Vísir - 30.10.1981, Side 9
Föstudagur 30. október 1981
VÍSIR
Sir Freddie Laker bregður á leik, en nú er leikurinn farinn aö grána.
Flugrisarnir með
sfriðsaxlr á lofli
Fargjaldastriðiö i Noröur-
Atlantshafsfluginu hefur bloss-
að upp aftur og stefnir i al-
gleyming núna upp úr þessum
mánaðamótum.
Hlutverkum er að visu skipt.
Stóru flugfélögin eru sóknar-
aðilinn að þessu sinni og bjóða
stórum lægri fargjöld, en áður.
Hafa þau boðað að nýju far-
gjöldin taki gildi 1. nóv.
Sir Freddie Laker, sem árum
saman barðist fyrir lækkun far-
gjalda, hefur orðið að snúast til
varnar, enda hin boðuðu far-
gjöld risanna lægri en fargjöld
„skýjalestarinnar” hans. Það
hljómar undrlega, að heyra sir
Freddie berja lóminn fyrir
breskum yfirvöldum, sem af-
greiöa eiga umsóknir risanna
um leyfi til lækkunar fargjalda.
Heyra hann mæla gegn leyfis-
veitingu og vitna til alþjóða-
samninga, sem kveði á um, að
fargjaldalækkanir skuli tak-
markast við eðlileg viðskipta-
lögmál um mörk arðsemi og
tapreksturs. — Það var tals-
maður Laker-flugfélagsins, sem
lét eftir sér hafa i breska
blaðinu „Daily Mail”, að boðuð
fargjöld stóru félaganna gætu
ómögulega verið heilbrigð, við-
skiptalega séð, og að risarnir
væru þar að leika sér með fjár-
muni skattgreiðenda.
Hlusta ekki
á kveinstafi
Það var Pan American World
Airways, sem i annarri viku
þessa mánaðar dró sverð að
nýju úr sliðrum i fargjaldastrið-
inu með þvi að boða allt að 59%
lækkun fargjalda á annarri leið-
inni milli ýmissa stórborga i
Bandarikjunum annarsvegar og
London hinsvegar. — Hinn nýi
stjórnarformaður PanAm, Ed
Acker, dró enga dul á striðsyfir-
lýsinguna: „PanAm mun nú
ekki draga af sér i samkeppn-
inni, hvar sem er i heiminum.
Við , munum ekki lengur liða
neinum samkeppnisaðila að
undirbjóða okkur, og skellum
skollaeyrum við, hversu sárt
sem hann kveinar,” sagði Ed
Acker, þegar breskir blaða-
menn báru undir hann viðbrögð
sir B'reddie Laker.
Lággjaldastríö
Trans World Airlines og Brit-
ish Airways svöruðu hólm-
gönguáskorun PanAm nær
strax með boðun á lækkun eigin
fargjalda. British Airways
boðar 522 dollara fargjald fram
og til baka yfir Atlantshafið,
sem er jöfnun á tilbo.ði PanAm.
— Gerry Draper, einn af aðal-
forstjórum British Airways,
sagði i viðtali við „Daily Mail”
þann 10. október: „Þetta er lág-
gjaldastrið, sem sir Freddie
Laker er upphafsmaður að. En
eins og honum sjálfum er svo
tamtaö segja: „Ef þú þolir ekki
við i velgjunni, þá hypjaðu þig
út úr eldhúsinu.”
PanAm miðar sin nýju far-
gjöld við sölu i Bandarikjunum
og hefur sótt um og fengið sam-
þykki bandariskra yfirvalda
fyrir þvi, að þau taki gildi 1.
nóvember og er þá miðað við
fargjald frá Bandarikjunum til
London. Um leið sóttu þeir um
leyfi til nýrra fargjalda, sem
taki gildi 15. nóvember, og
miðast við flugleiðina frá
Bandarikjunum til B'rankfurt i
V-Þýskalandi.
Stðrfelldar
lækkanlr
Lækkun fargjalda risafélag-
anna hafði legið i loftinu, en
engin hafði búist við, að hún yrði
jafnmikil sem raun bar vitni.
Búist er við þvi, að bresk yfir-
völd veiti samþykki fyrir sitt
leyti á leyfi til lækkunar far-
gjalda BA á leiðinni frá London
til Bandarikjan/ia. Heyrst
hefur, að i umsoknunum um
lækkanir sé gert ráð fyrir i
sumum tilvikum allt að 66%
lækkun. — PanAm boðaði 50%
lækkun á flugmiða frá New
York til London (úr 526 doll-
urum i261)ogfarmiðinnfrá San
B'rancisco til London á að lækka
úr 961 dollar i 396 dollara en frá
öðrum stórborgum i Banda-
rikjunum er lækkunin minni.
B'arseðlakaupendur á þessum
flugleiðum núa saman lófum —
ekki óeðlilega — yfir þessum
tiöindum og þykir að vonum
hafa vænkast hagur strympu.
Hafa fæstir þeirra neinar á
hyggjur af þvi að hirða um þótt
risarnir „vegi þar hver annan”.
Gleymist þá mörgum sú gamla
sorgarstaðreynd að strið bitnar
oftast eigi siður á saklausum
sem sjálfum hólmgöngubersun-
um. Gæti það fullt eins átt við
fargjaldastrið þótt það komi
kannski ekki fram fyrr en siðar.
Boðar erflða
tíma
Hér heima á lslandi gefa
menn þessum tiðindum mikinn
gaum vegna umræðunnar um
stöðu B’lugleiða og hugsanlegan
efnahagsstuðning rikisins is-
lenska flugfélaginu til handa, en
Atlantsflugið hefur ekki verið
minnsti þátturinn i erfiðleikum
þess. Um tima jókst bjartsýni
manna á þvi, að úr kynni að
rætast, en þessar fréttir um
striðsskap stóru flugfélaganna
geta breytt þeim viðhorfum.
Kennslu-
bðkardæmi
Timaritið „B’light Internati-
onal”, sem út kom helgina 17. og
18. október, segir frá þvi, að
hagfræðiprófessorarséu farnir i
fyrirlestrum sinum að skýra
fræðin út fyrir stúdentum sinum
með dæmum úr raunverulegum
atvinnurekstriyfir til dæmis tiu
ára timabil. B’lugreksturinn
hefur þeim þótt sérlega skýrt
dæmi, sem spanni um leið yfir
flest lögmál hagfræðinnar.
Timaritið segir, að hag-
fræðingunum sé þá tamast i
munni dæmið um flugrekst-
urinná Norður-Atlantshafinu og
byrji söguna með atlögu Lakers
að klafabundnum fargjalda-
reglum IATA. — Þykir stúdent-
um þetta lifleg kennsla og meira
bragð að lýsingum á forstjórum
flugfélaga með striðsaxir reidd-
ar um öxl heldur en bardaga-
lausum guðspjöllum hag-
fræðinnar, eins og hún var áður
lesin þeim.
Þeim er kennd lexian um of-
framboð á sætum, sem stafi
yfirleitt af öðru tveggja:
B'ækkun farþega eða samdrætti
i vöruflutningum, eða hinsvegar
of stórum flugvélakosti, sem sé
kominn til vegna þess, að flug-
■félag hafi ekki ætlað sér af.
B'yrir þeim er skýrt út, að mar-
tröðin i Atlantshafsfluginu um
þessar mundir sé komin af þvi,
að nú hafi hvorutveggja farið
saman.
Hagfræðingarnir benda
stúdentum sinum á, að PanAm
hafi nú forgöngu um að skera
niður hið daglega lifibrauð sitt,
sem sé normal-fargjaldiö, og
það langt niður fyrir það, sem
hljóti að vera kostnaðarverð, ef
eitthvað megi marka fyrri far-
gjöld þeirra og endaiaust tap á
Atlantshafsfluginu. — Stúdent-
unum er ráðlagt að fylgjast með
framvindunni, eins og hverjum
öðrum æsandi sjónvarpsþætti.
Þá muni þeir sjá, hvernig lög-
mál hagfræðinnar leiði þetta til
lykta. Eftir örfá ár megi sjá
flugfélög liggja eins og strand-
rekna hvali á fjörum Atlants-
hafsins, meðan örmagna eftir-
lifendur nýti sér aukið olnboga-
rými skýjum ofar til þess aö
hækka fargjöld aftur i skynsam-
legra horf. (Jafnvel British Air-
ways lýsir nýju fargjöldunum
sem „crazy” þótt félagið ætli
aö íylgja þeim sjálft.)
Snerllr okkur
Þannig sjá hagfræðilektor-
arnir fargjaldastrið flugfélag-
anna i likingu við helgöngu
læmingjanna, sem geta ekki að
sér gert, en renna i þúsundatali i
blindni fram i átt til sjálfstor-
timingar. Þeir skoða þetta köld-
um og yfirveguðum fagmanns-
augum. En það er eitt að horfa
úr hæfilegri fjarlgæð á fram-
tiðarsýn af nokkrum dauðum
hvalskrokkum liggjandi á fjöru
og snertir ekki óviðkomandi.
Annað væri ef skyndileg nær-
mynd leiddi i ljós, að við hér á
Islandi værum nánir aðstand-
endur eins liksins. Helst viidum
við bægja þeirri voðahugsun frá
okkur.