Pressan - 27.10.1988, Page 32
PRESSU
MQLAR
■ isinn á dagblaðamarkaðnum,
Mogginn, hefur ekki farið varhluta
af samdrættinum í þjóðfélaginu.
Auglýsingum hefur fækkað í blað-
inu og þá horfir heildardæmið auð-
vitað öðruvísi við. Forráðamenn
Moggans eru sagðir hafa skipulagt
samdráttaraðgerðir sem fela m.a. í
sér engar nýráðningar á ritstjórn,
a.m.k. fram á vorið. Þá mun blaða-
mönnum hafa verið fækkað í dag-
legum fréttum, en nokkrir færðir
yfir á nýtt sunnudagsblað, sem Árni
Þórarinsson, fyrrum ritstjóri
Helgarpóstsins og Mannlifs, hefur
undirbúið um nokkurra mánaða
skeið. Aðgerðirnar eru sagðar
mælast misvel fyrir á ritstjórn
blaðsins...
taka eiga giidi á 75 ára afmælinu
innan skamms. Meðal þess sem við
heyrum er að felldar verði niður
fasteignaauglýsingar blaðsins í nú-
verandi formi og í staðinn gefið út
sérstakt fasteignablað reglulega
sem fjalli um fasteigna- og hús-
næðismál auk hinna miklu fast-
eignaauglýsinga sem Mogginn
ætlar auðvitað ekki að missa þrátt
fyrir allar breytingar...
lú standa miklar breytingar
fyrir dyrum á Morgunblaðinu, sem
lenn velta auðvitað fyrir
sér skuldum Holiday Inn þegar svo
er komið að eigandi hefur fengið
greiðslustöðvun til að forða gjald-
þroti. Þegar hótelið var opnað, fyrir
rúmu ári, sagðist Guðbjörn Guð-
Kostir GuttvmidarSjóvá
leynasérekki
En með samanburði við eldri tryggingar
koma þeirþó enn betur í Ijós
Lítum fyrst á Fjölskyldutrygginguna
sem er grunntryggingin í Gullvernd.
Hún hefur sannarlega ýmislegt umfram
gömlu heimilistrygginguna: Tjónshætur
eru miðaðar við kaup á nýjum munum; tryggingarverðmæti
innbúsins fylgir mánaðarlegum hækkunum framfærsluvísitölu;
gildissviðið ersett upp í skilmálum með ótvíræðum hætti; hætur
vegna skammhlaups,
skemmdarverka, brots og hruns
eru nýir liðir; sömuleiðis
útfararkostnaður, greiðslukorta-
trygging og farangurstrygging;
ábyrgðartrygging er endurbætt,
bótasvið vegna kœli- ogfrysti-
tœkja er víkkað út og þannig
má áfram telja.
Fasteignatrygging í Gullvernd Sjóvá er aukin og
endurbætt húseigendatrygging. Nýjungar eru til dæmis:
Úrfellis- og asahlákutrygging, brot- og hrunstrygging,
snjóþungatrygging, frost-
sprungutrygging og hreinlætis-
tækjatrygging. Síðan má bæta
við ýmsum sérþáttum svo sem
loftneti, garðskála eða mót-
tökudiski fyrir gervihnatta-
sendingar.
Og nú er spurt: Til hvers
öll þessi aukna vernd?
Svar: Gleymum aldrei að tryggingar, - hversu einfaldar
sem þær eru, snúast þegar á reynir fremur um bætur fyrir
tjón en iðgjöld og afslætti. Leitið
nánari upplýsinga um aðra þætti
Gullverndar, iðgjöld og
greiðslukjör í síma 692500.
Sjóvátryggingarfélag tslands hf, Suðurlandsbraut 4, sími 91-692500.
jónsson eigandi hafa lagt 100
milljónir í fyrirtækið. Þeir peningar
virtust afrakstur Fóðurblöndunnar
sem hann átti og rak áður en hann
fór út í hótelreksturinn. Jafnframt
lýsti Guðbjörn því yfir, fyrir rúmu
ári, að sérfræðingar Holiday Inn-
hótelkeðjunnar teldu að herbergja-
nýting þyrfti að verða um 70% ef
reksturinn ætti að standa undir sér.
Þessar forsendur virðast hafa
brugðist og er talið að í dag nemi
heildarskuldir hótelsins um 600
milljónum króna...
þ»„
hefur ráðið sér nýjan blaðamann til
starfa á Tímanum, en starfið hefur
verið laust um nokkurt skeið eftir
að Þórður Ægir Óskarsson stjórn-
málafræðingur hóf störf í utanrík-
isráðuneytinu. Arftaki Þórðar er
ungur skagfirskur sveinn, Árni
Gunnarsson. Páll Pétursson, for-
maður þingflokksins, er sagður
hafa beitt sér fyrir ráðningu Árna,
enda úr hans kjördæmi. Reyndar er
Árni úr sömu sveit og Indriði G.
Þorsteinsson, ritstjóriTímans. Ind-
riði mun hins vegar lítið hafa með
ráðningu þingfréttaritara að gera,
þar sem laun þeirra koma frá þing-
flokki Framsóknar.,
'igandi Holiday Inn-hótels-
ins, Guðbjörn Guðjónsson, hefur
sem kunnugt er fengið tveggja mán-
aða greiðslustöðvun. Erfiðleikar
hafa verið miklir í rekstri og var
greiðslustöðvunin veitt til þess að
gefa eiganda færi á að auka hlutafé
og skuldbreyta, svo komist yrði hjá
gjaldþroti. Það mun aðeins hafa
tekið Guðbjörn einn dag að fá
heimild skiptaráðanda til greiðslu-
stöðvunarinnar. Bókhaldið var sem
sagt á sínum stað, þótt tölurnar
sýndu ekki glæsilega rekstrarstöðu.
Guðbjörn réð nefnilega þrjá valin-
kunna menn til að greiða úr málum
sínum og hafa þeir fullt urnboð til
verksins. Þeir eru Knútur Bruun
Iögfræðingur, Guömundur Óskars-
sqn, löggiltur endurskoðandi, og
Ólafur Garðarsson lögmaður,.
I '
dag getur brugðið til tíðinda í
háskólanum. Þar verður haldinn
fundur í háskólaráði þar sem rætt
verður um breytingu á reglum er
varða mannaráðningar við há-
skólann. í beinu framhaldi af því
verða málefni Hannesar Hólm-
steins líka á dagskrá, því háskólinn
mun ekki hafa sagt sitt síðasta orð
í deilunni sem varð vegna skipunar
hans í lektorsstöðuna í sumar. Þá
munu mál þeirra Ólafs Þ. Harðar-
sonar og Gunnars Helga Kristins-
sonar, sem báðir urðu að, lúta í
lægra haldi fyrir Hannesi, einnig
koma til kasta háskólaráðs í dag.
Munu þeir Ólafur og Gunnar Helgi
nú vera að íhuga að láta reyna á
ákvörðun menntamálaráðherra um
að veita Hannesi lektorsstöðuna
með því að kæra málið til umboðs-
manns Alþingis,.
■ borgarstjórn hefur komið upp
hálfgert stríð vegna gamallar fisk-
búðar við Víðimel. Heilbrigðisráð
ákvað nýverið einhliða að leyfa ekki
áframhaldandi fisksölu vegna
óþrifa. Heilbrigðiseftirlit borgar-
innar hefur oft bent á að mörgu sé
ábótavant hvað hreinlæti varðar í
þessari 40 ára gömlu fiskbúð. Borg-
arráð tók málið til umfjöllunar
síðastliðinn þriðjudag og krafðist
þess að ástæður fyrir þessari Ieyfis-
sviptingu yrðu rökstuddar. Um
þetta hefur staðið nokkur styr þar
sem borgarráðsmenn telja að heil-
brigðisráðið hafi ekki heimild til
svo harkalegra aðgerða, einhliða og
án samþykkis borgarfulltrúanna..