Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 43
samfylgdina og sendum Ástu, eig-
inkonu Erlendar, dætrum og öllum
aðstandendum, okkar dýpstu sam-
úð.
Bergþóra Jóhannsdóttir
og fjölskylda.
Dáður frændi minn er látinn. Er-
lendur Jónsson var ungur drengur
oft á sumrum á Hvallátrum við
Bjargtanga hjá afa okkar og ömmu
Erlendi Kristjánssyni og Steinunni
Thorlacius Ólafsdóttur, fyrst ásamt
móður sinni. Þá var móðir mín Jóna
Erlendsdóttir bústýra hjá foreldr-
um sínum. Henni var alltaf afar
hlýtt til Erlends. Þegar hún var ung
stúlka og stundaði nám í Kvenna-
skólanum í Reykjavík, átti hún skjól
hjá eldri systur sinni Ólínu móður
Erlends og Jóni Ólafssyni skip-
stjóra. Síðar stundaði Erlendur
róðra á Hvallátrum á opnum báti
með Hafliða Halldórssyni, sem var
kvæntur móðursystur okkar. Afi og
amma voru þá látin. Fyrstu minn-
ingar um hann eru einkar kærar.
Fimm ára drengur, sem í upphafi
stríðs dvaldi þá einnig á Hvallátrum,
dáðist að þessum unga pilti, sem var
fullur af fjöri og hugmyndum. Hann
gat allt. Minnisstæð er lítil flugvél,
sem var tálguð úr tré, búin málm-
skrúfu, sem snerist liðugt, þegar
blásið var framan á hana. Bátar
voru smíðaðir úr kubbum, stundum
holir með dekk, sumir formaðir úr
blikki úr dósum, allir snotrir. Eld-
smiðjan hans afa okkar var jafnvel
notuð í athafnasemi unga mannsins.
Einn bátanna var búinn haglegum
seglum og honum siglt á Látravatni,
honum hvolfdi langt úti á vatni og
sökk. Erlendur synti og kafaði eftir
honum, það þurfti að gera á honum
endurbætur. Á fjörur hafði rekið
langt grannt flotholt, sem Erlendur
hafði til öryggis á sundinu.
Alvara lífsins var ekki langt und-
an. Einn morguninn, þegar komið
var út, voru vot föt Erlends í hrúgu
á stéttinni framan við bæinn. Báts-
félagi Erlends Hálfdán Guðbjarts-
son hafði lent í sjónum ósyndur og
Erlendur stungið sér eftir honum.
Það var gæfulegt. Þremur árum síð-
ar var Erlendur orðinn sjómaður og
sigldi um heimshöfin, hann var á
Dettifossi, þegar honum var sökkt,
lenti í sjónum, en synti að fleka.
Þegar fréttist fyrst af slysinu, vissu
engir um örlög einstakra skips-
manna. Við systkinin vorum minnt á
atburðinn í bæn með móður okkar.
Það var tilhlökkunarefni að koma
á þessum árum í herbergi Erlends á
Amtmannsstíg 6. Þar var margt fal-
legt og frumlegt, sem bar vott um
siglingar tápmikils ungmennis til er-
lendra hafna. Það var ævintýra-
heimur.
Það lá fyrir mér síðar að búa sjö
ár í Kaupmannahöfn. Þá var nota-
legt að eiga að frænda, sem var
stýrimaður og skipstjóri á Gullfossi,
líta til hans og eiga með honum góða
stund, fara með honum í óperu eða
kvikmyndahús, ræða um lífið og til-
veruna.
Það er hlutskipti sjómanna að
vera fjarri fjölskyldu sinni mikinn
hluta ævinnar. Fjölskyldan var Er-
lendi kær og það var aðdáanlegt að
skynja, hversu mikla ástúð og alúð
hann sýndi henni til að létta þær
fjarvistir. Ég held að fáum hafi tek-
ist það betur.
Eftir að Erlendur hætti á sjó, eft-
ir meira en hálfa öld við farsæla sjó-
sókn og skipstjórn, var ávallt
ánægjulegt að koma til hans og
spjalla við hann um liðna tíð, heima
og geima eða það, sem hann var að
smíða eða laga hverju sinni. Í bíl-
skúrnum átti hann úrvalsverkfæri,
sem hann notaði af kunnáttu og
snilld. Stundum virtist hann svo full-
ur af verkfærum, að ekkert rúm
væri fyrir bílinn. En eins og með
töfrum varð allt slétt og fellt að
kvöldi. Ef ég sá bílskúrinn hans op-
inn, var það mikil freisting að kíkja
inn. Mér fannst ég vera velkominn,
þótt það tefði hann stundarkorn við
verkin, og minnist þeirra stunda
með ánægju og þakklæti eins og
allra funda við hann fyrr og síðar.
Hann var traustur, mætur maður,
einn af bestu stoðum landsins.
Blessuð sé minning hans.
Þorvaldur Búason.
✝ Sigríður Hall-dórsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 20.
júní 1907. Hún lést á
dvalarheimilinu
Hrafnistu í Reykja-
vík 28. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Andrea Katrín Guð-
mundsdóttir hús-
freyja, f. á Hömrum í
Gnúpverjahreppi 24.
ágúst 1871, d. í
Reykjavík 24. ágúst
1950 og Halldór
Högnason, f. í Skálm-
holtshrauni í Árnessýslu 4. ágúst
1867, d. í Reykjavík 16. júní 1920.
Systkini Sigríðar voru: 1) Guð-
mundur Kristinn, f. 23. júlí 1895,
2) Högni, f. 24. ágúst 1896, 3) Sig-
ríður Kristín, f. 7. janúar 1898, 4)
Guðmundur, f. 9. ágúst 1900, 5)
Guðmundur Valdimar, f. 31. mars
1903, 6) Guðrún, f. 3. október
1904, 7) Magnea Lovísa, f. 24.
febrúar 1906, 8) Lovísa, f. 13. nóv-
ember 1908 9) Sigurður, f. 7. maí
1910, 10) Guðríður, f. 4. nóvember
1911 og 11) Ólafur Guðmundur, f.
21. október 1913. Þau eru öll látin.
Sigríður giftist 9. október 1930
Stefáni Þórðarsyni sjómanni í
Reykjavík, f. 9. október 1903, d.
25. maí 1978. Foreldrar hans voru
Marín Guðmunds-
dóttir, f. 18. október
1874, d. 29. ágúst
1952 og Þórður Stef-
ánsson, f. 28. janúar
1870, d. 29. janúar
1954. Börn Sigríðar
og Stefáns eru: 1)
Þóra, f. 23. maí,
1936, maki Jóhann
Ágústsson, f. 18.
september, 1932 og
eiga þau þrjá syni,
Halldór, f. 4. septem-
ber, 1960, Stefán, f.
5. nóvember, 1961,
og Birgi Þröst, f. 17.
desember, 1966. 2) Valdimar, f.
12. ágúst 1942, maki Guðrún Erla
Ingimagnsdóttir, f. 28. júlí 1944.
Dætur þeirra eru Elísabet, f. 30.
apríl 1967, Þuríður, f. 31. október
1969 og Sigríður, f. 16. mars 1976.
3) Bryndís, f. 12. febrúar 1946.
Börn hennar og Kolbeins Pálsson-
ar eru Páll H., f. 17. apríl 1964,
Sigríður, f. 25. apríl 1966 og Þórð-
ur H., f. 5. janúar 1969. Einnig ól
Sigríður að mestu upp systurdótt-
ur sína Ebbu Kristínu Edwards-
dóttur, f. 18. maí 1941, d. 2. ágúst
1994. Langömmubörnin eru orðin
19.
Útför Sigríðar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
Kæra Didda, þá er langur æviferill
að baki. Ég veit að þú mundir fyrst
eftir þér á fæðingarstaðnum að
Laugavegi 70 hér í Reykjavík þar
sem afi þinn Högni hafði byggt
tveimur árum fyrir fæðingu þina, og
foreldrar þínir bjuggu líka, þar til
þau reistu sér hús að Njálsgötu 52 B.
Ég minnist þess er þú fjallaðir
stundum um bernskuárin og sagðir
frá uppáhalds hesti foreldra þinna,
merinni Pöddu, en hún átti það til að
stinga af og fara niður á stjórnar-
ráðstún eða Arnarhól og fá sér
tuggu. Fékk hún þá einskonar
„stöðumælasekt“ og þurfti að leysa
hana út fyrir 10 krónur. Padda var
leigð út sem kerruhestur.
Á unglingsárunum þurftir þú að
ganga í gegnum mikil veikindi og
vistast á Landakoti um langan tíma.
Ég fann að það setti sitt mark á þig,
og hefur sjálfsagt skilið eftir sín ör.
Fyrir giftingu stundaðir þú hússtörf
og barnagæslu. Síðan lágu leiðir
ykkar Stefáns saman og stofnuðu þið
heimili að Framnesvegi. Hann hafði
verið á sjó frá 15 ára aldri og lífsbar-
áttan oft hörð. Man ég að þið sögðuð
mér frá að togarinn sem hann eitt
sinn var á lagði úr höfn á aðfangadag
jóla, og lá síðan í vari vegna óveðurs
síðar um kvöldið og yfir hátíðina út
með flóa. Þótti flestum að meira tillit
hafði mátt taka til áhafnar og lofa
mönnum að njóta samvistar við fjöl-
skyldu miðað við aðstæður. Fjöl-
skyldur er áttu nána í siglingum til
útlanda á stríðsárunum máttu lifa í
ákveðnum ótta umfram aðra. Stefán
var á síðasta íslenska skipi er fór frá
Hamborg í stríðsbyrjun og á fyrsta
islenska skipi er kom þangað í stríðs-
lok, hin árin lá leiðin eftir veiði til
Bretlands reglulega með fiskinn.
Þegar ég varð tengdasonur ykkar
Stefáns urðu að sjálfsögðu náin
kynni og enn nánari er ég stofnaði
heildverslun mína og fékk húsnæði
hjá ykkur fyrir hana á Framnesveg-
inum til margra ára. Minnist ég góð-
vildar þinnar og hlýju og fann að allt-
af var hægt að rýma til og fá pláss ef
með þurfti miðað við aðstæður
hverju sinni. Hafðu þökk fyrir sam-
fylgdina, og megi blessun þér fylgja
á framandi slóðum.
Jóhann Ágústsson.
Kæra langamma.
Mig langar til að kveðja þig með
ritningarorðunum mínum sem voru
blessuð yfir mig sama dag og þú
fórst til Guðs:
Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér
munuð finna, knýið á og fyrir yður mun
upp lokið verða.
(Matt. 7:7.)
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín
Katrín Helga.
Góðar minningar vakna í hugum
okkar systkinanna þegar við kveðj-
um ömmu okkar. Áttum við ávallt at-
hvarf á Framnesveginum en amma
hélt þar heimili í rúm sextíu ár. Um-
hyggja og ástúð einkenndi samband
okkar við ömmu og sama á við um
börnin okkar sem voru heppin að fá
að kynnast langömmu sinni og vera
undir hennar verndarvæng.
Bernskuminningar okkar tengjast
afa og ömmu sem alltaf höfðu tíma
fyrir okkur, stundirnar ógleyman-
legar bæði heima á Framnesvegi og í
sumarbústaðnum við Lækjarbotna
þar sem við dvöldum margar stund-
ir.
Blessuð sé minning ömmu okkar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Páll, Sigríður og Þórður.
Elsku besta langamma nú ert þú
farin, en þú munt ávallt vera í hjarta
mínu.
Ég kveð þig með fermingarritn-
ingarversinu mínu.
Því að þín vegna býður hann út englum
sínum til þess að gæta þín á öllum vegum
þínum.
(Davíðssálmur 91:11.)
Bryndís Ýrr.
Á lífsleiðinni verður margt fólk á
vegi manns, sumir verða kunningjar,
aðrir vinir, svo er það fólkið sem nær
að snerta innstu hjartarætur, Didda
var ein af þessum síðastnefndu.
Við urðum þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá að búa í húsi hennar að
Framnesveginum með Bryndísi okk-
ar nýfædda. Fórum við mæðgurnar
daglega niður til að spjalla og átti
hún alltaf góð ráð og ljáði vinareyra
án þess að vera stjórnsöm við unga
óreynda móður.
Ég vil þakka Diddu samveru-
stundirnar með virðingu og þökk
fyrir allt.
Þórunn.
SIGRÍÐUR
HALLDÓRSDÓTTIR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Ennisbraut 8,
Ólafsvík,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugar-
daginn 10. apríl kl. 14.00
Kristín Lárusdóttir, Snæbjörn Aðalsteinsson,
Þórheiður Lárusdóttir, Kurt Hilbrecht,
Þorsteinn Reynir Hauksson, Kristín Bjargmundsdóttir,
Guðbjörn Smári Hauksson,
Rut Hauksdóttir, Peter Lund,
Hilmar Þór Hauksson, Sigurbjörg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
Breiðvangi 63,
Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu þriðjudaginn 30. mars,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju miðviku-
daginn 7. apríl kl. 15.00.
Björg Ólafsdóttir, Sigurður Arnþórsson,
Halldór M. Ólafsson, Eygló Hjaltadóttir,
Guðbjörg Ólafsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARGRÉT A. KRISTÓFERSDÓTTIR
frá Kúludalsá
Höfðagrund 8,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn
2. apríl.
Kristófer Þorgrímsson, Ágústa Þorleifsdóttir,
Ragnheiður Þorgrímsdóttir,
Auðunn Þorgrímsson,
Magnús Þorgrímsson, Rúnar Lund,
Kristófer Pétursson, Ólafía Björnsdóttir,
Karen, Margrét, Ragnhildur, Helga og Gísli Jónsbörn,
Þorgrímur, Magnús, Kristófer og Ómar Kristóferssynir,
Edda Andrésdóttir, Jón Óskar Auðunsson,
Hilmir Bjarki Auðunsson, Auður Ósk Auðunsdóttir,
Guðbjörg S. Jónsdóttir,
Guðrún, Pétur og Margrét Aðalheiður Kristófersbörn,
langömmubörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN JÚLÍUSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
28. mars síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jón Þóroddsson,
Sverrir Þóroddsson, Ingibjörg Gísladóttir,
Ingunn Þóroddsdóttir,
Sigrún Þórdís Þóroddsdóttir, Magnús Jónsson.
Ástkær eiginmaður, bróðir og frændi,
JÓN HALLDÓR HELGASON,
107 Egret Drive,
Jupiter, Flórída,
andaðist í Bandaríkjunum sunnudaginn 4. apríl síðastliðinn.
Marilyn Helgason,
Ástríður H. Andersen,
Sigurður Helgason,
Gunnar Helgason,
Gunnar Þ. Andersen.