Vísir - 27.08.1981, Side 8

Vísir - 27.08.1981, Side 8
8 Fimmtudagur 27. ágúst 1981 vtsm r-v-vjP Urgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. 'Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarf réttastjóri: kjartan Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- ,drup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaöurá Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig-■ mundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés- son. utlitsteiknun: Magnús Olafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur Jónsson. .. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrif stofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Áskrif targjald kr. 80 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 5 krónur eintakið. Vísir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14. Húsnæðismiðlun fllDVðudandaiagsíns Umræður um mikinn húsnaeð- isvanda í Reykjavík hafa valdið miklu írafári í herbúðum Al- þýðubandalagsins í borginni. Nú á að rjúka upp til handa og fóta, kaupa 20 notaðar íbúðir og breyta þeim í leiguhúsnæði sem borgin leigi síðan út. Jafnframt vill Al- þýðubandalagið koma á fót leigumiðlun á vegum Reykjavík- urborgar og helst fasteignasölu líka. Alþýðubandalagið hefur þegar tekið að sér að skammta félögum verkalýðshreyf ingar- innar laun og íbúðarhúsnæði að stórum hluta með sívaxandi áherslu á byggingu verkamanna- bústaða. Nú vill Alþýðubanda- lagið líka yf irtaka leigumiðlun og fasteignasölu og eflaust vill flokkurinn þá einnig taka að sér úthlutanir á fatnaði og mat til borgarbúa. Kerfiðskal vera með nefið ofan í hvers manns koppi. í sjálf u sér er ekkert við það að athuga, að Reykjavíkurborg festi kaup á 20 íbúðum og leigi út til viðbótar þeim 900 íbúðum sem borgin á fyrir. Það er í hæsta máta eðlilegt að borgin eigi íbúð- irog leigi sínum skjólstæðingum. En það er hins vegar í hrópandi mótsögn við hið ríka einstakl- ingseðli Islendinga, að ætla að leggja æ meiri áherslu á að al- menningur búi í leiguhúsnæði eða sérstökum verkamannablokkum, einsog Alþýðubandalagið stefnir að. islendingar hafna siikri kerf- isforsjá. Eftir að farið var að verð- tryggja lán geta menn ekki leng- ur látið verðbólguna um að eyða þeim skuldum sem stofnað er til við kaup á íbúðum eða byggingu nýrra. Fyrir nokkrum árum var það engum áhyggjuefni að steypa sér í skuldir langt um- f ram það sem skynsamlegt sýnd- ist þegar íbúðarkaup voru annars vegar. Vextir voru stórlega nei- kvæðir og fáir gerðu sér rellu út af þvi, þótt aldraðir væru á fáum árum rændir öllu því,sem nurlað hafði verið saman til elliáranna. AAikið var byggt á kostnað spari- fjáreigenda, sem að miklum hluta voru gamalt fólk. AAeð raunvöxtum og verðtryggingu útlána gerbreyttist þetta í einu vetfangi og nú óar fólki við að steypa sér í stórskuldir, hefur hreinlega ekki efni á því. Al- mennar íbúðabyggingar dragast því óhjákvæmilega saman nema gripið verði til ráðstafana í því skyni að létta undir með þeim er kaupa eða byggja sér íbúðir. Alþýðubandalagið vill leysa þessi mál með því að hið opin- bera byggi leiguíbúðir upp á líf og dauða fyrir þá. sem ekki geta byggt. Hinir sem vilja byggja eiga að fá langtímalán er nemur 80 - 90% af kaupverði, svo fremi að kaupendur séu svo illa launað- ir að þeir hafi vart til hnífs og skeiðar. AAeð þessu móti hyggst Alþýðubandalagið halda óánægju láglaunafólks í skef jum. Það fær ekki keypta íbúð nema það sé á sultarlaunum og mætti halda að þeir hjá Vinnuveitendasamband- inu haf i hvíslað þessu snjallræði í vinstra eyra Alþýðubandalags- ins. Auðvitað verður að breyta þessu kerfi á þann veg að allir sem vilja kaupa íbúð eða byggja, fái lán til 30 - 40 ára er nemi allt að 90% af kaupverði eða bygg- ingarkostnaði. AAeð fullri verð- tryggingu þessara lána verður f jármagnsútveg un ekkert vandamál. Hafði raunar verið mörkuð stef na í þessa veru þegar Svavar Gestsson settist í stól fé- lagsmálaráðherra. Beið hann ekki boðanna, heldur knúði í gegn breytingar í anda Alþýðubanda- lagsinstil þessað koma í veg fyr- ir eflingu Byggingarsjóðs ríkis- ins. AAeð því að svelta hið al- menna veðlánakerfi hyggst rík- isstjórn Alþýðubandalagsins herða tökin á verkalýðnum með því að skammta honum íbúðir gegn því að hann sætti sig við lág laun. Þeir sem brjótast undan láglaunaokinu geta svo valið um það að leggja á sig drápsklyfjar skammtímalána við ibúðakaup, eða leita á náðir leigumiðlunar Alþýðubandalagsins. Biasiö iii orrustu AAagnús Bjarnfreðsson skrifar um væntanlegt formannskjör á næsta landsfundi Sjálfstæðis- flokksins og spáir endur- kjöri Geirs Hallgrímsson- ar. En erfiðleikarnir bíði samt bak við næsta horn. „Það er nú einu sinni svo að það er erfitt fyrir mann að reka af sér slyðruorð í pólitík, hvort sem hann á það skilið eða ekki", segir AAagnús í grein sinni. Um hclgina birtist grein i Morgunblaöinu eftir Gisla Jóns- son, menntaskólakennara á Akurcyri um væntanlegt for- mannskjiir i Sjálfstæöisflokkn- um. Þetta er merkileg grein fyrir margra hluta sakir. i fyrsta lagi er hún hreint sniildarverk, hvaöa skoöun sem menn hafa á þvi máli, sem um er fjallaö. Það þarf raunar eng- um aö koma á óvart, þvi Gisli er mikill snillingur I meöferö is- lensks máls og þar aö auki húmoristi og baráttumaöur i senn. Kollegar hans i kennara- stétt mættu gjarna láta nem- endur sina lesa þessa grein aftur og aftur til þess aö sýna þeim, hvernig setja má skoö- anir fram hispurslaust og tæpi- tungulaust og setja kjarna skoö- ananna i dagsljósiö án þess aö vefja hann i þungar umbúðir. En trúlega er Gísli ekki aö skrifa um formannskjör i rétt- um flokki til þess aö svo megi veröa! Herhvöt í öðru lagi er grein Gísla merkileg fyrir þá sök að hann blæs til orrustu, kastar striös- hanskanum fyrir landsfund Sjálfstæðismanna. Margar greinar hafa verið skrifaöar um sama efni af fólki, er hefur svip- aðar skoðanir og GIsli á Jieim vandamálum, sem Sjálfstæðis- flokkurinn á viö að glima, án þess að þær hafi komið sliku róti á hugi manna og hans grein. Þær hafa einhvern veginn verið loömullulegar lofritgerðir, flestar hverjar, hallelúja án þess að menn vissu fyrir hverju væri hrópaö. Þar skilur á milli snillingsins og hinna viljugu og velmeinandi flokks- puðara. Hér skal ekki fleiri orðum farið um grein Gisla. Hún er listaverk, sem verður aö tala fyrir sig sjálft. Fleira mun þó þurfa til en greinina eina til þess aö leiöa vandamál Sjálfstæðisflokksins til lykta. Ekkert formannskjör er heldur eitt fært um það, hver svo sem kosinn veröur og hversu mikil samstaða sem kann aö myndast um nýjan for- mann á landsfundinum. Það viðurkenna að ég held allir Sjálfstæðismenn. Hinum ný- kjörna formanni verður mikill vandi á höndum, hver sem hann verður. Geir vafalausf formaður Þótt ég taki svona til orða er ég þó næsta viss um að Geir verði áfram formaður flokksins. 1 fyrsta lagi hefur æðsta stjórn flokksins svo mikil völd við val fulltrúa á landsfund aö vonlitiö er fyrir menn, sem ganga i ber- högg við hana, að smala þangað miklu fylgi. í ööru lagi verður ekki komið auga á það að for- mannsskipti myndu ein sér leysa nokkur vandamál flokks- ins. Eftir sem áður rikir djúp- stæður ágreiningur um afstöðu til rikisstjórnarinnar og það er fásinna að sleppa þvi að ágrein- ingurinn er lika um afstöðu til málefna, framtiðarþróunar þjóðfélagsins. Um margt virð- ast andstæðingar og stuðnings- menn rikisstjórnarinnar innan raða Sjálfstæöisflokksins vera sammála, en þaö dylst engum að þeir eru lika ósammála um marga hluti. Báðir þessir armar eru ihaldssamir. Þeir vilja hægfara breytingar á ýmsum sviðum þjóðlifsins, ef nokkrar. Að stjórna er að veita viðnám, gætu veriö einkunnarorð þeirra beggja. Þeir virðast samstiga i þvi að láta úrelt lög og reglur halda sér í þjóöfélaginu og vilja miklu heldur loka augunum fyrir þvi að þau séu þverbrotin en breyta þeim, og eiga þvi ekki svo litla sök á þvi upplausnar- ástandi og litilsvirðingu fyrir lögum og rétti, sem vaða uppi i þjóðfélaginu. 1 efnahagsmálum greinir þessa arma þó verulega á. Annar armurinn er sjálfum sér samkvæmur þar og vill láta allt dóla i hefðbundnu fari en hinn er mun róttækari og vill gera harkalegar breytingar. Sá armur styður Geir, en skoðanir hans i efnahagsmálum hafa ekki fengið hljómgrunn meðal kjósenda. Er ekki fráleitt að formaðurinn gjaldi þess nokk- uð, þegar rætt er um endurkjör hans. Hvernig formaöur? En hvernig formaöur hefur Geir reynst og hvernig mun hann reynast? Fortiðin er ljós. Honum hefur ekki tekist aö sætta striðandi öfl innan flokks- ins, en sennilega er rangt að kenna honum einum um það. Liklega hefur það veriö á einsk- is manns færi, eins og allt er i pottinn búið. Hann hefur leitt flokkinn til mikilla sigra, en einnig verið leiðtogi hans, þegar illa hefur gengið. Hvoru tveggja hefur hann tekið með jafnaöar- geði. Um heiðarleika hans og einlægni sem manns verður ekki deilt. Um hitt má fremur deila, hvort hann hafi til að bera þá snerpu og á stundum hörku, sem formaður stórs stjórnmála- flokks þarf að geta beitt hvenær sem er. Þá leikur einnig vafi á þvi að hann hafi ávallt valið sér heppilega ráðgjafa,.hvort held- ur er varðandi almannatengsl eöa stjórnarathafnir. „Pýra- midakerfiö”, sem gafst vel i í#)orgarstjóratið hans, þegar hann gat alltaf reitt sig á mjög vel hæfa skoðanabræður i embættismannastétt, gafst ekki eins vel, þegar hann þurfti að skipta við andstæöinga i hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins sem forsætisráðherra. Úr þvi hvernig formaður Geir reynist, verður framtiðin að skera. Vafalaust hefur hann margt lært, enda maðurinn vel greindur og þar að auki sáttfús að eðlisfari. Erfiðleikarnir biða samt á bak við næsta horn, rétt eins og þeir hafa verið. Það er nú einu sinni svo að það er erfitt fyrir mann aö reka af sér slyöruorð i pólitik, hvort sem hann á það skilið eða ekki. Geir hefur óneitanlega fengið það á sig, bæði vegna hikandi aðgeröa i eigin flokki og i stjórnarat- höfnum, þegar ólöglegum aö- geröum og óheiðarlegum áróðri var miskunnarlaust beitt til þess að brjóta niður það, sem hann freistaði aö byggja upp. i þeirri gagnrýni sameinuöust bæði fylgismenn og andstæö- ingar. Vafalaust fær Geir nokkur at- kvæði i formannskjöri út á þaö eitt, að engin önnur lausn sé sjáanleg. En það er spá min að þrátt fyrir allt muni honum takast sem endurkjörnum for- manni að rétta nokkuð viö það álit sem hann með réttu eða röngu nýtur. Til þess hefur hann bæði hæfileika og buröi, ef hann lætur sjálfstæða dómgreind sina eina ráða gjörðum sinum. Magnús Bjarnfreðsson

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.