Morgunblaðið - 06.04.2004, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁVÖXTUNARKRAFA verð-
tryggðra íslenskra ríkisskuldabréfa
lækkaði strax eftir að greint var frá
því á miðvikudaginn í síðustu viku að
þau yrðu hæf til uppgjörs og vörslu
hjá alþjóðlega uppgjörsfyrirtækinu
Clearstream Banking frá og með
komandi mánudegi, þ.e. frá og með
deginum í gær.
Á fimmtudag og föstudag í síðustu
viku lækkaði ávöxtunarkrafan um
allt að 0,20%, mismunandi eftir teg-
und skuldabréfa. Þannig lækkaði
ávöxtunarkrafa húsbréfa um 0,07–
0,10%, ávöxtunarkrafa húsnæðis-
bréfa lækkaði um 0,16–0,17% og
ávöxtunarkrafa spariskírteina ríkis-
sjóðs lækkaði um 0,18–0,20%.
Ávöxtunarkrafan hélt áfram að
lækka í gær og nam lækkunin allt að
0,07%. Ávöxtunarkrafa húsbréfa
lækkaði um 0,03–0,06%, ávöxtunar-
krafa húsnæðisbréfa lækkaði um
0,04–0,05%, ávöxtunarkrafa spari-
skírteina ríkissjóðs lækkaði um 0,0–
0,3% og þá lækkaði ávöxtunarkrafa
ríkisbréfa um 0,02–0,07%.
Frá því tilkynnt var um skráningu
íslenskra ríkisskuldabréfa hjá Clear-
stream hefur mest lækkun ávöxtun-
arkröfu verið á tilteknum flokki hús-
næðisbréfa og spariskírteina, eða
0,21%. Ávöxtunarkrafa húsbréfa
hefur lækkað mest um 0,16% á þess-
um tíma og ríkisbréf um mest 0,11%.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, sér-
fræðingur hjá greiningardeild Ís-
landsbanka, segir að viðskiptin í gær
sýni að ávöxtunarkrafa ríkisskulda-
bréfa haldi áfram að lækka í kjölfar
þess að skráning sé hafin hjá Clear-
stream. Hún segir að veltan á
skuldabréfamarkaði í gær hafi verið
mikil, eða um 6,2 milljarðar króna,
en meðalveltan á síðasta ári hafi ver-
ið tæpir 4 milljarðar á dag. Þetta sé
þó ekki eins mikil velta og verið hafi
síðustu tvo dagana í síðustu viku, eft-
ir að tilkynnt var um fyrirhugaða
skráningu hjá Clearstream. Þessa
tvo daga hafi veltan verið samtals
um 25 milljarðar króna.
Með skráningu íslenskra ríkis-
skuldabréfa hjá Clearstream geta
stórir erlendir stofnanafjárfestar,
s.s. verðbréfasjóðir og lífeyrissjóðir,
fjárfest í íslenskum ríkisskuldabréf-
um. Það gátu þeir ekki áður þar sem
reglur þeirra bundu þá við kaup á
skuldabréfum sem voru uppgjörs-
hæf í ákveðnum uppgjörsmiðstöðv-
um. Það geta þau hins vegar nú. Þeir
erlendu fjárfestar sem hafa aðgang
að íslenskum ríkisskuldabréfum eru
nú því margfalt fleiri en áður var.
Þau ríkisskuldabréf sem skráð
verða hjá Clearstream eru mark-
flokkar húsbréfa, húsnæðisbréfa,
spariskírteina ríkissjóðs og ríkis-
bréfa. Skuldabréf banka og annarra
verða hins vegar ekki skráð hjá Cler-
stream en flokkar þeirra eru of litlir
til að skárning svari kostnaði.
Erlendir fjárfestar
kaupa stöðugt meira
Samkvæmt samantekt greining-
ardeildar KB banka er heildareign
erlendra fjárfesta í íslenskum
skuldabréfum nú þegar að mati
deildarinnar hátt í 150 milljarðar
króna. Til samanburðar nam heild-
areign íslenskra lífeyrissjóða í lok
janúar sl. um 175 milljörðum. Á
árinu 2003 námu kaup erlendra fjár-
festa um 65 milljörðum króna en þau
hafa stöðugt aukist á umliðnum
misserum og árum.
Til þessa hafa kaupendur ís-
lenskra ríkisskuldabréfa erlendis
verið fjárfestar, sem lúta ekki eins
ströngum reglum og margir stofn-
anafjárfestar, sem ekki hafa haft
heimild til slíkra kaupa. Fjárfestum
sem mega kaupa íslensk ríkisskulda-
bréf fjölgaði því verulega frá og með
deginum í gær, þ.e. með skráningu
bréfanna hjá Clearstream.
Mikilvægur áfangi
Snorri Jakobsson, hagfræðingur
hjá KB banka, segir að gera megi
ráð fyrir því að það muni taka ein-
hvern tíma fyrir erlenda fjárfesta að
hefja kaup á íslenskum ríkisskulda-
bréfum í einhverju magni. Kaupin
muni væntanlega aukast jafnt og
þétt á komandi vikum og mánuðum.
Vonir séu bundnar við að ávöxtunar-
krafa ríkisskuldabréfa haldi áfram
að lækka og að raunvextir hér á landi
muni þá lækka enn frekar en þeir
hafa gert til þessa. Þess sé einnig að
vænta að vextir hér á landi muni er
fram líða stundir sveiflast meira í
takt við vexti erlendis. Þá sé þess lík-
lega ekki langt að bíða að breytingar
verði á uppgjörsreglum íslensku líf-
eyrissjóðanna þannig að uppgjör
þeirra takið mið af markaðsaðstæð-
um og alþjóðlegu efnahagsumhverfi.
Hann segir að skráning íslenskra
ríkisskuldabréfa hjá Clearstream sé
því mjög mikilvægur áfangi fyrir ís-
lenskan skuldabréfamarkað og þar
með fyrir þjóðfélagið allt.
„Töluverður raunvaxtamunur hef-
ur verið á milli Íslands og annarra
landa, þó að hann hafi farið lækkandi
frá árinu 2002. Þá hófu erlendir fjár-
festar að kaupa íslensk skuldabréf
að einhverju ráði, og lækkaði vaxta-
munurinn þá nokkuð í kjölfarið. Lík-
legt er að raunvaxtamunurinn muni
halda áfram að lækka og að vextirnir
muni þá sveiflast meira í takt við það
sem gerist erlendis,“ segir Snorri.
Raunvextir hér á landi eru nú að
jafnaði í kringum 2% hærri en í
helstu nágrannalöndum, þegar á
heildina er litið.
Undirbúningur hófst fyrir
fimmtán mánuðum
Um fimmtán mánuðir eru liðnir
frá því Verðbréfaskráning Íslands
og Lánasýsla ríkisins hófu vinnu við
það verkefni að fá íslensk skuldabréf
skráð hjá alþjóðlegu uppgjörsfyrir-
tæki. Sigurður Kjartansson, for-
stjóri Lánasýslu ríkisins, segir að í
byrjun hafi verið kannað hvort upp-
gjörsfyrirtækin Euroclear eða Cle-
arstream hefðu áhuga á að koma
hingað til lands og vera með vörslu-
aðila hér á landi. Fljótlega hefði hins
vegar komið í ljós að þessi fyrirtæki
hefðu ekki áhuga á því.
„Þegar þetta lá fyrir var haft sam-
band við Danske bank, sem er um-
boðsaðili fyrir Clearstream í Dan-
mörku, sem sýndi þessu áhuga. Og
nú er það kerfi komið á að erlendir
aðilar geta keypt íslensk ríkisskulda-
bréf, gert þau upp í Clearstream,
sem með milligöngu Danske bank
varðveitir bréfin í þeirra nafni,“ seg-
ir Sigurður.
Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa lækkar í kjölfar skráningar hjá Clearstream
Jákvæð áhrif
fyrir allt
þjóðfélagið
Fréttaskýring |Vonir standa til að erlendir
fjárfestar muni kaupa íslensk ríkisskulda-
bréf í ríkari mæli en þeir hafa gert til þessa
í kjölfar skráningar þeirra hjá alþjóðlega
uppgjörsfyrirtækinu Clearstream Banking,
sem hófst í gær. Almennt er gert ráð fyrir
að vextir geti haldið áfram að lækka
hér á landi í kjölfarið. Grétar Júníus
Guðmundsson kannaði málið.
gretar@mbl.is
BANDARÍSKU tölvufyrirtækin
Sun Microsystems og Microsoft hafa
náð sáttum í máli sem Sun höfðaði
gegn Microsoft fyrir brot á sam-
keppnis- og einkaleyfislögum. Er
talið að þar með hafi endi verið bund-
inn á áratugar fjandskap á milli fyr-
irtækjanna.
Samið var um að Microsoft greiddi
Sun nærri tvo milljarða dollara. Þar
af eru 700 milljónir dollara (50,4
milljarðar króna) bætur vegna óút-
kljáðs hringamyndunarmáls og 900
milljónir dollara (64,8 milljarðar
króna) bætur vegna einkaleyfa. Auk
þess mun Microsoft greiða 350 doll-
ara fyrir leyfi á Sun-tækni en það er
hluti samkomulags um meiri sam-
vinnu á milli fyrirtækjanna. Micro-
soft og Sun eru sögð vilja starfa
meira saman í framtíðinni og sam-
komulagið sé gert til hagsbóta fyrir
viðskiptavini fyrirtækjanna, sem
hafi ítrekað beðið þau um að bera
klæði á vopnin.
Yfirvöld samkeppnismála í Evr-
ópusambandinu, ESB, sektuðu ný-
verið Microsoft um 44 milljarða
króna fyrir að hafa misnotað einok-
unaraðstöðu sína á tölvumarkaðin-
um. Var Microsoft meðal annars
sagt hafa neitað Sun um upplýsingar
sem hefðu gert fyrirtækinu kleift að
framleiða vefþjóna sem gætu unnið
með Windows. Microsoft áfrýjaði
þessari niðurstöðu en nú þegar
Microsoft hefur náð sáttum við Sun
er talið að lítil stoð sé í áfrýjuninni.
Sun hefur sent frá sér afkomuvið-
vörun og tilkynnt um gagngera end-
urskipulagningu sem meðal annars
feli í sér uppsagnir 3.300 starfs-
manna eða sem nemur tæpum 10%
mannafla fyrirtækisins.
Reuters
Allt í góðu Scott McNealy, forstjóri Sun Microsystems, og Steve Ballmer,
forstjóri Microsoft, gera að gamni sínu á blaðamannafundi.
Microsoft samþykkir að
greiða Sun 140 milljarða
SÆNSKA viðskiptablaðið Veckans
Affärer segir Ingvar Kamprad,
stofnanda sænsku húsgagnaversl-
unarkeðjunnar IKEA, ríkasta mann
heims. Blaðið metur eignir Kamp-
rads á 400 milljarða sænskra króna,
eða um 4.000 milljarða íslenskra,
og að þar með hafi hann velt Bill
Gates, stjórnarformanni Microsoft,
úr sessi sem ríkasti maður heims.
Eignir Gates eru metnar á 47 millj-
arða dala eða um 3.300 milljarða
króna.
IKEA hefur vísað þessari fullyrð-
ingu blaðsins á bug. Veckans Affär-
er hafi yfirsést sú staðreynd að
Kamprad hafi ekki átt IKEA-
keðjuna síðan árið 1982. Keðjan
hafi síðan þá verið í eigu hollenskr-
ar stofnunar, INGKA.
Veckans Affärer segir þetta
vissulega rétt en stendur við mat
sitt enda haldi Kamprad í raun enn
um stjórnartaumana hjá IKEA og
sé því raunverulegur eigandi. Fjöl-
skylda hans eigi fyrirtækið í gegn-
um net stofnana en slíkt eignarhald
mun vera algengt í Svíþjóð til þess
að komast hjá miklum skatt-
greiðslum.
Tímaritið Forbes áætlaði í febr-
úar að eignir Gates næmu 46,6
milljörðum dala og að hann væri
ríkasti maður heims tíunda árið í
röð. Eignir Warren Buffetts voru
metnar á 42,9 milljarða dala.
Kamprad var í þrettánda sæti For-
bes-listans með 18,5 milljarða dala
eignir.
Ingvar Kamprad, sem er 77 ára,
stofnaði IKEA árið 1943. Fyr-
irtækið rekur nú yfir 180 verslanir í
31 landi og á vegum þess vinna um
76 þúsund manns.
Reuters
Ríkur Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA.
Stofnandi IKEA
ríkastur – eða ekki
● GULL hefur fallið í verði í við-
skiptum með framvirka samninga
eftir birtingu talna um ný störf í
Bandaríkjunum. Í mars urðu til
fleiri störf en í nokkrum mánuði
síðustu fjögur árin og um þrefalt
fleiri en Bloomberg News hafði
spáð, að því er fram kemur á vef
Bloomberg. Bandaríkjadalur styrkt-
ist einnig við tíðindin um nýju
störfin.
Bloomberg hefur eftir hagfræð-
ingi banka í Toronto að atvinnutöl-
urnar hafi verið mjög góðar, sem
gefi vísbendingu um að banda-
ríska hagkerfið sé að ná sér út úr
þeim efnahagsbata án atvinnu-
sköpunar, sem talað hefur verið
um að ríkt hafi undanfarið.
Gull hefur hækkað í verði síð-
ustu ár, en eftirspurn eftir gulli
eykst alla jafna þegar kreppir að í
efnahagslífinu því gull er talið til-
tölulega örugg fjárfesting á erf-
iðum tímum. Verðlækkun getur
verið vísbending um að búist sé
við auknum efnahagsbata fram-
undan.
Gull lækkar vegna
fleiri starfa
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Hádegisfundur Viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands og FÍS
(Félag íslenskra stórkaupmanna)
efna til hádegisfundar í Odda, stofu
101, í dag, kl. 12.15–13.15. Yfirskrift
fundarins er: Eru skattar á áfengi of
háir á Íslandi? Frummælendur
verða: Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, Þórarinn Tyrfingsson, yf-
irlæknir SÁÁ, og Guðmundur
Ólafsson lektor.
Í DAG
● SKYGGNIR hf. og hollenska flutn-
ingsmiðlunarfyrirtækið TraXX Int-
ercontinental B.V. hafa gert með
sér samning um rekstur miðlægs
búnaðar, útstöðva og netkerfa
ásamt ráðgjöf. Samningurinn er
þáttur í aukinni sókn Skyggnis á er-
lenda markaði, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá félaginu.
Ágúst Einarsson, framkvæmda-
stjóri Skyggnis, segir að samning-
urinn sé mikilvægur fyrir frekari
uppbyggingu á svæðinu, en
Skyggnir er með skrifstofu í Hol-
landi. Ágúst segir að tekjur vegna
samningsins muni nema milljónum
á ári.
Í tilkynningu félagsins segir að
Skyggnir hf. sé leiðandi í rekstri
tölvukerfa fyrirtækja, stofnana og
sveitarfélaga á Íslandi og þjóni við-
skiptavinum í 17 löndum.
Skyggnir gerir „mik-
ilvægan“ samning
● BÚIST er við að Alcoa, stærsti ál-
framleiðandi í heimi, muni tilkynna
um hagnað þriðja ársfjórðunginn í
röð. Ástæðan er einkum gott gengi
félagsins í Kína.
Talið er að hagnaður fyrirtækisins
á fyrsta fjórðungi þessa árs verði
368 milljónir Bandaríkjadala, 26,6
milljarðar íslenskra króna, eða 42
sent á hlut. Hagnaður fyrirtækisins
eftir skatta á ársfjórðungnum á und-
an var 151 milljón Bandaríkjadala,
tæpir 11 milljarðar króna, eða 17
sent á hlut.
Tekjur félagsins í Kína hafa aukist
um meira en 15 % eftir að Alain
Belda, forstjóri félagsins, jók fram-
leiðslu súráls þar í landi og keypti sig
inn í kínverska álfyrirtækið Al-
uminium corp. of China, eða Chalco.
Í frétt Bloomberg segir að eft-
irspurn Kínverja eftir áli hafi meira en
tvöfaldast á síðasta ári. Alcoa fram-
leiðir fjórðung alls súráls í heiminum.
Vöxtur í Kína skilar
Alcoa hagnaði