Pressan - 22.12.1988, Page 21

Pressan - 22.12.1988, Page 21
Fimmtudagur 22. desember 1988 21 sjúkdómar og fólk Vésteinn Vaxtarverkir og aðrir verkir Það er margt sem breytist á langri ævi í líkama okkar á ferðalaginu frá vöggu til grafar. Börn vaxa og þroskast og fullorðnir eldast og lík- aminn hrörnar eftir því sem árin líða. Það er ákaflega mismunandi hversu harðfara öldrunin er og oft er erfitt að greina á milli sjúkdóma og eðlilegrar ellihrörnunar. Þegar ég var lítill voru allir verkir í útlim- um kallaðir vaxtarverkir og taldir eðlilegur fylgifiskur þeirra breyt- inga sem líkaminn væri að ganga í gegnum. Á sama hátt' er margt af því sem fullorðið fólk kvartar yfir einkenni þess að aldur er að færast yfir líffærin og starfhæfni þeirra ekki eins góð og áður var. Læknar deila oft um það hvað sé eðlilegt og hvað sé sjúklegt ástand í þessum lif- færum og hvað þurfi meðferðar við. EUihrörnun getur valdið ýmiss konar erfiðleikum sem læknar þurfa að taka afstöðu til. Breytilegur blöðruhálskirtill Eitt þeirra líffæra sem breytast í tímans rás er blöðruhálskirtillinn. Blöðruhálskirtillinn er lítili kirtill sem liggur undir þvagblöðrunni í karlmönnum. Þvagrásin liggur frá blöðrunni, gegnum þennan kirtil og fram í liminn. Blöðruhálskirtillinn framleiðir mjólkurlitan vökva sem blandast sæðinu í sáðláti. Ekki er vitað hvert er hlutverk þess vökva sem blöðruhálskirtillinn framleiðir, en talið er að hann hafi þýðingu hvað varðar hreyfanleika sáðfrum- anna þegar upp í leggöngin er kom- ið. Blöðruhálskirtillinn er ákaflega Iítill í ungum drengjum en fer að stækka þegar þeir verða kynþroska vegna karlkynshormónsins. Eftir að kynþroska er náð hættir kirtill- inn að stækka. Þegar menn verða tæplega fimmtugir getur það gerst, að kirtillinn byrji aftur að stækka. Stækkun á blöðruhálskirtli er býsna algeng meðal miðaldra og eldri karlmanna og getur valdið vandamálum vegna þess að þvag- og blöðruhálskirtillinn ÓTTAR GUÐMUNDSSON LÆKNIR rásin liggur í gegnum kirtilinn. Þá getur kirtilstækkunin valdið þrengslum á þvagrásinni og ein- staklingurinn fær einkenni sem kölluð eru prostatismi. Sextíu og tveggja ára ekkill Vésteinn B. var 62 ára gamall maður sem stundum kom til mín á stofuna vegna ýmissa umgangs- pesta og félagslegra vandkvæða. Vésteinn var ekkill og hafði verið á örorku um nokkurra ára skeið vegna bakverkja og slitgiktar í mjöðmum. Hann átti 2 dætur sem báðar voru búsettar í Ameríku og son sem var í siglingum á norsku kaupfari. Eftir veikindi og dauða eiginkonunnar hafði Vésteinn farið að drekka mikið. Hann kom oft til að ræða alla harmsögu sína og lykt- aði stundum af súrri gamalli drykkju. Einu sinni sem oftar kom Vésteinn til mín á stofuna til að spjalla um bakverkina sína og fá lyfseðil upp á giktarlyf. Hann ræddi lítillega um dætur sínar og bölvaði því að þær skyldu báðar hafa sest að í Ameríku í stað þess að vera hérna heima. Hann minntist ekki á soninn, enda talaði hann aldrei um hann. Þeim hafði sinnast mikið feðgunum þegar kona Vésteins dó vegna einhverra muna úr búinu sem strákur vildi fá en Vésteinn neitaði af láta af hendi. Hann hafði þá farið í fússi. Vé- steinn var í Ijósgráum jakkafötum og vínrauðri peysu með brunagati. Undir peysunni var hann í skítugri, gulleitri skyrtu með trosnuðum flibba. Það var gulur þlettur fram- an á buxnaklaufinni. — Skoðaðu aðeins á mér mjöðmina, sagði Vé- steinn og ég bað hann að fara úr buxunum og leggjast upp á skoðun- arbekkinn. Hann var í gráleitum, illa lyktandi síðum nærbuxum og framan á þeim var stór, heiðgulur þvagblettur. — Gengur þér illa að halda þvaginu? spurði ég. — Nei, nei, svaraði Vésteinn, ég er bara svo mikill klaufi með þvottavélina og þvæ sjaldan nærfötin mín. Ég vissi heldur ekki, að þú mundir biðja mig að fara úr buxunum. Ef ég hefði vitað það hefði ég nú farið í hreinar nærbuxur, það máttu bóka og fyrirgefðu. Hvernig gengur að pissa? — Segðu mér hvernig þér gengur að pissa, sagði ég. Hann virtist þvingaður en smátt og smátt kom sjúkrasagan. Síðustu árin hafði þetta versnað mikið, þvagbunan var orðin mjög slöpp þegar hann kast- aði af sér vatni, hann átti erfitt með að byrja að pissa, hann átti erfitt með að hætta, það virtust enda- laust koma smádropar, og honum fannst alltaf vera smáþvagleki. Hann þurfti auk þess að pissa mun oftar en áður og stundum þurfti hann að vakna upp nokkrum sinn- um á nóttu og fara fram. — Það sem er að er að blööruhálskirtillinn er orðinn of stór, sagði ég, þegar hann verður svona stór getur stífl- ast fyrir þvagrennslið um þvagrás- ina gegnum kirtilinn. Þessi þrengsli gera það að verkum, að þú tæmir aldrei blöðruna almennilega þegar þú pissar. Svona stækkun getur auk þess leitt til þess að þú fáir algjöra þvagteppu. — Já, það hef ég fengið einu sinni, sagði Vésteinn, það var úti í Ameríku, þegar ég var þar að heimsækja dætur mínar. Þá vorum við að drekka ansi hressilega eitt kvöldið og ég bara gat ekki pissað þegar ég reyndi. Þau urðu að fara með mig á spítala og tappa af mér. — Svo þú vissir um blöðruhálskirt- ilinn allan timann, sagði ég. — Vissi og vissi ekki, sagði Vé- steinn, ég verð bara að fara að þvo nærfötin mín oftar. — Ekki læknar það neitt, sagði ég. Ég þreifaði upp í endaþarminn á Vésteini og fann fyrir kirtlinum og hann hafði greinilega stækkað, en var mjúkur og eðlilegur viðkomu og engar grunsemdir um illkynja vöxt. Ég vildi senda hann til þvagfærasér- fræðings sem ég þekkti, til að fá mat hans á því sem gera þyrfti, en Vésteinn tók það ekki í mál. Ég skrifaði út umbeðin giktarlyf og við kvöddumst með virktum. Aðgerðir Tveimur mánuðum seinna koin Vésteinn til mín enn á ný og vildi nú gera eitthvað i þessum þvagfæra- málum sem hann sagði að væru verri en nokkru sinni. Ég skoðaði hann aftur og þvagbletturinn í nær- buxunum var stærri en áður og við þreifingu virtist kirtillinn eitthvað hafa stækkað síðan ég skoðaði Vé- stein síðast. Ég vísaði honum til þvagfærasérfræðings, sem gerði á honum aðgerð eftir að hafa rann- sakað hann. Aðgerðin felst i því að læknirinn fer með sérstakt skurð- tæki gegnum þvagrásina og tálgar út kirtilinn í mænudeyfingu. Ein- kennin hurfu að mestu við þessa aðgerð og Vésteinn var hinn glað- asti. Honum fannst tilveran verða allt önnur þegar hann þurfti ekki að fara á klósettið til að pissa oft á nóttu. Að öðru leyti varð engin breyting á tilverunni. Hann hélt áfram að drekka mikið og kom stundum til mín og ræddi sín vandamál; dæturnar í Ameríku, dauða konunnar*»g allan einmana- leikann. Einti sinni sem oftar kom liann og ég sá strax að hann var með þvagblett framan á buxunum sín- um. — Er þetta byrjað aftur? spurði ég og benti á blettinn. — Nei, nei sagði Vésteinn og hló, þetta var nú bara þannig, að ég sofnaði heldur fast á síðasta fylleríi og missti smáþvag í buxurnar, en það gerir ekkert til, þetta næst úr í góðri hreinsun, held ég. — Það er fjandalegt að geta ekki skorið úr þér drykkjuskapinn með svona tóli eins og þvagfæralæknirinn var með, sagði ég. — Láttu nú ekki svona, sagði Vésteinn, manstu ekki eftir því sem stendur í íslands- klukkunni? íslendingar eiga sér að- eins einn sannleik og það er brenni- vínið. Ég horfði spekingslega á þvagblettinn gula og hugsaði með mér: — Ja, hvílíkur sannleikur. Jólagjöf er ekki desemberbónus Hætta á að dýru jólagjafirnar veroi skattlagðar „Ef þið ætlið að gefa starfsfólki ykkar stórar jólagjafir hafið þá fyrst samband við endurskoðanda fyrirtækisins og ráðgist um það við hann hvernig andvirðinu verði best hagrætt í bókhaldinu." Þessi er ráðlegging lögfræðings sem Pressan ræddi við um skatt- skyldu jólagjafa. Fyrir augum skattrannsakenda eru jólagjafir nefnilega eitt og desemberbónusar annað. Ef andvirði gjafarinnar fer upp fyrir það sem eðlilegt getur tal- ist, tvö til þrjú þúsund krónur, er bónusmarkinu náð. Forstjórinn sem ætlar að gefa starfsfólkinu sínu 25.000 krónur á aðfangadag fyrir vel unnin störf á árinu er því að bjóða hættunni heim. Allt eins líklegt að starfsfólk- ið þurfi að greiða aukaskatt af „gjöfinni" sinni síðar. Þá er rétt að benda fyrirtækiseigandanum á það að hundrað og fimmtíu þúsund króna pelsinn sem símastúlkan, andlit fyrirtækisins út á við, fær fyrir vinnu sína á árinu þarf að vera greiddur fyrir eigið fé. Annars kann endurskoðandinn honum engar þakkir þegar kemur að því að gera upp árið. pressupennar Hugsun, skynjun, minning Nú skulum við fara í leikhús. Þetta er ekkert venjulegt leikhús. í salnum eru þrjú svið. Á þeim öll- um er verið að sýna sama leikritið — bara með mismunandi hraða og í mismunandi túlkun. Á miðsviðinu er sýnt með eðlileg- um hraða og með eðlilegu lát- bragði. A sviðinu til vinstri eru allar hreyfingar ákaflega hraðar og lín- um sleppt eða þær styttar. Einungis meginatriðin koma fram. A sviðinu til hægri gengur allt voðalega hægt fyrir sig. Það er eins og leikararnir hreyfi sig neðansjáv- ar eða í þykku sírópi. Látbragð er allt mjög ítarlegt og merkingar- þrungið. Sömu línurnar eru stund- um endurteknar með örlíti$ breyttu orðalagi eða áherslum; stundum er jafnvel sama atriðið leikið aftur og aftur, og breytist í hvert sinn eftir einhverjum dularfullum reglum. Svo vel er leikritið samið og leik- ararnir æfðir, að þegar leikari fer út af einu sviði getur hann strax geng- ið inn í hlutverk á því næsta. Nú verðum við líklega hálfrugluð fyrst í stað af að sjá svo óvenjulegt verk og undarlega uppfærslu. Til að byrja með vitum við ekki al- mennilega hvernig við eigum að skoða leikritið. Hvenær eigum við að fylgjast með á þessu sviði, og hvenær á hinum? En leikhúsunnendur hafa flestir ótrúlega aðlögunarhæfileika og sjálfsagt finnum við öll fljótlega einhverja aðferð til að geta fylgst með leikritinu og notið þess til fullnustu. Sjálfum finnst mér þægilegast að skoða fyrst sviðið til vinstri til að fá örlitla hugmynd um söguþráðinn. Síðan lít ég á miðsviðið og fylgist með því mestallan tímann — alltaf nema þegar ég sný mér að sviðinu til hægri til að skoða eitthvað betur eða i meiri smáatriðum. En nú gerist það undarlega: Leik- ritið endar á öllum sviðum sam- tímis, alls staðar á mismunandi hátt, og alls staðar mjög rökrænt miðað við það sem á undan er gengið. Sviðið til vinstri heitir Hugsun. Þar er sýnt það sem ætti að vera og það sem ætti að verða. Sviðið í miðjunni heitir Skynjun. Þar er sýnt það sem virðist vera. Sviðið til hægri heitir Minning. Þar er sýnt það sem var og það sem hefði getað orðið. Segja mætti um hvaða svið sem er, að þar gerðist það sem er í raun og veru. En það er undir okkur komið hvernig við berum okkur að i því máli. Leikritið heitir Vitund. Það sam- anstendur ekki bara af því sem sýnt er á sviðunum þremur, heldur felst það miklu fremur í muninum á þeim, mótsetningunni milli þeirra. Vitund felst ekki í rökhugsun einni saman, ekki í tilfinningum eða siðferðiskennd, skynjun eða úr- vinnslu skynjunar, skammtíma- eða langtímaminni. Hún felst ekki einu sinni i öllu þessu til samans. VitunH er jaðarfyrirbæri. Vitund verður til þegar allt þetta stangast á, þegar skynsemin boðar annað en tilfinningarnar og tvær minningar bítast um hvor hafi rétt fyrir sér. Tölva sem er forrituð á fullkom- lega rökréttan hátt gæti þess vegna aldrei öðlast vitund, þar eð hún hef- ur engar mótsagnir, enga innri bar- áttu sem vitundin gæti sprottið af og nærst á. Á svipaðan hátt verður áhorf- andinn í leikhúsinu ekki meðvitað- ur um leikritið Vitund sem heild nema hann geri sér grein fyrir þeim mun, sem er á sviðunum þremur, og sjái mótsetningarnar á milli þeirra. Hann verður líka að gera sér Ijóst að endirinn verður ólíkur á hverju sviði um sig, að niðurstöðurnar munu stangast á. Leikhúsið? Ó, gleymdi ég að nefna það? Það heitir Heimurinn, en sumir kalla það Lífið. ■

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.