Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 51

Morgunblaðið - 06.04.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefin/n og frum- leg/ur og hefur frjótt ímynd- unarafl. Gefðu þér tíma til aukinnar einveru á þessu ári því þú þarft að læra eitthvað nýtt í einsemdinni. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er minni spenna á milli þín og annarra í dag en í gær. Þú hefur betri stjórn á hlut- unum. Reyndu að ganga frá skuldum þínum við aðra. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tunglið er beint á móti merk- inu þínu og því þarftu að sýna meiri þolinmæði og sam- starfsvilja en venjulega. Ekki gera veður út af hlutunum, það gerir bara illt verra. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú átt auðvelt með að fá aðra til samvinnu við þig í dag, sérstaklega í vinnunni. Þú ert heillandi og kraftmikil/l og því laðast fólk að þér. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Óvænt daður mun hugs- anlega setja skemmtilegan svip á daginn. Það er leikur í þér og þig langar einfaldlega til að skemmta þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú hefur þörf fyrir fé- lagsskap og ættir því að bjóða fólki heim til þín. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þetta er góður dagur til inn- kaupa, samningaviðræðna og hvers konar viðskipta. Þú munt hafa mikið að gera en þú munt einnig koma miklu í verk. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að fara yfir fjárhag þinn. Þú þarft að vita ná- kvæmlega hvað þú átt og hvað þú skuldar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Tunglið er í merkinu þínu í dag. Þetta veitir þér örlítið forskot á önnur merki. Líttu á þetta sem tækifæri og reyndu að gera sem mest úr því. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það getur verið krefjandi að sinna skemmtanalífinu, ást- armálunum og börnunum. Þú ættir því að reyna að gefa þér tíma til einveru í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vinkona þín mun sennilega veita þér stuðning í dag, hvort sem þú ert í skapi til að hlæja eða gráta. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú nýtur meiri athygli en venjulega. Reyndu að hafa það í huga og hafa stjórn á skapi þínu. Fólk er virkilega að fylgjast með þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að gera eitthvað óvenjulegt í dag þó ekki sé nema að fara aðra leið heim úr vinnunni. Þú þarft á til- breytingunni að halda. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. DRAUMUR HJARÐSVEINSINS Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á, þar bunaði smálækjar spræna. Mig dreymdi, að í sólskini sæti ég þá hjá smámey við kotbæinn græna. Og hóglega í draumnum með höfuð ég lá í hnjám hinnar fríðustu vinu, og ástfanginn mændi eg í augun hin blá, sem yfir mér ljómandi skinu. - - En rétt þegar nálgaðist munnur að munn, að meynni var faðmur minn snúinn, þá flaug hjá mér þröstur, svo þaut við í runn, og þar með var draumurinn búinn. Steingrímur Thorsteinsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 6. apríl, er níræð Þorbjörg Páls- dóttir, Vesturgötu 7, Reykjavík. Hún eyðir deg- inum með fjölskyldu sinni. ÞEGAR andstæðingarnir skríða í þrjú grönd, meira af vilja en mætti, er sérstök ástæða til að vanda sig í vörn- inni. Settu þig í spor austurs: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠Á52 ♥97 ♦DG972 ♣ÁD5 Austur ♠D864 ♥K62 ♦K10 ♣10984 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 2 tíglar Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Makker kemur út með spaðagosa. Sagnhafi tekur slaginn heima á kóng (þú kall- ar) og spilar litlum tígli á drottningu blinds. Þú tekur slaginn, en hvað svo? Það virðist blasa við að sækja spaðann áfram, en það er ekki endilega besta vörnin þegar grannt er skoðað. Spað- inn getur aldrei gefið nema tvo slagi. Makker á vænt- anlega tígulásinn, svo þar eru aðrir tveir, en einn slag þarf í viðbót. Og hann verður að koma á hjarta. En það er of seint að sækja hjartaslaginn þegar sagnhafi hefur fríað tíg- ulinn: Norður ♠Á52 ♥97 ♦DG972 ♣ÁD5 Vestur Austur ♠G1093 ♠D864 ♥D1054 ♥K62 ♦Á5 ♦K10 ♣G62 ♣10984 Suður ♠K7 ♥ÁG83 ♦8643 ♣K73 Þetta er spurning um „tempó“. Ef austur spilar hjarta verður sagnhafi að hleypa á níuna, því annars opnast fyrir þrjá hjartaslagi í vörninni. Og þegar vestur fær slaginn á hjartatíu, skiptir hann (vonandi) aftur yfir í spaða og þá hefur vörnin bet- ur. Spilið er frá sjöundu um- ferð Íslandsmótsins og allir sagnhafar í þremur gröndum fengu níu eða tíu slagi. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 O-O 9. Bc4 Bd7 10. O-O-O Re5 11. Bb3 Da5 12. h4 Hfc8 13. Kb1 Rc4 14. Bxc4 Hxc4 15. Rb3 Dc7 16. g4 Hc8 Íslandsmótið í skák stendur nú yfir í glæsilegum húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur. Keppt er í landsliðsflokki, kvenna- flokki og áskor- endaflokki. Á síðustu 6 árum hefur Hann- es Hlífar Stefánsson (2.567) hampað Ís- landsmeistaratitl- inum fimm sinnum og má gera ráð fyrir að titillinn falli hon- um í skaut einnig að þessu sinni. Í lands- liðsflokki er keppt eftir útsláttarfyr- irkomulagi og hafði Íslandsmeistarinn hvítt gegn Sigurði Daða Sigfússyni (2.279) í fyrstu umferð keppninnar. 17. e5!? Rxg4 18. exd6 exd6 19. fxg4 Bxg4 20. Hc1 Be6? Hvítur nær auðveldlega að stöðva svörtu sóknina eftir þetta. Betra var að reyna 20. ... Hxc3 þó að það sé ólíklegt að svartur hafi næg færi fyrir hrókinn. 21. Rb5! Dc6 22. R5d4 De4 23. Rxe6 fxe6 24. Dd3! De5 25. c3 a5 26. h5 og svartur gafst upp. Keppni í öllum flokkum verður fram haldið í dag og hefst umferðin kl. 17. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.  Ársalir- fasteignamiðlun  Ársalir- fasteignamiðlun  Nýttu þér áratuga reynslu okkar og traust í fasteignaviðskiptum Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 OFFITA www.heilsuvernd.is       MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík MEÐ MORGUNKAFFINU FRÉTTIR Helgin var tiltölulega annasöm á löggæslu- svæði lögreglunnar í Reykjavík. Föstudags- kvöld og nótt var með rólegra móti enda mikið vatnsveður. Á laugardagskvöld var veður stillt og gott og mikill mannfjöldi í miðbænum langt fram undir morgun. Tilkynnt var um 37 umferð- aróhöpp með eignatjóni um helgina. Ekki er vitað til að al- varleg slys hafi orðið á fólki í þessum óhöppum Um helgina voru 10 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast fór var mældur á 107 km hraða á Reykjanes- braut á móts við Sæbraut þar sem leyfilegur hraði er 60 km/ klst. Þá voru 10 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur um helgina. 20 innbrot um helgina Tilkynnt var um 20 innbrot eða tilraunir til innbrots í bif- reiðar um helgina. Þjófunum tókst ekki ætlunarverk sitt í öll- um tilfellum en bíltæki, fatn- aður og geisladiskar virðast freista þjófanna einna mest. Þá voru nokkur tilfelli þar sem til- kynnt var um skemmdarverk á bifreiðum t.d. brotnir hlið- arspeglar og ljós, hleypt lofti úr dekkjum og jafnvel skorið á þau, sparkað í bíla og þeir dældaðir og skemmdir á bifreið- um eftir að gengið hafði verið yfir þær. Á föstudag kom maður á lög- reglustöðina með haglabyssu sem hann hafði verið beðinn að geyma fyrir kunningja sinn fyr- ir nokkrum árum. Hann sagðist hafa gert nokkrar tilraunir til að skila byssunni til eigandans en það ekki tekist og því ákveð- ið að koma byssunni til lög- reglu. Nokkuð hefur verið um að fólk hafi skilað byssum til lögreglu undanfarið sem það treystir sér ekki til að hafa og er það vel. Aðfaranótt laugardags var til- tölulega róleg í miðbænum enda slagveðursrigning og rok. Til- tölulega fáir voru að skemmta sér og greiðlega gekk að koma fólki heim enda nægt framboð af leigubílum. Rétt eftir mið- nætti var tilkynnt um slagsmál á Snorrabraut milli nokkurra manna, út af rusli sem skilið hafði verið eftir á götunni. Tveir fóru á slysadeild með minni háttar áverka. Stuttu seinna brutust út slagsmál á kaffihúsi í miðbænum og var dyravörður skallaður í andlitið. Hann hlaut skurð á augabrún og fór sjálfur á slysadeild. Þá urðu lögreglumenn vitni að ryskingum á Laugavegi um hálffjögurleytið. Þegar þeir hugðust skakka leikinn urðu þeir fyrir aðkasti frá árás- armanninum og áhorfendum. Kallað var eftir liðsauka og voru að endingu þrír fluttir á lögreglustöð og einn á slysa- deild til skoðunar. Tólf fíkniefnabrot Tólf fíkniefnabrot komu til kasta lögreglu um helgina. Í flestum tilvikum var ekki um mikið magn fíkniefna að ræða. Snemma á laugardagsmorgun var bifreið veitt eftirför í Vest- urbænum en ökumaður neitaði að stansa. Eftir nokkurn elting- arleik stöðvaði hann þó bifreið- ina og lagði á flótta á hlaupum. Hann fannst þó skömmu síðar í húsagarði nærliggjandi húss. Ökumaður er grunaður um ölv- un við akstur og auk þess fund- ust á honum fíkniefni. Rétt eftir miðnætti á sunnudag fór lög- regla í íbúð í miðborginni eftir ábendingar um að þar væri stunduð fíkniefnasala. Í íbúðinni fundust kannabisefni og tæki til neyslu. Stuttu seinna var bifreið stöðvuð í Breiðholti. Þegar menn urðu lögreglu varir reyndu þeir að losa sig við fíkniefni út um glugga bifreið- arinnar. Einnig fundust á þeim fölsuð skilríki. Ölvun áberandi í mið- bænum Aðfaranótt sunnudags var mikið af fólki í miðborginni enda veður með besta móti. Mikið var um slagsmál og ölvun áberandi. Um miðnætti var maður stunginn með hnífi í húsi í austurborginni. Hann hlaut fimm stungur í kvið og bringu og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Kona var handtekin, grunuð um verknaðinn. Töluvert var um slagsmál og stimpingar í miðborginni og hafði lögregla í nógu að snúast. Einnig var nokkuð um sjúkra- flutninga vegna veikinda og óhappa. Maður var fluttur á slysadeild eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistað í miðborginni með skurð á augabrún, mar í andliti og eymsli í nefi. Þá var annar maður fluttur á slysa- deild eftir að hafa verið skall- aður í andlitið í slagsmálum með þeim afleiðingum að hann hlaut slæman skurð á nefi. Undir morgun urðu slagsmál í Lækjargötu þar sem sex manns voru handteknir og einn fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Á hinum handteknu fundust fíkni- efni. Helstu verkefni lögreglunnar 2. – 5. apríl Mikið um slags- mál um helgina GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.