Vísir - 16.10.1981, Síða 12
30 ára afmæiissýning íslensks heimilisiðnaðar
Fyrir þrjátiu árum, i
október 1951, stofnsetti
Heimilisiðnaðarfélag Is-
lands verslun sem hlaut
nafnið tsienskur heimil-
isiðnaður. Félagið rekur
nú verslanir á tveimur
stöðum i Reykjavik að
Laufásvegi 2 og Hafnar-
stræti 3 og hefur reyndar
gert um árabii. Formað-
ur félagsins er Jakobina
Guðmundsdóttir.
I tilefni af þrjátiu ára afmæli
verslunarinnar er nú efnt til sýn-
ingar i versluninni að Hafnar-
stræti 3. Unnið hefur verið að þvi i
nokkur ár að safna munum úr
safni Heimilisiðnaðarfélagsins
sem nú er orðið vísir að heimilis-
iðnaðarsafni. Aðaláhersla er lögð
á þrjú atriði, þar er jurtalitað
band, sjöl og hyrnur úr hand-
spunnu bandi og handprjúnaða
Jurtalitað band hefur alltaf verið
til sölu i versluninni og hefur eft-
irspurn aukist siðari árin, einnig
áhugi fyrir að læra jurtalitun. Hér
gefur að lita sýnishorn af jurtalit-
uðu bandi á afmælissýningunni.
Gerður Hjörleifsdóttir framkvæmdastjóri tslensks heimilisiðnaðar
kynnir sjöl og hyrnur úr handspunnu bandi. Kristln Jónsdóttir handa-
vinnukennari, sem stendur við enda borðsins, hefur teiknað mynstur
eftir gömlum tvibanda vettlingum og gert nýjar uppskriftir fyrir það
efni sem nú er á markaðnum og kemur út bók með þeim mynstrum I
tilcfni afmælisins.
vettlinga. Jurtalitaða bandið er
unnið af tveimur þingeyskum
konum, Matthildi Halldórsdóttur
i Garði og Ingibjörgu Tryggva-
dóttur, sem nú er búsett á Húsa-
vik, en prjónlesið er unnið af
mörgum höndum.
Forkunnarfagrir munir eru á
þessari sýningu sem opnuð var i
gær og bera munirnir einmitt
fagran vott um einn megintilgang
Heimilisiðnaðarfélagsins, sem er
að auka og efla þjóðlegan heimil-
isiðnað á tslandi og stuðla að
vöndun hans og fegurð. Sýningin
stendur til 26. október og verður
opin á venjulegum verslunar-
tima, á morgun laugardag, verð-
ur hún jafnframt opin milli kl. 9
og 16.
Námskeið i heimilisiðnaðar-
fræðum fyrir almenning hefur
Heimilisiðnaðarfélag Islands
haldið nær óslitið frá stofnun fé-
lagsins árið 1913. Arið 1979 var
siðan Heimilisiðnaðarskólinn
stofnaður og hefur með tilkomu
skólans tekist að fjölga náms-
greinum mikið og eru þær nú 28
talsins.
Frá og með morgundeginum og
fram til 25. október mun Heim-
ilisiðnaðarskólinn kynna starf-
semi sina að Kjarvalsstöðum. A
sýningunni verða sýnishorn af
verkum nemenda, áhöldum og
kennslutækjum, einnig munu
kennarar kynna þar námsgreinar
skólans. Eitt aðalmarkmið skól-
ans er að viðhalda gömlum
vinnubrögðum og aölagast
breyttum þjóðfélagsháttum.
Ahugi er mikill á , námskeiðum
skólans, ekki sist meðal ungra
kvenna sem gjarnan vilja læra að
spinna ull sjálfar og kynnast
undraheimum jurtalitunar.
Skólastjóri skólans er Sigriður
Halldórsdóttir. Aögangur veröur
ókeypis að sýningu Heimilis-
iðnaðarskólans að Kjarvalsstöð-
' Umsjón
Þórunn
. Gestsdóttir.
Vísir að heimilsiðnaðarsafni I glugga verslunarinnar að Hafnarstræti
3. Hinir fallegu munir laða að.
Mörg handtökin þarf að kunna. Hér sýnir Kristin Jónsdóttir handa
vinnukennari, blaðamönnum hvernig kemba á ullina.
Framleiðsla haf-
In á léttmjólk
á Akureyri
sunnaniands eftir áramðt
Samkvæmt frétt i Akureyrarblaðinu Degi sl.
þriðjudag er sala á léttmjólk frá Mjólkursamlagi
KEA að hefjast þessa dagana. Léttmjólkin verður
aðeins seld i eins litra umbúðum á Akureyri og
fyrst um sinn verða notaðar sömu umbúðir og undir
nýmjólkina, en rauður miði limdur á fernurnar.
Fleiri mjólkurbú eru nú að
undirbúa framleiðslu léttmólkur
og er framleiðslan þegar hafin á
Egilsstöðum.
Við höfðum samband við Odd
Helgason sölustjóra hjá Mjólkur-
samsölunni i Reykjavik og tjáöi
hann okkur að framleiðsla létt-
mjólkur væri i undirbúningi i
Reykjavik. Unnið er að hönnun og
framleiðslu umbúða fyrir létt-
mjólk, en sá undirbúningur tekur
töluverðan tima að sögn sölu-
stjórans. En reikna má með að
léttmjólk komi á markaðinn á
höfuðborgarsvæðinu íljótlega eft-
ir áramót.
Sem kunnugt er, er léttmjólkin
eins konar millistig á milli undan-
rennu og nýmjólkur. Undan-
renna er 0,05% feit, léttmjólkin
1,5% og nýmjólkin tæplega 4%
feit. Sama verð verður á létt-
mjólk og nýmjólk. —ÞG
Ofnhakaðar pyisur
með kartöfiumús
Eldhúsréttur dagsins er afar
einfaldur, datt okkur I hug að þeir
sem væru að stiga sin fyrstu spor
á braut matargerðarlistar gætu
bæði haft gagn og gaman að þess-
um rétti.
Allt sem til þarf I þennan rétt,
sem er fyrir fjóra er:
4 vænar pylsur
ca. 50 g. gaffalbitar
kartöfluduft I pakka
1 laukur
2 msk tómatkraftur
1 msk smjörliki
1 -1 1/2 dl rifinn ostur.
Byrjið á þvi að kveikja á ofnin-
um og stilliö á 250gr. hita. Hrærið
kartöfluduftið eftir leiðbeiningun-
um á pakkanum. Takið utan af
lauknum og hakkið hann ásamt
gaffalbitunum (eða saxið smátt)
Blandið siðan lauknum, gaffalbit-
unum og tómatkrafti saman i
skál. Smyrjið eldfast mót og setj-
iðkartöflumúsina imótið, skerið i
pylsurnar eftir endilöngu og legg-
ið þær i mótið. Laukblandan fer
siðan i pylsurnar og rifna ostinum
(osturinn má vera gróft rifinn) er
siðan stráð yfir. Bakið i ca. 10
minútur. Brauð og smjör borið
fram með og hrásalt er lika gott
fyrir þá sem vilja stiga fleiri spor
á brautinni.