Vísir - 24.08.1981, Síða 32

Vísir - 24.08.1981, Síða 32
Mánudagur 24. ágúst 1981. síminner86611 Veöurspá dagsins Við strönd Grænlands vestur af Snæfellsnesi er 990 mb. lægð og lægðardrag úti fyrir Norður landi þokast norður. Heldur kólnar i veðri. Suðurland til Breiðafjarðar: Sunnan eða suðaustan kald og rigning i fyrstu, suðvestan stinningskaldi með allhvössum skúrum, þegar kemur fram á daginn. Vestfirðir: Sunnan kaldi og siðar suð- vestan stinningskaldi. Skúrir. Strandir og Norðurland vestra: Sunnan og siðar suðvestan kaldi, en sums staðar stinnings- kaldi, einkum þegar kemur fram á daginn. Skúrir. Norðurland eystra til Aust- fjarða: Suðvestan kaldi, bjart veður að mestu, en skúrir á stöku stað siðdegis. Suð-Austurland: Suðvestan kaldi og siðar stinningskaldi. Rigning fram eftir morgni. Siðar skúrir, en bjart með köflum til landsins. VeöPiö hér og Uar Kl. 6 i tnorgun: Akureyriskýjað 9, Bergenskýj- að 11, Helsinki alskýjað 10, Kaupmannahöfn léttskýjað 14, Osló léttskýjað 10, Reykjavik rigning 8, Stokkhólmurléttskýj- að 11, Þórshöfn alskýjað 11. Kl. 18 i gær: Aþenaheiðskirt 27, Berlinskýj- að 14, Chicago mistur 26, Fen- eyjar skúr á siðustu klukku- stund 18, Frankfurt skýjað 16, Nuukskýjað6, Londonléttskýj- að 20, Luxemburg skýjað 15, Las Palmasléttskýjað 23, Mall- orka léttskýjað 25, Montreal’-.; hálfskýjað 26, New York létt- skýjað 26, París léttskýjað 19, Róm skýjað 25, Malaga heið- skirt 23, Vinskúr 15, Winnipeg skýjað 26. LOki segir Viö unnum Nigeriumenn I landsleiknum, en KSl tapaði -10 milljónum gkróna á leiknum. En kannski að þetta snúist við, þegar landsliðiö mætir Dönum á miövikudaginn. .Þetta er ðskhyggla h|á ráðamönnum ISAL’ - seglr Hlörleitur Gullormsson um ummæii Ragnars Haiidórssonar, aö coopers og Lybrand hafl mötmælt túikun ráðherra „Þetta er óskhyggja hjá for- ráöamönnum isal þvi eftir þvi sem ég best veit hefur engin at- hugasemd borist hingaö til ráöu- neytisins frá Coopers og Lybrand varöandi túlkun okkar á þeim gögnum, sem þeir hafa látiö okk- ur i té,” sagöi Hjörleifur Gutt- ormsson, iönaöarráöherra, þegar Visir bar undir hann frétt, er birt- ist á baksiöu Visis á laugardag- inn, þar sem haft var eftir Ragn- ari Halldórssyni, forstjóra ísal, aö hann vissi til þess aö slik at- hugasemd heföi verið send ráöu- neytinu. 1 fréttinni er meðal annars haft eftir Ragnari: „Mér er kunnugt um, að endurskoðunarfyrirtæki Coopers og Lybrand hefur mót- mælt skriflega vissum atriöum, sem iðnaðarráðherra hafði gefið opinberar yfirlýsingar um.” Enn- fremur kemur fram að Coopers og Lybrand hafi ekki viljað stað- festa ummæli, sem fram hafi komið I fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu sem send var fjölmiðlum 16. júli siöastliöinn, og sagt að þar hafi verið um ranga túlkun iðnaðarráðherra að ræða. „Ég hef þessar upplýsingar frá fulltrúum Coopers og Lybrand, sem hér voru á ferð i byrjun ágúst. Þessir fulltrúar, Mr. Gil- bert og Mr. Weiss, lýstu þessu yf- ir munnlega við endurskoðendur isals,” sagði Ragnar þegar hann var nánar inntur eftir heimildum frásagnar hans. „Það er ekki venja endurskoð- enda að gefa fjölmiðlum upp það sem þeim fer á milli i einkasam- tölum,” sagði Eyjólfur K. Sigur- jónsson, annar endurskoðenda Isals, þegar Visir bað um stað- festingu á ummælum Ragnars, ,,en ég get sagt það að það kom fram i máli fulltrúa Coopers og Lybrand að þeir voru mjög undr- andi yfir þvi hvernig skýrsla þeirra hafði verið notuð af ráðu- neytinu. Þar hefði vissum atrið- um verið slegið upp án þess að gera grein fyrir nauðsynlegum forsendum.” —TT. Enn stendur stríöiö um lokunartíma verslana og bregða kaupmenn á ýmis ráð til að sinna þörfum viðskiptavina sinna. Verslunarmaðurinn Árni Einarsson i sam- nefndri verslun í Vesturbænum tók upp það nýmæli á laugardag að lána viðskipta- vinunum vörur út um dyrnar, en lögreglan, sem hélt vörð í dýrum verslunarinnar, fékk ekkert að gert og lokaði því augunum fyrir lánaversluninni. KÞ/Vísism. Þráinn. Kaninn sækir sjúkan Rússa Þyrla frá Varnarliðinu sótti sjúkan sovéskan sjómann um borð i sovéskan verksmiðjutog- ara um hádegi i gær. Skipið var statt um 250 sjómilur SV af Reykjanesi og eftir rúmlega fimm stunda flug lenti þyrlan klukkan 17.15 á þyrluvellinum við Borgarspitalann. Sjómaðurinn var með alvarlegan nýrnasjúk- dóm, en ekki fengust upplýsingar um liðan hans i morgun. Ósk um að sækja sjómanninn barst Slysavarnarfélaginu klukkan hálf þrjú á laugardaginn. Skipið Vyborgskaja Storona var þá statt um 450 sjómilur SV af Reykjanesi. Vegna veðurs var aðgerðum frestað þangað til á hádegi i gær og fór sem fyrr sagöi, þyrla frá varnarliöinu og með henni læknir. Veður var þá þokkalegt, þar sem skipið var, utan þaö að öldugangur var mik- ill, en vel gekk að flytja manninn i þyrluna. Eldsneytisvél af Herkules gerð fylgdi þyrlunni, en hún þurfti að taka eldsneyti tvisvar á leiðinni. __________________— HPH. Bakkið gengur slysalaust Hallgrimur Marinósson hefur haldið ótrauður áfram hringferð sinni um landið á öfugum bil og i nótt gisti hann á Hótel Reynihlið við Mývatn. 1 morgun hélt hann áfram til Akureyrar og verður þar um hádegisbil. A morgun verður Blönduós áfangastaðurinn en ferðinni mun ljúka I höfuð- borginni á föstudag. —TT. Upptökur á kvennamyndinnl að hefjast: „HLAKKA TIL ÞESSA VERKEFNIS - segir Julíe Chrlstle Hingaö til landsins er kominn hópur enskra kvikmyndageröar- rnanna, sem dveljast mun hér- lendis til mánaöarloka til aö taka upp hluta úr kvikmynd, sem fjall- ar um konur. Allt starfsfólk myndarinnar eru konur. En þaö sem mesta athygli kann aö vekja hér, er aö annaö aöalhlutverkiö er i höndum leikkonunnar Julie Christie og er hún með i förinni nú. Hópurinn kom á laugardaginn og ók samdægurs ppp I Húsafell i Borgarfiröi, en þar verður gist meðan á dvölinni stendur. Hópurinn hélt blaðamannafund i Reykjavik strax eftir komuna til landsins. Þar var Sally Potter, leikstjóri og einn þriggja höfunda handrits i forsvari. Sagði hún myndina segja frá tveimur kon- um, Ruby, leikin af Julie Christie og Celeste (leikin af Colette La- font). Sá hluti myndarinnar, sem tek- inn verður hér, er gullæðishlutinn meö Julie Christie i öndvegi. Hvers vegna var ákveðið að mynda þann hluta hér? Kvik- myndatökumaðurinn, Babette Mangolte, varö fyrirsvörum. Landslagiö hér minnti á þær auðnir, sem veriö hefðu sögusvið gullæðisins, andstæður birtu og skugga þjónuðu enn fremur til- gangi þess táknmáls, sem þær óskuðu eftir. Fyrst sinnar tegundar A blaðamannafundinum kom fram, að þetta yrði fyrsta enska kvikmyndin i fullri lengd, sem gerð er eingöngu af konum. Sally Potter var spurð, hvers vegna Julie Christie heföi orðið fyrir valinu,til þess aö trekkja áhorfendur eða vegna tengsla hennar við málstað kvenna? Svarið var skýrt og skorinort: „Við völdum frk. Christie vegna þess, aö hún er góð leikkona, en einnig vegna þess, að andlitið er vel þekkt og myndar þannig eina af þeim tilvitnunum, sem viö leituðum eftir.” Julie Christie var spurð, hvort hún hefði þegar rekiö sig á mun- inn á þvi að vinna með konum að- eins, og sagði hún hann vera aug- ljósan. „Maður þarf ekki að út- skýra viðhorf sin sem konu, þau eru tekin sem sjálfsagður hlut- ur.” Hún sagðist hlakka til þessa verkefnis, það yrði kærkomin til- breyting frá þvi sem hún væri vön. Julie Christie hefur nýlokið við gerð franskrar myndar og hefst handa að nýju strax aö lok- inni töku kvennamyndarinnar við! aðra. „Ariö framundan er full-■ bókaö”, sagði hún. —MS.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.