Vísir - 16.10.1981, Síða 13
Föstudagur 16. október 1981
vtsm
13
blæöi
hjarta
sár
Marilyn
French
skrifaöi
Kvenna-
. klósettiö.
Svo skrifaöi
hún Þó blæöi
hjartasár.
Helgar-Vísir
birtir kafla
úr þeirri bók
á morgun.
Jökull-
inn
skilar
sínu
Likfundur á
Mýrdalsjökli
í íslenskum
bókmenntum
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 — Simi 151D5
segir innflytjandi humarsúpunnar sem gagnrýnd var á óvæginn hátt
f lesendadálki Vísis
„Gagnrýni er nauðsynleg og ég
tek hana til greina en þessi skrif
voru ekki gagnrýni, heldur
rógur”, sagði maðurinn sem
flytur inn franskar krabba- og
humarsúpur en um þær var
fjallað á vægast sagt óvæginn
hátt i lesendadálki Visis á
miðvikudaginn.
t bréfinu stóð að þegar bréfrit-
ari hafði opnað pakkann hafði
gosið upp fnykur sem einna helst
minnti á gúanólyktina frá Kletti
og að súpan hafi verið algerlega
óæt.
„Það er aðallega kryddlykt af
súpunni og svo keimur af fisklykt
enda er þetta humarsúpa — ekki
kjúklingasúpa” sagði innflytj-
andinn.
„Hins vegar er sjálfsagt og
eðlilegt að smekkur fólks sé mis-
jafn. tslendingar eru ekki vanir
slikum súpum, og þvi finnst sum-
um hún sjálfsagt vond, en öðrum
þykir súpan góð, eins og gengur.
Ég hef fengið ábendingar frá
neytendum um að uppskriftin
sem er á baki pakkans sé ekki
besta uppskriftin. Þetta hef ég
tekið til greina og framvegis
fylgir önnur uppskrift með i
pakkanum. En smekknum get ég
ekki breytt”.
Innflytjandinn sagði að súpan
væri best uppbökuð. Þá ætti að
bræða 70 grömm af smjörliki i
potti, innihaldi pakkans bætt út i
og siðan hálfum litra af mjólk og
hálfum litra af vatni. Svo væri
hægt að bragðbæta eftir smekk
hvers og eins eins og til dæmis
með hvitlauk og karrý.
Hilmar Jónsson veitingastjóri á
Hótel Loftleiðum og ritstjóri
Gestgjafans sagði að sér kæmi
mjög á óvart ef einhver gúanófýla
hefði gosiö á móti bréfritaranum.
Hilmar hefur prófað súpuna og
fjallar um hana i nýjasta heftinu
af Gestgjafanum. Þar segir
Hilmar meðal annars:
„Nýlega kom á markaðinn
frönsk krabba- og humarsúpa
sem ber heitið Morvandelles og er
hún mjög hentug til þess að laga
sósur fyrir hörpuskelfisk. Mor-
vandelles er vel þekkt merki i
Frakklandi og viðurkennt fyrir
afurðir úr fiski og eru vörur þess
álitnar i háum gæðaflokki”.
Hilmar bætti þvi við að hann
heföi aflað sér góðra upplýsinga
um súpurnar áður en hann
skrifaði greinina, og hann teldi
ekki liklegt að vörur Mor-
vandelles væru þekktar i Frakk-
landi fyrir fiskifýlu!
—ATA
MORVANDELLES
Nettó innihald 70grömm
HÆRLEGT FYRIR FJÓRA
Súpan umdeilda
NAMSSTEFNUR UM
ÁFENGISMÁLIN
- með bandarískum prestí og fyrirlesara
Varnaðarstarf gegn ofnotkun
áfengis og málefni aðstandenda
drykkjusjúklinga eru viðfangs-
efni á námsstefnum, sem haldnar
verða á næstunni og ýmis samtök
standa að i samvinnu við biskup
Islands. Aðalfyrirlesari á þeim
verður kennarinn, fyrirlesarinn
og presturinn, séra Melvin
Schroeder, frá Hazelden
Roundation i Minnesota i Banda-
rikjunum. Hann mun einnig
predika ikirkju og hafa framsögu
á almennum fundi.
Það er Hjálparstofnun
kirkjunnar, Hazelden-hópurinn,
SAA og Afengisvarnarráð sem
standa að þessum viðburðum i
samvinnu við biskupinn. Náms-
stefnurnar eru einkum ætlaðar
prestum, kennurum, læknum,
sálfræöingum, félagsráðgjöfum
og öðrum, sem koma að vanda-
málum drykkjusjúkra svo og
áhugafólki.
A sunnudaginn kemur predikar
séra Melvin Schroeder i messu i
Hallgrimskirkju sem hefst klukk-
an 11.
A mánudag klukkan 9.3Ú-18
verður námsstefna i Hallgrims-
kirkju og hún verður endurtekin á
sama stað og tima á þriðjudag-
inn.
A miðvikudag verður kvik-
myndasýning á Hótel Loftleiðum
og þar mun séra Melvin
Schroeder flytja fyrirlestur.
Samkoman byrjar klukkan 21.
A föstudaginn klukkan 13-18
veröur námsstefna að Hótel
Varðborg á Akureyri á sunnudag
þar á eftir klukkan 15-19 i Vala-
skjálf á Egilsstöðum og þriðjudag
þar næstan fundur i Vestmanna-
eyjum. HERB
Samnorræn
smásagnabók komin út
I tilefni af norræna málaárinu
1980-1981 efndu samtök móöur-
málskennara á Norðurlöndum til
samkeppni um bestu norrænu
smásögurnar handa 12-16 ára
unglingum. Af þessu tilefni voru
skipaðar dómnefndir i hverju
landi og voru valdar 10 sögur.ein
til tvær frá hverju norðurland-
anna auk einnar á finnlands-
sænsku.
A liðnu sumri kom siöan út i
Noregi smásagnasafnið Reve-
sommer og andre nordiske
noveller. Islpnska sagan heitir
Morgundögg og er eftir Guöjón
Sveinsson en nokkrar af hans sög-
um hafa verið gefnar út og lesnar
i útvarpi.
Markmið þessarar Utgáfu er að
leitast við aö vekja og glæöa
áhuga unglinga á máli og menh-
ingu hinna Norðurlandanna.
Sögurnar eru þvi gefnar út á
frummálinu en auk þess eru
þýðingar á finnsku, færeysku og
Isíensku sögunum.
Dansbandið
vinsæla leikur fyrir dansi
I Skútunni verdur matur framreiddur
frá kl. 19.00 til 23.00
Borðapantanir í símum 52501 og 51810
Sparíklæðnaður
Snekkjan + Skútan
Strandqötu 1-3 — Hafnarfirði
ATH: Skútan er á sunnudögum
opin í hádeginu og frá kl. 18.00
„Rðgur en ekkl gagnrýni!”