Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 53
HK OG FH mætast í tveimur auka-
leikjum um sæti í 8-liða úrslitakeppn-
inni um Íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik í vikunni. Fyrri leikurinn
verður í Kaplakrika klukkan 19.15
annað kvöld og síðari leikurinn í
Digranesi klukkan 16.30 á föstudag-
inn langa. Keppt er samkvæmt
Evrópureglu þannig að samanlagður
árangur gildir. Úrslitakeppnin um
Íslandsmeistaratitilinn hefst svo
þriðjudaginn 13. apríl. Fimmtudaginn
15. apríl verða síðari leikirnir og þurfi
að grípa til oddaleikja fara þeir fram
laugardaginn 17. apríl. Í 8-liða úrslit-
unum eigast við:
Haukar – ÍBV
Valur – HK/FH
ÍR – Grótta/KR
KA – Fram
Tveir leikir
hjá HK og FH
AUSTURRÍSKA handknattleikskona Sylvia
Strass, sem leikur með Íslands- og bikar-
meisturum ÍBV í handknattleik, meiddist í
hné í upphitun fyrir fyrri leik ÍBV og Þór/KA
á laugardaginn. Gat hún af þeim sökum ekk-
ert tekið þátt í leikjunum tveimur við Þór/
KA í átta-liða úrslitunum. Við skoðun kom í
ljós að liðþófi í hné skaddaðist og vonast
Eyjamenn til að Strass verði ekki nema eina
til tvær vikur frá æfingum og keppni.
ÍBV er komið í undanúrslit Íslandsmótsins
og mætir FH eftir um hálfan mánuð en leikir
liðsins í undanúrslitunum hafa ekki verið
ákveðnir ennþá sökum Evrópuleikja ÍBV.
Vonast er til Strass, sem er leikstjórnandi,
hafi jafnaði sig þegar kemur að fyrri leik ÍBV
og Nürnberg í undanúrslitum Áskorenda-
keppni Evrópu í handknattleik, en liðin mæt-
ast í Nürnberg 17. apríl og viku síðar í Eyj-
um.Sylvia Strass hefur leikið vel með ÍBV.
Strass úr leik
um tíma
MARC Baumgartner, þekktasti
handknattleiksmaður Sviss, hefur
ákveðið að gefa kost á sér í landsliðið
á nýjan leik í vor þegar Sviss leikur
við Grikkland um sæti í undan-
keppni HM. Baumgartner, sem leik-
ur með Lemgo, hætti að leika með
svissneska landsliðinu fyrir tveimur
árum en hefur ákveðið að gefa kost á
sér á nýjan leik eftir að leikstjórn-
andi landsliðsins, Robbie Kostadin-
ovich, sleit krossband í hné nýlega
og var frá keppni fram á haust.
STAFFAN Olsson, einn þekktasti
handknattleiksmaður Svía, æfir með
Kiel í Þýskalandi um þessar mundir
og hyggst gera það þar til í lok maí
að Svíar leika tvo leiki við Pólverja í
undankeppni HM. Bengt Johansson,
sem þá stýrir sænska landsliðinu í
síðasta sinn, hefur óskað eftir kröft-
um Olssons í leikjunum. Hammarby,
lið Olssons, er úr leik í sænsku deild-
arkeppninni en til þess að halda sér í
æfingu fram að leikjunum í vor fékk
Olsson tækifæri til að æfa með sín-
um gamla félagi í Þýskalandi sem
hann lék með í nærr einn áratug.
GRÉTAR Ólafur Hjartarson,
framherji Grindavíkurliðsins í knatt-
spyrnu, gat ekki farið í æfingaferð
liðsins til Serbíu. Ástæðan er sú að
unnusta hans ól honum stúlkubarn
rétt áður en Grindvíkingar héldu í
ferðina.
ANDRI Ólafsson og Atli Jóhanns-
son halda næskomandi sunnudag til
æfinga hjá enska liðinu Crewe Alex-
andra. Ferð tvímenninganna er hluti
af samstarfi ÍBV og Crewe en í fyrra
léku tveir liðsmenn enska liðsins
með Eyjamönnum, Toms Betts og
Ian Jeffs en sá síðarnefndi verður
með ÍBV í sumar. Andri og Atli eru
báðir á langtímasamningi hjá ÍBV,
Andri til ársins 2006 og Atli til 2007.
ÞAÐ er ljóst að 1,5 millj. knatt-
spyrnuáhugamanna gera sér sér-
staklega ferð til Portúgals í sumar
til að upplifa Evrópukeppni lands-
liðs, sem stendur yfir frá 12. júní til
4. júlí. „Hér er um að ræða þrefalt
fleiri knattspyrnuáhugamenn en við
reiknuðum með að kæmu til lands-
ins. Ég og fleiri eiga mjög erfitt með
að trúa þessu – áhuginn er geysi-
legur“ sagði Gilberto Madail, tals-
maður portúgalska knattspyrnu-
sambandsins. 1,2 millj. aðgöngumiða
hafa verið settar í sölu í hinum ýmslu
Evrópulöndum.
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, telur að til að stöðva
Arsenal verði að taka fyrirliðann
Patrik Vieira úr umferð, þannig að
hann nái ekki að dæla knettinum til
Robert Pires og Thierry Henry.
Scott Parker mun fá það hlutverk að
vera yfirfrakki á Vieira, en hann átti
mjög góðan leik á miðjunni þegar
Chelsea lagði Tottenham að velli í
úrvalsdeildinni um sl. helgi.
FÓLK
Undirritaður hefur fylgst nokkuðnáið með heimaleikjum Lakers
eftir stjörnuleikinn fyrir sjö vikum.
Flestir héldu að
kannski væri mesti
dampurinn farinn úr
liðinu eftir meiðsl
margra stórstjarna
þess, en Phil Jackson, þjálfarinn
snjalli, náði að halda mannskapnum
saman. Þar að auki hafði Lakers ekki
afnot af Staples Center vegna und-
irbúnings Emmy-verðlaunahátíðar-
innar og síðan stjörnuleiksins í febr-
úar. Af þeim sökum lék liðið sjö
útileiki í röð, sem þýddi að heimaleik-
irnir hlóðust upp. Þá mætti Karl Mal-
one loks aftur til leiks eftir erfið hné-
meiðsli og endurkoma hans hefur
orðið liðinu meiri lyftistöng en margir
héldu. Malone hefur náð að binda
saman leka vörn Lakers og Phil Jack-
son hefur tekið til þess ráðs að senda
hann í stöu Shaquille O’Neal í byrjun
sóknar, sem hefur leitt til þess að
O’Neal hefur teygt úr vörn andstæð-
inganna og skapað svigrúm fyrir aðra
sóknarleikmenn í teignum. Malone
hefur einnig haft mjög jákvæð áhrif á
liðsandann með óeigingjörnum leik
og hvatningum innan vallar.
Í leik helgarinnar tók Lakers á
móti San Antonio, en meistararnir
hafa einnig tekið við sér undanfarið
og höfðu unnið síðustu fimm leiki
sína. Þetta var hörkuleikur sem líkist
einna helst leik í úrslitakeppni. Bæði
liðin léku mjög vel og barist var um
hvert einasta frákast. Spurs náði frá-
bærum kafla í lok fyrri hálfleiks og
þrátt fyrir hetjulega baráttu Lakers
stöðvuðu meistararnir sigurgöngu
Los Angeles, 95:89.
Toni Parker var maður leiksins
með 29 stig fyrir Spurs og Tim Dunc-
an var traustur að venju. Hjá Lakers
var Kobe Bryant stigahæstur með 26
stig.
Það sama má segja um San Anton-
io og Los Angeles. Meistararnir hafa
átt erfitt lengst af vegna meiðsla og
komu nýrra leikmanna, en þjálfarinn
Gregg Popovich, sem er einn
skemmtilegasti persónuleikinn í
deildinni, hefur enn einu sinni sýnt
hversu snjall hann er og stýrir meist-
araskipinu af röggsemi. „Þetta var
frábær sigur gegn liði sem hefur ver-
ið ósigrandi undanfarið. Það sem
skiptir mestu máli fyrir okkur er að
nú erum við aftur komnir í baráttuna
um toppsætið og heimavallarrétt-
inn,“ sagði Popovich ánægður eftir
leikinn.
Sacramento náði aftur toppsætinu
í Vesturdeildinni eftir góðan sigur í
Houston, 99:94, en Lakers hafði náð
því eftir sigurleikinn gegn Seattle á
föstudag í kaffibænum við Kyrrahaf-
ið. Minnesota er einnig inni í mynd-
inni eftir góðan sigur gegn Memphis
Grizzlies, 90:82. Birnirnir úr suðrinu
hafa komið skemmtilega á óvart í
sterkri keppninni í Vesturdeildinni
eftir að gamli riffillinn Hubie Brown
tók við stjórnartaumunum. Jerry
West, framkvæmdastjóri Memphis,
veit enn hvað hann er að gera. Brown
hafði ekki þjálfað í fimmtán ár – eða
síðan hann stjórnaði New York og
Atlanta á sínum tíma, en hann var
einmitt rétti maðurinn til að móta
ungt lið Memphis. Brown þjálfar enn
eftir gamla skólanum og hefur fengið
hið unga lið til að spila af óeigingirni
og með miklum keppnisanda.
Í Austurdeildinni hefur Indiana
náð afgerandi forystu, en Detroit
spilar einnig mjög vel, sérstaklega í
varnarleiknum. Þessi lið mættust í
bílaborginni á sunnudag og fór
Pistons létt með forystulið Indiana,
79:61. Aðeins einn leikmaður Indiana
náði að skora svo mikið sem tíu stig
vegna frábærs varnarleiks Detroit.
Rasheed Wallace hefur fallið mjög
vel inn í leik Pacers eftir að hann yf-
irgaf Portland fyrr í vetur og hefur
Detroit unnið 16 af 21 leik sínum síð-
an að hann skipti um lið.
„Pistons er gjörbreytt lið síðan
Walace kom til okkar,“ sagði Rick
Carlisle, þjálfari Indiana. „Við hefð-
um kannski getað leikið betur í sókn-
inni, en varnarleikur þeirra hafði
mikið með það að gera. Ég vona bara
að við fáum annað tækifæri til að spila
við þá aftur á keppnistímabilinu.“
AP
Tony Parker átti mjög góðan leik með San Antonio Spurs gegn
Los Angeles Lakers. Hér tekst þeim Derek Fisher og Slava
Medvdenko ekki að koma í veg fyrir að hann skori.
DEILDARKEPPNIN er óvenju skemmtileg um þessar mundir hjá
NBA-liðunum. Fjögur lið berjast um toppsætið í Vesturdeildinni og
gæti sú barátta á næstum tveimur vikum gefið vísbendingar um
hvert meistartitillinn stefnir. Los Angeles Lakers hefur verið á mik-
illi siglingu undanfarið – eftir ellefu sigra í röð, en San Antonio
Spurs og Sacramento Kings eru almennt talin þau lið sem muni
veita Lakers hörðustu keppnina það sem eftir lifir af keppnis-
tímabilinu. Í Austurdeildinni hefur Indiana Pacers tekið afgerandi
forystu og er talið langsigurstranglegast, þó er aldrei hægt að van-
meta Detroit Pistons þegar á hólminn kemur.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Los Angeles
Meistarar Spurs
vakna til lífsins
EIÐUR Smári Guðjohnsen sagði við
Morgunblaðið í gær að það myndi
ekki skýrast fyrr en skömmu fyrir
leikinn hvort hann yrði í byrjunar-
liðinu en Eiður og félagar hans í
Chelsea-liðinu sækja Arsenal heim í
Meistaradeildinni í knattspyrnu á
Highbury í kvöld.
„Það er ómögulegt að spá fyrir
um það hvort ég verði í liðinu en
innst inni vonast ég eftir því að fá að
spila. Ég er kominn með fiðring en
eins og alltaf er erfitt að rýna í hvað
Ranieri er að hugsa, En ég verð klár
ef kallið kemur. Ég skoraði í síðustu
tveimur leikjum á móti Arsenal og
vonandi hjálpar það eitthvað til,“
sagði Eiður Smári við Morgunblaðið
í gær.
Eiður segir að undirbúningur
Chelsea fyrir leikinn hafi byrjað um
leið og flautað var til leiksloka gegn
Tottenham á laugardaginn.
„Öll okkar orka og hugarfar síð-
ustu daga hefur farið í þennan leik
og ég held að við séum geysilega vel
einbeittir og tilbúnir í þennan erfiða
leik. Vonandi hefur tapið á móti
Manchester United eitthvað slegið á
sjálfstraust leikmanna Arsenal og
komi okkur þannig til góða en við
verðum samt fyrst og fremst að
hugsa um okkur sjálfa. Það sem við
þurfum að gera er að fara nógu já-
kvæðir inn í leikinn. Við megum
ekki fara of geyst í hlutina en staða
okkar býður ekki upp á neitt annað
en að við verðum að skora. Við verð-
um að hafa trú á því sem við gerum
inni á vellinum og að við getum lagt
Arsenal að velli. Það er ekki ósigr-
andi en eins og sannaðist um
helgina. Leikirnir fjórir sem við höf-
um spilað við Arsenal á tímabilinu
hafa allt verið hörkuleikir og ég
held að engin undantekning verði á í
þessum leik. Þetta verða 90 mínútna
brjáluð barátta. Það er mikið í húfi
svo eðlilega verður mikil spenna í
loftinu. Við leikmenn finnum ekki
fyrir neinni sérstakri pressu á okkur
enda held að það séu miklu fleiri
sem spá Arsenal sigri,“ segir Eiður.
Eiður segist hafa fundið fyrir stíf-
leika í náranum eftir leikinn við
Tottenham en Eiður gat ekki tekið
þátt í landsleiknum við Albaníu í síð-
ustu viku vegna meiðslanna. „Von-
andi kemur þetta ekki til að há mér
en ég er þakklátur þeim Ásgeiri og
Loga fyrir að hafa haft skilning á að
sleppa mér frá leiknum við Albaníu.
Ef ég hefði verið með þar hefði ég
bara gert illt verra. Ég er ávallt
tilbúinn að spila fyrir Ísland og ég
býst við að fara í leikinn við Eista í
lok mánaðarins nema eitthvað komi
upp á.“
Eiður Smári klár ef kallið kemur
KLAUS Augenthaler, þjálfari Bayern
Leverkusen, var staddur á Villa Park í
Birmingham um helgina, til að sjá leik
Aston Villa og Manchester City. Hann
mætti á völlinn til að fylgjast með
Thomas Hitzlsperger, leikmanni 21
árs liðs Þýskalands, sem leikur með
Aston Villa.
Augenthaler sér Hitzlsperger sem
leikmanninn til að fylla upp í skarðið á
miðjunni, sem Michael Ballack skildi
eftir er hann var seldur til Bayern
München fyrir tveimur árum.
Þess má geta að Rudi Völler, lands-
liðsþjálfari Þýskalands, hefur sagt að
möguleikar Hitzlsperger á sæti í
landsliðinu séu meiri ef hann hefur
leikið í Þýskalandi. Hitzlsperger hefur
sagt að hann vilji leika með þýska
landsliðinu á HM í Þýskalandi 2006.
Augenthaler
á Villa Park