Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 9

Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 9 Nýtt frá Glæsileg sumarlína í ljósum litum Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Bankastræti 14, sími 552 1555 Ný sending af vörum frá Yfirhafnir o.fl. Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Fallegt úrval af sundbolum Kringlunni, sími 588 1680. Seltjarnarnesi, sími 561 1680. tískuverslun iðunn Stretch gallabuxur Mán. 5/4: Fylltar paprikur & hvítlauks- kartöflur m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Þri. 6/4: Ofnbakað grænmeti & indversk dahl m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Mið. 7/4: Eggaldinlasagna & eplaraita m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Lokað skírdag og 2. páskadag. Opnum aftur þriðjudaginn 13. apríl. Þri. 13/4: Grænmetislasagna & fleira gott m/fersku salati, hrís grjónum & meðlæti. Matseðill www.graennkostur.is Sport-hettupeysur st. 36-56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Fyrir hann Fyrir hana kr. 2.990.- Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. kl. 10 - 18, lau. kl. 10 - 14 Útsala - Lagersala 50% afsláttur Tilboðsslár kr. 1000 eða 3000 Viltu fara í nám í alþjóðlegri markaðshagfræði, samskiptum/ margmiðlun eða ker sþróun/forritun? Viltu fara í framhaldsnám sem tekur aðeins tvö ár en veitir þér samt sem áður góða fræðilega undirstöðu? Í Business Academy West skólanum bjóðum við upp á 2ja ára framhaldsnám. Námið býr þig undir stjórnunarstörf í viðskiptalí nu en gefur þér einnig tækifæri á að bæta við námið og fá háskólagráðu/BS- gráðu. Markaðshagfræði Ef þú vilt vinna við alþjóðlega markaðsfræði Margmiðlunarhönnun Ef þú vilt vinna á sviði samskipta og margmiðlunar Framhaldstölvufræði Ef þú vilt vinna við ker sþróun, forritun og netumsjón Við bjóðum einnig upp á nám í Fjármálahagfræði, Stjórnunarhagfræði, Framleiðslutæknifræði, Meinatækni og Byggingaiðnfræði. Námið fer fram á ensku eða dönsku og íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki að greiða námsgjöld. Auðvelt er að fá húsnæði í Esbjerg, hvort heldur er fyrir einstaklinga eða fjölskyldur. Fyrirspurnir á ensku eða dönsku sendist til Lise Lotte, lka@eavest.dk eða í síma +45 7613 3200 eða fax +45 7613 3201 Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á íslensku á netfangið sb2085@eavest.dk Business Academy West skólinn er í Esbjerg, mmtu stærstu borg Danmerkur með um 85.000 íbúa. Esbjerg er stundum nefnd “hliðið til vesturs” í Danmörku, vegna legu sinnar að Norðursjónum og margra innlendra sem erlendra iðnfyrirtækja þar í kring. Esbjerg býður upp á alla nauðsynlega þjónustu og starfsemi fyrir innlenda og erlenda námsmenn, svo sem bókasöfn, stúdentaheimili. íþróttaaðstöðu, menningarstarfsemi, klúbba og kaf hús, kvikmyndahús, leikhús og strandir sem eru með þeim bestu í Danmörku. www.esbjerg.dk Alþjóðlegt nám Sp. Kirkevej 103, DK-6700 Esbjerg. Tel +45 7613 3200, eavest@eavest.dk Read more at www.eavest.dk Laugavegi 63, sími 551 4422 TEINÓTTAR DRAGTIR Undirfatnaður fyrir allar konur Vorum að taka upp spangarlausu brjóstarhaldarana frá Hamraborg 7, sími 544 4088 NOKKUR áhugi er fyrir rannsókn- arsamstarfi milli íslenskra og danskra fræðimanna vegna hugsan- legra lækningareiginleika ætihvann- ar. Undanfarin tíu ár hafa staðið yfir við Danmarks Farmaceutiske Uni- versitet, DFU, rannsóknir á lækning- arjurtum á Grænlandi og nú síðast á ætihvönn. Per Mölgaard, prófessor við DFU í Kaupmannahöfn, hefur staðið fyrir rannsóknunum á grænlensku æti- hvönninni. Danir hafa mest rannsakað æti- hvönn á Disko-eyju, sem er við vest- urströnd Grænlands, en ætihvönn vex um allt sunnanvert Grænland. Á Disko-eyju er meðalárshiti tæplega mínus fjórar gráður á celsius. Þetta verkefni er dæmi um vaxandi áhuga rannsóknaraðila á norrænum lækn- ingarjurtum og ekki síst hvönninni. Sigmundur Guðbjarnarson lífefna- fræðingur og Þráinn Þorvaldsson, rekstrarhagfræðingur hjá fyrirtæk- inu Sagamedica, fluttu nýlega fyrir- lestra um rannsóknir og markaðs- setningu íslensku ætihvannarinnar við DFU, en Sagamedica framleiðir meðal annars lyfið Angelica, sem talið er gagnast gegn vægu þunglyndi. Ræddu Sigmundur og Þráinn meðal annars við Per Mölgaard um rann- sóknasamstarf. Sigmundur, sem er prófessor em- eritus í efnafræði við HÍ segir Danina hafa tekið vel í hugmyndir um sam- starf, en þó eigi eftir að ræða frekar hvernig því yrði háttað. „Við eigum eftir að bera saman niðurstöður. Þeir hafa fundið aðrar efnasamsetningar en við höfum fundið í íslensku æti- hvönninni. Það er áhugaverður mun- ur á, enda vitum við mætavel að efna- samsetningin er breytileg eftir því hvar plönturnar vaxa. En efnin sem þeir hafa áhuga á finnast í ríkum mæli í íslenskri ætihvönn. Hvönnin á Grænlandi er mun smávaxnari,“ segir Sigmundur og bætir við að samstarfið gæti orðið mjög forvitnilegt. Rannsóknir á lækningareiginleikum ætihvannar Samstarf við Dani í bígerð GISTINÆTUR á íslenskum hótel- um í nýliðnum febrúar voru 49.910 en voru 45.940 árið 2003 samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Gistinótt- um fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi, þar sem þeim fækkaði um 12,6% og Norðurlandi, en þar fækkaði þeim um 0,2%. Tvöföldun á Austurlandi Á Austurlandi tvöfaldaðist fjöldi gistinátta á milli ára og fór úr 1.030 í 2.170. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru gistinæturnar úr 2.625 í 3.390 og fjölgaði þar með um 29,2%. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur í febrúar 38.500 en voru 36.000 í sama mánuði í fyrra, sem er 7,1% aukning. Gistináttafjöldi á hótelum fyrstu tvo mánuði ársins 2004 voru 81.690 en þær voru 76.310 fyrir sama tíma- bil 2003, sem er 7% aukning milli ára. Gistinætur Íslendinga aukast um 12,9% á tímabilinu en gistinætur útlendinga um 4,9%. 8,7% fjölgun gistinátta GENGI GJALDMIÐLA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.