Vísir - 24.08.1981, Page 20
20
VÍSIR
Mánudagur 24. ágúst 1981
lesendur hafa oröiö
Vill ein-
hver stofn-
un higgia
leikföng?
Vill einhver stofnun fá leik-
föng gefins?
Móðir úr Reykjavik sagðist
halda að börnin sin ættu allt of
mikið af leikföngum, þetta lægi
út um allt og nýttist ekki, auk
þess sem hana grunaði að þau
hefðu ekkert gott af öllu þessu
dóti. ,,Er ekki einhver stofnun,
t.d. heimili fyrir vangefin börn,
sem myndu taka við leikföngum
gefins?”
Hun vill fá að vita hvernig hún
eigi að snúa sér i þvi að koma
leikföngunum á góðan stað,
helst myndi hún vilja fara með
krökkunum sinum og leyfa þeim
að gefa siður lánsömum krökk-
um.
Hafa allar uppeldisstofnanir nóg af leikföngum?
Hvers vegna er coke
ekki lengur selt?
Óánægður skrifar:
Ég er einn þeirra manna sem
þurfaaðsnæðaámatsölustöðum i
hádeginu, þar sem ég tilheyri
ekki hóp rikisstarfsmanna sem
geta snætt á hálfvirði i mötuneyt-
um fyrirtækjanna.
Eg hef orðið óþyrmilega var við
það, að svo virðist vera sem úrval
af gostegundum á veitingahúsum
sé farið að verða þrengra. Og
hvers vegna? Jú, mér sýnist
Pepsi Cola fyrirtækið vera farið
að standa ansi oft eitt uppi með
allar vörur á matsölustöðum.
Ekki get ég séð að verið sé ódýr-
ara. Siður en svo. Á útsöluverði i
sölubúðum kostar litil flaska af
kóki, þ.e. innihaldið 2.15 en af
Papsi 2.45 kr. stærri flöskurnar af
Coke kosta 290 kr. en af Pepsi
3.40.
En hvers vegna er það þá orðið
þannig hérna i Reykjavik að mat-
sölustaðir eru margir hverjir
aðeins farnir að selja Pepsi, og
hættirað selja Kók? Persónulega
þykir mér Kókið mikið betra, en
eflaust eru skiptar skoðanir um
"RC. O \L - K; '
h m bxm 1r.í fiR och bqr \
fmsm- ftlu :m om w skuu-c mM
(tV\Q» P(t ISLR’Öfe.Sfl
fcft qo(t: mó^UGT. ðoppte m gör w.
Bréfift.
Bréfavinur i Finni.
Óánægfturbréfritari vill ráfta sjálfur hvort hann drekkur kók eöa pepsi.
það. Ég veit svo sem af þvi striði
sem Pepsi hefur við Kók, en ég
hélt að i „frjálsu landi", þar sem
frelsi á að rikja i viðskiptaháttum
og samkeppni, ætti striðið að
koma fram i verði vörunnar en
ekki þvi hvort hægt sé að bola
Ofært hjá sjónvarpinu
að loka í mánuð
Elisabet Jónsdóttir hringdi:
Ég tekheils hugar undir það sem ÞS sagði i lesendabréfi miðviku-
daginn 19. ágúst. Það er fyrir neöan allar hellur að sjónvarpið skuli
hafa lokað i heilan mánuð og rúmlega það og jafnvel enn verra að
þurfa að borga afnotagjald fyrir þann tima.
Sjónvarpiðer afþreying fyrir öryrkja oggamalt fólk, af þvi hef ég
persónulega reynslu og ég tek alveg undir með ÞS.
Svo þakka ég ykkur fyrir ágætis blað. Ég er nýr áskrifandi og
finnst þetta ágætt hjá ykkur.
Fínar og fágað-
ar Mjómplötur
öðrum aðilanum út af markaðn-
um, með þvi að fá verslunareig-
endur til þess að selja ekki hina
vöruna, sem þó virðist vera á
hagstæðara verði.
Ég er hlynntur frjálsri sam-
keppni, en hún er orðin vafasöm
þegar að verðsamkeppni er orðin
aukaatriði, og ég er hættur að fá
kókið mitt á matsölustöðum, þótt
ég vildi fá það frekar, þó það væri
helmingi dýrara.
Forseta Islands berast mörg
erindi, og sjálfsagt mismunandi
skemmtileg. Nýlega barst forset-
anum bréf frá ungri finnskri
stúlku, sem biður um aðstoð við
að komast i bréfasamband við
Islendinga. Hún skrifar ekki i
neinum yfirdrifnum formlegheit-
um, þvertá móti.En hún kvartar
undan að fyrri tilraunir hennar til
að komast i bréfasamband hér
hafi ekki tekist. En hér kemur
bréfið lauslega þýtt. Hún skrifar
á sænsku.
Halló frd forseti.
Ég er stúlka, sem er 12 ára og á
heima i Finnlandi. Nú er ég að
velta fyrir mér hvort þú munir
geta útvegað mér bréfavini á
Islandi, hið bráðasta. Ég vona að
þú gerir það.
Utanáskriftin til min er:
Pia María Lillvik
Storgatan 11
SF-68600 Jakobstad, Finnland.
PS. Ég hef tvisvar reynt að kom-
ast i bréfasamband við íslend-
inga, en það hefur enn ekki tek-
ist. ”
Og nú er bara fyrir islenska
unglinga að taka til hendinni og
skrifa til Finnlands, þvi ekki lát-
um við spyrjast að forsetinn okk-
ar geti ekki útvegað eitt bréfa-
samband.
G.H. hringdi:
Mig langar til aö koma á fram-
færi þökkum fyrir þá frábæru
þjónustu, sem ég fékk hjá fyrir-
tækinu Hljdmplötuhreinsunin.
Um daginn fór ég með 46 plötur
og bað um aö fá þær hreinsaðar.
Ég fékk þær til baka daginn eftir
alveg glampandi hreinar. Það er
mikill munur að hlusta á þær.
Ég vildi bara geta þessa, því að
mér finnst mikið oftar talað um
það sem miður fer, heldur en það
sem gott er.
Fluglelðir borga hlulhöfum
arð með riKlsslyrk
Áhugamaður um flug
hringdi:
„Flugleiðir eru enn einu sinni
komnir i brennidepil og nú á að fá
aftur þriggja milljóna dollara
styrk frá íslenskum skattborgur-
um. Og i hvaða fara þessir pen-
ingar? Jú, hluti þeirra fer i að
borga hluthöfum i Flugleiðum
arð, sem nú er greiddur út i fyrsta
skiptið i langan tima. Furðulegt
er að félag, sem rekið er með
bullandi tapi skuli sjá sér fært að
borga út arð af rekstri þess og að
nota tfl þess rfkisstyrk er siðferði-
lega út i hött.
Ég er i sjálfu sér ekki á mótiþvi
að hlaupa undir bagga með Flug-
leiðum þvi svo mikið er i húfi að
við myndum aldrei biða þess bæt-
Vift munum aldrei bifta þess bætur ef Fiugleiftir leggur upp laupana,
segir áhugamaöur um flug.
ur ef félagið legði upp laupana.
En mér finnst útborgun arðsins
vera reginskyssa forráðamanna
félagsins og helst til þess fallin að
fá almenning í landinu upp á móti
féiaginu.”