Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA var alveg rosalega gam-
an en sigurinn kom mér mjög á
óvart. Ég er líka mjög ánægð með
að hafa tekið þátt í keppninni, því
það var mikil upplifun,“ sagði
Kristjana Hákonardóttir, tæplega
tvítug Akureyrarmær, sem kjörin
var ungfrú Norðurland 2004 í
Sjallanum sl. föstudagskvöld.
Kristjana gerði gott betur en að
vinna fegurðarsamkeppnina, því
hún var einnig valin Netstúlka
Sjallans, Perfect-stúlkan og Sport-
stúlka Sportvers.
Irena Sædísardóttir hafnaði í
öðru sæti í fegurðarsamkeppninni
og Sigrún Halla Gísladóttir í því
þriðja og hún var jafnframt valin
besta ljósmyndafyrirsætan. Hjör-
dís Ýr Bessadóttir fór einnig heim
með tvo titla en hún var valin Við
tímaritsstúlkan og Sólarstúlka
Stjörnusólar. Þá var Harpa Frið-
riksdóttir valin vinsælasta stúlkan.
Alls tóku tólf stúlkur þátt í keppn-
inni.
Kristjana fékk að launum
marga glæsilega vinninga fyrir
sigurinn í keppninni og hina titl-
ana þrjá, m.a. síma, reiðhjól,
snyrtivörur, fatnað og úr og hún
hefur jafnframt afnot af Toyota
Yaris bifreið næsta hálfa árið.
Hún mun jafnframt taka þátt í
keppninni Ungfrú Ísland í vor.
„Ég mun reyna að standa undir
þessu öllu en jafnframt að vera ég
sjálf.“ Kristjana sagði að það hefði
verið mjög gaman að taka þátt í
undirbúningi keppninnar, sem
hófst í febrúar, enda hópurinn ein-
staklega skemmtilegur. Kristjana
stundar nám í Menntaskólanum á
Akureyri og vinnur í Nýja bíói
með skólanum. Hún útskrifast af
náttúrufræðibraut á þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní, ætlar að taka
„Mikil upplifun að taka þátt“
Ljósmynd/Páll A. Pálsson
Fallegar stúlkur: Kristjana Hákonardóttir, ungfrú Norðurland 2004, fyrir miðju, ásamt þeim Irenu Sædísardóttur,
t.v., sem hafnaði í öðru sæti og Sigrúnu Höllu Gísladóttur sem varð í þriðja sæti.
Morgunblaðið/Kristján
Í góðum félagsskap: Árni Skúlason með unnustunni Kristjönu Hákonar-
dóttur, ungfrú Norðurland 2004, t.h. og Hjördísi Ýr Bessadóttur sem valin
var Við tímaritsstúlkan. Árni vann ferð til Mallorka með Hjördísi.
sér eins árs hvíld frá námi í kjöl-
farið en stefnir svo ótrauð á há-
skólanám.
Unnustinn vann sólarferð með
annarri fegurðardís
Unnusti Kristjönu, Árni Skúla-
son, fór heldur ekki tómhentur
heim úr Sjallanum, því hann vann
ferð til Mallorka næsta haust, ekki
með Kristjönu, heldur með ann-
arri fegurðardís, Hjördísi Ýr
Bessadóttur, sem valin var Við
tímaritsstúlkan. Í síðasta tölublaði
tímaritsins var atkvæðaseðill og
þeir sem tóku þátt í kjörinu áttu
þess kost að vinna áðurnefnda
ferð með tímaritsstúlkunni. Krist-
jana sagði að sér litist vel á vinn-
ing unnustans og ekki síst þar sem
hann ætlaði að bjóða sér með á
sólarströndina.
Kristjana
Hákonardóttir
ungfrú Norður-
land 2004
NEMENDUR í fjórða bekk fé-
lagsfræðibrautar við Menntaskólann
á Akureyri fóru nú nýlega í vísinda-
ferð til Lundúna og ríkti almenn
ánægja með ferðina, sem þótti takast
einstaklega vel. Gunnar Már Gunn-
arsson, einn nemanna, sagði að lagt
hefði verið upp með það markmið að
skoða margbreytileika mannlífsins í
þessari helstu heimsborg Evrópu.
kynhlutverkum, fjölskyldugerð og
stöðluðu fjölskyldumynstri.
Nemarnir hlustuðu á fyrirlestra
og skoðuðu ýmsa staði, fóru m.a. á
skemmtistað fyrir samkynhneigða
og einnig var hefðbundinn breskur
bar heimsóttur. „Mannlífið er mjög
fjölbreytilegt og einstaklingseðlið
fær virkilega að njóta sín þarna, fólk
hefur sleppt af sér hömlum, það er
ekki eins bundið og við Íslendingar
virðumst vera. Það þykir til að
mynda ekki tiltökumál þó fólk af
ólíkum litarhætti rugli saman reyt-
unum, það er eðlilegt,“ sagði Gunnar
Már.
„Þetta var fróðleg og skemmtileg
ferð og það var gaman að kynnast
þessu fjölbreytta mannlífi Lundúna-
borgar.“
Samband komst á við konu sem
stundar þar doktorsnám og hefur
m.a. gert rannsóknir sem snúa að
samkynhneigð. „Við fórum því að
skoða þann þátt sérstaklega og höfð-
um mikið gagn af,“ sagði Gunnar
Már. Hann sagði að samkynhneigðir
væru mun meira áberandi í Lund-
únum en hér heima þar sem fólk
væri í meira mæli fast í stöðluðum
Félagsfræðinemar úr MA héldu í vísindaferð til Lundúnaborgar
„Fróðleg og skemmtileg ferð“
Morgunblaðið/KristjánMannlífsrannsóknir í Lundúnum: Nemendur á félagsfræðibraut Menntaskólans á Akureyri ásamt kennurum sínum.
EINN þekktasti skíðakennari heims,
Jeannie Thoren, heldur námskeið í
Hlíðarfjalli á Akureyri síðar í mán-
uðinum, að því er segir í frétt á heima-
síðu Hlíðarfjalls.
Thoren hefur „undanfarna áratugi
aflað sér mikillar virðingar í skíða-
heiminum fyrir rannsóknir sínar á lík-
amsbeitingu kvenna í skíðabrekkun-
um og hvernig konur geta tekið
stórstígum framförum með einföldum
og ódýrum breytingum á skíðabúnaði
sínum.
Tímaritið Skiing hefur m.a. útnefnt
hana sem einn af 25 áhrifamestu ein-
staklingum skíðaíþróttarinnar á síð-
ustu 50 árum, sem segir meira en
mörg orð.“
Jeannie Thoren verður á Akureyri
dagana 13.–23. apríl en námskeiðið í
Hlíðarfjalli verður 16., 17. og 18. apríl.
Skíða konur
öðruvísi
en karlar?
Heimsþekktur
skíðakennari
í Hlíðarfjalli
Elvis vinsæll | Leikritið Eldað
með Elvis er nú sýnt í Samkomuhús-
inu á Akureyri. „Sýningunni hefur
verið frábærlega tekið og uppselt
var orðið á allar fyrirhugaðar sýn-
ingar. Aukasýning sem bætt var við
á skírdag, 8. apríl, er nú óðum að
fyllast og því hefur verið bætt við
annarri aukasýningu, laugardags-
kvöldið 10. apríl. Sala er hafin á þá
sýningu,“ segir í frétt frá LA.
Fjáröflun | Stjórn Fasteigna Ak-
ureyrarbæjar hefur tekið jákvætt í
erindi frá Íþróttafélaginu Þór, þar
sem óskað er eftir leyfi til þess að
selja auglýsingar utan á og innan í
fjölnota íþróttahúsið Bogann. Er-
indinu var vísað frá íþrótta- og tóm-
stundaráði til Fasteigna Akureyr-
arbæjar. Stjórnin samþykkti
jafnframt að fela framkvæmdastjóra
að eiga viðræður við fulltrúa Þórs og
íþrótta- og tómstundafulltrúa um
framkvæmd málsins.
Hall kemur ekki | Lee Hall, höf-
undur Eldað með Elvis, Billy Elliot
og fleiri þekktra verka ætlaði að
vera viðstaddur hátíðarsýningu á
leikriti sínu Eldað með Elvis í Sam-
komuhúsinu á Akureyri á morgun,
miðvikudag, en alvarleg veikindi í
fjölskyldu leikskáldsins urðu til þess
að hann varð að fresta komu sinni.
Rokktónleikar| Hljómsveitirnar
Kanis frá Akureyri, Amos frá
Reykjavík sem og tvær Akureyr-
arhljómsveitir, Kingstone og Múskat,
koma fram á rokktónleikum í Deigl-
unni í kvöld, þriðjudagskvöldið 6. apr-
íl kl. 20. Hljómsveitirnar leika fjöl-
breytt rokk. Aldurstakmark er 16 ár.
Lögfræðitorg | Hjördís Há-
konardóttir, dómstjóri Héraðsdóms
Suðurlands, flytur í dag fyrirlestur á
lögfræðitorgi Há-
skólans á Ak-
ureyri um stöðu
og hlutverk
dómsvaldsins í
samfélaginu.
Fyrirlesturinn
hefst kl. 16.30 í
stofu 14 að Þingvallastræti 23.
„Hver er staða dómskerfisins í
samfélaginu í dag? Hvað markar
sérstöðu þess og hvaða rök liggja
þar að baki? Þegar þessum spurn-
ingum er svarað koma við sögu hug-
tök eins og valdskipting, sjálfstæði
og réttaröryggi,“ segir í frétta-
tilkynningu. „Í erindi sínu á Lög-
fræðitorgi ætlar Hjördís Há-
konardóttir að leita svara við
þessum spurningum og skoða sér-
staklega hvað felst í því að tala um
sjálfstætt dómsvald,“ segir þar enn
fremur.