Vísir - 24.09.1981, Page 20
24
VtSLR
Fimmtudagur 24. september 1981
Máiara-
list mið-
alfla-
meist-
aranna
Nú geta áhugamenn um
málaraaðferðir gömlu meistar-
anna frá miðöldum glaðst, þvi
Sigurður Eyþórsson, lLstmálari,
mun i þessum mánuði og næsta
halda námskeið i þeim fræðum
fyrir þá sem áhuga hafa. Mun
hann leggja sérstaka áherslu á
oliuliti og hið svonefnda egg
tempera, sem er fólgið í að nota
eggjarauðu sem litbindiefni og
gafst það gömlu meisturunum
vel.
Þetta er i fjórða sinn, sem
Sigurður heldur námskeið af
þessu tagi. Hann hélt þrjú i fyrra
og voru þau öll vel sótt.
Námskeið Sigurðar i málara-
aöferðum gömlu meistaranna er
haldið i Borgartúni 19 á þriðju
hæð. en þangað geta áhugasamir
litið 'in i' dag og á morgun milli
kl. \7 21 og á laugardag miili kl.
14-17 og kynnt sér námskeiðið. Og
ekki er verra að þeir mæti með
eitthvað af eigin myndverkum, að
þvi er Sigurður segir.
A meðfylgjandi mynd má sjá
miðaldamálverk, málað með oliu
og egg tempera-tækni.
—jsj.
Fáar sýningar eftir:
Olvitinn í iðnó
briðja árið i röð
- áhorfendur orðnir um 36.000
1 kvöld verður Ofvitinn eftir
Þórberg Þórðarson og Kjartan
Ragnarsson sýndur i 163. sinn hjá
Leikfélagi Reykjavikur, og er
sýningin fyrir löngu komin i hóp
vinsælastu sýninga leikhússins.
Hún hlaut enda afbragðs við-
tökur bæði gagnrýnenda og
annarra leikhúsáhorfenda, og
þykir hún með ferskari viðburð-
um i islensku leikhúslifi, en
Kjartan Ragnarsson, sem samið
hefur handritið upp úr sjálfsævi-
sögu Þórbergs frá árunum 1909-
-12 er jaíníramt leikstjóri Ofvit-
ans.
Sextán leikarar koma fram i
sýningunni, og leika þeir flestir
fleira en eitt hlutverk, en aðal-
hlutverkin eru i höndum Jóns
Hjartarsonar og Emils Gunnars
Guðmundssonar. t vor tök Sigrún
Edda Björnsdóttir við hlutverki
Lilju Þórisdóttur og nú i haust
tekur Aðalsteinn Bergdal við
hlutverki Haralds G. Haralds-
sonar.
Leikmynd við Ofvitann gerði
Myndin er úr einu atriða Ofvitans
eftir Þórberg og Kjartan.
Steinþór Sigurðsson, og tónlist
Atli Heimir Sveinsson.
Vert er að taka fram, að ein-
ungis verða sýndar örfáar
sýningar á Ofvitanum, og er þvi
þeim sem af einhverjum á-
stæðum hafa dregið að sjá
sýninguna eða þurft frá að hverfa
vegna hinnar gifurlegu aðsóknar,
ráðlagt að geyma það ekki öllu
lengur.
—jsj.
Rasmus Kiumpur kominn á bók
SMIDAR
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefiö út tvær litprentaðar
teiknimyndabækur i bókaflokkn-
um um Rasmus Klump og félaga.
Nefnast þær Rasmus Klumpur
smiðar skip og Rasmus Klumpur
skoðar pýramida.
Höfundar bókanna um Rasmus
Klump eru þau Carla og Vilhelm
Hansen, en Andrés Indriðason
þýddi textann á islensku.
Teiknimyndabækurnar um
Rasmus Klump og félaga hans
hafa veitt milljónum barna um
allan heim ótal ánægjustundir, og
mörg islensk börn munu kannast
við undraveröld þessara yndis-
legu sakleysingja úr bæði Þjóð-
viljanum og Æskunni, þar sem
sögurnar hafa oft birst sem fram-
haldsþættir á undanförnum ár-
um.
! útvarp
Fimmtudagur
24. september
| 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
j kynningar.
| 12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
j fregnir. Tilkynningar. Tón-
j leikar.
| 14.00 (Jt i bláinn. Sigurður
• Sigurðarson og örn Peter-
• son stjórna þætti um ferða^
lög og útilif innanlands og
J leika létt lög.
J 15.10 Miðdegissagan: ,,Fri-
dagur frú Larsen” eftir
Mörthu Christensen.
16.20 Síðdegistónleikar: Tón-
list eftir Felix Mendelssohn.
17.20 Fuglinn segir bi bi bi.
Heiödis Norðfjörð stjórnar
barnatima frá Akureyri.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 A vettvangi.
20.05 Kinsöngur i útvarpssal.
Anna Júliana Sveinsdóttir
syngur lög eftir Tsjai-
kovský, Chopin, og Dvorák.
Marina Horak leikur með á
pianó.
20.40 Rugguhesturinn
Leikriteftir D.H. Lawrence.
Þýðandi: Eiður Guðnason.
Leikstjóri: Klemenz Jóns-
son.
21.45 „Astarbréfiö”. Kolbrún
Halldórsdóttir les smásögu
eftir Fletcher Flora i þýð-
ingu Asmundar Jonssonar.
22.00 Fjórtán Fóstbræður
syngja létt lög með hljóm-
sveitarundirleik.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Sáttmáli við samvisk-
una. Þáttur frá UNESCO
um skáldið Anton Tsjekhov.
Gunnar Stefánsson þýddi.
Flytjendur með honum:
Hjalti Rögnvaldsson,
Knútur R. Magnússon og
Margrét Guðmundsdóttir.
23.05 Kvöldtónleikar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Það er Klemenz Jónsson, sem
leikstýrir „Rugguhestinum”.
Margrét Guðmundsdóttir leikari Guðmundur Klemenzson leikan
Fimmtudagsleikrmð
Róbert Arnfinnsson leikari
..Rugguhestup" Lawrence
Fimmtudagsleikritið heitir
„Rugguhesturinn” eða „Rocking
Horse Winner” og er eftir D.H.
Lawrence.
„Rugguhesturinn” segir frá
Páíi litla Carter, sem er sérstök-
um hæfileikum gæddur, en taum-
laus fégræðgi fjölskyldunnar
brenglar sálarlif drengsins með
hörmulegum afleiðingum. Leik-
fangið hans, rugguhesturinn er
honum athvarf, uns það þyrlar
honum inn i hringiðu óbliðra ör-
laga.
Höfundurinn Davið Herbert
Lawrence var enskur fæddur i
Eastwood 1885. Að loknu námi við
háskólann i Nottingham gerðist
hann kennari i London 1908. Hann
varð þó að hætta kennslu þremur
árum seinna, er hann veiktist af
berklum, sem urðu fylgifiskur
lítvarp klukkan 16.20
Mendeissohn á
síðdegistónleikunum
A siðdegistónleikunum i dag
verður flutt tónlist eftir Mendels-
sohn. Verður leikinn Pianókon-
sert nr. 1 i g-moll op. 25 og
Sinfónia nr. 3 i a-moll op. 56. Það
eru Rodolf Serkin og
Columbia-sinfóniuhljómsveitin
sem leika undir stjórn Leonards
Bernstein.
Felix Mendelssohn var þýskur
og fæddist i Hamborg 1809. Hugur
hans beygðist snemma til pianó-
leiks og var hann aðeins 9 ára,
þegar hann fyrst kom fram á
tónleikum i Berlin. Hann nam
pianóleik hjá Zelter nokkrum,
frægum tónlistarmanni, og góð-
vini Goethes og þess vegna varð
þeim Goethe og Mendelssohn
mjög vel til vina og dáðist sá
síðarnefndi að þeim fyrrnefnda.
Mendelssohn var ekki gamall
þegar ljóst var orðiö að hér var á
ferðinni mikill tónlistarmaður,
enda helgaði hann tónlistinni allt
sitt lif og samdi reiðinnar býsn af
tónverkum. Hann lést árið 1847.
hans til æviloka. Lawrence
feröaðist viða, bæði austanhafs og
vestan og dvaldi langdvölum i
Nýju-Mexikó á Italiu og i
Suður-Frakklandi. Fyrsta skáld-
saga hans „Hviti páfuglinn”, sem
kom út 1911 vakti athygli og um
leið hneykslun margra, þvi þar
ræðst hann á þröngsýni og tepru-
skap i kynferöismálum og boðar
frjálsar ástir. Þekktasta bók hans
er þó án efa „Elskhugi Laföi
Chatterley” en hún var vegna
efnisins á bannlista hjá yfirvöld-
um i fjölda ára. Lawrence sækir
efnið I flest verk sin til æsku-
stöðvanna I kolanámuhéruðin i
Englandi en i „Rugguhestinum”
þræðir hann að ýmsu leyti nýjar
brautir. Eftir Lawrence liggja
auk skáldsagna bæði ljóð, frásög-
ur og ritgerðir. Hann lést i Vence
nálægt Nissa árið 1930.
Það er Klemenz Jónsson sem
leikstýrir „Rugguhestinum”, en
Eiður Guðnason hefur þýtt verk-
ið. Með helstu hlutverk fara Mar-
grét Guðmundsdóttir, Guömund-
ur Klemenzson, og Róbert Arn-
finnsson. Er flutningstimi rúm
klukkustund.
Útvarpið hefur áður flutt tvö
leikrit byggð á sögum Lawrence
„Tengdadótturina” 1976 og „Ref-
inn” 1978
Fjórtán Fóstbræður syngja nokkur létt lög i útvarpinu I kvöld og hefst
söngurinn klukkan tiu.