Vísir - 24.09.1981, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 24. september 1981
VÍSIR
9
Athugasemd vegna fréttar um námskeiö tyrir verðandi fiugumterðarstjóra:
Undanfarna daga
hafa allir fjölmiðlar
bókstaflega verið ,,fuil-
ir” af fréttum um hrið-
versnandi afkomu
sjávarútvegsins. Ein-
hverjir láta sér nú iik-
lega ekki bregða mikið
og segjast hafa heyrt
svipaðar sögur þegar
fiskverðsákvörðun er
að náigast og verið sé
að undirbúa jarðveginn
fyrir gengisfellingu. Er
þetta þá bara gamla
piatan?
Nokkrar tilvitnanir
1 Morgunblaðinu 19/9 segir
Kristján Ragnarsson, form.
LÍÚ, að fiskverð þurfi að hækka
um 13% til að hægt sé að reka
flotann á milli.
1 Visi sama dag segir Árni
Benediktsson formaður fisk-
framleiðenda i SIS: „Eins og
staðan er nú er frystingin rekin
með 6% halla en aftur á móti er
verulegur hagnaður á saltfiski
og skreið. En i heild er fisk-
vinnslan þó rekin með tapi”.
Magnús Ólafsson i Sjávarút-
vegsráðuneytinu segir i Alþýðu-
blaðinu þann 15/9 að hrikalegur
fjármagnskostnaður sé hjá nýj-
um fiskiskipum.
I Þjóðviljanum 20/9 segir
Ólafur Jónsson hjá Sjávar-
afurðadeild S.l.S. að þorskblokk
hafi lækkað um 8% frá þvi i júni.
Útvarpið hefur sagt frá
rekstrarvanda og stöðvunum
fiskvinnslufyrirtækja i flestum
landshlutum nú að undanförnu.
1 sjónvarpinu þann 19/9 var
talið að nýju togararnir þyrftu
að veiða allt að helmingi meira
til að endar næðu saman.
Dr. Jakob Magnússon, fiski-
fræðingur, hefur varað alvar-
lega við þvi að karfinn sé nú of-
veiddur en samtimis fréttist að
8000 tonn af karfaafurðum liggi
óseld hjá frystihúsum.
Svona mætti lengi telja, en
hvernig getur staðið á þessum
ósköpum þegar aflinn er með
þvi mesta, sem um getur og
meðalverð á mörkuðum senni-
lega aldrei verið hagstæðara?
„Hvað skal nú til varnar verða
vorum sóma”?
Gömlu „ihaldsúrræð-
in”
Það leikur varla nokkur vafi á
þvi að gengi krónunnar er orðið
rammskakkt rétt eina ferðina
og það verður eflaust fellt bráð-
lega, sjálfsagt of seint og of litið
eins og venjulega. Það er ekki
laust við það heldur að aðrar at-
vinnugreinar en sjávarútvegur-
inn hafi látið á sér skilja að
gengisskráningin væri ekki upp
á það réttasta. Iðnaðurinn hefur
alveggengiðfram af ráðherrum
með frekjulegum fundarhöldum
af þessu tilefni. Næsta gengis-
neöanmáls
ER HU M KOMA
AB SKULDADðGUM?
felling verður ekki „bara fyrir
sjávarútveginn” svona til til-
breytingar.
En gengisfelling er að verða
ákaflega tvieggjað vopn á þess-
um siðustu og verstu timum. öll
aðföng sjávarútvegsins þ.m.t.
olia, hækka nefnilega um leið,
og ein gengisfelling býður ann-
arri heim. Gengisfellingar
komaisamstæðuma.m.k. 2og 2
með stuttu millibili, sagði ein-
hver vis maður. Það kom 5%
gengisfelling upp úr þurru i
sumar og það kemur önnur,
sjálfsagt hærri, i haust og hún
dugar eflaust skammt lika. En
það er ekkert sem bendir til
þess að nein varanlegri úrræði
séu í undirbúningi.
Flotinn ósigrandi
Ingólfur Falsson, formaöur
Farmanna- og fiskimannasam-
bands tslands, átaldi stækkun
fiskiskipastólsins mjög i Mbl.
þann 13/9 s.l. Þetta hafa margir
fleiri (málsmetandi) menn gert
og það er eins og lang-flestir
landsmenn skilji það núorðið
mæta vel, að fiskiskipaflotinn er
orðinn alítof stór. Of stór floti
þýðir of hátt fiskverðsem þýðir
of mikiii framleiðslukostnaður
afurða, sem „reddað” er með
gengisfalli. Það er ömurlegur
vindmyllubardagi, sem háður
er við að bæta nýtingu, finna
nýjar afurðir, spara oliu (orku)
o.s.frv. Þetta er tilgangslaus
skæruhernaður. Flotinn er
ósigrandi eins og er og veröur
það i náinni framtiö.
Menn hafa svo sem reynt að
stöðva þennan ofvöxt fiski-
skipaflotans. Má þar nefna
slaginn um Barða NK, ævin-
týraskipið, sem kennt er við
Þórshöfn, og Raufarhöfn þar
sem Rauðinúpur liggur nú
bundinn, úreldingarsjóðinn,
nefndaálit um endurnýjun fiski-
skipastólsinsfrá i vorog nokkur
frumvörp Alþýðuflokksmanna ■
s.l. vetur. En þvi miður, þetta er
eins og að berjast við forynjur.
Þegar einn limur er stýfður
spretta tveir nýir i staðinn.
Náttúran gripur I
taumana fyrr eða siðar
Þegar Filippus Spánarkon-
ungur lagði til atlögu viö Eng-
lendinga um árið, snerust
náttúruöflin á sveif með Bret-
um. Óveður brast á, sökkti
mörgum skipum og tvistraði
flotanum ósigrandi, sem aldrei
bar sitt barr eftir það. Þvi
miður er ýmislegt, sem bendir
til þess að striðið við fiskiskipa-
flotann okkar vinnist heldur
ekki nema fyrir það að náttúran.
gripur i taumana, ekki kannski
með illu veðurfari, heldur með
viðkomubresti eins eða fieiri
fiskstofna. Ekki veit ég hvaö
menn hafa hugsað sér með
karfaveiðar á næsta ári, ef
stofninn er alvarlega á niöurleið
og afurðirnar seljast ekki
heldur. Varla fara menn að
verðbæta karía, sem landað er
þegar svo stendur á? Togararn-
ir liggja þá bara af sér skrap-
dagana enn meira en nú þegar
er gert.
Undanfarin ár hafa ungviðis-
rannsóknir fiskifræöinga leitt i
ljós, að ungþorskurinn hefur
spjarað sig betur en talið er
éðlilegt ár eftir ár. Ef þetta
endurtekur sig enn i haust þá
getum við kannski „dansað einn
hring enn” næsta ár en varla
fækkar skrapdögum með fjölg-
un togaranna og ekki lengist
vétrarvertiðin með tilliti til af-
kastaaukningar vertiðarflotans.
Það skiptir ekki máli hvort
Björn Dagbjartsson
forstjóri Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðar-
ins fjallar um afkomu
sjávarútvegsins og
varar enn við stækkun
flotans og ofnýtingu
fiskstofnanna.
heildarþorskaflinn I ár veröur
nær 460 eða 500 þúsund tonnum.
Hann veröur um eöa yfir þvi há-
marki sem menn hafa taliö aö
tslandsmið gætu mest gefiö af
sér til langframa. Þorskurinn
og allar aðrar botnfisktegundir
sem máli skipta eru ýmist full-
nýttar eöa ofveiddár þrátt fyrir
þær takmarkanir sem nú eru á
veiðunum.
Er til sjálfsvarnarkerfi
fyrir sjávarútveginn?
Það er heldur nöturleg til-
hugsun fyrir þá sem atvinnu
hafa af sjávarútvegi að ekki
verðihætt að auka við skipastól-
inn fyrr en einhver af nytjafisk-
stofnunum hrynur og hættir aö
veiðast. Það er eölilegt, að þess-
ir menn séu íarnir að hugsa
alvarlega um aðferðir til að
verja lifskjör sin og íramtiðar-
atvinnu. Heildarkvóti og kapp-
hlaupið við sameigihleg viömið-
unarmörk bókstaflega kallar á
afkastameiri skip og stækkun
flotans.
Arni Benediktsson leiðir að
þvi rök i Visi, að þetta kapp-
hlaup við takmarkaðan veiðitima
og sameiginlegan heildarafla
leiði tii lakari gæða hráefnis og
afurða. Hann segist ennfremur
ekki sjá aðra leið vænlegri til
stjórnunar fiskveiöa en að
skipta afla niður á veiðiskip.
Þetta er hvort tveggja laukrétt
að minu mati.
Þegar ljóst var að loðnuveiðar
mundu dragast verulega saman
fyrir 2 árum, samþykktu út-
gerðarmenn (og sjómenn)
loðnuskipa, að skipta afla niður
á skip. Vegna þess að loðnuflot-
inn var þá þegar orðinn alltof
stór, kemur heldur litið i hlut
hvers skips. En þaö hefur ekki
bæst viö eitt einasta nýtt ioönu-
skip siöan. Þaö er ekki aö sjá
annaö en hagsmunaaöilar i
sjávarútvegi neyöist til aö gripa
til sömu ráöa gagnvart botn-
fiskflotanum og þvi fyrr þvi
betra fyrir þá og þjóöina alla.
„Full samstaöa milli ráðu-
neytis, stofnana og
Eftirfarandi grein var send VIsi
vegna frétta um námskeið fyrir
flugumferöastjóra. Enda þótt
greinarhöfundur segi aö mis-
skilnings gæti i fréttinni telur VIs-
ir sig hafa fullar heimildir fyrir
henni.
t blaðagrein i Visi 22. þ.m. und-
ir fyrirsögninni,,Kurr hjá flug-
málastjórn vegna þess hvernig
staðið er að námskeiði fyrir flug-
umferðarstjórn”, kemur fram
misskilningur varðandi væntan-
legt grunnnámskeið fyrir verð-
andi flugumferðarstjóra, og ósk-
ast þvi eftirfarandi birt i blaði yð-
ar.
1. Auglýst var eftir umsækjend-
um á fyrirhugað grunnnám-
skeið i flugumferðarstjóm i
Lögbirtingarblaðinu i byrjun
þessa mánaðar. Ekki var talin
nauðsyn á frekari auglýsingu,
þar sem aðeins er um örfá
stöðugildi aö ræða, og vegna
takmarkaðs fjölda á grunn-
námskeiðinu, þar eð innan
stofnunarinnar eru til staðar
starfsmenn, er unnið hafa við
tengd störf er uppfylla tilskilin
skilyrði og áhuga hafa á þátt-
töku i grunnnámskeiðinu.
2.Samkvæmt reglum um tilhögun
á námi i flugumferðarstjórn,
ber forsvarsmönnum flugum-
ferðarþjónustu að velja nem-
endur til grunnnáms i flugum-
ferðarstjórn, en sfðan geri
nefnd tiltekinna aðila tillögu til
flugmálastjóra um hverjir
haldi áfram námi til fullra
starfsréttinda aö grunnnámi
toknu, og ber þá m.a. að taka
tillit til námsárangurs og um-
sagna um nemendur.
3. Endanleg ráðning nýrra flug-
umferðarstjóra fer fyrst fram,
þegar viðkomandi hafi stað-
ist tilskilin próf (3-4 ár). Sam-
kvæmt gildandi reglugerö ann-
ast vamarmáladeild utanrikis-
ráðuneytisins ráöningar flug-
umferðarstjóra til Keflavikur-
flugturns, enda þótt samgöngu-
ráðuneytið sé ábyrgt fyrir
þjálfun og störfum þessara
starfsmanna. Allir aðrir flug-
umferðarstjórar á landinu em
ráðnir til starfa af samgöngu-
ráðuneytinu.
4. Umsóknarfrestur rennur út
n.k. föstudag og þvi ekki ljóst
hverjir umsækjendur eru, né
skyldleiki og tengsl þeirra við
forstööumenn flugumferðar-
þjónustunnar. Að sjálfsögöu
má oft búast við slikum skyld-
leika og tengslum i landi fá-
mennisins, hins vegar er einnig
á þaö aö lita, að enn er það ekki
talið sjálfgefið að skyldleiki eða
tengsl útiloki einn eða neinn frá
starf i.
Hvað varðar fyrirsögn Visis-
greinarinnar þá er það viðs fjarri
að kurr sé hjá stofnuninni vegna
framkvæmdar námskeiðsins. I
fyrsta lagi hefst það ekki fyrr en
um eða eftir miðjan næsta mán-
uð, i öðm lagi var full samstaöa
milli ráðuneytis, stofnunar og
fagfélags um þær reglur er nú
gilda um tilhögun þessa náms, og
i siðasta lagi hafa umsóknir enn
ekki verið opnaðar, né afstaða
tekin til þeirra, þar sem umsókn-
arfrestur er ekki enn útrunninn.
Reykjavik 23.9. 1981
Haukur Hauksson
Framkv.stjöri flugöryggisþjón-
ustu
ErustGislason
Y firf lugum feröars t jóri þjálfunar