Pressan - 27.10.1988, Qupperneq 4
litilræði
De senectute
Stundum þegar ég er aö ráöfæra mig við
æöri máttarvöld um lífsins gagn og til-
verunnar á ég það til aö bera fram þá frómu
ósk aö ég þurfi ekki í ellinni að búa viö van-
líðan eðaheilsuleysi umfram það sem sann-
gjarnt getur talist.
Ennþá er ég sæmilegur til líkamsheils-
unnar, lof sé guöi fyrir þaö, og fylgist sæmi-
lega meö, þó ég að vísu sé hættur aö lesa
gleraugnalaust.
Ég klæöi mig sjálfur, geng óstuddur aó
matarboröinu og hátta mig hjálparlaust.
Er semsagt ekkert farinn aö gefa mig
líkamlega.
Því miðurerekki hægt aö segjaþaö sama
um andlegu hliöina. Geðheilsunni fer hrak-
andi og satt aö segja er sálarástandið
stundum harla bágboriö.
Ég kemst stundum í mikið uppnám af
minnsta tilefni og er lengi aö ná mér.
Mér er nær aö halda aö þessi ósköp séu,
illu heilli, aö ágerast meö aldrinum.
Það eru einkum öll óregla og óvæntar
uppákomur sem setja mig uppaf standin-
um.
Ég vil helst vakna, borða og sofna, án
þess aö mikið sé um aö vera á milli þátta.
Ég vil hafa „fasta liði einsog venjulega"
og stundvíslega.
Mér er eins fariö og kúnni í fjósinu. Ef
óregla kemst á mjaltir missir hún nytina.
Ég hef að undanförnu verið í miklu upp-
námi.
Þetta byrjaöi allt á því aö ég fór að skrifa
í Alþýðublaðið og hugsaði í leiöinni sem
svo:
— Aö flestra dómi talið rólegra aö vera
krati en kommi.
Svo vaknaöi ég einn góöan veöurdag vió
það aö ég sá ekki betur en greinarnar mínar
væru farnar að koma í Helgarpóstinum þó
hann væri löngu kominn á hausinn. Þegar
ég spuröi í sakleysi mínu aó því, hvernig í
ósköpunum stæöi á því aö ég væri farinn aö
skrifa í blað sem væri fyrir löngu hætt aö
koma út, var mér sagt aö þaö væri af því aö
þetta væri ekki Helgarpósturinn heldur
„Pressan" og Pressan væri í raun og veru
Alþýöublaöið, en Alþýðublaðið væri samt
ekki Pressan og Pressan ekki Alþýöublaöiö
og þaðanafsíður Helgarpósturinn.
Og nú er svo komið að ég veit í raun og
veru ekkert um þaö, hvaöa blað ég er aö
skrifa í, og þessvegna hef ég ekki grænan
grun um þaö hvar ég á aö vera í pólitík, eöa
hvers taum ég á aö draga í þjóðmálaum-
ræðunni.
Ofaná þetta bætist að fylgifiskurellinnar
er mikið kjarkleysi, sem lýsir sér í því aö ég
þori ekki fyrir mitt litla líf aö styggja
nokkurn mann, síst af öllu krata.
Ég læt aöra um aö gera kaldhæðnislega
úttekt á landsins gagni og nauðsynjum, en
hef á þessum merkilegu tímamótum þetta
aö segja:
Mikiö lifandis skelfingar ósköp er nú
unaðslegt að eldast.
Þaö hálfa væri nóg.
Vakna, fara framúr, fara uppí aftur og svo
afturframúr, klæöa sig, fara uppí aftur, áður
en maður fer í skóna, fara svo aftur framúr
og í skóna, gangasvo aö matboröinu, boröa,
fara svo aftur úr skónum og leggja sig eftir
matinn, vaknaaftur, fara afturí skóna, ganga
niðurá Hressó og aftur heim, fara aftur úr
skónum og leggja fæturna uppá borö og
lesa blöðin, fara svo aftur í skóna og labba
framí eldhús, fá sér kaffisopa í krús, labba
meö hana aftur inní stofu, þar sem blöðin
eru, fara aftur úr skónum, leggja fæturna
uppá borö aftur, halda áfram aö lesa blöðin,
sofna kannske, vakna aftur, fara aftur í,
skóna, labba á klóið, pissa, labba svo aftur
inní stofu, fara úr skónum, leggja fæturna
uppá borö og klára kaffið og komast, svona
einsog snöggvast, í geðshræringu útaf því
aö kaffiö er orðið kalt, hugsa sem svo:
— Ef ég heföi drukkið kaffið áöur en ég
sofnaði, þá heföi það veriö heitt.
Nú er þaö afturámóti orðið kalt, af því ég
drakk það ekki meðan þaö var heitt.
Fara svo aftur í skóna, labba framí eldhús
og ná sér í heitt kaffi.
Koma svo inn aftur, fara úr skónum,
leggjafæturnauppá boröog haldaáfram aö
lesa blööin.
Svona líða dagarnir.
Alltaf eitthvaö aö ske.
AA, Alcoholics Anonymus,
eru öflugustu sjálfshjálpar-
samtök landsins.
Opinn kynningarfundur í
Háskólabíói
kl. 14 á sunnudag.
AA-deildirnar í Reykjavík
PRESSU
MOJLAR
f
járlögin eru í burðarliönum
þessa dagana. Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra og
embættismenn hans i fjármála-
ráðuneytinu hafa nú samið drög að
fjárlögum sem kynnt hafa verið
stjórnarflokkunum. Samstarfs-
flokkar Alþýðubandalagsráðherr-
ans munu hins vegar hafa rekið upp
nokkuð stór augu þegar þeir börðu
drögin augum, því áberandi þykir
að aukin fjárframlög eru til ráðu-
neyta Alþýðubandalagsins en nið-
urskurðurinn situr í fyrirrúmi til
ráðuneyta Franrsóknarflokks og
Alþýðuflokks. Þannig mun Ólafur
Ragnar hafa gert ráð fyrir mikilli
aukningu fjár til dagvistar, tón-
listarskóla, þjóöarbóklilöóti, þjóö-
leikliúss, vegageröar og skóg- og
landræktar. Alþýðubandalagið
stjórnar auk fjármálaráðuneytisins
menntamálaráðuneytinu, Iandbún-
aðarráðuneytinu og samgöngu-
ráðuneytinu... -
'rslita forsetakosninga í
Bandaríkjunum er beðið með eftir-
væntingu um allan heim, en kosn-
ingarnar hefjast 8. nóvember næst-
komandi. Miklu máli er talið skipta
fyrir starfsmenn bandarískra
stjórnvalda á íslandi og annars
staðar hvor þeirra George Bush og
Michacl Dukakis ber sigur úr být-
um. í bandaríska sendiráðinu í
Reykjavík og í Menningarstofnun
Bandarikjanna vinna um 20 íslend-
ingar. Þeir og bandarískir starfs-
bræður þeirra eru sagðir velta því
fyrir sér hvaða breyting gæti orðið á
högum þeirra eftir kosningarnar.
Talið er að Dukakis vilji meiri
menningarpólitík en ríkt hefur í tíð
Reagan-stjórnarinnar. Bush er hins
vegar sagður leggja meiri áherslu á
að rækta bein pólitísk tengsl í gegn-
um bandariskar stofnanir erlendis.
Það er því talið víst að kosningarn-
ar þýði töluverðar mannabreytingar
viðar en í Hvíta húsinu...