Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 06.04.2004, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ GuðmundurÓlafsson, fv. verkstjóri í Hafnar- firði, fæddist á Smærnavelli í Gerðahreppi í Gull- bringusýslu 14. jan- úar 1923. Hann lést á St. Jósefsspítalan- um þriðjudaginn 30. mars síðastliðinn. Guðmundur var sonur Ólafs Jóhann- esar Guðlaugssonar, búfræðings og veit- ingamanns í Hafnar- firði, f. á Kirkjubæj- arklaustri í Kirkjubæjarhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu 24. febr- úar 1897, d. 2. janúar 1959, og Sveinínu Magneu Vilborgar Ei- ríksdóttur, f. á Smærnavelli 22. október 1891, d. 30. júlí 1931. Ólafur Jóhannes var sonur Guð- laugs Guðmundssonar alþingis- manns, f. í Ásgarði í Grímsnesi 8. desember 1856, d. 5. ágúst 1913, hann giftist 30. maí 1882 Olivu Mariu, f. á Torekov á Skáni í Sví- þjóð 21. mars 1858, d. 22. mars 1937, dóttur Olav Suenson, klæð- skerameistara í Toreskov, og konu hans Marie Franzen. Svein- ína Magnea var dóttir Eiríks Guð- mundssonar, f. 21. janúar 1869, d. 3. desember 1933, bónda og sjó- manns í Garðhúsum, og Guðrúnar Sveinsdóttur, f. 14. júní 1875, d. 17. ágúst 1969, húsfreyju í Garð- Fyrri sambúð með Önnu Frið- riksdóttur, f. í Pottagerði í Stað- arhreppi í Skagafirði 25. des. 1915, d. 12. ágúst 2002. Foreldrar hennar voru hjónin Friðrik Sig- fússon bóndi, f. á Brenniborg í Neðribyggð í Lýtingsstaðahreppi 20. des. 1879, d. 12. okt. 1959, og kona hans Guðný Jónasdóttir frá Hróarsdal í Hegranesi, f. 16. mars 1877, d. 29. apríl 1949. Sonur þeirra er Ólafur Grétar augnlæknir, f. í Hafnarfirði 26. febrúar 1946, búsettur í Reykja- vík. Fyrri kona hans er Lára Mar- grét Ragnarsdóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru Anna Kristín, f. 26. mars 1966, Ingvi Steinar, f. 24. mars 1973, og Atli Ragnar, f. 14. mars 1976. Seinni kona Ólafs Grétars er Steinunn Aagot Krist- jánsdóttir, f. 15. september 1962. Guðmundur fluttist úr Garðin- um til Reykjavíkur 1930 með for- eldrum sínum og þaðan til Hafn- arfjarðar um áramótin 1940 og bjó þar síðan. Hann starfaði við akstur og bílaviðgerðir til 1950, var á bátum og togurum til 1957. Guðmundur komst af þegar M/s Edda fórst í ofsaveðri í Grundar- firði 16. október 1953. Hóf störf hjá Vita- og hafnamálastofnun 8. maí 1957. Hann tók sveinspróf í bifvélavirkjun 24. nóvember 1968. Starfaði sem vinnuvélstjóri og bif- vélavirki til 1977 og verkstjóri hjá stofnuninni til 1991 er hann lét af störfum í árslok. Guðmundur var meðlimur í Félagi bifvélavirkja og félagi í Verkstjórafélagi Reykja- víkur. Útför Guðmundar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. húsum í Útskálasókn. Systkini Guðmund- ar eru Margrét hús- móðir, f. 25.4. 1924, búsett í Reykjavík, Jó- hannes, f. 10.7. 1925, búsettur í Kaup- mannahöfn, látinn, Sveinn, f. 31.8. 1926, búsettur í Keflavík, látinn og Þórdís Hulda, f. 12.9. 1927, búsett í Reykjavík, látin. Hálfbræður samfeðra eru Jón K. endurskoðandi, f. 7.5. 1935, búsettur í Reykjavík og Guðlaugur bólstr- ari, f. 10.11. 1942, búsettur í Reykjavík. Guðmundur hóf sambúð í júní 1948. Kvæntist 22. júní 1963 Jón- ínu Magneu Guðmundsdóttur hús- móður, f. 7. ágúst 1923. Foreldrar Jónínu voru Guðmundur Eiríks- son sjómaður, f. að Stuðlum á Barðsnesi 22. júní 1874 og kona hans Þórunn Kristjánsdóttir, f. í Kirkjuvogi í Höfnum 12. ágúst 1890, búsett í Höfnum, Norðfirði og síðar í Hafnarfirði. Sonur þeirra; Guðmundur verk- fræðingur, gæðastjóri Siglinga- stofnunar, f. 7.11. 1962, búsettur í Garðabæ. Maki Þórunn Stefáns- dóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26.8. 1970. Eiga þau saman tvo syni; Bjarka Ágúst, f. 21.12. 1993 og Hlyn Óskar, f. 24.6. 1996. Örlögin höguðu því svo að ég hitti ekki föður minn (svo ég myndi eftir) fyrr en ég var 14 ára gamall – á fermingardaginn minn 22. maí 1960, norður á Sauðárkróki. Foreldrar mínir sem höfðu verið í sambúð í þrjú ár áður en ég fæddist, í Hafn- arfirði, skildu er ég var eins og hálfs árs gamall og fluttum við móðir mín, Anna Friðriksdóttir, uppalin í Jaðri rétt hjá Glaumbæ í Skagafirði, til fjölskyldu hennar – Guðnýjar móður hennar Jónasdóttur frá Hró- arsdal og Steingríms móðurbróður míns sem höfðu flutt frá Ingveld- arstöðum á Reykjaströnd til Sauð- árkróks í stríðsbyrjun. Ólst ég upp á þessu heimili til sextán ára aldurs er við mamma fluttum til Reykja- víkur og ég hóf nám í MR og gekk í KR. Fermingarveislan var haldin á sæmdarheimili þeirra heiðurshjóna Guðjóns Sigurðssonar bakarameist- ara og Ólínu Björnsdóttur. Megi þeirra minning lifa sem lengst. – Ég hlýt að hafa verið mjög spenntur og e.t.v. taugaóstyrkur að kynnast föð- ur mínum í alvöru í fyrsta skipti en ekki man ég eftir öðru en að strax hafi tekist góð kynni með okkur pabba og hann gaf mér vandað svissneskt Tissot-úr í fermingargjöf og gekk ég með það a.m.k. þar til ég lauk stúdentsprófi ef ekki lengur. Ég hafði séð mynd af pabba tekna u.þ.b. 15 árum áður í garðinum að Reykjavíkurvegi 30 í Hafnarfirði (þar sem ég fæddist) en þá var hann 25 ára. Á fermingardaginn var hann tæplega fertugur og ég varð ekki fyrir vonbrigðum – þetta var fjall- myndarlegur maður og líka elsku- legur í viðmóti. Ég vissi ekki þá að hann var líka hetja, hafði líklega bjargað meirihluta skipshafnarinn- ar á M/S Eddu sem fórst í fárviðri á Grundarfirði haustið 1953. Áhöfnin komst í björgunarbát en á leiðinni í land króknuðu nokkrir áhafnarmeð- limir en meirihlutinn komst á bátn- um upp á sker alllangt frá landi. Einungis tveir úr áhöfninni treystu sér til að reyna að synda í land, pabbi og skipstjórinn, Guðjón Ill- ugason. Tókst þeim báðum að kom- ast í land en þá var Guðjón nánast örmagna og treysti sér ekki lengra. Pabbi hins vegar hafði þrek til að ganga nokkra kílómetra til næsta sveitabæjar og kalla á hjálp. Skip- stjóranum og meirihluta áhafnar- innar var bjargað. Pabba og Guðjón hefur örugglega ekki rennt í grun að 11 árum síðar skipuðu synir þeirra ásamt goðsögninni Valbirni Þorlákssyni landslið Íslands í tug- þraut sem sigraði öll hin Norður- löndin í landskeppni á Laugardals- vellinum og það varð fullt hús! Valbjörn setti Íslandsmet, Kjartan Guðjónsson (síðar tannlæknir í Hf.) setti unglingamet og undirritaður setti drengjamet. – Næst eftir ferm- inguna hitti ég pabba fyrir tilviljun vestur á Hólmavík sumarið 1961. Ég var þar að spila fótbolta með Tindastóli gegn Strandamönnum. Ég hafði á tilfinningunni að einhver í áhorfendahópnum væri sérstak- lega að fylgjast með mér en vissi þó ekki hver. Daginn eftir sögðu fé- lagar mínir mér að einhver maður hefði verið að spyrja eftir mér og „hann var mjög líkur þér að sjá, gæti verið pabbi þinn“. Reyndist það að sjálfsögðu vera rétt. Pabbi hvatti mig til frekari afreka bæði í námi og íþróttum og reyndi ég að standa undir hans væntingum. Árið eftir flutti ég til Reykjavíkur með móður minni og upp frá því tókust með okkur pabba stöðug og góð kynni sem þó hefðu bæði mátt vera nánari og tíðari en voru alltaf traust og innihaldsrík. Pabbi vann lengst af sinnar starfsævi hjá Vita- og hafnamála- stofnun ríkisins og þrátt fyrir eða heldur vegna iðnmenntunar sinnar sem bifvélavirki sérhæfði sig í stjórn vinnuvéla og vinnuvélavið- gerðum. Var hann lengi verkstjóri í áhaldahúsi fyrirtækisins en einnig einn helsti sérfræðingur landsins í stjórn og viðhaldi vinnuvéla. Gekkst hann fyrir námskeiðum í stjórn slíkra véla víða um land í mörg ár. Pabbi tók mikilvægan þátt í hafn- argerð víða um land og þótti laginn við að reka niður stálþil við hafn- arbakka með stórum krönum. Eitt sinn er til landsins var fluttur stærsti lyftikrani í sögu þjóðarinnar til þess tíma (gat lyft 150 tonnum, upp úr 1960) var hann sjálfkjörinn til að stjórna fyrstur þessu risa- vaxna tæki. Pabbi var elstur sinna systkina (fjögur alsystkin og tveir hálfbræð- ur). Lifði hann öll alsystkinin nema yngri systur sína Margréti (Diddu) og hálfbræðurna Jón og Guðlaug sem eru allmiklu yngri en hann var. Það er oft einkenni elstu systkina að þau eru ábyrgðarfyllri og e.t.v. dálítið ráðríkari en þau yngri. Þau þykjast líka oft vita betur en yngri systkinin og var það svo um föður minn. Þó hann væri ekki langskóla- genginn var hann vel lesinn og hafði bæði af reynslu sinni og lestri orðið fróðari um ýmsa hluti en gengur og gerist af „venjulegum bifvéla- virkja“. Strax á stríðsárunum, um tvítugt eða yngri, lærði hann þokka- lega ensku og starfaði sem túlkur um tíma hjá breska og bandaríska hernámsliðinu þótt hann væri nokk- uð róttækur í pólitík eins og ungra manna er oft siður. Þó efast ég um að hann hafi verið „blóðrauður bolsi“ og líklega dofnaði rauði lit- urinn nokkuð með árunum. Pabbi lauk sínu lífsstarfi farsæl- lega og með sæmd um sjötugt. Hann sagði þá við mig að hann sæi mest eftir því að hafa ekki hætt starfi nokkrum árum fyrr. Hann átti mörg áhugamál, t.d. ljósmynd- un, tölvutækni, ættfræði o.fl. Varð hans reynsla næsta áratuginn eins og margra „lifandi eldri borgara“ að hann hafði aldrei haft meira að gera (en þá). Fyrir um tveimur árum veiktist hann skyndilega en þó ekki alvarlega að því er virtist. Mér fannst hann þó aldrei ná sér al- mennilega eftir það og gæti þá það mein sem leiddi hann til dauða hafa verið farið að grafa um sig. Fyrir einungis þremur vikum uppgötvað- ist að hann var haldinn alvarlegu meini á háu stigi og tók hann þá karlmannlegu ákvörðun að hafna meðferð enda engar batahorfur. Hann bar sig vel til hinstu stundar og kvartaði aldrei um verki eða óþægindi. Þegar ég ræddi við hann um horfurnar sagði hann við mig: „Óli minn, ég er alveg tilbúinn að fara, allt fúttið er hvort sem er bú- ið.“ Kallið kom fyrr en flesta grun- aði en eins og málum var háttað var það e.t.v. besta lausn þess sem öllu ræður. Kæri faðir! Þakkir fyrir allt og allt og far þú í friði. Ólafur Grétar Guðmundsson. Faðir minn, Guðmundur Ólafs- son, var starfsmaður Vita- og hafna- málastofnunar frá árinu 1957 og til ársins 1990 og vann að hafnargerð víða um land. Hann var ráðinn til stofnunarinnar sem kranamaður og varð síðar verkstjóri við hafnagerð- ina. Oft var hann langdvölum úti á landi, gat það stundum verið allt upp í 4 mánuði. Þetta var svona fyrstu árin áður en það kom inn í samninga að menn ættu rétt á að koma reglulega á heimaslóðir. Það var með tilhlökkun þegar ákveðið var að fjölskyldan færi með á vit ævintýranna. Vorum við sum- arlangt á framandi stöðum og undu allir glaðir við sitt. Foreldrar mínir voru á Ísafirði 1962 á vegum Vita- og hafnamála- stofnunar og var undirritaður með í för en reyndar undir beltisstað móð- ur minnar og hef ég því oft verið nefndur hálfur Ísfirðingur. Þarna voru einnig Sigurður Anton krana- maður og kona hans Kata, þegar þetta er skrifað er Sigurður nýlega hættur störfum hjá stofnuninni. Sem dæmi um hvaða áhrif þessi útivera hafði á fjölskylduna þá kynntist móðir mín þar Rannveigu Sigurðardóttur, ráðskonu hjá Sig- ríði Jónsdóttur á Ísafirði, og varð það upphaf að ævilöngum vinskap þeirra í millum. Árið 1967 var sanddæluskipið Hákur við dýpkun á Raufarhöfn. Var þetta sanddæluskip sérstaklega ætlað til þess að dæla sandi af laus- um botni. Töluverð vinna gat verið við að koma þessum tækjum á stað- inn, Hákur var dreginn og dælurör- in voru sett um borð í skip og þeim hlaðið upp og fest. Þegar á staðinn var komið voru rörin hífð í sjóinn og svo var slöngubátur með utanborðs- mótor notaður við að draga rörin og þau svo skrúfuð saman, en það var gert þannig að maður fór úr bátnum oft upp á hál rörin. Oft var þetta unnið við erfiðar aðstæður jafnvel að vetri til og menn fóru í sjóinn. Búið var að undirbúa komu okkar og var vel tekið á móti fjölskyld- unni, allir starfsmenn stofnunarinn- ar á staðnum bjuggu í þriggja hæða húsi niðri við höfnina, var þar á jarðhæð mötuneyti og á annarri og þriðju hæð herbergi, við bjuggum á þriðju hæð. Ekki vorum við eina fjölskyldan á vegum Vita- og hafnamála á staðn- um. Guðmundur Lárusson og frú voru þarna með synina Lárus og Óskar, þeir reka í dag bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði. Árið 1972 var haldið til ævintýra- eyjunnar Grímseyjar þar sem vinna við að lengja bryggjuna sem í leið var skjólgarður fyrir ríkjandi átt- um. Faðir minn hafði verið þarna í einhvern tíma áður en hann tók okkur með þannig að hann var stað- háttum vel kunnugur. Eitt af því sem hann tjáði mér var að ég ætti eftir að kynnast Óla ísbirni (Þorláks hreppstjóra) en það var strákur á svipuðu reki og ég sem hafði mætt fullvöxnum ísbirni á göngu sinni um eyjuna. Vinnan fólst í því að undirbúa komu varðskips með steypt ker sem sökkt var við enda garðsins. Grímur Guttormsson kafari vann við það að hlaða upp steypupokum sem höfðu verið útbúnir á bryggjunni. Með vinnuflokknum var þó nokk- uð af tækjabúnaði sem ekki var til í eyjunni, þar má nefna Scania-vöru- bíla sem fluttu efni úr námu og inn á bryggjuna og fengum við Guddi gamli að sitja í og sáum við um að merkja fjölda ferða á þar til gert blað. Eitt af því sem ég upplifði í Grímsey var það þegar ofurhugar úr Vestmannaeyjum komu til eyj- arinnar á leið sinni hringinn í kring- um landið. Þeir voru á Sodiac-bát- um og þá vantaði leiðsögumenn á siglingu umhverfis eyjuna, ákveðið var að við færum þrír með þeim en það voru Maggi Bjarna (Bjarna hreppstjóra) Guddi gamli og ég. Ólafur Ragnarson, þá fréttamað- ur, kom með lið valinkunnra manna þetta sumar út í eyju og gerðu þeir heimildarmynd sem síðar var sýnd í sjónvarpinu, það var heljar uppi- stand í eyjunni við komu þessara manna. Eitt af því sem var ómissandi á þessum stað var að eiga fljótandi far, ég hafði keypt forláta gúmmí- bát á Akureyri sem ég hafði unnið mér fyrir á skaki með föður mínum við eyjuna á báta stofnunarinnar. Sumrin 1977 og 1978 bauðst mér að starfa með föður mínum við bor- anir og sprengingar fyrir stálþili í Sandgerðishöfn og Hafnarfjarðar- höfn og dýpkun við stálþilið á Grundartanga með sömu starfsað- ferðum. Stofnunin hafði látið útbúa bor- pramma með tveimur borstólum. Borpramminn var festur í land með vírum og voru spil um borð þannig að hægt var að færa hann eftir bor- planinu sem tæknimenn stofnunar- innar höfðu útbúið, í þessum verk- efnum var það Jóhannes Sverrisson sem sá um verkin, en hann starfar enn hjá stofnuninni. Í landi var loft- pressa sem skaffaði loft bæði fyrir kafarann og borstólana. Á bryggj- una var sett upp flóðbretti þannig að á hverjum tíma mátti sjá sjáv- arstöðuna. Til þess að komast á milli var opinn stálbátur með mótor. Um borð í borprammanum var List- erljósavél sem sá okkur fyrir ljósi og hita í tveimur vinnuskúrum sem voru um borð. Boraðar voru holur í botn hafnarinnar og hélt faðir minn mjög nákvæmar skrár yfir sjávar- hæð og hversu djúpar holurnar urðu, hjá okkur bormönnunum og síðan var það Sammi kafari sem fóðraði holurnar með plaströrum. Kafarinn var í símasambandi við prammann og þar var það „prins- inn“ en það var gælunafnið á að- stoðarmanni kafarans sem var hér Guðjón Frímannsson sem er nýlega hættur. Borholurnar voru hlaðnar með dýnamítspulsum sem búið var að setja í hvellhettur og þær tengd- ar saman á tengibretti sem flaut á sjónum. Hnallur sem staðsettur var um borð í prammanum var notaður við að sprengja þessar hleðslur. Áð- ur en hleypt var af kallaði faðir minn „skot“ og var það hugsað til að láta nærstadda vita og til að fæla frá fugla. Eins og sjá má á þessum skrifum þá var faðir minn ekki bara faðir minn, hann var einnig vinnu- félagi og vinur. Elsku pabbi, takk fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig og mína, þín verður minnst sem góðs föður, tengdaföður og afa. Minning þín lif- ir. Þinn sonur, Guðmundur Guðmundsson. Elsku afi Guðmundur. Við kveðjum þig núna eftir ánægjulega samveru. Það var alltaf gott að koma til þín, fá þig til að gera við leikföng sem biluðu hjá okkur, mæla batteríin og kíkja í fínu tölvuna þína. Það verður tómlegt þegar þú ert farinn en við eigum góða minningu um góðan afa sem við munum halda upp á. Við kveðjum þig með bæninni: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Góða nótt. Bjarki Ágúst og Hlynur Óskar. GUÐMUNDUR ÓLAFSSON Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Minningarkort 570 4000 Pantanir á netinu: www.redcross.is Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Þegar á reynir Rauði kross Íslands
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.