að ræða,
þar sem samningsaðilar hafa átt víðtækt
samstarf um rekstur ýmissa stofnana,
einkum á sviði heilbrigðis-, mennta- og fé-
lagsmála.
Samkvæmt samkomulaginu yfirtekur
ríkissjóður skuldbindingar Reykjavíkur-
borgar gagnvart Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræð-
inga og Reykjavíkurborg yfirtekur skuld-
bindingar ríkissjóðs gagnvart Lífeyrissjóði
starfsmanna Reykjavíkurborgar miðað við
stöðu þeirra í árslok 2002. Mismunurinn á
yfirteknum skuldbindingum er gerður upp
milli samningsaðila.
Þá er gert ráð fyrir að nýjar skuldbind-
ingar, sem falla til á ári hverju vegna fram-
haldandi verkefna, skuli framvegis gerðar
upp árlega milli aðila.
Þetta kemur fram á vef Reykjavíkur-
borgar, www.reykjavik.is.
Borgin fær
tæpa þrjá
milljarða
Klappað og klárt: Þórólfur Árnason borg-
arstjóri og Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra handsala samninginn í gærmorgun.
Reykjavíkurborg og
ríkið semja um líf-
eyrisskuldbindingar
Reykjavík | HVALASKOÐ-
UNARSKIPIÐ Hafsúlan frá
Reykjavík fór í fyrstu hvalaskoð-
unarferð ársins fyrir skemmstu.
Um borð voru um 50 manns frá
ýmsum löndum, þar á meðal var
hópur unglinga frá frá Bretlandi.
Í þessari fyrstu ferð sáust hrefn-
ur, höfrungar og hnísur. Veðrið var
gott og allir skemmtu sér vel, að því
er segir í frétt frá Hvalstöðinni sem
gerir bátinn út.
Hafsúlan fer í hvalaskoðun þrisv-
ar á dag í sumar, kl. 9, 13 og 17.
Fyrsta hvalaskoðunarferðin