Pressan


Pressan - 22.12.1988, Qupperneq 7

Pressan - 22.12.1988, Qupperneq 7
 k« arjr« mw r-CW'### q.wmrlF*&**'<*<*rJf JtWJt.'H 'JT3 ? "MyPJT'&MMJi.3f n^k m i > n^t» ^»tTn:iimvoff)i«w ygjaoraurejzjtajraa H?«3rm»».t.tt»xmxo Rúnar Þórisson, hálfnaður með lokapróf í klass- ískum gítarleik. Hugurinn stefnir til náms erlendis Rúnar Þórisson er léttur á brún þessa dagana. Ný- lokið er fyrri tónleikum hans af tvennum til lokaprófs í klassískum gítarleik. Hann sér fyrir endann á sjö ára striti. Rúnar er sá hinn sami og hefur ieikiö með hljómsveitinni Grafík síöustu ár, — sjö ár til að hafa það nákvæmt. Hann hóf gítarnámið samaárog hljómsveitin varstofn- uð. „Ég hafði um tvennt að velja þá. Annaðhvort að hætta alveg tónlist eða gera eitthvað róttækt í málinu," segir Rúnar. „Mér fannst ég staðnaður og það gaf mér ekkert að spila sífellt mis- skemmtilega danstónlist á böll- um.“ Rúnar vatt sér'sem sé í Tón- skóla Sigursveins, innritaði sig í klassískt gítarnám og hefur verið þar undir handleiðslu Símonar H. ívarssonar. Hann lauk sem sagt einleikstónleikum sínum á dögun- um og í febrúar heldur hann aðra tónleika. Þá með litilli sinfónískri hljómsveit. Og hvað bíður svo að lokaprófinu loknu? „Það verður bara að ráðast,“ svarar Rúnar. „Ég lifi og hrærist í tónlist svo að ég er áreiðanlega á réttri hillu í lífinu. Ég innritaðist í þjóðfélagsfræði í háskólanum á sínum tíma, þegar ég var hvað mest á krossgötum um hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur í líf- inu. Það toguðust því eiginlega á um mig þrír pólar — Grafík, þjóðfélagsfræðin og klassíska gít- arnámið. Það sigraði að lokum. Eftir prófið fæ ég vonandi eitt- hvað að gera við lifandi tónlistar- flutning. Kennsla kemur til greina og svo langar mig náttúrlega að fara utan til framhaldsnáms. Það má læra mikið til viðbótar." En skyldi þá ferill hljómsveitar- innar Grafíkur vera endanlega á enda með prófi Rúnars? Hann kvað svo ekki vera. „Grafík er ekki fyrirbæri sem h'ættir endilega að vera til. Við Rafn Jónsson trommuleikari höf- um verið í tónlistarlegu fóst- bræðralagi lengi auk þess að vera góðir vinir. Meðan okkur báða langar til að gera eitthvað saman er fyrirbærið Grafík ekki dautt. Á þessu stigi er ómögulegt að segja hvað verður. Kannski byrjum við á plötu í vor, kannski síðar. í öllu falli hugsum við okkur ekki tii hreyfings nema við höfum áður fengið útgefanda og tryggingu fyrir kaupi fyrir hljóðversvinn- una.“ Þótt klassískur gítar og raf- magnsgítar teljist báðir til sömu ættar eru þeir þó fremur fjar- skyldir. Rúnar var spurður hvort menn yrðu afhuga rafmagnsgít- arnum við að leggja lag sitt við þann klassíska. „Mjög margir hafa orðið það. En að mínu áliti þarf það ekki að gerast. Klassískur gítar er ekkert æðri en rafmagnsgítar. Mér þykir gaman að fást jöfnum höndum Rúnar Þórisson eftir einleikstón- leika sina i Tónskóla Sigursveins við báða. Og námið hefur tví- mælalaust hjálpað mér í poppinu. Námið krefst stöðugs æfingatíma og því er ég alltaf i þjálfun. Auk þess kynnir hún rnanni alls kyns tónlist. Allt frá renaissance til nú- tímaverka. Því hlýtur svona nám að fjörga imyndunaraflið. Bæði þessi fornt hafa sína kosti og ókosti,“ heldur Rúnar álram. „I klassíkinni er minna frelsi og nieiri agi. Poppið býður hins veg- ar upp á afar óreglulegan vinnu- tíma en um leið meiri Irumsköpun en klassíkin. Þannig vegur hvort annað upp að mínu mati.“ Rúnar Þórisson er annar tveggja nemenda sem ljúka brott- fararprófi i klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins á þess- um vetri. Þar að auki stunda fjór- ir til fimm til viðbótar nám í fram- haldsdeild um þessar mundir. Það virðist því vera á leiðinni myndar- leg viðbót við þá fimmtán til tuttugu sem hafa lokið nánti í þessari ómþýðu deild tónlistar- innar. á IPRESSUNNIIHÆSTU VIKU Hverju spáir Amy Engilberts fyrir árið 1989? Þctd er óþarfi að kynna Amy Engi/berts fvrir /es- enciinn PRESS UNNA R, því vikn/ega streyma d ritstjórn b/adsins tugir /jósrita qf /ófnm, sem /utn er bedin að /esa úr. Lófarnir sk/þfa sem sagt mörgttm hunc/ritðum d síðast/iðnum fjórum mánuðum. En Amy kann f/eira fyrir sér en að /esa úr /óf- utn. Hún befur /agf stund ú stjörnuspeki um úra- tugaskeið og enn fú /es- endur PRESSUNNAR að njóta góðs af I nœsta tö/ub/aði birtum við nefni/ega spú fyrir /and og þjóð, ríkisstjórn og raunar heiminn a//an, sem Amy Engi/berts hef- ur unnið fyrir okkur. I spúnni kemurfram ýmis/egt tnjög athyg/is- vert — svo ekki sé meira Amy Engilberls spáir i árið 1989 i næsta tölubladi Pressunnar. sagt. Þar mú t.d. nefna breytingar í heimi stjórn- mú/anna, viðskipta/ífi og útf/utningsat vinnu vegum. Bœði góðar fréttir og ntiður góðat; jafnt fyrír rúðamettn þjóðarinnar og okkur hin. En meit u segj- uttt við ekki fyrr en í nœsta tö/ub/aði PRESS- UNNAR, fimmtudaginn 29. desentber! SKÍÐAÚTSALA OG NÝ SPORTVÖRUDEILD Á útsölunni bjóðum við: DYNASTAR — Vönduö skíöi fyrir alla. TRAPPEUR skíöaskó. í sportvörudeildinni okkar bjóöum viö m.a. NIKE sportfatnaö og skó. Vetrarfatnað frá BLUE-7, sem aðeins er seldur hjá okkur. Sérstakt tilboðsverö er á ýmsum vörum frá Seglagerðinni Ægi, eins og t.d. tjöldum, bakpokum, svefnpokum, borðum, stólum, hengirúmum o.fl. TILVALIÐ TIL JÓLAGJAFA. PARADISO fellihýsiö, með sérhannaöri grind fyrir íslenskar aö- stæöur, til sýnis og sölu. VANDAÐAR VÖRUR Á GÓÐU VERÐI — SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Tökum notaöa og nýja snjósleða í umboðssölu. Afgreiöslutími í desember: Opið virka daga frá kl. 09:00 til 18:00, föstudaga frá kl. 09:00 til 19:00, Þorláksmessu frá kl. 09:00 til 23:00. Ferðamarkaðurinn Bíldshöfða 12 sömu götu og bifreiðaeftirlitið sími 674100 VIÐ ERUM ALLTAF I LEIÐINNI

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.