Vísir


Vísir - 17.08.1981, Qupperneq 12

Vísir - 17.08.1981, Qupperneq 12
12 Mánudagur 17. ágúst 1981 VÍSIR Matseöill helmillsins llún erönfiröingur, hann er Vestmanaeyingur — pau eru hjón og búa ásamt börnum sinum i Kópavogi. Þegar þið Iltið á matseðil þeirra Jóhönnu Ingimundardóttur og Hóberts Granz, þarf hcldur ekki að fara i grafgötur um það að leita uppruna þeirra hjónanna. Við fögnum þvi að fá matseðil, þar sem báöir aðilar leggja sitt af mörkum og þökkum hjónunum kærlega fyrir. —ÞG Mánudagur Djúpsteikt stórlúða Orly Hrásalat Kartöflur Remolaði-sósa Eftirréttur: Bláber með rjóma. Þriðjudagur Lundi — reyttur, sviðinn steiktur og soð- inn. Brúnaðar kartöflur Grænar gaunir Steiktur ananas Asfur Tómatar — agúrkur Lundasósa. Lundinn á morgun á að vera reyttur, sviðinn, steiktur og soð- inn. Undirbúningur hafinn og hér eru þau Jóhanna og Róbert að byrja á byrjuninni að reyta lundann. Eftirréttur: Is og eldur 1 þennan eftirrétt má nota hvaða ís sem er, en við kjósum i þetta sinn vanilluis. Setjum fyrst ávaxtabita- helst appel- sinubita — i botninn á eldföstu móti, þá er isinn settur i miðj- una. Eggjahvitum og sykri þeytt vel saman og sett yfir is- inn og i kringum hann i mótinu. Siðan bakað i 200 gr. heitum ofni þar tilljósbrúntaðofan (ca. 7-10 minútur). Miðvikudagur Sigin grásleppa Kartöflur Smjör Heimabakað seytt rúgbrauð. Eftirréttur Þykkur hrisgrjónagrautur. Lifrapylsusneiðar. Uppskrift: Seytt rúgbrauð 1 kg rúgmjöl 400 g heilhveiti 4 tsk. lyftiduft 1 1/2 bolli sykur Bleytt vel i þessu með volgu vatni og mjólk, sem er blandað til helminga. Bleytt i þar til deigið er orðiö þykkt. Þá er komið aö bakstrinum. Brauöiö verður aö baka i lokuðu formi, járnbox er ágætt, annars hefur llka tveggja litra mjólkurferna reynst afar heppileg fyrir þenn- an bakstur. Þá er deigiö sett að ofan i tóma fernuna og henni siðan lokað aftur. Bakaði^Ogr. heitum ofni I rúman sólarhring. Fimmtudagur Bútungur — heilsaltaður soðinn smá- þorskur — Kartöflur Jóhanna lngimunaaraottir og Kóbert Granz ásamt börnum sinum tveimur. Soðnar gulrófur og gulrætur Agúrkur Hangiflot. Eftirréttur Skyr meö berjasaft. Föstudagur Heimalagaöar steiktar ýsuboll- ur Kartöflur Grænar baunir Brún sósa Rabarbaramauk (sulta) Eftirréttur: Blómkálssúpa. Laugardagur Kæst skata Kartöflur Gulrófur Hamsatólg. Eftirréttur: Rabarbaragrautur Tvibökur. Sunnudagur Heilsteiktur lambabógur Bakaðar kartöflur Rauðrófur Hrásalat Maiskorn Asiur Tómatar — agúrkur Avaxtamauk Sveppasósa Eftirréttur: Heitur rommbúðingur Niðursoðnir ávextir Hindberjasaft eða rjómi. P.S. Hrásalatið, sem verður með lambasteikinni, er vinsælt á heimilinu og ákaflega einfalt að búa það til. Salatblöð og epla- bitar sett i skál, majones og þeyttum rjóma blandað saman og hellt yfir. Blómkálstíminn gengur í garð - hvernlg frystum við káiið? Hratt flýgur timinn, gúrku- og tómatatfðin liðin og grænmetisal- manakið sýnir að timi blómkáls- ins sé i hlaöinu. Þá er að nýta þá tið áður en sú rennur úr greipum okkar, kiló af blómkáli kostar i dag kr. 29.50. Margur hefur ef- laust hug á að kaupa meira en eitt meira cn tvö kiló af blómkáli til að stinga í frysti og geyma til mögru dagana, þegar upskeruhá- tfðir eru langt að baki. Því ætlum við ofurlítið að fjalla um frystingu blómkáls og grænmetis almennt. Heimildir okkar sækjum við I litiö kver um frystingu matvæla sem gefið er út af Kvcnfélagasam- bandi tslands. Þá snúum viö okkur fyrst að frystingu grænmetis. Flestþað grænmeti, sem venju- lega er soðið, er vel fallið til að Umsjón: Þórunn Gestsdóttir geyma i frosti, en siöur þaö sem borðað er hrátt. Best er að sjálf- sögðu að grænmetið sé fyrsta flokks vara og nýupptekið. Þegar um heimaræktað grænmeti er að ræöa, ætti ekki að þurfa að liða meira en 2-3 klukkustundir frá þvi að það er tekið úr garði (helst að morgunlagi) og þar til það er komið i frystinn. Margar teg- undir grænmetis missa mjög fljótt ferskleika sinn og næringargildi, einkum ef- það er geymt i heitu herbergi, svo að æt- ið ætti að geyma það I kulda, ef ekki er hægt að frysta það strax. Veljið hæfilega þroskað grænmeti til frystingar, fullþroskað en ekki ofþroskað. Af grænmetistegundum, sem eru taldar vel fallnar til frystingar má nefna: blómkál, grænkál, rósakál, spinat, ýmsar tegundir af baunum og ertum. Auk þess niðurskornar gúrkur, niðurskoriö hvitkál og rauökál. tómatmauk, sveppi, lauk og gul- rætur (meö öðru grænmeti) og einnig kryddjurtir svo sem stein- selju, dill, kjörvel, graslauk og fleira. Grænmetiö á aö hreinsa og út- búa áöur en það er fryst, svo aö þaö sé tilbúiö i pottinn. Til þess að grænmetið varðveitist sem best og næringargildi þess haldist, þarf að sjóða upp á flestum teg- undum og kæla snögglega, áöur en búiö er um það i frost. Astæðan til þessarar upphitunar er marg- þætt.meðal annars stöðvast starf- semi gerhvata, sem annars valda óæskilegum efnabreytingum i grænmetinu i frosti (bragð og litarbreytingar) einnig er hún gerð til að reka út loft (súrefni), sem örvar skemmdir, og til að lit- urinn verði bjartari og sterkari. Allt grænmeti.sem venjulega er soðið, áður en það er borið fram, verður að hita eða sjóða og kæla áður en þaö er fryst. Nákvæmni verður aö hafa við þessa suðu, þar sem of langur eða of stuttur timi getur eyöilagt gæði græn- metisins eftir frystingu, breytt bragði, útliti og næringargildi þess. Best er aö þessi suða fari þannig fram: Hafið riflegt sjóðandi vatn i potti (um 6 litra fyrir 1 kg af grænmeti), setjið grænmetið i gatasigti eða vir- körfu niður i sjóöandi vatni, svo að bæði gangi fljótt aö koma þvi niöur i og taka það upp. Fylgist siðan nákvæmlega með suðutim- anum og reiknið frá þvi augna- bliki, er suðan kemur upp aftur. Taki það of langan tima að suðan komi upp aftur, má stytta suðu- timann litið eitt. Það þykir reynast betur að hafa suðuvatnið ósaltað. Nota má sama vatnið til að sjóöa upp á fleiri skömmtum af sömu tegund grænmetis. Sé bú- ið um margar tegundir af græn- meti i einu (til dæmis blandaö grænmeti i súpu eða jafning), verður að sjóba upp á hverri teg- und um sig, svo að þær fái allar rétta meðferð og nákvæman suðutima, eftirþvi sem best á við. Grænmetið er siðan tekið beint upp úr suðuvatninu, þegar tíminn er kominn og sett I kælivatn, annaö hvort vatn með Ismolum eða rennandi vatn. Nauðsynlegt er að kæla vandlega, þvl að annars heldur grænmetiö áfram að meyrna og tapar bragöi og næringargildi sinu. Aætla má á- lika langan tima til að kæla það og suðutiminn er. Þegar græn- metiðer vandlega kælt, er vatniö látið siga vel af þvi, áður en búið er um það I frystiumbúðunum. Frystiö grænmetið siðan svo fljótt sem hægt er eftir aö búið hefur verið um það. Frysting blómkáls Blómkál má frysta i heilum hausum eöa i smáhrislum og geymist það mjög vel i frosti, sé það ekki laust i sér. Þægilegra er að áætla suðutlmann og búa um það, ef það er tekið i sundur, en vill missoöna ef það er I heilu lagi. Suðutimi fyrir frystingu er 6-8 minútur.ef um heila hausa er að ræða, en 2-3 mfnútur I smáhrisl- um, og svo soðiö i 4-5 minútur við notkun aftur eftir frostið, en 5-10 minútur ef þaö er heilt. Sé blóm- kál fryst heilt, má hola út stilkinn áður, svo það soðni jafnara. —ÞG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.