Pressan - 27.10.1988, Page 14
14
Fimmtudagur 27. október 1988
q
rjótharðar flokksfréttir
þykja ekki alltof trúverðugar nú
þegar komið er fram á ofanverða
tuttugustu öldina. Flestir þeir sem
stýra gömlu flokksmálgögnunum
virðast nokkuð meðvitaðir um
þetta og hafa sýnt æ meira hlutleysi
í almennum fréttaskrifum. Þá
hefur sú breyting einnig orðið, að i
dag vinna hjá flestum blöðunum
menn sem vilja vera óháðir stjórn-
málaflokkum. Morgunblaðið
hefur m.a. á siðustu árum reynt að
hverfa al' þeirri braut, að skrifa
fréttir í pólitískum tilgangi. Það
mun því hafa farið fyrir brjóstið á
blaðamönnum að sjá rammagrein á
baksíðu blaðsins, þar sem gert var
að stórmáli, að Svavar Gestsson
menntamálaráðherra hefði stöðvað
dreifingu á fréttabréfi menntamála-
ráðuneytisins. Fréttabréfið var
unnið í tíð Itirgis Isleifs Gunnars-
sonar Ibrvera Svavars. í fréttinni
var einungis talað við Guðmund
Magnússon, aðstoðarmann Birgis
og fyrrum blaðamann á Moggan-
um. I fréttinni segist Guðmundur
ekki nota orð eins og valdníðsla og
ritskoðun um gjörning Svavars,
þótt óneitanlega hafi þau komið
honum í hug. Morgunblaðið virtist
ekki sjá ástæðu til að fá fram sjón-
armið Svavars eða aðstoðarmeyja
hans. Bjöm Bjarnason aðstoðarrit-
stjóri er sagður hafa ritstýrt frétt-
inni framhjá fagmönnunum í
blaðamannahópnum...
c
^^íðastliðinn sunnudag birtist
auglýsing i Morgunblaðinu, þar
sem athygli „senatora“ var vakin á
kvöldverðarfundi með Ólafi Ragn-
ari Grímssyni. Marglrróku upp stór
augu og veltu því fyrir sér hvaða
félagsskapur þetta væri eiginlega,
en þarna mun vera unt JC-félag að
ræða...
#•
I Lögbirtingablaðinu má sjá, að
í surnar hafa prentsmiðjurnar Guö-
jón Ó. hf. og Reiknistofa Hafnar-
fjarðar ht, ásamt einstökum eig-
endum þeirra, stofnað fyrirtækið
Markaðsmiðlun hf. í hinu nýja
fyrirtæki er stjórnarformaður Har-
aldur Blöndal hæstaréttarlögmað-
ur, en tilgangur fyrirtækisins er
sagður póstmiðlun og skyld starf-
semi. Ekki vitum við hvað þar er átt
við í smáatriðum, en Reiknistofa
Hafnarfjarðar hf. hefur hingað til
aðallega verið kunn fyrir að gefa út
10 þúsund nafna skrána sem kölluð
er „Svarti listinn“...
A
itt af verkum ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonar var að ákveða
að endurgreiða skyldi söluskatt af
ábyrgðartryggingum bifreiðaið-
gjalda öryrkja. Þótti mörgum sem
þarna væri um gott mál að ræða.
Túlkun heilbrigðisráðuneytisins á
reglugerðinni er sú, að þessar end-
urgreiðslur nái ekki til ellilífeyris-
þega. Þeir öryrkjar, sem einnig eru
svo ólánsamir að vera ellilífeyris-
þegar, njóta því ekki þessarar
undanþágu...
ÞETTA ER ÓTRÚLEGT
NAUTA- ÉflKQ INNLÆRI U90 KR. KG. SVÍNABÓGUR KR. KG.
NAUTA- BÓGSTEIK 445 KR. KG. SVÍNALÆRI KR. I <G.
NAUTA- GRILLSTEIK 445kr KG. PYLSURÁ HEILDSÖLUVERÐI 099 KR. KG.
SVÍNAHAMBORGARA-
HRYGGUR m/beini
NAUTAHAMBORGARI
MEÐ BRAUÐI
OKKAR VÖRUVERÐ
ER ÞtN
LAUNAHÆKKUN!!!!
KJOTMIÐSTOÐIN GARÐABÆ S. 656400
c
^^jálfstæðismönnum í Kópa-
vogi er mjög annt um gamla fólkið
í landinu, og er það vel. í málgagni
sínu, Vogum, auglýstu þeir um síð-
ustu helgi ráðstefnu á vegum Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem málefni
aldraðra voru aðalefnið. Þar segir
að fyrrverandi biskup íslands, sr.
Sigurgeir Sigurðsson, muni flytja
ávarp á ráðstefnunni, en mynd af sr.
Sigurbirni Einarssyni fylgir auglýs-
ingunni. Sr. Sigurgeir, sem er faðir
sr. Péturs Sigurgeirssonar, núver-
andi biskups, var eins og kunnugt er
biskup á undan sr. Sigurbirni, en er
nú löngu látinn. Það er því synd að
segjá að þeir fylgist vel með þarna í
Kópavoginum...
A
nn ein sönnun þess að
gæðum er misskipt milli manna og
tvær þjóðir búa í þessu landi birtist
i atvinnuauglýsingu í DV í síðustu
viku. Þar er auglýst eftir hraustri og
aðlaðandi stofustúlku á fallegt for-
stjóraheimili í Reykjavík. í boði
voru allt að 25 þúsund króna laun á
mánuði fyrir 4 til 5 klst. vinnu á
viku, eða 16 til 20 tíma á mánuði. í
framhaldi má geta þess að skv. síð-
ustu samningum ASÍ eru byrjunar-
laun í fiskvinnslu rúmar 32 þúsun^
krónur fyrir 80 klst. á mánuði...
v
ið höfum áður minnst á
harða samkeppni tryggingafélag-
anna á markaðnum. Þessi sam-
keppni getur tekið á sig hjákátleg-
ustu myndir. Sjóvá varð 70 ára fyrir
skömmu og var fjölda manns boðið
þangað, jafnt keppinautum sem
öðrum. Flestir keppinautanna létu
sjá sig og færðu afmælisbarninu
gjafir í tilefni dagsins. Mönnum
þótti hins vegar nokkuð skondið að
enginn fulltrúi mætti frá Sam-
vinnutryggingum...
f
■ yrirhuguð er á næstu vikum
hlutafjáraukning hjá Þörungaverk-
smiðjunni hf. á Reykhólum. Hluta-
fé fyrirtækisins nú er rúmar 4
milljónir, en heimild er til að auka
það upp í 22 milljónir króna og er
ætlunin að leita eftir nýjum hluL
höfum bæði innanlands og utan. í
því skyni er augum beint að helstu
viðskiptavinunum í Skotlandi, Sví-
þjóð og víðar. Fyrirtækið, sem
stofnað var árið 1986, hefur
nokkuð liðið fyrir það orð sem fór
af forvera þess, sem varð gjald-
þrota...
A
rfiðleikar í fyrirtækjarekstri
og gjaldþrot eru daglegt brauð um
þessar mundir. Ekki síst heyrast
sögur af erfiðleikum hjá bílainn-
flutningsfyrirtækjunum, enda met-
innflutningur á bílum árið 1987.
Hafa þau, eins og kunnugt er, að
undanförnu verið með ýmiss konar
kostaboð á varningi sínum. Er það
mál. manna að sum fyrirtækjanna
hafi teflt á tæpasta vað. Hvað sem
veldur má lesa að húseign Mazda-
umboðsins Bílaborgar hf„ Foss-
hálsi 1, er auglýst á uppbdði í síð-
asta blaði Lögbirtingablaðsins
vegna vangoldinna fasteignagjalda
upp á tæpar 4 milljónir auk vaxta
og kostnaðar...
c
^írtjórnsýsluhúsið á Isafirði
virðist ætla að verða umdeilt. Á
húsinu er gierveggur mikill og
herma sögur að það þurfi að girða
stjórnsýsluhúsið í hvert sinn sem
það snjóar vegna snjóflóðahættu
sem hallandi veggurinn skapar! Þá
þykir marmaragólf hússins einstak-
lega hált, nánast eins og skautasvell
þegar bleyta berst að utan...