Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 39
✝ Guðrún Jónsdótt-ir fæddist á Syðri- Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu 14. maí 1913. Hún lést á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund 28. mars síðastliðinn. Foreldrar Guðrúnar voru Jónína Þor- steinsdóttir frá Beru- stöðum, f. 9. október 1883, d. 3. maí 1970, og Jón Jónsson frá Hárlaugsstöðum, f. 2. mars 1877, d. 5. jan- úar 1954. Systkini Guðrúnar voru: Þorgerður, f. 22. apríl 1913, d. 8. maí 2000, Guðlaug, f. 8. júní 1914, d. 19. ágúst 1994, Jó- hanna, f. 10. nóvember 1915, Þór- hallur, f. 4. október 1917, d. 15. septem- ber 1929. Þorsteinn, f. 8. október 1918, d. 17. ágúst 1919, Aðal- steinn, f. 22. ágúst 1920, d. 19. mars 2002, og uppeldis- bróðir Hilmar Bjarnason, f. 23. ágúst 1930. Árið 1940 giftist Guðrún Sigurði Sig- tryggssyni, f. 25. október 1913, d. 5. júní 1987. Þau eign- uðust einn son, Sig- trygg, f. 1. mars 1946. Útför Guðrúnar fer fram frá Neskirkju 6. apríl og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er hún horfin yfir móðuna miklu elskuleg móðursystir mín, Guð- rún Jónsdóttir, Rúna frænka, tæp- lega 91 árs. Er Rúna var á þriðja ári fluttist fjöl- skyldan að Sumarliðabæ í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Þar átti hún sín æskuár í faðmi foreldra og systkina. Ung fór hún að vinna fyrir sér og vann ýmis störf eftir að hún kom til Reykja- víkur, en helgaði sig heimilinu eftir að hún hóf búskap. Hún giftist Sigurði Sigtryggssyni bifvélavirkja frá Hóli á Skaga árið 1940 og eignuðust þau son- inn Sigtrygg árið 1946. Að eðlisfari var Rúna ákaflega hæglát og talfá, en nokkuð skapstór, þó fáir yrðu varir við það. Hún var af- ar hjartahlý og mátti ekkert aumt sjá, alltaf boðin og búin að rétta öðrum hjálparhönd. Hún skynjaði með næm- leika sínum þörfina fyrir greiðasemi og veitti hana án orða. Að Melhaga 9 fluttu Rúna, Siggi og Sigtryggur árið 1950, en þar höfðu þau byggt sér framtíðarheimili. Þar bjó Rúna þeim fallegt og notalegt heimili, því hún var í eðli sínu mikill fagurkeri og naut þess að hafa fallega og vandaða hluti í kringum sig. Hún hafði líka mikla ánægju af því að gefa, og margir nutu gjafmildi hennar í gegnum árin. Þau hjón voru alveg einstaklega gestrisin, alltaf var pláss fyrir einn til viðbótar við matarborðið eða slá upp auka- rúmi, allt var sjálfsagt hvernig sem á stóð. Enda eignuðust þau trygga og góða vini á lífsleiðinni. Og 90 ára var hún ennþá að taka á móti gestum og gefa kaffi, eða þar til hún veiktist í haust og átti ekki aft- urkvæmt heim að Melhaga 9. Ég vil að leiðarlokum þakka elsku- legri frænku minni fyrir allt það sem hún var fyrir mig á lífsleiðinni, systir hennar mömmu, þessi fasti punktur í tilverunni. Elsku Sigtyggur, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Erna Steinsdóttir. GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 39 ✝ Lára Jónsdóttirfæddist í Kjarna við Akureyri 7. mars 1905. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 26. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jón Jónasson, f. 14. apríl 1874, d. 3. sept. 1935 og Aðalbjörg Hall- grímsdóttir, f. 31. mars 1879, d. 12. mars 1915. Lára var þriðja barn þeirra hjóna en systkini hennar voru Ólöf húsfreyja á Siglufirði, f. 16. maí 1900, Hallgrímur heildsali á Sauð- árkróki, f. 3. okt. 1902, Jónas Geir kennari á Húsavík, f. 31. mars 1910 og Aðalbjörg húsmóðir á Ak- ureyri, f. 11 mars 1915. Þau eru öll látin. Lára átti fjögur hálf- systkini samfeðra, Kristínu, Skjöld og Þórhall, öll búsett á Ak- ureyri og Birnu sem er látin. Þeg- ar móðir Láru lést var hún tekin í fóstur af þeim hjónum Einari Ein- arssyni og Guð- björgu Sigurðar- dóttur, Strandgötu 45 á Akureyri. Þau hjónin áttu þrjú börn og auk Láru tóku þau tvö önnur fóst- urbörn. Dóttir Láru er Guðbjörg Þórisdótt- ir, f. 15. júlí 1933, maki Tryggvi Gests- son, f. 14. sept. 1930, þau eiga tvö börn, sex barnabörn og eitt barnabarna- barn. Lára var í húsmæðraskóla í Danmörku í einn vetur. Hún vann við ýmis verslunarstörf og var hún hjá Kaupfélagi Eyfirðinga í 36 ár, þar af lengst í Stjörnu Apó- teki í 20 ár. Lára starfaði til margra ára með Kvenfélagi Ak- ureyrarkirkju þar af nokkur ár sem gjaldkeri félagsins. Lára verður jarðsungin frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Í sorginni ómar eitt sumarhlýtt lag, þó er sólsetur, lífsdags þíns kveld. Því er kveðjunnar stund, og við krjúpum í dag í klökkva við minningareld. Orð eru fátæk en innar þeim skín það allt sem við fáum ei gleymt. Allt sem við þáðum, öll samfylgd þín á sér líf, er í hug okkar geymt. Í góðvinahóp, þitt var gleðinnar mál eins þó gustaði um hjarta þitt kalt. Því hljómar nú voldugt og sorgblítt í sál eitt sólskinsljóð, – þökk fyrir allt. (B.B.) Elsku Lára mín, nú er komið að kveðjustund og margs er að minnast þennan part ævi minnar sem ég hef verið svo lánsöm að fá að vera þér samferða. Þegar ég byrjaði að venja komur mínar í Kringlumýri 29, þá á tán- ingsaldri, í tengslum við dótturson þinn, Þóri, sem síðar varð maki minn, fannst mér alltaf svo notalegt að vera nálægt þér. Þarna varst þú í stóru hlutverki á heimilinu og mér fannst þau Þórir og Lára systir hans vera óskaplega lánsöm að njóta sam- vista við ömmu sína svona mikið, kannski líka vegna þess að ég sjálf átti enga ömmu á lífi. Þar sem þú varst alltaf fram á síð- asta dag sérstaklega minnug naust þú þín þegar verið var að rifja upp atburði frá fyrri árum og maður fann hlýjuna þegar þú talaðir um fóstur- foreldra þína í Standgötunni og margar sögur hafðir þú að segja frá uppvaxtarárum þínum. Skemmtilegt hefur það t.d. verið þegar íþrótta- félagið Þór var stofnað í stofunni í Strandgötu 45 og þú fékkst að vera einn af stofnfélögum, þá 11 ára göm- ul, en síðar varst þú gerð að heið- ursfélaga á 50 ára afmæli Þórs. Ekki er annað hægt en að undrast hversu margt þú afrekaðir á eigin spýtur t.d. að fara á húsmæðraskóla í Danmörku þar sem þú eignaðist vini sem hafa fylgt þér og var mikið um bréfaskriftir þar á milli og margar ferðir þínar síðar til Noregs og Dan- merkur til að hitta fóstursystur þína og vini. Þessar ferðir fórst þú með Gullfossi og í síðustu ferð þinni með Gullfossi tókst þú Þóri með þér, þá 10 ára gamlan, og því gleymir hann ekki meðan hann lifir, svo mikið æv- intýri var það. Já, þú varst líka dálítil hefðarkona í þér, það var mikið af gleðskap í kringum þig, húmorinn alltaf í lagi og þú sagðir líka meiningu þína, fjör- ugir saumaklúbbar og fl. og alltaf hélst þú upp á afmælið þitt hvort sem það var smátt eða stórt. Pass- aðir vel upp á klæðaburðinn og hárið þurfti að vera í lagi og þú kunnir svo sannarlega að gera þig fína. Í Kringlumýri 29 er venjan að fjöl- skyldan komi saman á laugardögum og borði saman mjólkurgraut og hafa þær stundir verið ómetanlegar og tengsl þín og langömmubarna og langalangömmubarns þíns hafa orð- ið mikil. Þú sýndir þeim svo mikla góðvild og elsku,lést þau þig varða, hvað þau væru að aðhafast og fylgd- ist vel með þeim öllum, þannig varst þú og eru þau ævarandi þakklát fyrir það og munu þau eiga bjartar og hlýjar minningar um þig. Elsku Lára, ég þakka þér fyrir allt og allt. Kristín Hallgrímsdóttir. Elsku langamma mín, nú er kveðjustundin runnin upp og mig langar bara að segja að það var svo gott að eiga þig að og þrátt fyrir ald- urinn varstu alltaf svo hress og skemmtileg. Þú áttir það svo oft til að lauma að okkur krökkunum ein- hverju nammi og það var alltaf eitt- hvert gott nammi eða stakkst pening í vasana okkar, sagðir svo að okkur veitti nú ekki af þessu. Svo bakaðir þú líka heimsins bestu pönnukökur. Þú varst svo hlý og góð og það var svo gott að koma til þín hjá ömmu og afa í Kringlumýri og ég sakna þín mikið en ég veit að þú átt eftir að hvíla í friði og hafa það gott þar sem þú ert nú komin. Lilja Sif. LÁRA JÓNSDÓTTIR ✝ Sigrún VigdísÁskelsdóttir fæddist á Bassastöð- um við Steingríms- fjörð 10. janúar 1910. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 27. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Áskell Pálsson, f. 12. september 1875, d. 11. maí 1951, og kona hans Guðríð- ur Jónsdóttir, f. 21. október 1873, d. 24. júlí 1947. Þau bjuggu lengst af á Bassa- stöðum. Sigrún Vigdís var eitt af 22 systkinum. Sigrún Vigdís ólst upp hjá móð- ursystur sinni, Sigrúnu Jónsdóttur, f. 19. júní 1867, d. 11. júlí 1930, og Ingimundi Jónssyni, f. 17. febrúar 1864, d. 4. febrúar 1937. Hinn 23. október 1932 giftist Sig- dórsdóttur, f. 6. sept. 1940. Börn þeirra eru fjögur. 4) Kristmundur Benedikt, f. 19. maí 1938, kvæntur Ingu Sólveigu Sigurðardóttur, f. 10. nóvember 1941. Börn þeirra eru fjögur. 5)Erla Björk, f. 11. maí 1941, gift Sigurgeir Sævari Sveins- syni, f. 29. október 1938, d. 28. febr- úar 2001. Börn þeirra eru þrjú. 6) Gylfi, f. 6. nóvember 1946, kvæntur Guðfinnu Magnúsdóttur, f. 25. nóv- ember 1949. Börn þeirra eru þrjú. 7) Sigríður Ásdís, f. 18. maí 1953. M. 1) Sigurður Karl Árnason. Þau skildu. Börn þeirra eru tvö. M. 2) Leifur Hammer Þorvaldsson, f. 6. ágúst 1953. Börn þeirra eu þrjú. Sigrún Vigdís og Karl bjuggu á Drangsnesi árin1932–1935, flutt- ust þá að Gautshamri í Steingríms- firði og bjuggu þar til 1953, er þau fluttu til Akraness. Þau áttu heima að Háholti 15, þar til þau fluttust á Dvalarheimilið Höfða árið 1999. Sigrún Vigdís helgaði krafta sína eiginmanni og börnum alla tíð. Hún átti sín síðustu æviár á Dval- arheimilinu Höfða. Útför Sigrúnar Vigdísar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. rún Vigdís Karli Guð- mundssyni frá Bæ í Steingrímsfirði, f. 2. september 1911, d. 5. nóvember 2001. For- eldrar hans voru Guð- mundur Guðmunds- son, f. 27. júlí 1873, d. 5. ágúst 1942, og kona hans, Ragnheiður Halldórsdóttir, f. 2. febrúar 1876, d. 4. des- ember 1962. Þau bjuggju í Bæ við Stein- grímsfjörð. Sigrún Vigdís og Karl áttu sjö börn. Þau eru: 1) Hall- dór S., f. 22. desember 1932, kvænt- ur Báru Daníelsdóttur, f. 18. febr- úar 1935, d. 26. ágúst 1975. Börn þeirra eru fjögur. 2) Svavar, f. 30. mars 1935, kvæntur Unni Jónsdótt- ur, f. 4. maí 1936. Börn þeirra eru fimm. 3) Guðmundur Heiðmar, f. 1. maí 1936, kvæntur Guðrúnu Hall- Elsku mamma, amma og tengda- móðir. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (S. Egilsson.) Hvíl í friði, elsku mamma, amma og tengdamóðir. Takk fyrir allt og Guð veri með þér. Við vitum, þó líkaminn leggist í mold, við lengi ekki í skugganum búum, því sálin hún deyr ei, þó dofni vort hold, þeim drottins vors orðum við trúum. Ég kveð og ég þakka það Guð okkur gaf, sem gátum þér fengið að kynnast, því manndóm og kærleik þú miðlaðir af, þeim mætustu dyggðum, er finnast. (Ragnheiður Halldórsdóttir frá Bæ.) Sigríður, Leifur, Gylfi Már, Eva, Erla og Leifur Rúnar. Guð gefur, guð tekur ég sakna þín elsku mamma þú ert farin til guðs þíns ég sakna þín sakna þess að geta ekki spurt þig um gamla daga um allt það sem þú vissir sakna þess að sjá þig ekki aftur alltaf svo glaða þegar ég kom til þín sakna þess að hafa ekki farið oftar til þín ég sakna þín elsku mamma guð blessi þig. Þín dóttir Erla Björk. Nú skil ég þig svo vel, elsku amma Rúna, þegar þú sagðir: „Æi, útlönd- in eru svo ægilega langt í burtu,“ eftir að ég sagði þér að ég væri að fara í burtu í skóla. Sjaldan hefur mér fundist ég eins langt í burtu að heiman og einmitt núna. En við skildum hvor aðra svo vel þegar við kvöddumst um jólin, og vissum báð- ar innst inni að það skipti var öðru- vísi en öll hin. Þó töluðum við bara um allt það skemmtilega sem biði okkar, þú á þínum tímamótum og ég á mínum. Þú áttir nefnilega stefnu- mót við ástina, og ég vissi hversu af- skaplega mikið þú hlakkaðir til, það sást alltaf í augunum þínum þegar þú hugsaðir til þess. Við gátum alltaf setið og talað, brosað og grátið saman. Talað um allt og ekkert. Ég spurði þig stund- um um fortíðina, þá komstu á skrið. Eins mikið og mér þótti gaman að hlusta á þig, þótti þér skrítið að ég skyldi spyrja. Kannski var það af því að mér fannst minn hugarheimur svo líkur þínum að ég þóttist skilja þig svo vel, elsku amma. Kannski þess vegna gat ég svo vel ímyndað mér hvaða bækur þér myndi líka að lesa þegar ég fór á bókasafnið fyrir þig. Ég var heldur ekki lengi að átta mig á því að þið afi voruð meira en bara hjón. Svona mikill kærleikur og vinátta á milli tveggja einstak- linga hlýtur að vera ást eins og hún gerist fallegust. Ykkur vanhagaði ekki um neitt, svo lengi sem þið höfðuð hvort annað. Hann gætti þín svo einstaklega vel og færði þér koss og knús hvert sinn sem hann kom inn um dyrnar heima, þó hann hafi bara skroppið út í bakarí. Fyrir mér er saga ykkar ein sönn kærleiks- saga, alveg eins og þú last um í bók- unum sem ég sótti fyrir þig. Það eru fallegar minningar sem ég mun geyma, elsku amma. Ein- læg, hreinskilin tilsvör þín munu áfram fá mig til að brosa. Þú veist að ég á eftir að sakna þín afar, afar mikið og það verður skrýtið að koma heim í sumar og þú ert ekki þar. En ég er ekki sorgmædd því ég veit að þú er komin á þann stað sem þér líð- ur best, í faðm afa. Ég veit líka að þú ert ekki farin langt og verður alltaf hjá okkur, öllum þeim sem elska þig. Guð veri með þér. Saknaðarkveðjur. Bryndís. Elsku besta amma mín. Með þess- um fáu orðum langar mig að kveðja þig, amma mín, og segja þér, hve vænt mér þótti um þig og mun alltaf þykja. Það er skrýtið að hugsa til þess að þú sért ekki lengur hjá okkur. Að það sé ekki lengur hægt að skreppa í heimsókn til þín og halda í höndina þína hlýju, fara með þig á rúntinn eða hitta þig heima hjá pabba og mömmu. Að labba með Gylfa litla inn ganginn á Höfða og sjá hann labba rakleitt að hurðinni þinni, opna hana og fara beint í fang- ið þitt til að heilsa þér. Það var alltaf svo notalegt að vera nálægt þér. Þér þótti svo gaman að lesa, sauma út og vinna alla handavinnu. Þegar ég var lítil og var hjá þér, þá vorum við líka oft að syngja saman og spila, þú varst alltaf svo glöð og kát. Ég ætla aldrei að gleyma því, þeg- ar þið afi stóðuð saman úti á svölum á Háholtinu og veifuðuð brosandi á eftir okkur, ánægð með lífið og til- veruna. Mér fannst þið þá fallegustu hjón í heimi. Ég veit amma mín, að ég á að samgleðjast þér að vera nú loksins komin til afa, og ég geri það svo inni- lega, en það er erfitt að kveðja þann sem maður elskar og þykir vænt um. Elsku amma, megi Guð geyma þig. Þín Sigrún Vigdís Gylfadóttir. SIGRÚN VIGDÍS ÁSKELSDÓTTIR Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.