Pressan - 22.12.1988, Page 2
2
PRESSU
LINDAA
STJÖRNUNNI
„Mikið að þeir hafa ráðið sæta
stelpu á simann,“ tautaði Eirikur
Jónsson fréttastjóri fyrir munni sér
þegar hann snaraðist inn með frétta-
bunkann rétt fyrir tíu á mánudags-
morguninn. Þar á meðal þrjár fréttir
um Lindu Pétursdóttur, Ungfrú
heim.
Eirikur varaði sig ekki á þvi að
stúlkan sem stóö við símaborðið var
einmitt Linda Pétursdóttir. I örstuttri
heimsókn á Stjörnunni til aö segja
hlustendum frá reynslu sinni af jóla-
haldi í Bandaríkjunum. Því viðtali
verður útvarpað á aðfangadagskvöld.
Lindu var umsvifalaust dembt i
fréttaviðtal og siðan stillti hún sér
upp til myndatöku með þeim mann-
skap sem fyrirfannst á útvarpsstöð-
inni á mánudagsmorguninn. Siöar
um daginn lá ieið hennar i veiðar-
færaverslun þar sem hún þáði að
gjöf veiðifluguna Lindu.
Pressumyndir: Tryggvi
FifVímtúdá^uVW d'és1émfereljTá8'8l ^
Línur eru að skýrast um metsölu-
plötur ársins. Tvær verða sæmdar
platínu á árinu. Tólf íslensk bítlalög
Bitlavinafélagsins og Bláir draumar
með Megasi og Bubba Morthens.
Bítlavinafélagsplatan náði platínu-
markinu, 7.500 eintökum, á miðviku-
daginn og undir kvöld í gær fór sá
skammtur frá Gramminu sem hífði
Bláa drauma upp i markið eftirsótta.
Báðar þessar plötur seijast ennþá vel
þannig að upplagið ætti að ná átta til
tíu þúsundum áður en jólahátíðin
gengur í garð.
Nokkrar plötur hafa siðan selst í
gullplötuupplagi, 3.000 eintökum. Safnplatan Frostlög
varí gærkomin í um fimm þúsund eintök. Platan Góðir
íslendingar með Valgeiri Gudjónssyni náði þremur
þúsundum á laugardaginn var. Sömuleiðis plata hljóm-
sveitarinnar Síðan skein sól og barnaplatan Tunglið
tunglið taktu mig.
Að sögn talsmanna hljómplötuútgáfanna fara nokkr-
arplöturí og yfirþrjú þúsund eintök í dag og á morgun.
Dagar með Eyjólfi Kristjánssyni er alveg við markið,
sömuleiðis Serbian Flower Bubba Morthens og sjó-
mannaplatan Á frívaktinni. Jólaplata Ellýar Vilhjálms,
Jólafrí, selst síðan væntanlega í sínu þrjúþúsundasta
eintaki á Þorláksmessu.
Af plötum með sígildri tónlist virðast ítalskar aríur
Kristjáns Jóhannssonar hafa farið langbest. Plötusalar
bjuggust við að hún væri nú þegar komin í gull. Erfitt
er hins vegar að gera sér nákvæma grein fyrir upplagi
hennar, að þeirra sögn, því að bókaútgáfa gefurplötuna
út og selur hana með svonefndum skilarétti.
Pétur á Bylgjuna að nýju?
Pétur Steinn Guönmndsson, útvarpsmaðurinn góö-
kunni, hvarffm hljóðnemanum fyrr ú þessu ári og sneri
sér aö markuðsstjórn og jieiru hjá jiljómplötuútgáfunni
Skífunni. Nú herma heimildir Pressunnar aö með hækk-
andi sól hyggist Pétur snáa á gamlar slóðir, útvarpsstöðina
Bylgjuna, aö nýju og taka til við dagskrárgerð þar sem frá
var horfiö.
Lesið upp
í Listasafni
Kennimannslegur rit-
stjóri og skáld. Matt-
hias Johannessen les
úr Ijóðabók sinni Dag-
ur af degi. Pressu-
myndir: Helga Vil-
helmsdóttir.
Rithöfundar hafa átt
annríkt síðustu daga.
Ekki við skriftir heldur
upplestur úr verkum
sínum. Víða hafa þeir
konið við og á sunnu-
daginn opnaði hið nýja
listasafn Sigurjóns Ól-
afssonar á Laugarnes-
tanga dyr sínar fyrir rit-
höfundum, upplesur-
um og náttúrlega gest-
um. Um sjötíu manns
komu og hlýddu á
Matthías Johannessen,
Einar Má Guðmunds-
son og Sigurð A. Magn-
ússon lesa úr eigin verk-
um. Þá flutti Gísli Hall-
dórsson brot úr nýrri
bók Þórarins Eldjárns
og kynnir dagsins, Er-
lingur Gíslason, las úr
bók Guðbergs um séra
Rögnvald Finnboga-
son. Milii atriða léku
þær Hlíf Sigurjónsdótt-
ir og Sólveig Anna
Jónsdóttir á fiðlu og
píanó.
Meðal gesta i Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar á sunnudaginn mátti sjá frú Halldóru
Eldjárn, móóur Þórarins, sem var fjarri góöu
gamni.
Tvær plötur í platínu
EGILL A BLAUM NOTUM
Hljómsveitin Kentár
efndi á dögunum til
jólablúskvölds á Borg-
inni. Sértil fulltingis
höfdu Kentárn\enn
• • fengi’ð fljflagnús f iríksh
• *s<ín, Páima Gunnarsson
-r- og Magnús Guðmunds-
*^3| son, fyrrum söngvara
Þeys. Nokkrir góðir
i gestir létu einnig i sér
* heyra. Meðal annarra
leikarinn og söngvarinn
Egill Ólafsson, sem að
sögn viðstaddra stóð
sig (Éeð mikilli prýði.
velkomin i heiminn !
1. Pattaralegur þessi litli drengur
sem þarna teygir sig og reigir.
Sonur þeirra Báru Svavarsdóttur
og Vilhjálms Harðarsonar, fædd-
ist þann 18. desember, vó 15 og 'h
mörk og mældist 52 sentimetrar.
2. Lítil stúlka, smá og nett með
trýnið brett eins og einhvers stað-
ar segir. Dóttir þeirra Ástriðar
Elinar Jónsdóttur og Agnars Jóns
' Gunnarssonar, fæddist þann 15.
desember, vó 12 merkur og var 50
sentimetrar.
3. Sussubía, hvað maður getur
sofið fast og klemmt aftur litlu
augun sín. Sonur þeirra Katharínu
Snorradóttur og Smára Eggerts-
sonar, fæddur 19.12, vó 3.800
grömm og mældist 53 sentimetr-
ar.
4. Svo er lika hægt að vera hinn
hressasti, gleiðbrosandi og kátur.
Þessi drengur var þaö a.m.k. Son-
ur þeirra Elísabetar Haraldsdóttur
og Guðmundar Hanssonar, fædd-
ur 15. þessa mánaðar, vó 15 merk-
ur og mældist 51 sentimetri.
5. Enn einn strákurinn að þessu
sinni. Reynirað segja tutti frutti ef
að likum lætur. Sonur þeirra Bryn-
disar Guðmundsdóttur og Árna
Sigfússonar, fæddur 18.12, vó 16
og Vi mörk og mældist 53 senti-
metrar.