Vísir - 24.09.1981, Blaðsíða 4

Vísir - 24.09.1981, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 24. september 1981 ,W«V,/.V,.V.WA*iVíV>’M,AV/iW«’«,«V.V.Vi Til solu W.’.V.V.V.V I I I Chevrolet Citation Hatchback árg. 1980 nýinn- fluttur, 2ja dyra, gulur, til sölu, ekinn aðeins 4 þús. km. Bíllinn er með eftirtöldum búnaði: V-6 vél, sjálfskiptingu, vökva- og veltistýri, raf magnsrúðum, sjálf virkrí hraðastillingu (cruise-control), sportdekkjum og felgum, lit- uðu gleri, útvarpi og Bucket-sætum. Skipti möguleg og lán til skamms tíma. 77/ sýnis og sö/u á: m l 4 BILASALAN BUK s/f SlÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK SÍMI: 86477 öl ' t||9S I 1 ••! ■•• ?— ( II o ■ ■■•■ ■■■•■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ •■■■■ ■■•■■ •■■■■ IMU ■■•■■ ■■■■■ ■■•■■ ■■■■ | Vilt þú selja hljómtæki? Við kaupum og seljum Hafið samband strax UMHODSSALA MED SKÍDA VÖRUR OG HU( iFLUTNINUSTEKI ::::: GHENSÁSiŒGl 50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290 p ::::::::::::::::::::: :ai:::::::::::::::::u:::::::::::::::::;;:::;i:::::;H•:::: Nýir umboðsmenn /r-'V Gcenivík Guðjón Hreinn Hauksson Túngata 23 Sími 96-33202 Flateyri Þorsteinn Traustason Drafnargata 17 Sími 94-7643 Tálknafjörður Unnur Sigurðardóttir Túngata 30 Sími 94-2527 vtsm aðutan Fulltrúadeild Bandarikjaþings afgreiddi ifyrradag ályktun, sem fól i sér, aö sænski diplómatinn, Raoul Wallenberg, sem týndur er i þrælabúðaeyjaklasa Sovétrikj- anna, verði gerður að heiðurs- borgara Bandarikjanna. Wallenberg bjargaði meir en 100 þúsund manns undan böðlum nazista i siðari heimstyrjöldinni. Það hefur einungis einn maður annar verið gerður heiðurs- borgari Bandarikjanna. Sá var sir Winston Churchill. t ályktuninni var Reagan for- seta falið að leita upplýsinga um Wallenberg hjá Sovétmönnum, þótt sovésk yfiryöld hafi áður sagt, að Wallenberg hafi dáið i soveáku fangelsi 1947. Var forset- inn hvattur til þess að fylgja eftir fréttum, sem siöan hafa borist út úr „gúlaginu” um, að Wallenberg hafi siöastséstá lifiifangelsi árið 1975. Oldungadeild þingsins var áður búinaö fjalla um ályktunina, sem þarf nú ekki annað en undirskrift Reagans til þess að öölast gildi. Wallenberg var kaupsýslumað- ur en geröist diplómat fyrir fóðurland sitt og var i erind- rekstri fyrir Sviþjóð, sem var hlutlaus i'siðari heimstyrjöldinni, þegar sovéska hernámsliöiö handtók hann i Búdapest 1945. Allar tUraunir Svia til þess að ná manninum út úr eyjaklasan- um strönduðu á þvi, að Sovét- menn viklu fyrst ekki við hann kannast, en sögðu hann siðan dauðan. Þó hafa itrekaðar fréttir borist af mönnum sloppnum úr þrælafangabúðum, er segjast hafa ýmist séð, eða hitt i eigin persónu Sviann Wallenberg og siöast 1975. Wallenberg lék á böðla gesta- pos með þvi að láta gyðingum og öðrum ofsóttum af nasistum i té sænsk vegabréf og tók á leigu byggingar i nafni Sviarikis til þess að skjóta skjólshúsi yfir flóttafólkið. Hann beitti einnig áhrifum sin- um til þess aö leppstjórn nasista i Ungverjalandi bætti meðferðina á gyðingum og rdmversk- Raoul Wallenberg, sænski diplómatinn, sem týndist I „gulag” — eyjaklasanum f Sovétinu, veröur gerður að heiðursborgara i Banda- rikjunum og Reagan forseta faiið að þrýsta á sovésk yfirvöld i eftir- grennslan um afdrif hans. kaþólskum. Sömuleiöis er honum þakkað það, að Adolf Eichmann fékk ekki komið fram áformum sinum um að jafna við jörðu gyö- ingahverfið i Búdapest (þar sem bjuggu 70 þúsund gyðingar), eins og hins vegar var gert i ghettóinu i Varsjá. Samþykktu að gera Wallenberg að helð- ursdorgara l USA Stjúrnarskrármálið i Ranafla fyrir hæstarétl Hæstiréttur Kanada tekur til umfjöllunar á mánudaginn spurninguna um það, hvort áætl-, un Pierre Trudeau forsætisráð- herra um að flytja hina alda- gömlu stjórnarskrá Kanada heim frá Bretlandi eigi viö lög að styðj- ast. Það er raunar ekki aöeins heimsending stjórnarskrárinnar, sem er i brennideplinum. Heldur ýmsar stjómlagabreytingar, sem Trudeau vill koma fram, en átta af tiufylkjum Kanada hafa and- mælt. Sumar fylkisstjómir kæröu fyrirhugaðar stjórnarskrárbreyt- ingar fyrir héraðsdómþingum. t tveim slikum málum (af þrem) voru breytingar Tmdeaus stað- festar. Þaö eru áfrýjanir á þeim niðurstöðum, sem hæstiréttur tekur til meðferðar. Verður réttarhaldinu sjónvarp- að beint úr hæstaréttiog búist við, að margir veröi fyrir framan skjáinn, þegar sú útsending fer fram. — Nema Trudeau sjálfur, sem verður i opinberri heimsókn i Suöur-Kóreu. Sjalfur torsljorinn braut reglurnar Ýmsir af fyrrverandi erind- rekum bandarisku leyniþjónust- unnar CIA hafa orðið til þess að skrifa bækurum „fyrirtækið”, og sum skrifin hafa verið i fullkom- inni óþökk leyniþjónustunnar og yfirvalda vegna uppljóstrana. Voru sumir sóttir til saka fyrir og dæmdir i töluverðar peninga- greiðslur. Nú hefur William Colby, fyrr- um forstöðumaöur CIA bætst i þann hóp, sem dómsmálaráðu- neytið bandariska þykir hafa gengið of langt i bersöglinni. Eða réttara sagt vill sækja til sektar fyrir að hafa gefið út minningar sinar, án þess að leita áður sam- þykkis og blessunar leyniþjónust- unnar, eins og gert hefur verið að lagaskyldu. Bók Colbys heitir „Heiöurs- menn” og fjallar að miklu leyti um þann kafla ævi hans, þegar hann varyfirmaðurCIA. Colby er sagður hafa brotið það af sér, að bókarhandritið lét hann í hendur fransks útgefanda, áður en leyni- þjónustan fékk tækifæri til þess að sjá handritið og krefjast þess að stöku málsgreinar yrðu strik- aðar út. Var það aðallega i kafla, sem fjallar um árangurslausar tilraunir CIA til þess aö ná upp einhverjum dularfullum leyniút- búnaði úr sokknum sovéskum kafbát. Sennilegt þykir, að mál Colbys komi þó aldrei fyrir dómstólana, heldur muni hann sættast á að greiða einhverja prósentu af ágóða bókarinnar til rikissjóðs. Þannig var farið að i máli Frank Snepp, fyrum erindreka CIA, sem hafði orðiö eitthvað ámóta á vegna útgáfu bókar hans, „Decent Interval”. m-------------► William Colby fyrrum yfir- maður bandarisku leyniþjón- ustunnar, gerðist sjálfur brot- legur viö leyndarregiuna um CIA, þegar kom að honum aö gefa út æviminningar sinar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.