Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 11
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 11
UM 300 milljóna króna tap var á
rekstri Festar hf. og dótturfyrirtæk-
is hennar, Gautavíkur á Djúpavogi á
þeim tæpum tveimur árum sem fjár-
festingarfélagið Ker átti hlut í þeim.
Stjórnendur Kers reyndu að ná fram
breytingum á rekstrinum til að bæta
afkomuna en tókst ekki. Í kjölfar
þess keypti Ker allt hlutafé Festar
og Gautavíkur.
Þetta kemur fram í svari fram-
kvæmdastjóra Kers, Guðmundar
Hjaltasonar til sveitarstjóra Djúpa-
vogs, vegna sölu starfseminnar á
Djúpavogi til Hafnar í Hornafirði.
Í svarinu segir svo: „Við höfum
upplýst þig munnlega um að búið sé
að ganga frá sölu á hlutabréfum
Kers hf. í Festi hf. til Skinney-Þinga-
ness hf. en vegna ýmissa ástæðna
hefur dregist að ganga endanlega frá
og undirrita kaupsamning. Jafn-
framt höfum við upplýst þig um að
komi eitthvað það upp sem orsaki
það að félögin nái ekki saman um
kaupin, verði haft samband við
hreppinn, um hugsanlega aðkomu
hans að kaupunum. Rétt er þó að
taka fram að við sjáum ekki fram á
annað en að þessi viðskipti við Skinn-
ey-Þinganes hf. muni ganga eftir.
Ker hf. hefur átt hlutabréf í Festi
hf. og Gautavík hf. (Gautavík hf. er
100% dótturfélag Festis hf.) innan
við tvö ár. Á þessu tímabili hafa fé-
lögin tapað yfir 300 mkr. og eigið fé
rýrnað að sama skapi og heildar-
skuldir og skuldbindingar félaganna
nema rúmum 2.400 mkr. Við þessa
fjárhagsstöðu var ekki unað. Ágrein-
ingur var við meðeigendur Kers hf.
að félaginu um framtíð félaganna.
Vilji þeirra stóð til þess að kaupa
nýtt fjölveiðiskip í stað Guðrúnar
Gísladóttur og vinna í því þann síld-
arkvóta sem félagið hefur til ráðstöf-
unar. Það var skoðun forsvarsmanna
Kers hf. að slíkur rekstur gæti ekki
borgað sig, nema með umtalsverðum
fjárfestingum í viðbótarkvóta. Rétt
er að benda á að slík fjárfesting hefði
auðvitað leitt til þess að sú síldar-
vinnsla sem fór fram í frystihúsi Bú-
landstinds hefði flust út á sjó.
Samkomulag við Vísi tókst ekki
Ekki varð af þessari fjárfestingu
en niðurstaða í viðræðum við með-
eigendur félagsins var sú að Ker hf.
keypti eignarhluti þeirra. Þau við-
skipti fóru fram í byrjun mars sl.
Viðræður um ráðstöfun hlutabréfa
Kers hf. í Festi hf. hafa átt sér stað
við forráðamenn Vísis hf. Ker hf. er
hluthafi í Vísi hf. og hefur mikla trú á
forráðamönnum félagsins. Haustið
2003 var komið munnlegt samkomu-
lag við forráðamenn Vísis um að
sameina Festi hf. við Búlandstind hf.
og fá Granda hf. til liðs við hið sam-
einaða félag sem eigandi að allt að
10% hlutafjár. Þessu höfnuðu með-
eigendur okkar í Festi hf., auk þess
sem ekki reyndist unnt að auka
hlutafé Vísis hf. til að klára þessi við-
skipti.
Í framhaldi af kaupum Kers hf. á
öllu hlutafé í Festi hf. var ákveðið að
selja félagið til Skinney-Þinganess
hf., auk þess sem tiltekinn loðnu-
kvóti var seldur til annarra aðila. Í
fréttatilkynningu frá sveitarstjórn
Djúpavogshrepps er birtist á heima-
síðu hreppsins og er ódagsett er sagt
að það sé verið að „ … höndla með
þær eignir og aflaheimildir sem virð-
ast í uppnámi hér á Djúpavogi.“ Í því
sambandi er rétt að taka fram að
aflaheimildir þær sem tilheyra Festi
hf. eru skráðar á skip félagsins, Örn-
inn KE-13, þ.e. með heimahöfn í
Keflavík, og því tilheyra þessar afla-
heimildir í raun Keflavík, ef vilji er
til þess að eyrnamerkja veiðiheim-
ildir sveitarfélögum.
Óhagkvæm
rekstrareining
Annað atriði sem rétt er að hafa í
huga er að ef ekki reynist unnt að
reka félög með viðunandi afkomu, er
nauðsynlegt að grípa til viðhlítandi
aðgerða. Sú rekstrareining sem
Festi hf. og Gautavík hf. var, var
ekki hagkvæm til að nýta það fjár-
magn sem bundið var í félögunum,
eins og afkoma félaganna undanfarin
ár ber með sér. Jafnframt segir í áð-
urnefndri fréttatilkynningu sveitar-
stjórnarinnar: „Ekki liggja fyrir
formleg svör við erindinu þ.e. bréfi
sveitastjóra Djúpavogshrepps til
Kers hf. dags. 8. mars 2004.“ Af of-
ansögðu kemur það skýrt fram að
hér er hallað réttu máli og hörmum
við það.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Óvissa ríkir nú um starfsemi fiskimjölsverksmiðjunnar á Djúpavogi.
300 milljóna
tap á 2 árum
Rekstur Festar og Gautavíkur á
Djúpavogi var óviðunandi að mati
stjórnenda Kers
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
og Útflutningsráð Íslands munu
standa fyrir ráðstefnu fimmtudag-
inn 29. apríl nk. sem ber vinnuheit-
ið „Tækifæri sjávarútvegsins“ og
mun fjalla um útrásartækifæri
greinarinnar. Markmiðið er að ráð-
stefnan geti varpað skýrari sýn á
það hvar og hvernig áherslur
greinarinnar eigi að liggja og hvort
hið opinbera geti skapað betri um-
gjörð til að ýta undir frekari sókn.
Árni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra setur ráðstefnuna
sem verður skipt í tvo hluta. Í
fyrri hluta hennar verða haldnir
fyrirlestrar um reynslu þeirra sem
hafa náð árangri í viðskiptum er-
lendis, burtséð frá því í hvaða
grein þeir starfa. Í síðari hluta
ráðstefnunnar verða pallborðsum-
ræður þar sem aðilar í sjávarút-
vegi miðla af reynslu sinni af út-
rásarverkefnum í sjávarútvegi.
Ítarlegri dagskrá verður kynnt síð-
ar.
Tækifæri sjáv-
arútvegsins
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
og Þórólfur Árnason, borgarstjóri í
Reykjavík, undirrituðu í gær sam-
komulag um uppgjör og ábyrgð á líf-
eyrisskuldbindingum vegna starfs-
fólks samrekstrarstofnana ríkis og
Reykjavíkurborgar. Um er að ræða
starfsfólk stofnana á borð við Borg-
arspítalann, Gjaldheimtuna í
Reykjavík og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands.
Samkomulagið felur í sér að rík-
issjóður greiði borgarsjóði um 2,9
milljarða króna en jafnframt er lagð-
ur grunnur að árlegum uppgjörum
milli aðila vegna reksturs sem ríki og
Reykjavíkurborg standa enn sam-
eiginlega að.
„Reykjavíkurborg tekur á sig sjö
milljarða lífeyrisskuldbindingu og
fær greidda tæpa þrjá milljarða en
ríkið tekur á sig líklega 12–13 millj-
arða. Þetta eru stórar tölur og allt í
allt eru þetta um 20 milljarðar sem
var verið að semja um,“ segir Þór-
ólfur Árnason borgarstjóri.
Mörg teikn á lofti um gott
samstarf ríkis og borgar
Þórólfur segir vinnu við sam-
komulagið hafa staðið í nokkur ár.
„Grunnhugmyndin í þessu upp-
gjöri er að lífeyrisskuldbinding sé
reiknuð út í réttu hlutfalli við hver
bar kostnað af rekstrinum. Þetta
kostaði mikla greiningarvinnu auk
þess sem önnur bæjarfélög höfðu
komið að málunum einstaka sinnum.
Það er gífurlega mikill léttir að þetta
sé komið á hreint,“ segir Þorólfur.
Hann segist sömuleiðis mjög
ánægður með þann jákvæða tón sem
er í samskiptum ríkis og borgarinn-
ar. „Eftir að ég koma til starfa höfum
við náð að skrifa undir nokkra sam-
starfsyfirlýsingar og samninga þar
sem við höfum verið að ljúka málum,
s.s. um uppbyggingu framhaldsskól-
anna, árlega listahátíð, samþættingu
heimahjúkrunar og heimilisþjónustu
fyrir aldraða og nú bætist við þetta
stór lífeyrisuppgjör. Þannig að það
eru mörg teikn á lofti um mjög gott
samstarf Reykjavíkurborgar og rík-
isins.“
Viðamikið verkefni
Í sameiginlegri fréttatilkynningu
fjármálaráðherra og borgarstjóra
segir að vinnuhópur á vegum samn-
ingsaðila hafi farið yfir þær skuld-
bindingar sem safnast hafa upp hjá
umræddum lífeyrissjóðum vegna
sameiginlegra verkefna á undan-
förnum áratugum. Verkefnið hafi
verið mjög viðamikið þar sem ríki og
borg hafi átt víðtækt samstarf um
rekstur stofnana á undanförnum
áratugum, einkum á sviði heilbrigð-
is-, mennta- og félagsmála.
Þorólfur segir ríki og borg enn
töluvert mikið í sameiginlegum
rekstri en það hafi þó minnkað stór-
lega. „Sú kostnaðargreining og
kostnaðarhugsun sem er orðin al-
gengari í opinberum rekstri byggist
á því að ábyrgð og kostnaður fari
saman. Við hjá Reykjavíkurborg
höfum t.d. lagt áherslu á það að fá ný
lög um Sinfoníuna til að minnka þann
samrekstur sem þar er.“
Samkvæmt samkomulaginu yfir-
tekur ríkissjóður skuldbindingar
Reykjavíkurborgar gagnvart Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins og
Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga og
Reykjavíkurborg yfirtekur skuld-
bindingar ríkissjóðs gagnvart Líf-
eyrissjóði starfsmanna Reykjavíkur-
borgar miðað við stöðu þeirra í
árslok 2002. Mismunurinn á yfir-
teknum skuldbindingum er gerður
upp milli samningsaðila.
Jafnframt er í samkomulaginu
kveðið á um uppgjör á áföllnum og
greiddum kröfum vegna þeirra sem
byrjaðir eru töku lífeyris. Þá er með
samkomulaginu gert ráð fyrir að
nýjar skuldbindingar, sem falla til á
ári hverju vegna áframhaldandi
verkefna, skuli framvegis gerðar
upp árlega milli aðila. Niðurstaða
þessa uppgjörs var sú að uppsafn-
aðar skuldbindingar ríkissjóðs til
ársloka 2002 voru 2.858 milljónum
hærri en skuldbindingar Reykjavík-
urborgar og greiddi ríkissjóður
þennan mismun við undirritun sam-
komulagsins með spariskírteinum
ríkissjóðs.
Uppgjörið hefur ekki áhrif á af-
komu ríkissjóðs í ár þar sem áður var
búið að færa umræddar lífeyris-
skuldbindingar til gjalda í ríkisreikn-
ingi. Þá hafði einnig verið gerð grein
fyrir þessum óuppgerðu skuldbind-
ingum í reikningum borgarsjóðs.
Ríki og Reykjavíkurborg gera upp lífeyrisskuldbindingar
Ríkið greiðir borgar-
sjóði 2,9 milljarða
Þórólfur Árnason borgarstjóri og Geir H. Haarde fjármálaráðherra und-
irrita samkomulagið um lífeyrisskuldbindingar samrekstrarstofnana.
FRÉTTIR
VIÐSKIPTI með fasteignir á
fyrsta ársfjórðungi 2004 voru upp
á alls 35 milljarða króna, gerðir
voru 2.029 kaupsamningar og var
meðalupphæð á hvern kaupsamn-
ing 17,2 milljónir króna, skv.
upplýsingum Fasteignamats rík-
isins.
Fjöldi kaupsamninga jókst um
14,8% frá sama tímabili í fyrra,
og jókst velta um 33,4%.
Viðskipti með eignir í fjölbýli
námu 23,4 milljörðum, viðskipti
með eignir í sérbýli námu 5,7
milljörðum og viðskipti með at-
vinnuhúsnæði og aðrar eignir
voru 5,9 milljarðar króna.
Færri kaupsamningar en á
fjórða ársfjórðungi 2003
Á fyrsta ársfjórðungi í fyrra
var þinglýst 1.768 kaupsamn-
ingum og nam upphæð veltu 26,2
milljörðum króna og meðalupp-
hæð á hvern kaupsamning var
14,8 milljónir króna. Þegar 1.
ársfjórðungur 2004 er borinn
saman við 4. ársfjórðung 2003
kemur fram samdráttur í fjölda
kaupsamninga sem nemur 11,7%
og aukning í veltu um 0,7%. Þá
var þinglýst 2.298 kaupsamn-
ingum og nam upphæð veltu 34,7
milljörðum króna og meðalupp-
hæð á hvern kaupsamning var
15,1 milljón króna.
Velta á fasteignamarkaði
jókst um 33% frá áramótum
Morgunblaðið/Kristinn