Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 48

Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Grettir Smáfólk HVAÐ ÆTLI FRAMTÍÐIN BERI Í SKAUTI SÉR? VONANDI MINNA AF ÞESSU KANNSKI VERÐA MIKLAR FRAMFARIR Í LÆKNAVÍSINDUM... EINS OG AÐ LOSA MANN VIÐ MÓÐUNA SEM ER ALLTAF VIÐ JAÐARINN Á AUGANU Á MANNI OG VONANDI ÞESSA Á MILLI EYRNANNA Á ÞÉR HVAÐ KOM FYRIR BESTU ÁR LÍFS MÍNS GRETTIR? BÍDDU ANDARTAK... *STURTAÐ NIÐUR HANN LÉT BÚA TIL JAKKA ÚR TEPPINU MÍNU! ÉG ER BRJÁLAÐUR! ÉG LÉT ÞIG FÁ TEPPIÐ TIL ÞESS AÐ SJÁ HVORT ÉG GÆTI HÆTT AÐ NOTA ÞAÐ OG ÞÚ LÆTUR BÚA TIL JAKKA ÚR ÞVÍ! EKKI BARA JAKKA.. HELDUR TVO JAKKA! Risaeðlugrín © DARGAUD BRR... ÞAÐ ER EKKI MJÖG HEITT Í DAG ÞAÐ HEFUR ÖRUGGLEGA FROSIÐ Í NÓTT ! HVAR Í GÆTI HANN VERIÐ?! Í GÆR FÓRUM VIÐ Á STRÖNDINA... ! EN FYNDIÐ... ROSALEGA FRAUS Á HANN ASNALEGUR SVIPUR EN... ÞETTA ER... framhald ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á VEGUM bókaútgáfunnar Pjaxa ehf. vinnur hópur átta kvenna nú að því að safna efni eftir sunnlenskar konur. Forlagið hefur gefið út tvær bækur með hugverkum kvenna, Huldu- mál, sem eru hugverk aust- firskra kvenna og Djúpar rætur, sem eru hugverk þingeyskra kvenna. Báðar þessar bækur eru um 350 bls. og í hvorri um sig eru birt verk eftir um 200 konur. Það hefur komið í ljós við vinnslu fyrri bóka að ótrúlega margar konur hafa fengist við skriftir en allt of mikið af því efni hefur hvergi komið fram áð- ur. Í bókunun er að finna alls kyns verk, ljóð, örsögur, smásögur, bóka- kafla, dagbókarbrot, sendibréf, lög og söngtexta. Sum verkanna eru frá fyrri öldum - elsta hugverkið sem birst hefur er eftir Látra-Björgu en hún var fædd árið 1716. Sérhver kona sem vill kalla sig Sunnlending getur sent efni til birt- ingar í bókinni. Hér er líka kjörið tækifæri til að skoða efni eftir gengnar formæður sem oft á tíðum skildu eftir sig hugverk sem ekki dugðu í heila bók ein og sér en geta engu að síður verið vel þess virði að koma fyrir augu lesenda. En það þarf ekki endilega að leita í skúffum og hirslum því einnig verður tekið á móti efni sem birst hefur áður. Í ritnefnd hugverkabókar sitja Ingibjörg Sigurðardóttir frá Úthlíð í Biskupstungum, Ingibjörg Berg- þórsdóttir Selfossi, Bergþóra Þór- hallsdóttir Vestmannaeyjum, Sig- urveig Jóna Þorbergsdóttir Hvols- velli, Jóna S. Sigurbjartsdóttir Kirkjubæjarklaustri, Guðrún Em- ilsdóttir, Sunnuhlíð í Hrunamanna- hreppi, og Kristjana Brynja Sigurð- ardóttir sem á ættir að rekja til Blesastaða á Skeiðum. Ritstjóri bókarinnar er Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir frá Seljalandi und- ir Eyjafjöllum. Þær taka við efni fram til 1. maí. Efni má einnig senda beint til útgáfunnar, pjaxi- @pjaxi.is eða til ritstjóra ghald@is- mennt.is. GUÐRÚN INGIBJÖRG HÁLFDANARDÓTTIR, Strýtusel 18, 109 Reykjavík. Hugverka sunnlenskra kvenna leitað Frá Guðrúnu Ingibjörgu Hálfdanardóttur: HÆSTVIRTUR heilbrigðisráðherra Jón Kristjánsson: Eins og þú veist hefur verið rekin endurhæfing fyrir krabbameins- sjúka á Landspít- ala – Háskóla- sjúkrahúsi í Kópavogi frá jan- úar 2002. Þau rúm tvö ár sem deildin hefur starfað hef- ur verið unnið öt- ult uppbyggingar- starf. Hér hefur skapast sérþekking innan krabbameinsendurhæfingar hjá mjög hæfu starfsfólki. Á deildinni er boðið upp á einstaklingsmiðaða endurhæfingu sem nær til líkam- legra, sálrænna og félagslegra þátta. Á síðasta ári komu hingað milli 50 og 60 manns á mánuði, og er það samt aðeins brot af því fólki sem þarfnast endurhæfingar. Endurhæfingin mið- ar að því að auka lífsgæði fólks og búa það undir að takast á við daglegt líf á ný. Það hefur verið styrkur deildar- innar að hún er vel búin tækjum, rými og stórri sundlaug, auk þess er hún staðsett í fallegu umhverfi í Kópavogi fyrir utan bráðaumhverfi spítalans. Vegna niðurskurðar á fjármagni til Landspítala – Háskólasjúkrahúss þarf nú að loka endurhæfingarhús- næði spítalans í Kópavogi frá 1. maí nk. Það gerir það að verkum að end- urhæfing fyrir krabbameinssjúka mun flytjast inn í bráðaumhverfið í Fossvogi, í miklu minna húsnæði. Það segir sig sjálft að ekki er hægt að bjóða upp á samsvarandi starfsemi, hvað þá að efla hana við þær aðstæð- ur. Magnús Pétursson forstjóri LSH tjáði mér í vetur að hann hefði reynt að fá rekstrarfé deildinni til handa, m.a. hjá heilbrigðisyfirvöldum og Tryggingastofnun Ríkisins, en ekki fengið þann hljómgrunn sem hann hefði vonast eftir. Komið hefur fram að einn af hverjum þremur Íslend- ingum greinist með krabbamein á lífsleiðinni, og það hlýtur að kalla á aukna endurhæfingu fyrir krabba- meinssjúka. Stuðningur í gegnum allt ferlið eykur lífsgæði og stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan. Fólk er betur undirbúið til að takast á við daglegt líf, og margir snúa aftur út á vinnumarkað. Þess vegna hlýtur endurhæfing að vera þjóðhagslega hagkvæm. Í staðinn fyrir að skerða þjónustuna, ættu heilbrigðisyfirvöld frekar að stuðla að faglegri endur- hæfingarmiðstöð fyrir krabbameins- sjúklinga sem hefði það hlutverk að sinna öllum þeirra endurhæfingar- þörfum. Ég hvet Krabbameinsfélag Ís- lands, krabbameinslækna, krabba- meinssjúklinga, aðstandendur og alla sem málið varðar að láta í sér heyra um þetta mikilvæga mál. Þetta er mál sem varðar alla þjóðina. Og að lokum, hæstvirtur ráðherra, langar mig til að spyrja: Hvaða stefnu ætla heilbrigð- isyfirvöld að taka í þessu máli?. Ert þú tilbúinn til að beita þér fyrir því að aukin fjárveiting fáist inn í þennan málaflokk? Með kærri kveðju. ERNA MAGNÚSDÓTTIR, yfiriðjuþjálfi Endurhæfingarsviðs LSH, Kópavogi. Opið bréf til heilbrigðisráðherra Frá Ernu Magnúsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.