Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 25
ingur kemur vel fram í þeim fáu dæmum sem
eru í Gagnasafni Orðabókar Háskólans.
Annars er vikan fyrir páska oft nefnd dymb-
ilvika, stundum kyrravika og jafnvel efstavika.
Skírdagur og föstudagurinn langi eru gjarnan
einu nafni nefndir bænadagar og hefur sú nafn-
gift verið algeng um land allt til skamms
tíma. En þessir tveir dagar hafa einn-
ig borið fleiri nöfn þó að þau hafi
ekki tíðkast um allt land.
Í Þingeyjarsýslum
var orðið skírdags-
helgar algengt
heiti á þessum
helgidögum og
aðalheiti
þeirra í máli
fólks fyrr á
tíð. Þetta orð
þekktist
einnig í
Eyjafirði, svo
og í nyrsta
hluta Norður-
Múlasýslu. Enn
fremur var þetta
orð eitthvað þekkt á
Vestfjarðakjálkanum.
Á Austfjörðum þekktust
orðin lægri helgar eða lághelgar
um bænadagana. Á takmörkuðu svæði um norð-
anverðan Breiðafjörð og Dali nefndust dagarnir
stundum lægri dagar og á stöku stað læridagar.
Heimildir
1. Íslensk orðabók. Þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Rit-
stjóri Mörður Árnason. Reykjavík: Edda 2002.
2. Gagnasafn Orðabókar Háskólans: http://www.lexis.hi.is
3. Talmálssafn Orðabókar Háskólans.
MISJAFNT er eftir landshlutum hvað sumir
dagar ársins eru kallaðir og nú þegar páskavik-
an fer í hönd eða hefst brátt, (eftir því hvoru er
tekið mark á og hvar við erum stödd á landinu)
er vert að glugga í hvað stendur á bak við orðið
páskavika. Gunnlaugur Ingólfsson hjá
Gagnasafni Orðabókar Háskólans hef-
ur tekið saman ýmsan fróðleik um
páskavikuna:
Vikan sem byrjar með pálma-
sunnudegi og lýkur laug-
ardaginn fyrir páska er oft
nefnd páskavika. Svo
hefur þó ekki alltaf
verið og hefur menn
stundum greint á um
það. Í fornu máli
virðist svo sem
páskavika byrji
með páskadegi, þ.e.
vikan eftir páska.
Þetta skýrist með
því að vikan er talin
hefjast með sunnudegi
og páskadagur er þá
fyrsti dagur vikunnar og
hún dregur síðan nafn sitt af
páskahátíðinni.
Í umræðum á Alþingi árið 1853
greindi menn á um þetta í umræðum og kom
fram tvenns konar skilningur, þ.e. að páskavika
hæfist á pálmasunnudag og lyki laugardaginn
fyrir páska en aðrir héldu því fram að páskavika
hæfist páskadag og lyki laugardaginn hinn
næsta á eftir. Þessum síðarnefnda skilningi til
stuðnings var vitnað í forn rit, t.d. Laxdæla
sögu, þar sem sú merking orðsins skýrist ótví-
rætt af samhenginu. Þessi tvenns konar skiln-
PÁSKAR
Páskavika líka kyrravika,
dymbilvika eða efstavika
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 25
KENNARAR við Mýrarhúsaskóla á Seltjarn-
arnesi ákváðu á kennarafundi í síðustu viku að
banna svokölluð Yugiuh-spil í skólanum og á
skólalóðinni vegna ýmissa leiðinda, sem þau valda
þegar nemendur eru að skipta á spilum sín í milli.
Að sögn Fríðu Regínu Höskuldsdóttur, skóla-
stjóra, fylgja vorkomunni gjarnan alls konar
tískuleikföng, sem krakkarnir verða mjög upp-
teknir af. „Þetta eru misverðmætar spilamyndir,
sem krakkarnir eru að kaupa í búðum og skiptast
svo á spilum eftir efnum og ástæðum. Oft gerist
það að minni krakkarnir verða illa úti í við-
skiptum við þau stærri sem eru gjörn á að plata
eftirsóttustu og verðmætustu myndirnar út úr
þeim minni í frímínútum. Iðulega hafa komið upp
einhvers konar leiðindi vegna þessara spila og
höfum við þar haft mestar áhyggjur af yngstu
nemendunum. Kennarar hafa kvartað yfir því að
börnin séu mjög upptekin af þessum spilum og
því ákváðum við að banna þau í skólanum,“ segir
skólastjórinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Frímínútur: Oft gerist það að minni krakkarnir
verða illa úti í viðskiptum við þau stærri.
Yugiuh-spil bönn-
uð á skólalóðinni
SKÓLI
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
w w w. m o s . i s
- Þjónusta í þína þágu
Þjónustuver Mosfellsbæjar sími: 525 6700
Úrval
fermingargjafaGUESS D K N Y
Úr, skartgripir
og gjafavara
Kjarna s. 544 4990
Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ
Sími 566 6090
Nýtt í KÉRASTASE
Kynning miðvikud. 7. apríl frá kl. 14-17
20% kynningarafsláttur
Ágætu Mosfellingar! Nú er tilboð á málningu og
tengdum vörum frá HörpuSjöfn. Hjá okkur fást
einnig; garðyrkjuáhöld, ljósaperur, lampar og ljós,
fittings, rafmagns- og handverkfæri, hestaskeifur og
verkfæri, heimilistæki, gjafavörur og margt fleira.
ALLT Á GÓÐU VERÐI
Urðarholti 4, s. 586-1210
KJARNA Þverholti 2,
Mosfellsbæ
Sími: 534 3424
• Rakakrem
• Hreinsifroða
• Förðunanburstasett
• Minimaskari
Fermingartilboð
kr. 1.900
Í fallegri tösku
Háaleitisbraut 58-60 s: 5535280 • Urðarholti 2 s: 566 6145 • mosbak@mosbak.is
SÖÐLASMIÐURINN MOSÓ
þverholti 2 , 270 mosó
S: 566 8540 / 893 5777
d-tour@d-tour.is
ÍSLAND SLEIPNIR