Pressan - 27.10.1988, Blaðsíða 9
8861 isdöWo AS iuR6butmmR
Fimmtudagur 27. október 1988
9
Sáróánœgðir borgarfulltrúar um embœttismenn borgarinnar
PÓLITÍSK HJÖRÐ
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Fyrrverandi og núverandi borgarfulltríiar allra minnihlutaflokkanna setjafra/n a/var/egar ásakanir á œðstu
embœttismenn Reykjavíkurborgar.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna í
borgarstjórn Reykjavíkur setja nú
fram gífurlega harða gagnrýni á
embættiskerfið í borginni. Þeir
halda þvi fram að æðstu embættis-
menn borgarinnar og forstöðu-
menn borgarstofnana séu meira og
minna litaðir af sjónarmiðum
Sjálfstæðisflokksins, séu margir
hverjir eða flestir fremur pólitískir
embættismenn en faglegir. Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi raðað
„sinum mönnum“ í allar áhrifa-
stöður í borgarkerfinu í áranna rás.
Það er gömul saga en gagnrýnin
ryðst nú fram í kjölfar yfirlýsinga
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
fyrrv. borgarfulltrúa, í viðtali við
timaritið Veru, þar sem hún heldur
því fram að nánustu samstarfs-
menn borgarstjóra „tefli þá ref-
skák, sem flokkurinn þarf á að
halda“.
Kristján Benediktsson, fyrrver-
andi borgarfulltrúi Framsóknar til
margra ára, segir í samtali við
PRESSUNA að flestallir sem skipa
yfirmannsstöður hjá borginni séu
sjálfstæðismenn og þess sé vand-!
lega gætt. „Þetta er gamalkunnugt.
Ég notaði það einu sinni í kosninga-
baráttu fyrir allmörgum árum og
þóttist hafa kannað það vel, að
halda því fram að af 40 æðstu
embættismönnum borgarinnar
væru aðeins einn eða tveir sem ekki
tilheyrðu Sjálfstæðisflokknum.
Það urðu uppi miklar vangaveltur í
borgarkerfinu út af þessu yfir því
hverjir þessir tveir menn væru eigin-
lega. Ég verð hins vegar að segja að
það rýrir ekki störf flestra þessara
manna að vera sjálfstæðismenn,
því mér hefur alltaf fundist að
borgin hefði mörgum afbragðs-
embættismönnum á að skipa,“
segir hann.
Annar fyrrv. borgarfulltrúi,
Sigurður G. Tómasson, segist taka
af heilum hug undir gagnrýnina á
embættiskerfið. „Ég er sannfærður
um að með nokkrum undantekn-
ingum settu æðstu embættismenn
borgarinnar skyldur sínar við Sjálf-
stæðisflokkinn á oddinn. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur séð til þess
að engir séu ráðnir til borgarinnar
nema þeir tilheyri flokknum og því
er embættismannakerfið og hið
pólitíska valdakerfi flokksins svo
samofið sem raun ber vitni,“ segir
hann.
Á vinstristjórnarárunum hreyfði
nýi meirihlutinn lítið við vaida-
kerfinu í borginni, en þó eru á því
undantekningar. T.d. var Gunnar
Eydal, sem þá var yfirlýstur alþýðu-
bandalagsmaður, ráðinn í stöðu
skrifstofustjóra borgarinnar þegar
sjálfstæðismaðurinn Jón G.
Tómasson var ráðinn í embætti
borgarritara. Þá var alþýðuflokks-
maðurinn Björn Friðfinnsson ráð-
inn frá Rafmagnsveitunni til að
gegna stöðu framkvæmdastjóra
lögfræði- og stjórnsýsludeildar.
Borgarfulltrúum minnihluta-
flokkanna ber reyndar ekki saman
um hvort það hafi gert vinstri meiri-
hiutanum erfitt fyrir að koma að
þessu embættiskerfi Sjálfstæðis-
flokksins á árunum 1978—1982.
Öllum ber saman um að þarna hafi
starfað og starfi enn margir góðir
og gegnir embættismenn og að ekki
hafi komið til alvarlegra árekstra á
milli vinstristjórnarinnar og þeirra
en Sigurður G. Tómasson segir þó:
„Það er alveg ljóst að á valdatíma
vinstrimanna vann hluti af
embættismannakerfinu með Sjálf-
stæðisflokknum beinlínis og lét sig
hagsmuni borgarinnar engu skipta.
Ég nefni sem dæmi Ólaf Guð-
mundsson hjá borgarverkfræðingi,
sem var bersýnilega að vinna fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Ég hika ekki
við að segja að maðurinn var bara
að hjálpa flokknum sínum.
Þetta átti einkum við skipulags-
málin, sem oft voru hart deiluefni
meirihlutans og sjálfstæðismanna.
Hins vegar er ekki réttmætt að tala
um embættismannakerfið sem eina
samstæða heild. Og þrátt fyrir allt
er ég ekki þeirrar skoðunar að
embættismannakerfið hafi verið
þess valdandi að vinstri menn
misstu meirihlutann," segir Sig-
urður.
Sigurður E. Guðmundsson,
fyrrv. borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, segir að hann fái ekki betur séð
en að gagnrýnin á embættismanna-
kerfið sé á rökum reist. „Ég hef að
vísu alltaf viljað bera skjöld fyrir
embættismenn borgarinnar og ekki
draga upp jafndökka mynd af
þessu og alþýðubandalagsmenn og
Kvennalistinn. Þessir menn eru
sjálfsagt upp til hópa sjálfstæðis-
menn, en ég held að þeir leggi fyrst
og fremst 'áherslu á embættis-
skyldur sínar. Það er þó misjafn
sauður í mörgu fé, en sumir þeirra
hafa sýnt gott samkomulag og sam-
starf við alla. “
í viðtali við Alþýðublaðið sl.
þriðjudag sagði Sigurjón Péturs-
son, borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lags: „...það er algert einræði Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn.
Flokkur sem hefur það sameigin-
legt að hafa flokksbundna fulltrúa
sína í meirihluta í sveitarfélagi og
flokksbundna embættismenn allt í
kringum sig, hann er kominn með
samtengingarkerfi sem er þéttara en
bestu net annars staðar." í viðtali
við Ingibjörgu Sólrúnu á rás 2 á
dögunum staðhæfði hún að
embættismenn borgarinnar hefðu
oft á tíðum beitt vísvitandi blekk-
ingum og þá sérstaklega í sambandi
við ráðhúsmálið. Hefðu embættis-
menn sagt að af 750 milljónum
færu 500 í ráðhúsið en 250 milljónir
í bílageymslu. Mörgum mánuðum
síðar hefði komið út framkvæmda-
og‘fjármögnunaráætlun frá borg-
arhagfræðingi þar sem kæmi fram
að í raun væri þessu öfugt farið.
„Þetta voru vísvitandi blekkingar,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
Þegar þessar ásakanir sem hér
koma fram frá borgarfulltrúunum
voru bornar undir embættismenn
hjá borginni varð fátt um svör. Eins
og fram kemur hjá Jóni G. Tómas-
syni er erfitt að svara þungum ásök-
unum þegar ekki eru nefnd ákveðin
dæmi eða nöfn. Þess ber að geta að
ekki náðist til Davíðs Oddssonar
borgarstjóra sem er erlendis í fríi.
í samtölum við borgarfulltrúa
hafa morgunfundir borgarstjóra
með sínum nánustu embættis-
mönnum oft borist i tal. „Þessir
fundir eru haldnir á þriðjudags-
morgnum og þar eru örugglega
tekin fyrir mörg mikilvægustu
málin sem varða borgarbúa,“ segir
einn af viðmælendunum. Þarna er
farið yfir dagskrá borgarráðs og
ákveðið hvaða mál fara á hana og
hvaða meðferð þau skuli fá.
í dag sitja nær eingöngu sjálf-
stæðismenn þessa fundi. Undan-
tekningin er þá Gunnar Eydal,
skrifstofustjóri borgarinnar. Auk
Gunnars og borgarstjóra sitja
þarna Jón G. Tómasson borgar-
ritari, Þórður Þ. Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur „og valda-
mesti maður borgarinnar fyrir utan
sjálfan borgarstjóra", segir einn
viðmælandi. Þorvaldur S. Þor-
valdsson, forstöðumaður borgar-
skipulags, Ágúst Jónsson, skrif-
stofustjóri borgarverkfræðings,
Eggert Jónsson borgarhagfræð-
ingur, Hjörleifur B. Kvaran, fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og stjórn-
sýsludeildar, Jón G. Kristjánsson
starfsmannastjóri og Stefán Her-
mannsson aðstoðarborgarverk-
fræðingur.
Einn viðmælandi PRESSUNN-
AR sem fylgist vel með borgarmál-
efnum segir að ásakanir minni-
hlutaflokkanna séu töluverðar ein-
faldanir. Vissulega sjái Sjálfstæðis-
flokkurinn fyrir því að yfirleitt
komist ekki aðrir að en þeir einir
sem hafa skírteini flokksins upp á
vasann. En á því séu mikilvægar
undantekningar sem segi allt aðra
sögu sbr. þá Gunnar Eydal og Björn
Friðfinnsson, sem lengi starfaði
sem fjármálastjóri borgarinnar.
„Davíð er að þvi leyti frábrugðinn
Þorsteini Pálssyni að hann treystir
mjög á eigin hæfni og enginn getur
efast um að hún er mikil. Hann
treystir á að starfsmenn hans fram-
fylgi því sem Sjálfstæðisflokkurinn
ákveður og það má ekki gleyma því
að þegar einn flokkur er við völd
verða embættismennirnir að fram-
fylgja pólitískri stefnu hans. Hinu
er ekki að leyna að oft hafa faglegar
kröfur verið sveigðar til að þóknast
pólitískum vilja sjálfstæðis-
manna.“
FÆ LÖGFRÆÐILEGT ÁLIT
ÚTI í BÆ
segir Guðrún Ágústsdóttir,
borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins.
„Ég vil taka undir að það gerir
starf borgarfulltrúa minnihiutans
erfitt að vita að meira og minna allir
œðstu embœttismenn borgarinnar
eru sjálfstœðismenn og trúnaðar-
menn borgarstjóra. Þetta vitum við
og það er ekkert leyndarmál, “ segir
Guðrún Ágústsdóttir, borgarfult-
trúi Alþýðubandalagsins. „Ég get
nefnt sem dœmi að ef mig vantaði
lögfrceðilegt álit á máli sem meiri-
hlutinn vceri að fást við og ég teldi
að vœri e.t.v. ekki í samrœmi við
lög, þá myndi ég ekki geta snúið
mér til lögfrœðinga borgarinnar.
Ég get nefnt skipulagsmál vegna
þess að ég starfa í skipulagsnefnd
og það hefur staðið yfir deila á milli
borgarstjóra og félagsmálaráðu-
neytisins I þeim málum. Mér finnst
ég ekki eiga aðgang að lögfræðing-
um borgarinnar til að fá aðstoð í
því, vegna þess að þeir hafa verið
borgarstjóra til aðstoðar. Ég hef
prófað þetta og hef þurft að leita
annað. Þessir menn eru að vinna
fyrir borgarstjóra Sjálfstæðis-
flokksins og geta þá ekki farið að
benda mér á einhverja lagakróka
sem brjóta í bága við stefnu meiri-
hlutans. Þegar svona er komið
neyðist ég til að leita álits úti í bæ.
Það er alveg á hreinu, enda hef ég
oft gert það,“ segir Guðrún.
Guðrún segir að ekki sé hægt að
segja að embættismenn borgarinn-
ar sýni minnihlutanum beina and-|
stöðu. „Þeir svara öllum þeimj
spurningum sem þeir eru spurðir|
um en ekkert meira.
Það er heldur ekki hægt að setja
alla undir einn hatt því ég hef þá
reynslu að a.m.k. einn embættis-
maður hefur reynst mér ákaflega
vel en hitt er meginreglan. Við vit-
um líka að það hafa verið ráðnir
fleiri en sjálfstæðismenn til borgar-
innar. Það má nefna Gunnar Eydal
skrifstofustjóra og Björn Frið-
finnsson sem starfaði yfir lögfræði-
og stjórnsýsludeild. En það eru líka
til menn sem hefur verið þrýst í
burtu eins og Ingibjörg Sólrún
nefnir í viðtalinu við Veru.
Ég hef reyndar lent í því að biðja
embættismann unt vissar upplýs-
ingar á fundum um fjárhagsáætlun
borgarinnar en ekki fengið, því
þessir embættismenn eru svo upp-
teknir við að þjóna meirihlutanum.
Þeir eru ekkert að stjana við okkur
á borgarstjórnarfundum. Þeir
hlaupa til og aðstoða borgarstjór-
ann og meirihlutann ef þeir eru að
verða undir í umræðum, en þetta
gera þeir aldrei fyrir okkur. Þetta er
ekkert leyndarmál. Þetta er bara
svona. Þessu kynnast menn afar
fljótt þegar þeir koma til starfa í
borgarkerfinu," segir Guðrún.
SUMUM FINNST ÞEIM BERI AÐ
ÞJÓNA BORGARSTJÓRA í ÖLLU
segir Bjarni P. Magnússon,
borgarfuUtrúi Alþýðuflokks-
ins.
„Þarna eru vissulega háttsettir
embœttismenn sem ég treysti futt-
komlega og þá nefni ég t.d. Jón G.
Tómasson borgarritara. En þarna
eru líka menn sem ég treysti engan
veginn, “ segir Bjarni P. Magnús-
son, borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins. „Það er alveg rélt hjá Ingi-
björgu Sólrúnu að í œðstu embcett-
um borgarinnar eru menn sem eiga
mjög erfitt með að draga mörkin á
milli hlutlausrar embcettismennsku
og Sjálfstœðisflokksins. “
Bjarni segir að á þessu séu þó
heiðarlegar undantekningar eins og
fyrr segir. „Það er held ég ekki rétt
að allir yfirmenn í borgarkerfinu
séu sjálfstæðismenn, ég held að
sumir séu ranglega stimplaðir Sjálf-
stæðisflokknum,“ segir hann, „en
hitt er vissulega rétt að það er hinn
rauði þráður í borgarkerfinu að þar
starfi embættismenn sem finnst að
þeim beri að þjóna borgarstjóra
fyrst og fremst og gæta þess að
hann fái að vita um allt sem fram
fer.
Ég tel,“ segir Bjarni, „að þetta
veki upp spurninguna um hvort það
ætti að koma á „róterandi“ kerfi
hjá starfsmönnum borgarinnar.
Það er margt sem mælir með því og
annað á móti.
Á vinstristjórnarárunum voru
menn hræddir við að breyta til en
við erum óhrædd við það í dag. Við
höfum lært af reynslunni og það er
alveg klárt mál að við höfum áhuga
á að breyta ýmsu í þessu skipulagi ef
nýr meirihluti myndast. Það eru
alveg hreinar línur,“ segir Bjarni.
FULLTRÚAR MINNIHLUTANS
TREYSTA ÞEIM EKKI
segir Alfreð Þorsteinsson, vara-
borgarfulltrúi Framsóknar.
„Ég er sammála Ingibjörgu Sól-
runu um það að ceðstu embœttis-
menn borgarinnar starfa margir
hverjir sem pólitískir embœttis-
menn. Þessir embcettismenn eru
mjög áhrifamiklir og lúta i einu ög
öllu vilja borgarstjórans, “ segir
Alfreð Þorsteinsson, fyrsti vara-
fulltrúi í borgarstjórn fyrir Fram-
sóknarflokkinn. „I raun treystir
borgarstjórinn meira á þessa
embcettismenn en sjálfa borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, því
embœttismennirnir hugsa og starfa
eins og borgarstjórinn vill og eru
meiri bógar. “
„Þegar þaðhendir," segir Alfreð,
„að borgarstjórinn fer út af línunni
eins og gerðist nýlega með færslu
Hringbrautarinnar, þá eru embætt-
ismennirnir fljótir að laga kompás-
inn hjá borgarstjóra. Þeir sann-
færðu hann um að það væri veik-
leikamerki að viðurkenna ábend-
ingar Framsóknarflokksins um
fjársóun sem stefnt væri í með
færslu Hringbrautar.
Embættismenn, hvort sem þeir
starfa hjá ríki eða borg, þurfa að
vera heiðarlegir og kjörnir fuiltrúar
þurfa að geta treyst þeim. Því miður
er það svo hjá Reykjavíkurborg að
fulltrúar minnihlutans treysta þeim
ekki og það gerir þeim miklu erfið-
ara fyrir að rækja starf sitt. Þar
með skekkist lýðræðið í Reykjavík.
Ég er þeirrar skoðunar að miklu
heilbrigðara væri að þessum felu-
leik væri hætt. Borgarstjóri á hverj-
um tíma ætti að hafa sér við hlið
pólitíska embættismenn sem ynnu
fyrir hann, en það lögmál gilti jafn-
framt að þeir yrðu að hætta störf-
um ef nýr meirihluti yrði myndað-
ur, alveg eins og á sér stað með að-
stoðarmenn ráðherra við ríkis-
stjórnarskipti. Ég vil þó segja að ég
tel flesta æðstu embættismenn
borgarinnar hæfa á sinn hátt nema
hvað þeir vilja gleyma að þeim ber
að þjóna fleiri herrum en borgar-
stjóranum einum,“ segir Alfreð
Þorsteinsson.
EKKI EINLIT PÓLITÍSK HJÖRÐ
. segir Jón G. Tómasson
borgarritari
„Ég hef ekkiséð viðtalið við Ingi-
björgu Sólrúnu og það er erfitt að
svura þessum ásökunum borgar-
fulltrúanna þar sem ekki eru til-
fœrð dcemi. Af löngu starfi mínu
hér þekki ég ekki annað en að
embættismennirnir vinni á fagleg-
um grundvelli og óháð þvi hverjir
skipa meirihluta og minnihluta í
borgarstjórn, “ segir Jón G. Tómas-
son, borgarritari og œðsti embœtt-
ismaður borgarinnar aö borgar-
stjóra undanskildum.
Jón sagði jafnframt að á morg-
unfundum borgarstjórnar sæti
fastur hópur en þar væri alls ekki
einlit pólitísk hjörð enda hafa setið
þarna menn sem eru yfirlýstir fylg-
ismenn annarra flokka. „Þetta er
því fráleitt að pólitík markist þarna
á þessum morgunfundum,“ segir
hann. „Auðvitað er oft rætt um
pólitík á morgunfundunum eins og
um allt annað á milli himins og
jarðar.
Það er erfitt að svara svona ásök-
unum en hitt er annað mál að það
er hlutverk embættismanna að
framfylgja þeirri stefnumörkun
sem borgarstjórn hefur tekið og sú
stefnumörkun getur oft verið póli-
tísk á sviði skipulagsmála, fram-
kvæmda og fjármála og okkur ber
að framkvæma hana.
Ég skal hins vegar ekki neita því
að ég býst við að meirihluti þessara
embættismanna hallist að stefnu
sjálfstæðismanna en hvort þeir eru
flokksbundnir hef ég ekki hug-
mynd um.“
ÞEIfl ERU EINS 0G MÝS UNDIR
FJALAKETTI
„Embœttismennirnir í kringum
Davíð eru eins og mýs undir fjala-
ketti. Þetta er vissulega einlit hjörð
en vesálings mennirnir eiga ekki
annarra kosta völ því þeir Uta svo á
að þeirra húsbóndi sé borgarstjór-
inn í Reykjavík, “ segir Össur
Skarphéðinsson, varaborgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins. „Það
ríkir ekki fullur trúnaður á milli
embœttismanna borgarinnar og
fulltrúa minnihlutans í borgar-
stjórn. Það verður hins vegar að
taka það fram að sumir eru þeir
mjög hœfir starfsmenn en svo eru
hins vegar aðrir svo lélegir að þeir
kœmust hvergi í ábyrgðarstöður
fyrirtœkja ef þeir hættu hjá borg-
inni. “
Það er líka mín reynsla að þá
sjaldan minnihlutinn fær tillögur
samþykktar í nefndum borgarinnar
þá gengur það oft ótrúlega seint að
fá embættismennina til að fram-
kvæma þær,“ segir Össur Skarp-
héðinsson.
ÓMAR
FRIÐRIKSSON