Vísir - 13.11.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 13.11.1981, Blaðsíða 20
 20- '?Ci t'h'í'i 17Vi .K! 'iH'í 'j'j'i*. Föstudagur 13. nóvember 1981 íkvöld vop á Þing- vðllum Gðö aðsökn - að sýningum Þióðieikhússins Jólakort Asgrimssafns 1981 Lisbet Lund í Norræna húsinu Finnskar grafíkmyndir eru um þessar mundir til sýnis i anddyri Norræna hússins. Það er listakonan Lisbet Lund sem er gestur hússins en hingað kemur hún frá þvi að sýna þessi sömu verk i Osló. Myndirnar eru þrjátiu talsins og allar til sölu. Er verð þeirra á bilinu 600 til 1120 krónur. Lisbet Lund er styrkþegi Menningarsjóðs Islands og Finnlands og hyggst kynna sér myndlist hér á landi meðan á dvölinni stendur. Hún stundaði nám i Finn- landi og Kaupmannahöfn, en hefur haldið einkasýn- ingar og tekið þátt i sam- sýningum viða um heim. Grafiksýningin stendur til 20. nóvember. —JB Aðsókn hefur verið góð og alltaf fullt um helgar. Er þetta 19. sýning á leiknum. Dans á rósum hið nýja leikrit Steinunnar Jóhannesdóttur verður svo á fjölunum bæði á föstudag og sunnudag. Leikurinn hefur vakið mikið umtal og athygli og hefur verið upp- selt á hverja einustu sýn- ingu til þessa. Ástarsaga aldarinnar verður svo á þriðjudag, en þar fer sýningum að fækka úr þessu. Um aðra helgi verður svo forvitnilegt Bailettkvöld. Þar verða fluttir tveir nýir dansar eftir Hlif Svavars- dóttur og er annað frum- flutningur, en hinn dansinn var saminn i Amsterdam, þar sem Hlif hefur starfað undanfarin ár. Það er Islenski dansflokkurinn sem flytur þessa dansa, en auk þess dansar Auður Bjarnadóttir sem gestur ásamt Dinigo Heinhardt tvo klassiska tvidansa. Auður hefur ekki dansað hér heima i fjögur ár eða frá þvi hún vann til verð- launanna frægu i Kuopip i Finnlandi. Hún er nú ein aðaldansmær Munchenar- óperunnar. komið á kort Asgrimssafn Jónssonar hefur nýverið sent frá sér nýtt jólakort með einni mynda listamannsins. Jólakort Asgrimssafns 1981 er prentað eftir vatnslita- myndinni Vor á Þingvöll- um, Tindaskagi. Myndin var máluð 1945-50 og er ein af stærstu vatnslitamynd- um safnsins. Listaverkakortið er til sölu i Ásgrimssafni Berg- staðastræti 74 á opnunar- tima og i Rammagerðinni Hafnarstræti 17. Ásgrimssafn er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Mjög góð aðsókn hefur verið að Þjóðleikhúsinu I haust og tala leikhúsgesta þegar orðin talsvert hærri en bæði á sama tima I fyrra og hitt-eð-fyrra eða rúmlega 18 þúsund. Hótel Paradis verður sýnt á laugardagskvöld. Hokkrir vfsnavinlr Innan skamms er vænt- anleg á markaðinn ný tveggja laga jólaplata, sem ber heitið „JÓLA- STEINN”. Að plötunni standa Visnavinirnir Eyj- ólfur Kristjánsson, Berg- þóra Árnadóttir og Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson. gefa út jölaplötu Annað lagið er eftir Bergþóru, við ljóð Steins Steinarrs, „JÓL”, hitt lag- ið er þekkt erlent jólalag, með nýjum texta Aðal- steins Asbergs, og nefnist: „LITIL SAGA UM JÓLA- STEININN”. Þeim þre- menningum til aðstoðar á plötunni, eru þrir liðsmenn hljómsveitarinnar MEZZOFORTE, ásamt þeim Gisla Helgasyni og Inga G. Jóhannssyni. Platan er hljóðrituð i Studió STEMMU, en EBA, Reykjavik, gefur plötuna út. Flnnsk grafík j útvarp Föstudagur I 13. nóvember ! 11.30 Morguntónleikar a. ! Pólónesa nr. 2 i es-moll op. J 26 eftir Chopin, György J Cziffra leikur á pianó. b. Þriðji þáttur, rondó, úr J Fiðlukonsert nr. 5 i A-dúr • eftir Mozart, Marjeta I Delcourte-Korosex leikur I með Sinfóniuhljómsveitinni I i Liege, Paul Strauss stj. c. j „Haust”, konsert úr j „Árstiðunum" eftir Vivaldi, | Lola Bobesco leikur með | Kammersveitinni i Heidel- , berg. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- | kynningar. J 12.20 Fréttir. 12.45 J Veðurlregnir. Tilkynningar. J A frlvaktinni. Sigrún Sig- I urðardóttir kynnir óskalög I sjómanna. I 15.10 „Örninn er sestur” eftir I Jack lliggins ólafur Ólafs- j son þýddi. Jónina H. Jóns- j dóttir les (25). { 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. j 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 | Veðurfregnir. ■ 16.20 ,.A framandi slóðum” ■ Oddný Thoi-steinsson segir ■ frá Indlandi og kynnir þar- ■ ienda tónlist, fyrri þáttur. [ 16.50 Leitað svara Hrafn Páls- J son ráðgjafi svarar spurn- J ingurn hlustenda. J 17.00 Siðdegistónleikar a. J Pianósónata i G-dúr op. 37 I eftir Pjotr Tsjaikovsky, I Paul Crossley leikur. b. I Strengjakvintett nr. 2 i G- | dúr op. 111 eftir Johannes j Brahms, Budapesl- j kvartettinn og Walter j Trampler leika. j 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. | 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá | kvöldsins. I 19.00 Fréttir. Tilkynningar. • 19.40 A vettvangi 20.00 Lög unga fólksins Hildur J Eiriksdótlir kynnir. J 20.40 Kvöldvakal. Einsöngur: Einar Markan syngur. islensk lög. Dr. Franz Mixa leikur á pianó. b. Bóndason- ur gerist sjómaður og skó- smiður Julius Einarsson les fimmta hluta æviminninga Erlends Erlendssonar frá Jarðlangsstööum. c. Holta- gróður Pétur Pétursson les úr ljóðabókum Mariusar Ólafssonar. d. Kvenna- ævintýr á liönu sumri. Elisabet Helgadóttir segir frá ferð á Strandir með verkakevennafélaginu Framsókn og orlofsdvöl á Hrafnagili i Eyjafiröi. e. félagar úr Kvæðamanna- félagi Hafnarfjarðar kveða. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Orð skulu stnda”eftir Jón Helgason. Gunnar Stefánsson les (4). 23.00 Kvöldgcstir — Þáttur Jónasar Jónassonar Gestir hans eru Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og Sveinn Sæmundsson blaöa- fulltrúi. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Föstudagur 13. nóvember 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 A döfinni 20.50 Skonrokk Umsjón: Þor- geir Astvaldsson. 21.25 Fréttaspegill Umsjón: Bogi Agústsson. 21.55 Billí og fálkinn (Kes) Bresk bi'ómynd frá 1969. Leikstjóri: Ken Loach. Aðalhlutverk: David Brad- ley, Lynnie Perrie og Colin Welland. Myndin fjallar um 15 ára gamlan pilt, sem temur fálka. Pilturinn er sérlundaöur, fer eigin götur og blandar ekki geöi við skólósystkinin. Þýðandi: Kristmann Eiðsson. 23.40 Dagskrárlok. I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I 1 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I -J Sjúnvarp kl. 21.55: Billy og fálkinn Bresk kvikmynd um dreng, sem temur fáika „Billy og fálkinn” heitir kvik- mynd sjónvarpsins i kvöld. Hún er bresk frá árinu 1969, og þýð- ingu annaðist Kristmann Eiðs- son. Myndin segir frá 15 ára dreng, Billy, sem býr með móður sinni og bróður i þorpi i Yorks- hire. Jud bróðir hans lifir og hrærist i hestaveðreiðum, en Billy litli styttir sér stundir með þvi að skoða teiknimyndabækur og lendir i smáþjófnuðum. Dag nokkurn finnur Billy hreiður með fálkaungum, stelur sér bók um fálka úr bókabúð og fer að temja fálkann sem hann kallar „Kes”. Þar sem timi Billys fer nú allur i að temja fálkann, lendir hann i vandræðum i skólanum, sofnar i kennslustund og er gripinn við reykingar. Kennari Billys, herra Farthing tekur eftir þvi, að Billy er hættur aðblandageðivið skóla- systkini sin og fer sinar eigin göt- ur. — Jud treystir Billy fyrir þvi að veðja fyrir sig á hest, en Billy eyðir peningunum i mat handa sérog Kes, með afleiðingum, sem verða honum þungbærar. Sýning myndarinnar hefst kl. 21.55 og er hún tæpra tveggja stunda löng. —AKM Útvarp laugardagskvöld kl. 21.15: Töfrandi tðnar Þáttur um tóniist stóru danshljómsveitanna 1936-1945 Þriöji þátturinn um tónlist stóru da nshl jóms veitan na, „Töfrandi tónar” I umsjá Jóns Gröndal, verður á dagskrá út- varpsins annað kvöld kl. 21.15. „1 þessum þáttum rek ég sögu hljómsveitanna, segi frá hljóm- sveitarstjórunum, söngvurum o.fl.” sagði Jón Gröndai. „Þá ræði ég um hvað var að gerast I heiminum á þeim tima sem þessi tónlist var hvað vinsælust, — hef svona þjóðfélagslegt Ivaf ef svo má segja, og þar er gerður sam- anburöur á þvi, hvaö var aö ger- ast hérna á tslandi og úti I hcimi.” 1 þættinum annað kvöld verðursagt frá Dorsey bræðrum. Þættir Jóns eru tólf talsins, og verða þeir á laugardagskvöldum. —AKM. Jón Gröndal er umsjónarmaöur þáttanna „Töfrandi tónar”.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.