Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 47
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri
safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður að lokinni bænastund. Allir vel-
komnir. Tólf spora fundur kl. 19 í neðri safnaðarsal.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Org-
elleikur, ritningarlestur, altarisganga, fyrirbænastund.
Léttur málsverður á sanngjörnu verði að helgistund lok-
inni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beð-
ið fyrir sjúkum. Eldir borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa,
kaffi og spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist mánudaga kl.
13, brids miðvikudaga kl. 13. Bridsaðstoð á föstudögum
kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405.
Langholtskirkja. Kl. 18 messa. Íhugunarefni: Æðsta-
prestsbæn Jesú. Prestar sr. Kristján Valur Ingólfsson og
sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla og þriðjudagur með
Þorvaldi fellur niður en vísað á kvöldmessu skírdags-
kvölds kl. 20.30. Athugið að þriðjudag eftir páska, 13.
apríl, mun fullorðinsfræðslan halda áfram. Það kvöld
mun Bjarni Karlsson, sóknarprestur, taka upp þráðinn að
nýju og kenna reglubundið öll þriðjudagskvöld fram á vor.
Neskirkja: Litli kórinn-kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórn-
andi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Foreldramorgunn
miðvikudag kl. 10–12.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkju-
prakkarar kl. 16. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára
börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu
kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í við-
talstímum hans.
Fella- og Hólakirkja: Strákastarf 8–12 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. KKK kátir krakkar í kyrruviku frá kl. 9–
12 og 13–16.
Lestur Passíusálma kl. 18.15. 49. sálmur. Um Kristí
graftran. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi les.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15 í umsjón
dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 10–12. Samverustund kl. 14.30–16. Fræð-
andi innlegg í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn Sig-
rúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt helgistund. Allir hjart-
anlega velkomnir. Starf með 8–9 ára börnum í Borgum
kl. 17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Starf með
10–12 ára börnum á sama stað kl. 18–19 í umsjón Dóru
Guðrúnar og Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í Safnaðarheim-
ili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild
kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safn-
aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–
16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18.
Skemmtilegar stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðs-
félagið (Megas) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í
kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda
Einarsdóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er opið hús fyrir
7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er opið hús fyrir unglinga 13–
15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli. Karlar og konur, yngri sem eldri, eft-
irlaunafólk, öryrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spil-
að, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni lýkur með
helgistund kl. 16. Umsjónarmaður Nanna Guðrún djákni.
Þorlákur sækir þá sem vilja og ekur þeim heim. Sími 869
1380.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl.
10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 09.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 Páskafrí í Kirkju-
krökkum. Næsta samvera 13. apríl. Kl. 16Litlir lærisvein-
ar, kóræfing yngri hóps. Kl. 17.10 Litlir lærisveinar, kór-
æfing eldri hóps. Stjórnandi Joanna Wlaszczyk og Kristín
Halldórsdóttir. Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman
í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverður, samfélag og
fræðsla um kristna trú. Einnig verður komið inn á stöðu
atvinnulausra. Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar
eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis,
Verslunarmannafélagið og Iðnsveinafélagið ásamt Kefla-
víkurkirkju. Allir velkomnir.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5.
Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upplýsingar á
www.kefas.is
AD KFUK, Holtavegi 28. Að taka því óvænta. Allar konur
velkomnar.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl. 18.10.
Safnaðarstarf
LEIKFÉLAG Hörgdæla sér um lest-
ur Passíusálma Hallgríms Péturs-
sonar í Möðruvallakirkju í Hörg-
árdal í fjórða sinn nú á föstudaginn
langa.
Lesturinn hefst kl. 13 og stendur
fram eftir degi. Það er fólk á öllum
aldri sem les, allt frá 13 ára til átt-
ræðs. Helga Bryndís Magnúsdóttir,
organisti Möðruvallakirkju, leikur á
hið nýja pípuorgel, eftir fimmta
hvern sálm, en orgelið var smíðað
af Björgvin Tómassyni og var vígt í
kirkjunni fyrsta sunnudag í aðventu
árið 2002.
Undanfarin ár hefur verið áber-
andi hve vel ferðafólk hefur sótt
lesturinn. Greinilegt er að þeir fjöl-
mörgu sem koma til Akureyrar og
nágrannabyggða um páska kunna
vel að meta að taka sér hlé frá úti-
veru um miðjan daginn og íhuga
píslarsögu Krists með því að hlýða á
lestur Passíusálmanna. Vonandi
verður einnig svo í ár.
Meðan á lestrinum stendur verð-
ur heitt á könnunni á prestssetrinu
og að sjálfsögðu eru allir hjart-
anlega velkomnir.
Vaktu með Kristi
BÆNAVAKA verður í Víðistaða-
kirkju aðfaranótt föstudagsins
langa, 8.–9. apríl. Markmið vök-
unnar er að gefa ungu fólki kost á
að sýna í orði og verki að það vilji
taka þátt í og vera hluti af kristnu
samfélagi.
Vakan verður í Víðistaðakirkju
aðfaranótt föstudagsins langa. Á
vökunni ætlum við að leiða hugann
að atburðum næturinnar þegar
Jesú var svikinn og því samfélagi
sem hann átti með lærisveinum sín-
um þessa síðustu nótt. Þannig fáum
við tækifæri til að upplifa atburði
næturinnar á áþreifanlegan og
áhrifamikinn hátt um leið og við
biðjum fyrir friði, einingu og kær-
leika í heiminum. (Matteusarguð-
spjall 26.36–46).
Vakan hefst kl. 22 á skírdag, 8.
apríl, og stendur til kl. 8 að morgni
föstudagsins langa. Vakan er haldin
á vegum kirknanna í Hafnarfirði;
Ástjarnarsóknar, Fríkirkjunnar,
Hafnarfjarðar-, og Víðistaðakirkju.
Dagskrá vökunnar er tvíþætt.
Annars vegar eru helgistundir í
kirkjunni, sem er öllum opin, gest-
um og gangandi. Hins vegar býðst
félögum í þeim æskulýðsfélögum
sem standa að dagskránni að taka
þátt í fjölbreyttri dagskrá í safnað-
arheimili þess á milli og er ýmislegt
í boði, svo sem afslöppunarher-
bergi, sjónvarpsherbergi, ball og
ýmsar stöðvar þar sem boðið verður
upp á fjölbreytta verkefnavinnu.
Geisli, samtök um sorg
og sorgarviðbrögð
Fundur verður haldinn hjá Geisla,
þriðjudaginn 6. apríl kl. 20 í safn-
aðarheimili Selfosskirkju, efri hæð.
Fyrirlesari á fundinum verður,
Guðrún Eggertsdóttir djákni. Hún
mun fjalla um sorgarferli þeirra
sem missa barn á meðgöngu, oft er
þeirri sorg ekki sýndur skilningur.
Eftir erindið sem hún nefnir „Sorg
tengd missi á meðgöngu“ verður
tími fyrir umræður, einnig verður
boðið upp á hressingu. Bænastund í
lokin.
Fundurinn er öllum opin. Allir
eru velkomnir. Nánari upplýsingar
veitir Eygló J. Gunnarsdóttir
djákni.
Aðalsafnaðarfundur
Grensássóknar
Aðalsafnaðarfundur Grensássóknar
verður haldinn fimmtudaginn 15.
apríl nk. kl. 18. Fundurinn verður
haldinn í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Dagskrá fundarins verður í
samræmi við starfsreglur um sókn-
arnefndir nr. 732/1998.
Á fundinum verður leitað heim-
ildar til sölu neðri hæðar kirkj-
unnar, undir kirkjuskipi, til stofn-
ana þjóðkirkjunnar.
Leikfélag
Hörgdæla sér
um lestur
Passíusálmanna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kirkjan á Möðruvöllum í Hörgárdal í Eyjafirði.
Opið mót um páskana
á Loftleiðum
Samhliða Íslandsmótinu í sveita-
keppni, sem verður spilað á Hótel
Loftleiðum um bænadagana, verður
boðið upp á létta spilamennsku í
kjallara hótelsins. Spilaðar verða
þrjár 24 spila lotur, ein á skírdag, 8.
apríl og tvær á föstudaginn langa, 9.
apríl.
1. lotan kl. 13.00 – 16.30 skírdag.
2. lotan kl. 11.00 – 14.30 föstudaginn langa.
3. lotan kl. 15.00 – 18.30 föstudaginn langa.
Spilagjald er kr. 1.000/mann fyrir
eina lotu, en kr. 500 fyrir aðra og
þriðju lotu, samtals 2.000 krónur fyr-
ir þátttöku í öllum lotunum. Besta
skor úr tveimur lotum gildir til verð-
launa, sem eru gómsæt Mónu páska-
egg. Efstu sætin í hverri lotu og í
heildina fá páskaegg og að auki verð-
ur dregið um 6 páskaegg í hverri
lotu. Spilað verður um silfur- og gull-
stig.
Fyrir efstu þrjú sætin í hverri lotu
verða veitt 24 silfurstig fyrir 1. sæti,
16 fyrir 2. sæti og 11 fyrir 3. sæti. Í
lokin verða veitt gullstig til uppbótar
fyrir 4 efstu sætin: 5 gullstig fyrir 1.
sætið, 3 gullstig fyrir 2. sæti, 2 fyrir
það 3. og eitt fyrir 4. sætið.
Skráning á staðnum.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 2. apríl var spilað á
átta borðum. Úrslit urðu þessi.
N/S
Kristján Ólafss. – Friðrik Hermannss. 224
Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 190
Sófus Berthelsen – Ólafur Gíslason 173
Oddur Jónsson – Stefán Ólafsson 172
A/V
Þorvaldur Þorgrímss. – Guðni Ólafss. 231
Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannss. 196
Hermann Valsteinsson – Jón Sævaldss. 180
Jón Ól. Bjarnas. – Ásm. Þórarinss. 164
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Það mættu 18 pör til keppni 30.
marz og var hörkukeppni í báðum
riðlum. Lokastaðan í N/S:
Jón Jóhannss. – Sturlaugur Eyjólfss. 253
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 250
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 248
Austur/vestur:
Brynja Dyrborgard. – Þorl. Þórarinss. 266
Jón Stefánss. – Þorsteinn Laufdal 256
Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmundss. 241
Sl. föstudag mættu 20 pör og þá
urðu eftirtalin pör efst í N/S:
Júlíus Guðmss. – Óskar Karlss. 270
Magnús Oddss. – Ragnar Björnss. 241
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 238
Austur/vestur:
Jóhann Lútherss. – Ólafur Ingvarss. 260
Sigurður Pálss. – Hannes Ingibergss. 254
Einar Markússon – Sverrir Gunnarss. 230
Meðalskor báða dagana var 216.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
www.thjodmenning.is
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif.
Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22
sími 564 6415 - gsm. 661 9232.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Bifhjóla og ökukennsla
Eggert Valur, ökukennari.
Ökukennsla/skóli/mat.
Nýr M. Benz. Uppl. í símum
893 4744/565 3808/853 4744.
Grand Cherokee Limited, árgerð
1999, ekinn 67 þúsund, m/öllu.
Verð kr. 2.480 þús.
Egill Vilhjálmsson ehf.,
sími 896 5838.
Trooper 3.5 sjálfsk. ´99, 32”.
Bogar, kúla, topplúga, geisla-
spilari. Allt rafdrifið. Afar góður
stgr. afsláttur. Ek. aðeins
65.000.
Toppbíll. Uppl. í s. 898 7899.”
Nissan Patrol GR Disel Turbo,
árg. '96, skráður '97, breyttur 33",
vetrar- og sumardekk, álfelgur (5
stk), læsing aftan, dráttarkúla, CD
spilari o.fl. Verð 1.650 þús. kr.
Upplýsingar í síma 896 4559.
Opel Astra, árg. '99, ek. 63 þús.
km. 1600cc station. Góður fjöl-
skyldubíll. Aukahl. álfelgur, sam-
læsingar, sumardekk á felgum og
líknarbelgir. Vel með farinn. Uppl.
í símum 660 8167 og 421 5115.
Vöru og fisk flutningar
Getum bætt við verkefnum í
þungafl. Hvert á land sem er,
stakar ferðir/föst viðskipti, góð
tilboð. Frjálsa flutningafélagið
s. 894 9690.
Jeep Grand Cherokee Limited
08/02, ek. 20 þús. Hlaðinn búnaði,
t.d. leður, sóllúga, Quadra-Drive,
driflæsingar. Einn með öllum auk-
abúnaði. Svartperlulitaður. Skoða
öll skipti. Uppl. í síma 856 7334.
Volvo 240 árgerð 1982
Ek. 167 þús. km. Skoðaður 04. Ný
tímareim, nýr vatnskassi, nýtt
pústkerfi. Aðeins 50.000 stgr.
Baldvin s. 660 8641, 567 2992.
Nissan Terrano, árg. 1995. Dísel
Suzuki Fox, árg 1986. Sex gamlar
dráttavélar og margt margt fleira.
Upplýsingar í síma 865 6560.