Pressan - 27.10.1988, Page 3
PRESSU
MOLAR
ngir kratar í Hafnarfirði
kjósa nýjan formann FLIJ á aðal-
fundi á laugardag. Tveir hafa verið
orðaðir við formennsku, þeir Emil
Sigurðsson læknir og Steindór
Karvelsson skrifstofumaður, sonur
Karvels Pálmasonar alþingis-
manns...
annlæknar hafa enn ekki opn-
að munninn í tilefni af umfjöllun
Pressunnar um tannlækniskostn-
aðinn í landinu. Sem kunnugt er
greindi blaðið frá því að samkvæmt
könnun Félagsvísindastofnunar
mætti ætla að munurinn á fram-
burði skjólstæðinga tannlækna og
framburði þeirra um eigin rekstrar-
tekjur væri um 1.200 milljónir
króna, en þessi óútskýrða hola í
tannlækniskostnaði virðist þó að
minnsta kosti vera um 720 milljónir
króna af útreikningi framfærslu-
kostnaðarins að dæma. Tann-
læknafélagið hefur enn engin við-
brögð sýnt við greinum þessum, en
samkvæmt heimildum Pressunnar
eru miklar líkur á að mál þetta beri
á góma Alþingis með einhverjum
hætti. Einu viðbrögð tannlækna
fyrst eftir fréttirnar voru að efast
um það í útvarpsfréttum að niður-
stöður og aðferðir Félagsvísinda-
stofnunar væru réttar og var bent á
að von væri á niðurstöðum könn-
unar Guðjóns Axelssonar, prófess-
ors í tannlæknadeild, á tannheilsu
<^4
landsmanna 1985. Könnun þessi
var gefin út um síðustu helgi, en
hefur enn ekki verið kynnt fjöl-
núðlum af einhverjum sökum. í
könnuninni eru teknir fyrir aldurs-
hóparnir 18 ára, 35—44 ára og 65
ára og eldri, þannig að erfitt er um
beinan samanburð við könnun
Félagsvísindastofnunar og í könn-
un Guðjóns er alls ekki fjallað um
tannlækniskostnaðinn. Á hinn
bóginn virðist könriun Guðjóns
meðal annars staðfesta rækilega að
láglaunastéttirnar fælast tann-
lækna og þá væntanlega vegna þess
hversu þjónustan er dýr. Enn sem
fyrr er þó beðið eftir útskýringum
tannlækna á holunni stóru og auð-
vitað spyrja menn hvort fjármála-
ráðherra finni á þessum slóðum
dulitla tekjulind upp í fjárlaga-
gatið...
] I.
■ er gj£ tlddagi húsnæÖislána
nóv
ÞÚ HAGNAST
Á EIGIN SKILVÍSI
Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað
af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað.
Þú getur notað peningana þína til
mun gagnlegri hluta, til dæmis í að:
Auka vió skíóabúnaó
fjölskyldunnar
endurbæta lýsinguna
á heimilinu
eóa fá þér áskriftar
í leikhúsió.
Eindagi 1‘ána með lánskjaravísitðln.
3
>•
Gjalddagar húsnæðislána eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí (sum
lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn). Merktu gjalddaga þíns láns
inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÓLD AF DRÁTTARVÖXTUM
Greiðsluseðlar fyrir 1. nóvember hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna
af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Li LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK 3:6969 00
GADDAFI VILL I
AMNESTY
„Skœrutiðaforinginn Moammar
Gaddafi vitt verða góður strákur, “
segir Arbeiderbladet i Noregi í frétt
um daginn. Heimildir blaðsins
herma að hinn alrœmdi hryðju-
verkamaður hafi sótt um aðild að
Amnesty lnternational, en þarsem
samtökin séu ekki til staðar í Líbýu
hafi hann einungis getað gerst
styrktarmeðlimur. I skrám Amn-
esty er Líbýa hins vegar eitt af þeim
löndum þar sem mannréttindabrot
eruframin, svo þessi umsókn hlýtur
að vera svolítið vandrœðamál.
DEA TRIER MEÐ
NÝJA RÓK
Danska skáldkonan Dea Trier
Morch, sem m.a. skrifaði bækurnar
Vetrarbörn, Miðbærinn og Kastan-
íugöngin, hefur sent frá sér nýja
bók. Hún nefnist Skipið íflöskunni
og gerist í lok stríðsins. Fjallar sag-
an um stelpuna Mette, sem býr með
mömmu sinni í Kaupmannahöfn.
Mamman á Mette og seinna lítinn
dreng með giftum manni og er ást-
arsambandi þeirra lýst frá sjónar-
hóli litlu stálkunnar. Bókin er
myndskreytt af höfundinum sjálf-
um, eins og fyrri bœkur hennar.
Enn eitt ráð við
hungri
Fyrir skemmstu birtist grein um
hungur hér í Pressunni. Frá því hún
var rituð hefur hins vegar rekið á
fjörur okkar enn eitt ráðið við
hungurverkjum. Taktu nú eftir:
Þegar svengdin hellist yfir þig
skaltu standa upp, herpa saman
magavöðvana og telja hœgt upp að
tíu. Slakaðu svo á vöðvunum og
teldu aftur upp að tíu. Endurtaktu
þetta síðan tvisvar.
Megrunarsérfræðingurinn Elior
Kinarthy segir að með þessari ein-
földu æfingu sé hœgt að bægja
hungrinu frá í heilan klukkutíma.
Við seljum það ekki dýrar en við
keyptum.