Morgunblaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR-
INN Ana (Sarah Polley), hefur á
tilfinningunni að ekki sé allt með
felldu á næturvaktinni og ekki tek-
ur betra við þegar hún kemur heim.
Litla krúttið, dóttir nágrannanna,
birtist með hálfétið andlitið, ræðst á
unnusta Önu og bítur. Vírussjúk-
dómur hefur breiðst út á ógnar-
hraða um borgina; Þeir sem eru
bitnir, sýkjast. Ana sér sitt óvænna
og forðar sér undan á flótta upp á
líf og dauða. Kemst eftir miklar
hremmingar í verslanaklasann þar
sem safnast hefur saman hópur
ósýktra einstaklinga. Löggan Kenn-
eth (Ving Rhames), Andre (Mekhi
Phifer), ásamt Ludu (Inna Korobk-
ina), konu sinni sem komin er á
steypirinn og Michael (Jake We-
ber). Í klasanum finna þau fyrir ör-
yggisverði undir stjórn C.J. (Mich-
ael Kelly). Hefst hópurinn fljótlega
handa að leita flóttaleiða á öruggan
stað úr byggingunni, sem er umset-
in glorsoltnum uppvakningum.
Skynsamlegast að hlífa lesendum
við fræðilegum vangaveltum um
eðli og háttu hinna lifandi dauðu,
læt nægja tilvitnun, sem höfund-
arnir nota: „Þegar ekki er meira
pláss í Helvíti munu hinir dauðu
heltaka jörðina.“ Svo mörg eru þau
orð.
Dögunin er byggð á samnefndri,
sígildri hrollvekju Georges A. Ro-
mero frá 1978, sem er miðhluti
sögufrægs þríleiks um fyrirbrigðið
og er fyrir margt löngu komin á
stall með helstu költmyndum sög-
unnar.
Frummyndin hans Romero var í
aðra röndina harkaleg ádeila á
neysluþjóðfélagið, en Snyder er
greinilega ekki síður undir áhrifum
28 Days Later, gæðamyndar sem
Danny Boyle sendi frá sér ’02. Út-
koman er samflétta groddalegrar
kaldhæðni og ógnvekjandi hryllings
og spennu sem tekst það ótrúlega,
að skemmta áhorfandanum svika-
laust. Sjálfsagt ofbýður einhverjum
hrottaskapur háðsins og svo mikið
er víst að uppvakningarnir eru ekki
fögur sjón.
Öllu máli skiptir hröð og hug-
myndarík (í þessum geira) leik-
stjórn, þéttur leikhópur og viðun-
andi hlutfall ógeðs og gálgahúmors
sem kemur sálinni á heldur
ósmekklegt en undarlega gáskafullt
draugahúss-rússíbanaflug.
Hurðar-
laust helvíti
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Zack Snyder. Handrit: James
Gunn, byggt á kvikmyndahandriti
Georges A. Romero. Kvikmyndatöku-
stjóri: Matthew F. Leonetti. Tónlist: Tyler
Bates. Aðalleikendur: Sarah Polley, Ving
Rhames, Jake Weber, Mekhi Phifer , Inna
Korobkina, Ty Burrell, Michael Kelly. 97
mín. Bandarísk.
Universal Pictures 2004.
Dögun hinna dauðu (Dawn of the Dead)
„Svikalaus skemmtun,“ segir Sæbjörn Valdimarsson um hina „groddalegu“
Dögun hinna dauðu.
Sæbjörn Valdimarsson
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 8 og 10.30. Síðasta sýning
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 3.20, 5.40 og 8. Með ensku tali
Sýnd kl. 3.20 og 5.40. Með íslensku tali
Páskamynd
fjölskyldunnar
Sýnd Í LÚXUSSAL kl. 4.
Sýnd kl. 3.40.
Fleiri börn...meiri vandræði!
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA!
Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! kl. 8 og 10.40. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 16.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 5.50. Með ísl. tali
Stórkostleg skemmtun fyrir alla
fjölskylduna. Leikin ævintýramynd
eins og þær gerast bestar!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Páskamynd
fjölskyldunnar
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í
USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust!
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16.
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd allra tíma
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
KENNARI við kaþólskan skóla í
Kaliforníu hefur verið rekinn úr
starfi fyrir að hafa boðið nem-
endum sínum í sjöunda bekk hærri
einkunnir fyrir að horfa á Písla-
sögu Krists. Kennarinn, Stephen
Hatorn, hafði kennt við St. Lawr-
ence skólann í úthverfi Sacra-
mento í fimm ár en var rekinn í
síðustu viku. Myndin umdeilda,
sem gerð er af Mel Gibson, er
bönnuð innan 17 ára þar sem hún
þykir afar ofbeldisfull og sumir
telja hana ala á gyðingahatri.
Marilyn Fleming, skólastjóri St.
Lawrence skólans, sagði það
ganga gegn stefnu skólans að
hvetja börn til þess að horfa á
myndir bannaðar innan sautján
ára en í skólanum eru börn frá
leikskólaaldri og upp í áttunda
bekk.
Hathorn segir myndina hins
vegar algerlega trúa guðspjöll-
unum og segist sjálfur hafa horft á
hana með syni sínum sem sé í sjö-
unda bekk. „Fyrir suma krakka
gengur hún of langt en fyrir aðra
á þessum aldri er ofbeldið ekki of
mikið, miðað við allt ofbeldið sem
við sjáum í dag.“
Kennari í Kaliforníu rekinn
Píslasaga Krists er bönnuð innan
sautján ára í Bandaríkjunum.
Hærri einkunn
fyrir að horfa á
Píslasögu Krists
ÞAÐ var mikið djassað í Reykjavík um
helgina og Ungdjass 2004 þar í fararbroddi.
Maðurinn á bak við þessa tveggja daga djasshá-
tíð er saxófón- og klarínettuleikarinn Haukur
Gröndal, sem hefur búið í Danmörku undanfar-
in ár. Honum tókst að afla fjármagns til að
flytja hingað fjölda norrænna ungdjassista og
bauð upp á tveggja daga hátíð um síðustu helgi
á Hótel Borg þar sem sex hljómsveitir komu
fram. Þrjár alíslenskar utan að í einni lék Erik
Qvick hinn sænski sem hér býr, ein dönsk, önn-
ur norsk og sú er Haukur stýrði sjálfur, Rod-
ent, samnorræn. Það þarf ekki að kvíða framtíð
djassins á Íslandi þegar slíkir orkuboltar og
skipuleggjendur koma úr röðum þeirra ungu.
Fyrsta hljómsveitin af þremur er stigu á
sviðið á föstudagskvöldið var Angurgapar, sem
skipuð er Ívari Guðmundssyni trompet, Finni
Ragnarssyni básúnu, Sigurði Rögnvaldssyni
gítar, Agli Antonssyni wurlitzer, Sigurdóri
Guðmundssyni rafbassa og Kristmundi Guð-
mundssyni trommur. Þetta eru strákar sem
enn eru í námi og tónlist þeirra af bræðingsætt-
inni sem örlitlum endurómi af frjálsum spuna,
stundum af ætt samspunans, er bætt við. Tón-
listin var nokkuð tamin og hefði að ósekju mátt
verða villtari þótt villimennsku brygði fyrir, sér
í lagi í gítarsólóum Sigurðar. Drengirnir eru dá-
góðir hljóðfæraleikarar og blásararnir stóðu
fyrir sínu. Ívar oft með Miles í farteskinu.
Stundum brá hann fyrir sig hálftakkatækninni
sem Rex Steward og Clark Terry notuðu svo
mikið, en samlíking við þá endar þar. Finnur
básúnuleikari á framtíðina fyrir sér, oft
skemmtilega rytmískur í fraseringum sínum.
Hrynsveitin komst bærilega frá sínu, en það
var ekki mikill frumleiki í tónskáldskapnum
sem var allur hennar.
HOD er stórskemmtilegt tríó og ekki að
undra þar sem það skipa nokkrir af helstu orku-
boltum íslensks djass. Davíð Þór Jónsson á
hammondorgel, Ómar Guðjónsson á gítar og
Helgi Svavar Helgason á trommur. Þarna
skiptust á bopskotnir ópusar og ljúfar ballöður
með sálmaívafi í lokin á stundum, reggískotið
kalýpsó og vælandi orgelsólóar af klassíska
skólanum. Fyrst og fremst var þetta fyrsta-
flokks skemmtimúsík og það er alltaf nokkurs
virði.
Þriðja hljómsveitin sem kom fram á föstu-
dagskvöldinu var danskt píanótríó, Refleks,
skipað píanistanum Matthiasi Grove Madsen,
Morten Lundsby bassaleikara og Jesper Uno
Kofoed trommara. Þessir strákar hafa starfað
saman í rúm tvö ár og eru því ágætlega samspil-
aðir. Segja má að þeir séu á hefðbundnu línunni
og sæki bæði í klassískan djass og danska þjóð-
lagasjóðinn. Impressjónismi og fljótandi píanó-
leikur í anda Jarretts og félaga setti svip á leik-
inn, en þó brá fyrir ómstríðari hljómum og
einstaka sinnum skaut dulítill monkismi upp
kollinum og meira að segja Someday my prince
will come og Elvehøj.
Norðurlandadjass
Seinna Ungdjasstónleikakvöldið hófst á leik
norsku rafhljómsveitarinnar Jogujo circit sem
hefur starfað saman síðan árið 2000. Hana
skipa Gunnar Halle, trompet og hljóðgervla;
Joakim Frøystein, rafgítar og hljóðgervla, og
Knut Finsrud, trommur og hljóðvinnslu. Tón-
list þeirra er í stjörnumerki rafmagnsins, en á
því sviði hafa Norðmenn náð einna lengst í
Norðurlandadjassi. Sér í lagi þegar trompetinn
hefur verið í hásæti og má þar nefna menn á
borð við Nils Petter Molvær og Per Jørgensen.
Hljóðgervlatónlist hættir til að vera heldur
einhæf, enda leikurinn oft til þess gerður að
sefja. Það sem léði tónlist þeirra félaga lífi og lit
var trompetleikur Gunnars Halle. Hann er að
sjálfsögðu af ætt Davis eins og allflestir djass-
trompetleikarar nútímans, hvort sem þeir eru
bopparar, kúlarar eða rafhestar, en stundum
brá fyrir tónabreidd og krafti í anda Red All-
ens. Laglínur þeirra félaga voru oft fallegar,
endurtekningar tíðar og dramatík nokkur og
meira að segja skaut Grieg upp kollinum. Ekki
óskemmtilegt skamma stund.
B3 voru næstir á svið. Þeir hafa leikið mikið
að undanförnu og farið mjög fram frá því sam-
nefndur diskur kom út. Hér mátti heyra gömul
lög eins og „Fes es“ blúsinn hans Ásgeirs Ás-
geirssonar gítarista í bland við nýja ópusa og
einnig léku þeir lag eftir kanadíska tropmpet-
leikarann Ingrid Jensen sem var gestur þeirra
á djasshátíðinni í fyrra. Ásgeir hefur náð sér-
lega fallegum tóni á gítarinn og verður æ
öruggari í einleiksköflum sínum. Agnar Már er
einn af fremstu píanistum okkar, en maðurinn
lifir ekki af píanóleiknum einum saman og þótt
manni þætti hann ekki burðugur organisti þeg-
ar hann var að byrja ferilinn á það hljóðfæri
hafa framfarirnar orðið miklar og grúfið verður
æ sterkara. Þar nýtur hann trausts stuðnings
Eric Qvick.
Ungdjassi lauk á leik samnorrænu hljóm-
sveitarinnar Rodent þar sem Haukur Gröndal
og Helgi Svavar eru innanborðs. Ég skrifaði
fyrr í vetur um tónleika þeirra á Kaffi List og
mun bráðlega fjalla um nýju skífuna þeirra,
Beautiful monster, á þessum vettvangi svo best
er að þakka fyrir sig og vonast eftir ferskum
ungdjassi að ári.
Ungdjass 2004DJASSHljómleikar
Föstudagskvöldið 26. mars 2004 á Hótel Borg.
Fram komu íslensku sveitirnar Angurgapar og HOD
og danska tríóið Refleks.
Laugardagskvöldið 27. mars 2004 á Hótel Borg.
Fram komu norska sveitin Jogujo circit, íslenska
sveitin B3 og samnorræna sveitin Rodent.
UNGDJASS 2004
Vernharður Linnet